Morgunblaðið - 16.11.2003, Blaðsíða 34
LISTIR
34 SUNNUDAGUR 16. NÓVEMBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ
FASTEIGNASALA
HÁTÚNI 6a
SÍMI 512 1212 FAX 512 1213
TJALDANES 9
OPIÐ HÚS Í DAG FRÁ KL. 15-17
Mjög vandað og vel skipulagt 301 fm
tveggja íbúða einbýlishús á tveimur hæð-
um á frábærum stað í Arnarnesinu.
Glæsilegur verðlaunagarður frá 1996. Frá
stofu er hægt að ganga út í sólstofu
með útsýni í átt að Ásahverfinu. Falleg
nýleg gráleyt sprautulökkuð Alnóinnrétt-
ing í eldhúsi, nýlegar borðplötur, háfur,
hellu-borð, ofn, vaskur og blöndunartæki.
Svalir útfrá hjónaherbergi með útsýni. Ca. 50- 60 fm gluggalaust rými á neðri hæð-
inni sem er ekki inn í heildarfermetratölu. Þess má geta að það er ekkert byggt á
móti. Óskað er eftir verðtilboðum í eignina.
Gloria tekur vel á móti væntanlegum kaupendum í dag frá kl. 15-17.
Glæsileg og björt 120 fm íbúð á 2. hæð í
þessu nýstandsetta fjölbýli á góðum stað
miðsvæðis. Massíft parket á gólfum, mjög
vandaðar innréttingar og tæki. Glæsilegt
eldhús og bað. Tvennar svalir, einar sér
og aðrar stórar sameiginlegar. LOFTHÆÐ
3,80 m. Þvottahús og fataherbergi. Tvö
góð svefnherbergi og stór og björt stofa.
Sjón er sögu ríkari.
Áhv. 8,5 millj. Húsbréf, afb. ca. 43 þús á
mán. Verð 21,5 millj.
Ásgerður Birna sýnir eignina í dag Sunnudag
frá kl. 14 - 17.
OPIÐ HÚS SUNNUDAGINN 16. NÓVEMBER
Skúlagata 32-34 - 2. hæð
Borgartúni 22,
105 Reykjavík
Sími 5 900 800
NÝ íslensk heimildarmynd um
Vespertine-tónleikaferðalag Bjark-
ar, sem farið var seinni hluta árs
2001, kom út á dögunum. Myndin
sem nefnist Minuscule (Agnarsmár)
er framleidd og henni dreift af One
Little Indian, útgáfufyrirtæki
Bjarkar, en Ragnheiður Gestsdóttir
leikstýrði myndinni, auk þess sem
hún sá um alla kvikmyndatöku og
klippingu. Spurð hvernig aðkoma
hennar að heimildarmyndinni hafi
verið til komin segir Ragnheiður að
í raun hafi tilviljunin ein ráðið ferð-
inni.
„Þannig var að ég var að klára
mastersnámið mitt í sjónrænni
mannfræði í Goldsmith College í
Lundúnum og kom hingað heim um
mitt sumar 2001 til þess að gera út-
skriftarmyndina mína. Ég var síðan
bara á leið aftur út til þess að klippa
myndina, skrifa ritgerðina og ljúka
náminu formlega þegar ég frétti að
Einar Örn Benediktsson, fyrrum
Sykurmoli, væri að leita að einhverj-
um til að taka myndir á tónleika-
ferðalagi Bjarkar sem var um það
bil að hefjast.
Þar sem ég hafði tekið þónokkuð
af ljósmyndum gegnum tíðina ákvað
ég að hafa samband við Einar Örn,
sem ég þekkti ekkert á þeim tíma-
punkti, til að heyra meira um verk-
efnið. Þá kom í ljós að það var ekki
verið að leita að ljósmyndara, eins
og ég hélt, heldur kvikmyndagerð-
armanni sem gæti skjalfest tón-
leikaferðina á filmu. Þar sem ég var
einmitt nýbúin að læra sjónræna
mannfræði, en hluti námsins felst í
því að læra að búa til heimildar-
myndir, þá bara small þetta allt
saman og ég var ráðin til verksins.
Tveimur vikum síðar mætti ég á
fyrstu Bjarkar-tónleikana mína í
París með tvær kvikmyndatökuvél-
ar og tugi spólna í ferðatöskunni, í
fullkomnu stresskasti að sjálf-
sögðu.“
Að sögn Ragnheiðar var á þessum
tímapunkti ekki búið að ákveða hvað
gera ætti við allt upptekna efnið.
„Eina sem lá ljóst fyrir var að One
Little Indian vildi láta taka upp alla
tónleikana og eiga sem heimild um
ferðina, aðallega vegna þess hversu
einstök tónleikaferðin þótti þar sem
tónleikarnir voru nánast allir haldn-
ir í litlum óperuhúsum sem höfðu
jafnvel aldrei áður hýst annað en
klassíska tónlist.
Auk þess sömdum við Einar Örn
um að ég myndi taka upp skot hér
og þar baksviðs til að hann gæti sett
litlar örmyndir á heimasíðu Bjarkar,
svona til að hafa einhverjar stemn-
ingsmyndir, en aldrei neitt meira en
það. Aftur á móti ræddum við Björk
saman snemma á túrnum um hvaða
stefnu skyldi taka og vorum báðar
spenntar fyrir að leggja í hann með
það fyrir augum að lokaútkoman
yrði heimildarmynd, svo að ég var
allt í einu komin með miklu stærra
og skemmtilegra verkefni í hend-
urnar en ég hafði upphaflega gert
ráð fyrir.“
Heillandi samspil
Til að byrja með segist Ragnheið-
ur hafa tekið talsvert af efni bak-
sviðs og í rútunum til að fanga
stemninguna. „Smátt og smátt fór
ég að velta því fyrir mér hvað mig
langaði raunverulega að gera.
Hvernig mynd vildi ég gera og um
hvað nákvæmlega? Óneitanlega
hafði ég ákveðnar fyrirfram gefnar
hugmyndir um það hvernig svona
tónleikaferðalagsheimildarmynd
ætti að vera. Það er að þær eigi að
sýna stemninguna baksviðs þar sem
allir eru alltaf að skemmta sér og
segja fyndnar sögur og bara al-
mennt að vera voðalega töff. En ég
sá það strax að jafnvel þó ég hefði
viljað það, þá var ekkert hægt að
gera svoleiðis mynd um þessa tón-
leikaferð. Ég fann að ég varð sífellt
forvitnari um tónlistina sjálfa, bæði
hvernig hún varð til og hvaða að-
ferðir Björk væri að nota. Þetta
leiddi til þess að ég fór að taka viðtöl
við allt listafólkið, bæði Björk, Drew
Daniel og Martin Schmidt sem
skipa rafdúettinn Matmos, undra-
barnið Zeenu Parkins á hörpuna og
meðlimi grænlenska stúlknakórs-
ins.“
Aðspurð hvort hún hafi sjálf verið
mikill Bjarkar-aðdáandi fyrir tón-
leikaferðina svarar Ragnheiður því
neitandi. „Mér hafði vissulega alltaf
fundist nokkur laga hennar algjör-
lega stórfengleg og á einhverju
plani sem fá önnur lög ná. Ég hafði
samt aldrei hlustað neitt sérstak-
lega mikið á hana og að sumu leyti
held ég að það hafi verið kostur þeg-
ar ég fór á túrinn, vegna þess að þá
var ég að kynnast einhverju sem ég
þekkti aðeins smávegis en ekki al-
veg út í hörgul.
Það var alveg magnað að fá að
sökkva sér svona gjörsamlega niður
í viðfangsefnið og pælingarnar að
baki tónlistinni og það í svona lang-
an tíma samfleytt. Auk þess var
náttúrlega stórkostlegt að fá raun-
verulegt leyfi til að spyrja fólkið í
kringum sig um hvað eina. Svona
rannsóknarvinna er einmitt ástæða
þess að ég fór upphaflega út í mann-
fræðinámið á sínum tíma. Hins veg-
ar er óhætt að segja að ég hafi orðið
mikill Bjarkar-aðdáandi eftir því
sem á túrinn leið.
Ragnheiður segist smám saman
hafa farið að hlusta öðruvísi á tón-
listina, enda fór hún á tónleika með
Björk tvisvar í viku. „Lögin á Ve-
spertine-plötunni eru svo fíngerð og
hárnákvæm og tilfinningalega bita-
stæð að það getur næstum orðið
óþægilegt. Og vegna þess að ég var
alltaf að heyra þessi lög aftur og aft-
ur fór ég að heyra alls kyns smáat-
riði sem bæði Björk, Matmos-
tvíeykið og Zeena voru að leika sér
með og prófa. Þannig varð ég á end-
anum að mörgu leyti miklu forvitn-
ari um tæknihliðina á tónlistinni
fremur en upplifun hvers og eins
þátttakanda á sjálfum túrnum. Ég
varð meðal annars forvitin um það
hvernig hljóðin urðu til og um þenn-
an heim sem Björk skóp á Vespert-
ine-plötunni og var síðan að setja á
svið á tónleikunum.
Mér fannst líka magnað að upp-
lifa samspil Bjarkar við samstarfs-
fólkið sitt. Vissulega er Björk þekkt
fyrir að eiga alltaf afar náin vinnu-
sambönd við fólk og það var ótrúlegt
að sjá það gerast á svo fallegan og
eðlilegan hátt. Sjá hvernig allir
fengu að njóta sín alveg 100%, sem
gerði það náttúrlega að verkum að
það hefði ekki verið hægt að gera
bara mynd um Björk þegar maður
er að gera mynd um þennan túr eða
þessa tónleika. Myndin varð að end-
urspegla þátt hvers og eins í tónlist-
arsköpuninni.“
Hollasta sjálfsskoðun sem til er
Spurð hvað hafi komið sér mest á
óvart á tónleikaferðalaginu svarar
Ragnheiður því til að sér hafi virki-
lega komið á óvart hvað allt gekk
snurðulaust fyrir sig á ferðalaginu.
„Enda voru það náttúrlega engir
viðvaningar sem sáu um alla skipu-
lagningu. Eins kom það líka á óvart
hvað þetta var allt í raun afslappað,
rómantískt og dásamlegt. Ég hafði
ímyndað mér að ferðalagið yrði
ofsalega slítandi og þreytandi og að
ég myndi alveg detta úr sambandi
við raunveruleikann, en mér finnst
ég aldrei fyrr á ævinni hafa verið í
eins miklu jafnvægi eða liðið eins vel
á sálinni.
Draumaverk-
efni mann-
fræðingsins
Morgunblaðið/Þorkell
„Fátt hefur eins sterk áhrif á mann og það að ferðast og kynnast góðu fólki, svo það eitt og sér var ofboðslega
magnað,“ segir Ragnheiður Gestsdóttir um reynslu sína af Vespertine-tónleikaferðinni.
Ragnheiður Gestsdóttir hafði veg og vanda
af nýrri heimildarmynd um Vespertine-
tónleikaferðalag Bjarkar. Silja Björk
Huldudóttir hitti Ragnheiði og fékk hana til
að segja sér frá tildrögum þess að hún fékk
verkefnið og hvernig upplifun það var að
vera á ferðinni með Björk.