Morgunblaðið - 04.12.2003, Síða 23

Morgunblaðið - 04.12.2003, Síða 23
SUÐURNES MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 4. DESEMBER 2003 23 Njarðvík | Fyrstu tónleikar Tón- listarfélags Reykjanesbæjar verða haldnir í Ytri-Njarðvíkurkirkju í dag, fimmtudag, og hefjast klukkan 20. Þar mun Kammersveit Reykja- víkur leika fyrir Suðurnesjamenn. Allt frá fyrsta vetri sínum hefur Kammersveit Reykjavíkur haldið jólatónleika í desembermánuði þar sem leikin hefur verið tónlist frá barokktímanum og að þessu sinni verða tónleikarnir í Reykjanesbæ. Þessir tónleikar hafa verið meðal vinsælustu verkefna Kammersveit- arinnar. Að þessu sinni ætlar Rut Ingólfsdóttir, sem frá upphafi hef- ur verið í forsvari bæði sem fiðlu- leikari og sem formaður Kamm- ersveitarinnar, að leika uppáhaldskonsertana sína, fjóra fiðlukonserta eftir Bach. Með henni leika einleik þau Daði Kolbeinsson á óbó og Unnur María Ingólfsdóttir fiðluleikari, en þær systurnar hafa margoft leikið þennan konsert sam- an bæði hér á landi og erlendis. Tónleikarnir eru haldnir með styrk frá Reykjanesbæ, að því er fram kemur í fréttatilkynningu frá menningarfulltrúa. Aðgangseyrir er kr. 1.500 en ókeypis fyrir nem- endur Tónlistarskóla Reykjanes- bæjar.    Leika uppáhalds- konserta Rutar Sandgerði | Börnin sem sótt hafa námskeið í ævintýrahúsinu Púls- inum í haust sýndu afrakstur starfs- ins á jólaskemmtun Púlsins í sam- komuhúsinu í Sandgerði um helgina. Fjöldi gesta kom til að fylgjast með. Níu til fimmtán ára ungmenni af Suðurnesjum hafa verið á leiklist- arnámskeiðum í Púlsinum og sex til átta ára á námskeiðum í söng, sög- um og spuna. Á jólaskemmtuninni sýndu eldri börnin leikrit sem þau höfðu samið og þau yngri skemmtu með leik og söng. Flest voru atriðin tengd jólunum. Fengu dagskráratriðin góðar við- tökur gesta sem fjölmenntu í Sam- komuhúsið af þessu tilefni.    Fluttu frumsamin leikrit Morgunblaðið/Reynir Sveinsson Heimili jólasveinanna: Óþekka barninu var sleppt úr poka Grýlu vegna þess að Leppalúði minnti á að það ætti að fá annað tækifæri. Féll í stiga | Kona kvartaði yfir eymslum í baki, hálsi og andliti eftir að hún féll í stiga í húsi í Sandgerði, að því er fram kemur í dagbók lög- reglunnar. Hún var flutt með sjúkrabifreið á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja í Keflavík.    Tónleikar | Bubbi Morthens verður með tónleika í Safnaðarheimilinu í Sandgerði í kvöld klukkan 20. Flytur hann þekkt lög af plötum sínum. Tölvum stolið | Brotist var inn í húsnæði stéttarfélags við Tjarn- argötu í Keflavík aðfaranótt þriðju- dags. Stolið var tveimur tölvum. Einnig var tekið ávísanahefti frá Sparisjóðnum í Keflavík. Lögreglan biður hugsanleg vitni að hafa sam- band við sig.    AUGLÝSINGADEILD netfang: augl@mbl.is, sími 569 1111

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.