Morgunblaðið - 16.11.2003, Blaðsíða 37
SKOÐUN
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 16. NÓVEMBER 2003 37
ÓVÍÐA í veröldinni skipta jarðvís-
indi jafnmiklu máli fyrir daglegt líf
fólks og á Íslandi. Þegar við notum
ódýra heita vatnið eða kveikjum á
rafmagni veltum fyrir sjaldnast fyrir
okkur að sú ódýra og
umhverfisvæna orka
sem við búum við
byggist á jarðvís-
indum. Hið sama
gildir um mörg mik-
ilvæg mannvirki eins
og vegi og jarðgöng,
og jafnframt olíuna sem við notum á
farartækin. Eldvirkni, jarðskjálftar
og skriðuföll eru jarðfræðileg fyr-
irbæri sem okkur í senn stafar hætta
af en eru jafnframt það sem skapar
og mótar okkar sérstæða land og er
mikið aðdráttarafl fyrir ferða-
mennsku. Án þessarar virkni væri
svipmót Íslands allt annað en það er.
Þekking á jarðvísindum er þannig
mjög mikilvægur þáttur í þjóð-
arbúskap okkar og menningu. Því
ber okkur að hlúa vel að henni og
skapa henni þær forsendur að við
getum áfram notið afraksturs henn-
ar.
Í þessari grein er fjallað um nú-
verandi fyrirkomulag jarðvísinda á
Íslandi, sem er af sögulegum ástæð-
um dreift á margar smáar einingar
og varpað fram hugmyndum um
hvernig úr megi bæta.
Tegundir rannsókna
Orðið rannsókn hefur afar víðtæka
merkingu í íslensku, nær yfir allt frá
stöðluðum mælingum til hávís-
indalegra rannsókna. Flokkun rann-
sókna er nokkuð á reiki í huga fólks.
Oft er talað um grunnrannsóknir og
hagnýtar rannsóknir og þeim jafnvel
stillt upp sem andstæðum, sem er
óeðlilegt. Þær fyrrnefndu fela í sér
öflun nýrrar grunnþekkingar en ekki
öflun upplýsinga með þekktum að-
ferðum. Hagnýtar rannsóknir eru
rannsóknir sem gerðar eru með til-
tekna hagnýtingu niðurstaðna í
huga. Eðlilegra er að skipta rann-
sóknum í tvo meginflokka, frjálsar
rannsóknir (akademískar) og stýrðar
rannsóknir. Frjálsar rannsóknir fel-
ast í því að rannsakandinn hefur al-
gjört frelsi um viðfangsefni sitt innan
þess starfsviðs sem hann er ráðinn
til. Verkefni hans geta hvort sem er
haft hagnýt markmið eða falist bara í
leit að þekkingu án nokkurrar sýni-
legrar hagnýtingar. Stýrðar rann-
sóknir fela í sér að sá sem kostar
rannsóknirnar ákveður viðfangs-
efnið en ekki rannsakandinn sjálfur.
Þær geta hvort sem er verið grunn-
rannsóknir eða upplýsingaöflun. Í
aðalatriðum stunda háskólar frjálsar
rannsóknir en rannsóknastofnanir
og fyrirtæki stýrðar rannsóknir.
Núverandi fyrirkomulag
Jarðvísindi á Íslandi hafa að lang-
mestu leyti verið stundaðar af op-
inberum stofnunum. Ekki er til nein
ein jarðfræðistofnun á landinu held-
ur hafa jarðvísindarannsóknir þróast
á mismunandi stofnunum í tímans
rás eftir því hver hefur haft þörf fyrir
þær.
Orkustofnun var um áratuga skeið
langstærsta jarðvísinda-stofnunin
með um 70 sérfræðinga þar af um 40
á rannsóknarsviði og 25 í vatnamæl-
ingum. Hún er undir iðnaðarráðu-
neytinu. Jarðvísindaþekkingin þar
hefur byggst upp vegna þarfar orku-
iðnaðarins fyrir jarðfræðirann-
sóknir, ekki síst í jarðhita. Í upphafi
var hún að mestu kostuð af fé úr rík-
issjóði en hefur síðari ár fengið
stærstan hluta tekna sinna með
verksölu til orkufyrirtækja. Stofn-
unin hefur nær eingöngu sinnt stýrð-
um rannsóknum, bæði mælingum og
grunnrannsóknum. Hún hefur
áuinnið sér sess sem ein öflugasta
þekingarmiðstöð í jarðhitafræðum í
heiminum. Jafnframt hafa rann-
sóknir hennar haft mikið gildi fyrir
almenna þekkingu á jarðfræði Ís-
lands. Þá rekur stofnunin alþjóð-
legan jarðhitaskóla fyrir þróun-
arlönd á vegum Sameinuðu þjóðanna
og útibú á Akureyri. Hinn 1. júlí 2003
var Orkustofnun skipt upp og mynd-
uð ný ríkisstofnun, Íslenskar orku-
rannsóknir, ÍSOR. Hún yfirtók alla
starfsemi Rannsóknasviðs Orku-
stofnunar. Þar starfa nú um 50
manns, flestir á sviði jarðvísinda.
Vatnamælingar, sem stunda jarðvís-
indalega starfsemi að hluta til, eru
ennþá á Orkustofnun. Þannig leiddi
uppskipting Orkustofnunar til þess
að jarðvísindi eru nú stunduð á enn
fleiri stofnunum en áður. ÍSOR er
svokölluð B-hluta ríkisstofnun sem
fær engar fjárveitngar af fjárlögum
en aflar tekna með verkefnasölu,
m.a. til orkufyrirtækja og Orkustofn-
unar. ÍSOR uppfyllir allar kröfur
sem gerðar eru til samkeppn-
isrekstrar hins opinbera. Jafnframt
er ÍSOR sú stofnun sem mest líkist
jarðfræðistofnunm annarra landa.
Náttúrufræðistofnun (NÍ) hefur
um 8 jarðfræðinga að störfum. Hún
hefur um áratuga skeið haft það
meginviðfangsefni á sviði jarðfræða
að stunda jarðfræðirannsóknir og
gefa út jarðfræðikort af Íslandi en
verið of fámenn og fjársvelt til að
geta sinnt því sem skyldi. Drjúgur
hluti af þeim jarðfræðikortum sem
stofnunin hefur gefið út byggja á
kortlagningu núverandi starfsmanna
ÍSOR. Rannsóknir NÍ eru að mestu
leyti stýrðar grunnrannsóknir og
hún heyrir nú undir umhverfisráðu-
neytið.
Veðurstofa Íslands hefur rekið
landskerfi jarðskjálftamæla frá upp-
hafi. Hún heyrir undir umhverf-
isráðuneytið og starfa þar um 20
jarðvísindamenn, flestir á jarðeðl-
issviði. Hún stundar stýrðar rann-
sóknir, bæði mælingar en einnig tals-
verðar grunnrannsóknir.
Geysimerkilegt frumkvöðlastarf á
sviði jarðskjálfta-mælinga hefur far-
ið fram á Veðurstofu undanfarinn ár-
artug, sem skapað hefur miklar og
gagnlegar upplýsingar um jarðfræði
landsins, hættu á náttúruvá og jarð-
hita. Kostnaður við þessa starfsemi
er að mestu greiddur úr ríkissjóði en
erlendir og innlendir styrkir hafa þó
vegið þungt í uppbyggingu færn-
innar.
Norræna Eldfjallastöðin er frjáls
rannsóknastofnun á sviði eld-
fjallafræði og landreks. Jafnframt er
hún þjálfunarstöð fyrir ungt norrænt
jarðvísindafólk. Þar starfa nú 20
manns, 10 Íslendingar og 10 erlendir
jarðvísindamenn. Hún var stofnuð
árið 1974 og er rekin á vegum Nor-
rænu ráðherranefndarinar og fær
um 70% tekna sinna þaðan, um 16%
frá íslenska ríkinu, og 14% eru styrk-
ir. Hún gegnir veigamiklu hlutverki í
rannsóknum á eldvirkni og jarð-
skorpuheyfingum á Íslandi og rekur
öflug tæki til efnarannsókna. Rann-
sóknirnar hafa alþjóðlega skírskotun
og lagt er upp úr að auka skilning á
þeim ferlum sem móta jarðskorpuna.
Stofnunin hefur öðlast sess sem al-
þjóðlega viðurkennd rannsókn-
arstofnun ekki síst vegna mikilla
birtingar niðurstaða í vísindaritum.
Háskóli Íslands stundar kennslu
og frjálsar rannsóknir í jarðvísindum
á jarðfræði og jarðeðlisfræðistofum
Raunvísindastofnunar. Þar starfa
um 30 sérfræðingar í jarðvísindum
sem margir sinna einnig kennslu við
Raunvísindadeild. Stofnunin hefur í
dag úr litlu eign rannsóknarfé að
spila en sækir kröftuglega fé til
rannsóknarverkefna, einkum til ým-
issa sjóða. Á Raunvísindastofnun
hafa ýmsar helstu grunnrannsóknir í
jarðvísindum farið fram á und-
anförnum árum
Auk ofangreindar stofnana fer
nokkur jarðvísindastarfsemi fram á
fáeinum öðrum stöðum t.d. á Rann-
sóknastofnun byggingariðnaðarins,
Hafrannsóknarstofnun, og hjá
nokkrum einkaaðilum.
Hvert ber að stefna
Jarðvísindarannsóknir á Íslandi
eru nú dreifðar á margar stofnanir
sem allar hafa annað meginhlutverk
en jarðvísindi. Þrátt fyrir þetta er
furðulega lítill tvíverknaður í gangi.
Samstarf milli stofnana hefur verið
gott. Helst má benda á að skörun er
milli Íslenskra orkurannsókna og
Náttúrufræði-stofnunar í jarð-
fræðikortlagningu. Engu að síður
veldur þetta dreifingu krafta sem
betur mætti samnýta með stærri ein-
ingum, að því gefnu að ekki dragi úr
heildarfjármagni til jarðvísinda-
starfsemi. Hið alþjóðlega umhverfi
kallar líka á stærri og öflugri ein-
ingar til að geta tekist betur á við
vaxandi alþjóðleg verkefni.
Við blasir að heppilegt er að
stækka stofnanir á sviði jarðvísinda
og þá er það best gert með því að
sameina hliðstæða starfsemi. Ekki
er víst að best sé að sameina allt
þetta í eina stofnun, viss samkeppni
er heppilegt. Því sýnist mér eðlileg-
ast að sameina annars vegar þær
stofnanir sem fást við frjálsar (aka-
demískar) rannsóknir og hins vegar
þær sem fást við stýrðar rannsóknir.
Þetta fæli annars vegar í sér að sam-
eina Norrænu Eldfjallastöðina og
jarðvísindahluta Háskóla Íslands í
eina akademíska jarðvísindastofnun
og hins vegar að sameina þær stýrðu
rannsóknir sem hagkvæmt væri að
reka saman. Þarna er fyrst og fremst
átt við jarðvísindastarfsemi Ís-
lenskra orkurannsókna og Nátt-
úrufræðistofnunar en einnig kæmi
jarðeðlissvið Veðurstofu til álita þótt
það gæti vissulega einnig átt samleið
með háskólastofnununum. Jafnframt
væri skynsamlegt að setja upp ein-
hvers konar fyrirkomulag sem
tryggði samstarf þessara meg-
instofnana og fæli m.a. í sér hreyf-
anleika á starfsfólki milli þeirra og
þátttöku í menntun ungra vísinda-
manna.
Nú eru hafnar eða standa fyrir
dyrum breytingar á fyrirkomulagi
jarðvísinda sem virðast stefna í
þessa átt. Með því að skilja Rann-
sókasvið Orkustofnunar frá Orku-
stofnun og mynda Íslenskar orku-
rannsóknir var stigið mikilvægt
skref í þessa átt. Jafnframt er hugað
að framtíðarfyirkomulagi Vatnamæl-
inga sem óeðlilegt er að hafa til fram-
búðar á Orkustofnun vegna augljósr-
ar hættu á hagsmunaárekstrum. Í
bígerð eru breytingar á Norrænu
Eldfjallastöðinni. Norræna ráð-
herranefndin vill breyta öllum sam-
norrænum rannsóknastofnunum á
sínum vegum þannig að heimalandið
axli meiri ábyrgð og kosti a.m.k.
helming starfseminnar. Íslensk
stjórnvöld hafa markað þá skyn-
samlegu stefnu að reyna að sameina
starfsemi Norrænu Eldfjallastöðv-
arinnar og jarðvísindastarfsemi Há-
skóla Íslands og byggja upp öfluga
frjálsa rannsóknarstofnun innan vé-
banda Háskólans. Það ræðst á næstu
mánuðum hvort það muni takast.
Lykilatriði í þeim efnum er að hin
nýja stofnun verði fjárhagslega sjálf-
stæð innan Háskólans, stjórn-
unarlega vel upp byggð og að henni
verði tryggt fé til starfsemi sinnar í
stað þess sem hverfur af hinni sam-
norrænu fjarveitingu á næstu árum.
Um faglega hæfni jarðvísindamann-
anna efast enginn. Í framhaldinu er
síðan eðlilegt að huga að sameiningu
jarðvísindastarfsemi Veðurstofu og
Náttúrufræðistofnunar við aðra
skylda starfsemi. Markmiðið er að
byggja upp og styrkja rannsóknir í
jarðvísindum á Íslandi með tilliti til
þeirrar efnislegu og menningarlegu
náttúruauðlindar sem einstæð jarð-
fræði Íslands er.
Jarðvísindarannsóknir á Íslandi
Eftir Ólaf G. Flóvenz
Höfundur er jarðeðlisfræðingur og
forstjóri Íslenskra orkurannsókna.
Suðurlandsbraut 4a • 108 Rvk. • Fax 533 4811 • midborg@midborg.is
533 4800
STÓRHÖFÐI
Björn Þorri hdl. lögg. fastsali, Karl Georg hrl. lögg. fastsali.
574 fm gott húsnæði sem skiptist í 90 fm jarðhæð sem er innréttuð sem verslunarrými og 485 fm tvær
hæðir sem eru innréttaðar sem skrifstofuhúsnæði með u.þ.b. 25 skrifstofuherbergjum, sameiginlegri
móttöku, eldhúsi og salerni. Húsnæðið er allt snyrtilega innréttað og með vönduðum gólfefnum.
Möguleiki á eignaskiptum og góðum greiðslukjörum. 3915
Allar nánari uppl. eru gefnar á skrifstofu
Miðborgar. 3915