Morgunblaðið - 06.11.2003, Qupperneq 10

Morgunblaðið - 06.11.2003, Qupperneq 10
FRÉTTIR 10 FIMMTUDAGUR 6. NÓVEMBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ „RÉTTLÆTI án landamæra“ er yf- irskrift landsfundar Vinstrihreyfing- arinnar – græns framboðs, VG, sem haldinn verður 7.–9. nóvember nk. í Hveragerði. Steingrímur J. Sigfús- son, formaður VG, kynnti dagskrá fundarins í gær ásamt Svanhildi Kaaber, varaformanni VG, og Krist- ínu Halldórsdóttur, framkvæmda- stjóra VG. Steingrímur sagði að yf- irskrift fundarins vísaði bæði út á við og inn á við. „Við viljum ekki nein landamæri í vegi réttlætisins hér inn- anlands og í okkar samfélagi, þar sem allir eiga að hafa sömu tækifærin. Það sama gildir út á við í hinum stóra heimi.“ Yfirskrift fundarins vísar ekki síst til hnattvæðingar síðustu ára og verður fjallað um áhrif og afleiðingar hnattvæðingar. Gestir landsfundarins verða þeir Stellan Hermansson, framkvæmda- stjóri Nordic Left Green-hópsins á Evrópuþinginu, og Tórbjörn Jacob- sen frá Færeyjum sem kemur á fund- inn sem fulltrúi systurflokka VG í vestnorrænu löndunum, þ.e. þjóð- veldisflokksins færeyska og Inuit Atagatigit í Grænlandi. Stellan mun flytja erindi um ýmsar hliðar Evrópu- mála. Landsfundurinn hefst kl. 17.30 með setningarathöfn á föstudag og á laug- ardag verða m.a. pallborðsumræður og vinna í málefnahópum. Þá er ljóst að breytingar verða gerðar á forystu flokksins, þar sem Svanhildur Kaaber gefur ekki kost á sér í embætti vara- formanns og Kristín Halldórsdóttir lætur af embætti ritara, þar sem hún gegnir nú störfum sem framkvæmda- stjóri flokksins. Katrín Jakobsdóttir, formaður Ungra vinstri grænna, hef- ur gefið kost á sér í varaformanns- embættið en ekki er kunnugt um fleiri frambjóðendur í þessi embætti. Landsfundur VG 7.– 9. nóvember „Réttlæti án landamæra“ Morgunblaðið/Ásdís Svanhildur Kaaber, Steingrímur J. Sigfússon og Kristín Halldórsdóttir kynntu dagskrá landsfundar VG sem verður um næstu helgi. HALLDÓR Ásgrímsson utanríkis- ráðherra sagði á Alþingi í gær að bæta þyrfti starfsaðferðir öryggis- ráðs Sameinuðu þjóðanna, SÞ. Hann sagði að það gengi ekki að þjóðir hefðu jafn ríkt neitunarvald og raun bæri vitni. Vísaði hann m.a. til þess að Bandaríkin hefðu aftur og aftur beitt neitunarvaldi í öryggisráðinu vegna tillagna um Ísrael og Palestínu. Þessi ummæli féllu í kjölfar fyrir- spurnar Steingríms J. Sigfússonar, formanns Vinstrihreyfingarinnar -græns framboðs, um afstöðu Hall- dórs til lögmætis innrásar Banda- ríkjamanna og Breta í Írak fyrr á árinu í ljósi þess að engar sannanir hefðu fundist fyrir gereyðingarvopn- um Íraka. Steingrímur sagði að svo virtist sem sú hætta sem umheiminum hefði stafað af þáverandi stjórnvöldum í Írak hefði verið ýkt. Steingrímur spurði einnig hvort ríkisstjórnin hefði hugleitt þann möguleika að draga til baka stuðning sinn við innrásina í Írak og láta taka Ísland af lista yfir þær þjóðir sem studdu stríðið. Þá spurði hann hver væri afstaða ís- lensku ríkisstjórnarinnar til áfram- haldandi bandarískra yfirráða í Írak. Ástæðurnar margþættar Utanríkisráðherra sagði í fyrstu að það hefði verið pólitísk ákvörðun að styðja hernað Bandaríkjamanna og Breta í Írak en sú ákvörðun hefði einnig byggst á grundvelli alþjóða- laga. „Að vandlega íhuguðu máli tók ríkisstjórnin þá ákvörðun að lýsa yfir stuðningi við innrás Bandaríkjanna og Bretlands í Írak. Ákvörðunin er fyrst og fremst stuðningur við það sjónarmið að Sameinuðu þjóðirnar urðu að fylgja eftir ákvörðunum sín- um um afvopnun Íraks.“ Ráðherra sagði enn fremur að ástæður hern- aðaraðgerða í Írak hefðu verið marg- þættar og að þær hefðu ekki ein- göngu snúist um spurninguna um gereyðingarvopn Íraka. „Þótt engin gereyðingarvopn hafi enn fundist í Írak þá hlýddu Írakar ekki ályktun- um Sameinuðu þjóðanna um afvopn- un.“ Bætti hann því við að Írakar hefðu gert vopnaeftirlitsmönnum SÞ og Alþjóðakjarnorkumálastofnunar eins erfitt fyrir og kostur var. „Ís- lensk stjórnvöld telja það alvarlegt mál þegar ályktunum SÞ er ekki fylgt,“ sagði hann. „Í ljósi þess sem ég hef sagt er af- staða íslenskra stjórnvalda óbreytt. Ekki er heldur ástæða til þess að óska eftir því að Ísland verði tekið af þeim lista sem nefndur hefur verið enda væri það sérkennileg sögufölsun.“ Hann sagði einnig að það skipti miklu máli að Bandaríkjamönnum og öðrum samstarfsríkjum í Írak takist sem fyrst að tryggja öryggi og stöð- ugleika í Írak. Það væri forsenda þess að endurreisnarstarf gæti hafist í Írak og að þjóðin geti með lýðræð- islegum hætti kosið sér nýja ríkis- stjórn. Síðar í umræðunni sagði ráðherra að það væri vitað mál að gereyðing- arvopn hefðu verið til staðar í Írak. „Það er vitað mál að þau voru til. Það liggur ljóst fyrir. Það er hins vegar ekki vitað hvað varð um þau,“ sagði hann. Utanríkisráðherra ræddi starfsaðferðir Öryggisráðs SÞ Þjóðir hafi allt of ríkt neitunarvald hjá SÞ Afstaða íslenskra stjórnvalda óbreytt í Íraksmálinu Morgunblaðið/Ásdís Þingmennirnir Guðni Hjörleifsson og Magnús Stefánsson á þingfundi. ALLS 184 manns eru á við- bragðslista íslensku frið- argæslunnar, að því er fram kemur í skriflegu svari Hall- dórs Ásgrímssonar utanrík- isráðherra við fyrirspurn Þórunnar Sveinbjarnardóttur, þingmanns Samfylking- arinnar. Svarinu hefur verið dreift á Alþingi. Af þessum 184 er 21 að störfum. Konur á viðbragðs- listanum eru 62 eða 34% og karlar eru 122 eða 66%. Það sem af er þessu ári hefur 41 verið sendur til starfa erlend- is fyrir íslensku friðargæsl- una. Alls voru 36 sendir á vettvang í fyrra og 17 árið 2001. Þá kemur fram í svarinu að umsækjendur um friðargæslustörf skuli hafa háskólamenntun eða hafa með öðrum hætti aflað sér sérhæfðrar þekkingar og reynslu. Launakostnaður 172 milljónir Þá kemur fram í svarinu að áætlaður kostnaður við ís- lensku friðargæsluna í ár eru 264,7 milljónir króna. Þar af er launakostnaður 172 millj- ónir króna. „Samkvæmt fjár- lagafrumvarpi verða framlög til friðargæslu 329,8 milljónir kr. árið 2004. Gert er ráð fyr- ir að framlög fari hækkandi á næstu árum og stefnt að því að þau verði 550 milljónir króna árið 2006 og að frið- argæsluliðar á vettvangi verði þá 50,“ segir í svarinu. 184 á við- bragðslista friðar- gæslunnar ÁSBJÖRN Gíslason, forstjóri Sam- skipa erlendis, segir útlit fyrir að velta fyrirtækisins fyrir utan Ís- land verði tæpir 10 milljarðar króna á þessu ári en hafi verið um 6,5 milljarðar í fyrra. Félagið hafi verið að auka umsvifin sem að hluta til mun falla inn á þetta rekstrarár en að fullu árið 2004. Vegna þessa stefnir í að veltan erlendis verði 12–14 milljarðar króna á næsta ári. Ásbjörn segir veltutölur Sam- skipa, sem höfð voru eftir Ingi- mundi Sigurpálssyni, forstjóra Eimskipafélagsins, í Morgun- blaðinu í gær, réttar fyrir árið 2002. Hins vegar sýni áætlanir fyr- ir þetta og næsta ár stóraukna veltu. Þrátt fyrir það hafi ekki þurft að fjölga starfsmönnum mik- ið. Sem dæmi um aukin umsvif segir Ásbjörn að keyptur hafi verið helmings hlutur í T&E ESCO í Eistlandi þar sem Samskip taki þátt í rekstri gámasiglingakerfis með fjórum gámaskipum. Þá hafi rekstur á Northern Continental Lines, sem sé með tvö gámaskip, verið tekinn yfir. Alls hafi gáma- skipum Samskipa í Eystrasalti fjölgað um sjö. Jafnframt hafi verið opnaðar skrifstofur í Kóreu, Kína, Larvik í Noregi og ný flugskrif- stofa á Schiphol-flugvelli í Hollandi. Á þessu ári verður rúmlega 50% af heildarveltu Samskipa erlendis segir Ásbjörn og yfir 60% árið 2004. Mikil veltu- aukning Samskipa erlendis MIKIÐ hefur verið um særðar gæsir víðs vegar um landið en að sögn Jó- hanns Gunnarssonar, bónda að Hraunbrún við Víkingavatn, virðist gæta ákveðins agaleysis hjá gæsa- skyttum. Jóhann segir að gæsa- skytturnar noti haglabyssur með mun fleiri skotum en leyfilegt er. „Menn mega vera með þrjú skot en fara ekkert eftir þeim reglum. Það er skotið nánast á hverju einasta kvöldi. Þeir liggja fyrir gæsunum þar sem er sandur því þær þurfa að komast í sand vegna meltingar. Þar er hægt að fá gríðarlega mörg tæki- færi til að skjóta en svo finna menn ekki gæsirnar í myrkrinu. Að auki skjóta þeir af allt of löngu færi.“ Að sögn Jóhanns þvælast særðar gæsir um og verða svo refum að bráð eða hreinlega veslast upp og drep- ast. „Það er skelfilegt að búa við það að horfa upp á þetta allt haustið,“ segir Jóhann og bætir við að veiði- menn særi mun fleiri gæsir en þeir drepi. „Ég held að kennslan þurfi að vera miklu meiri áður en menn fara út í svona til þess að þetta geti verið svo viðunandi sé,“ segir Jóhann en hann vonast til þess að bændur sem leigja tún til skyttna hafi frumkvæði að því að banna veiðar að kvöldlagi. Örlar á agaleysi hjá gæsaskyttum LANDSSÖFNUN fermingarbarna fór frá síðastliðinn þriðjudag þegar þau gengu í hús fyrir Hjálparstarf kirkjunnar. Þetta var í fimmta sinn sem fermingarbörn á Íslandi safna peningum til verkefna Hjálparstarfsins í Afríku. Börnunum var boðið að fá í heimsókn ungt fólk frá Pókot í Kenýa, þau Irene Doomo og Madanyang Salomon. Þau fræddu börnin um um- skurð, stöðu kvenna, venjur við giftingar, veiðar og daglegt líf í Pókot. Í fyrra söfnuðust 4,7 milljónir króna. Söfnunin er orðin mikilvægur hluti í fjáröflun til verkefna Hjálparstarfs kirkjunnar. Fermingarbörn söfnuðu fé

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.