Morgunblaðið - 13.11.2003, Side 27
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 13. NÓVEMBER 2003 27
Á KJARVALSSTÖÐUM verður í
dag, fimmtudag kl. 17, opnuð
sýning á verkum eftir nemendur
Listasmiðju Lóu. Á sýningunni eru
myndir eftir Ingunni Birtu
Hinriksdóttur, Inga Hrafn
Stefánsson, Elisabet Yuka
Takefusa og Hlyn Steinarsson.
Myndverkin eru gerð með frjálsri
aðferð og unnin með blýanti, bleki,
krít og akríl- og pastellitum.
Lóa Guðjónsdóttir hóf að kenna
ungum þroskaheftum einstakling-
um myndlist árið 1997.
Þetta er fimmta og næstsíðasta
sýningin í röð myndlistarsýninga
listahátíðarinnar List án landa-
mæra á Kjarvalsstöðum, Listasafni
Reykjavíkur. Sýningin stendur til
sunnudagsins 23. nóvember.
Listasmiðja Lóu
á Kjarvalsstöðum
„ÞAÐ er ekki óal-
gengt að skólamenn
skrifi bækur,“ segir
Ragnar Gíslason,
skólastjóri í Garðabæ,
þegar blaðamaður
spyr hann hvort ekki
sé erfitt að samræma
starf skólastjórans og
rithöfundarins. Tvær
bækur eftir Ragnar
eru nýútkomnar hjá
forlaginu Sölku, ung-
lingabækurnar Setu-
liðið og Tara. „Það er
eiginlega ekki hægt
að vera skólastjóri í
fullu starfi öðruvísi en
að eiga sér önnur hugðarefni
með, – og ég er ekki í golfi.
Skólastjórastarfið og sköpunin
fara ágætlega saman. Ég skrifa í
mínum frístundum.“
Ragnar hefur unnið mikið með
unglingum gegnum tíðina og seg-
ir þá skemmtilegan aldurshóp.
„Ég er að reyna að skrifa efni
sem unglingar vilja lesa, og mér
hefur ekki fundist vanþörf á því
að fleiri bættust í þann hóp sem
vilja skrifa bækur fyrir þá. Sög-
urnar gerast í íslensku umhverfi,
– mér finnst mikilvægt að sög-
urnar tengist umhverfi þeirra og
hugarheimi, en sögusviðið er
Reykjavíkursvæðið.“
Ragnar segir að unglingar hafi
enn áhuga á lestri, þótt afþreying
af öðru tagi sæki á úr öllum áttum.
„Garðaskóli er stór
unglingaskóli, og
bókasafnsfræðing-
arnir hér pöntuðu 25
eintök af hvorri bók.
Krakkarnir eru að
gefa sig á tal við
skólastjórann og
þakka fyrir bæk-
urnar, og ég lít á það
sem mína bestu
gagnrýni. Ég fékk
reyndar allmarga
unglinga til að lesa
handritin áður en ég
þorði að fara með
bækurnar til útgef-
enda. Viðbrögð ung-
linganna urðu til þess að ég gerði
það með ánægju. Bækurnar
staldra ekkert við á safninu, og ég
er ánægður með það.“
Ferðast í tíma í fantasíunni
Bækur Ragnars eru báðar
spennusögur, með svolítilli fant-
asíu, einkum Tara. „Það hafa allir
gott af því að auka ímyndunar-
aflið og sköpunargleðina og
ferðast aðeins í huganum. Harry
Potter-bækurnar eru dæmi um
fantasíur. Bækur mínar eru að-
eins jarðbundnari, en samt er
fantasía í þeim. Í skáldskapnum
verður maður að gefa sér nýjan
raunveruleika. Í Setuliðinu er far-
ið aftur í tímann, til atburða sem
gætu hafa gerst, en í Töru fer ég
fram í tímann, til atburða sem
kunna að geta gerst. Það er fant-
asía.“
Ragnar segir að unglingar hafi
sjálfir mjög gaman af því að setja
hugleiðingar sínar og sögur á
blað, því hefur hann kynnst vel í
starfi sínu.
Margir unglingar að
föndra við að skrifa
„Þegar ég var skólastjóri í
Foldaskóla vorum við með skáld-
sagnakeppni fyrir nokkrum árum.
Það kom mér á óvart hvað margir
krakkar eru að föndra við að
skrifa; – jafnvel skáldsögur. Það
hafa gefið sig fram við mig
nokkrir unglingar hér í Garða-
skóla sem eru að dunda sér við að
skrifa sögur. Þar kemur tölvueign
til góða. Það er auðveldara fyrir
krakka að koma einhverju á blað
þegar það er svona auðvelt að
laga og breyta. Tölvan er hvetj-
andi að þessu leyti. En auðvitað er
myndmálið að fanga krakkana í
auknum mæli og líklega á lestur
undir högg að sækja miðað við
það sem var fyrir síðustu kyn-
slóðir. En krakkarnir hafa verið
yndislega jákvæðir í minn garð,
og hvatt mig frekar en latt, og
fyrir það er ég þeim þakklátur.“
Í augnablikinu bíða þrír nem-
endur eftir að fá að lesa næstu
handrit Ragnars Gíslasonar, þann-
ig að hver veit nema framhald
verði á skrifunum hjá skólastjór-
anum.
Ragnar Gíslason
Ekki vanþörf á því
að skrifa fyrir unglinga
Ragnar Gíslason sendir frá sér tvær unglingabækur
KAMMERKÓRINN Vox academica
og hljómsveitin Rússibanarnir, ásamt
sópransöngkonunni Sigrúnu Hjálm-
týsdóttur og fiðluleikaranum Sigrúnu
Eðvaldsdóttur, halda tónleika í Sel-
tjarnarneskirkju í kvöld kl. 20. Stjórn-
andi kórsins er Hákon Leifsson.
Hópurinn flytur m.a. tónverkið
Hjörtinn eftir Hróðmar Inga Sig-
urbjörnsson sem hann samdi sér-
staklega fyrir hópinn. Hjörturinn er
tónmynd sjö ljóða Ísaks Harðarsonar
úr nýjustu ljóðabók hans, Hjörturinn
skiptir um dvalarstað.
Auk Hjartarins verður á efnis-
skránni blönduð tónlist, þar á meðal
klezmer-tónlist, íslensk þjóðlög og na-
pólískir söngvar.
Hjörturinn endurfluttur
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Hjörturinn eftir Hróðmar Inga Sigurbjörnsson æfður. Vox academica,
Rússíbanar og Sigrún Hjálmtýsdóttir undir stjórn Hákons Leifssonar.
FIMMTUDAGS-
TILBOÐ
Suðurlandsbraut
Sími 533 3109
Opið
mán.-fös. kl. 12-18
laugardaga kl. 10-16
herraskór — mikið úrval
40% afsláttur
fim. fös. lau.
og
Bílasmáauglýsingar
með mynd
995 kr.
fyrir áskrifendurbílar