Morgunblaðið - 04.12.2003, Blaðsíða 58

Morgunblaðið - 04.12.2003, Blaðsíða 58
DAGBÓK 58 FIMMTUDAGUR 4. DESEMBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ 6 8 11 15 22 1 24 12 3 10 17 21 4 9 13 18 23 14 5 19 7 20 2 16 ÉG fór á dögunum í Iðnó til að sjá Tenórinn með Guðmundi Ólafssyni. Ég vissi voða lítið um verkið og fór með opnum huga til að skemmta mér, en maður fer einmitt í leikhús til að skemmta sér þegar skammdegið hellist yfir mann. Sýningin tók um tvo tíma og þegar henni lauk hefði ég getað setið tvo tíma í viðbót og haldið áfram að hlæja. Þessi sýn- ing er í einu orði sagt frá- bær. Guðmundur er frá- bær söngvari og góður leikari. Guðmundur hefur margsýnt það að hann er góður rithöfundur enda fengið viðurkenningar fyr- ir það. Hann skrifar Ten- órinn sjálfur og hefur það tekist sérlega vel. Húmor- inn í verkinu er óborgan- legur. Ekki skemmir það að meðleikari hans sem er undirleikari tenórsins, Sig- ursveinn Kr. Magnússon, fer á kostum í sínum ein- faldleika. Fyrir utan falleg einsöngslög sem Guð- mundur syngur mjög vel er ógleymanlegt rapp-at- riði, sem ég hefði viljað sjá endurtekið. Þeir sem vilja fara í leik- hús til að hlæja og gleyma sorg og sút í skammdeginu ættu að fara og sjá Ten- órinn í Iðnó. Magnús Ólafsson, Hafnarfirði. Hjálpum þeim MIG langar að koma á framfæri beiðni til stjórn- valda hérna á Íslandi að reyna að hjálpa þessu unga flóttafólki sem fékk land- vistarleyfi hér. Sá í fréttum að þau eignuðust sitt fyrsta barn á dögunum. Óska ég þeim innilega til hamingju. Eins sá ég að þau mega vera hérna í eitt ár, hvað gerist eftir það? Á svo að henda þeim upp í flugvél og bara í opinn dauðann með barnið sitt? Hvernig haldið þið að nýbakaðri móður og föður líði með litla barnið sitt? Þetta ætti að vera ánægjulegur tími fyrir þau, ekki óöryggi og kvíði fyrir framtíð sinni og barnsins. Efast ég nú ekki um að Rauði kross Íslands hjálpi þeim af bestu getu. Við Íslendingar erum nú brjóstgóð og hjálpsöm þeg- ar á reynir. Annað eins höfum við hjálpað til með og væri óskandi að þetta fólk fengi að vera hérna í landinu og ala upp barn sitt í öruggu umhverfi. Kveðja, Anna Helga. Tapað/fundið Kventaska í óskilum SVÖRT kventaska fannst í Hafnarstræti 30. nóvem- ber. Upplýsingar í síma 551 3602. Flauelsjakki týndist SVARTUR flauelsjakki týndist á Kaffi Viktor sl. laugardag. Skilvís finnandi hafi samband í síma 695 1443. VELVAKANDI Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15  Netfang velvakandi@mbl.is Frábær Tenór NÚ er unnið að ritun Sögu bílsins á Íslandi 1904–2004 sem á að koma út árið 2004, þeg- ar 100 ár eru liðin frá því að fyrsti bíllinn kom til Íslands. Meðal þeirra mynda sem safnast hafa er sú sem hér fylgir með, af bíl sem hefur blotnað og stendur fast- ur í á. Ef einhver ber kennsl á fólkið á myndinni og/ eða kann sögu um kring- umstæðurnar væri vel þegið að hann hefði sam- band við söguritara, Sig- urð Hreiðar, í síma 566 6272 eða á netfang auto@simnet.is. Hver kannast við fólkið? MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍM- AR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar: 569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156, sérblöð 569 1222, aug- lýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.100 kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 190 kr. eintakið. Fréttir Bókatíðindi 2003. Númer fimmtudagsins 4. desember er 08029. Mannamót Aflagrandi 40. Kl. 9 vinnustofa, jóga, kl. 10 boccia, kl. 13 myndlist. Árskógar 4. Kl. 9–12 handavinna, kl. 9–12.30 bókband, kl. 9.30 boccia, kl. 10.30–10.55 helgistund, kl. 11 leik- fimi, kl. 13–16.30 smíð- ar og handavinna, kl. 13.30 myndlist. Bólstaðarhlíð 43. Kl. 9–9.45 leikfimi, kl. 9–12 myndlist, kl. 9–16 handavinna, kl. 13–16 bókband. Félagsstarfið Dalbraut 27. Kl. 8–16 handa- vinna. Félagsstarfið Dalbraut 18–20. Kl. 9 postulín, kl. 13 handavinna. Félagsstarfið Furu- gerði 1. Kl. 9 smíðar og útskurður og handa- vinna. Boccia fellur niður í dag og salurinn verður lokaður eftir hádegi vegna aðventu- skemmtunar í kvöld. Félagsstarfið, Hæðar- garði 31. Kl. 9–16.30 glerskurður, kl. 10–11 leikfimi, kl. 13.30 söng- hópur, kl. 15.15 dans. Félagsstarfið, Löngu- hlíð 3. Kl. 13 handa- vinna. Bingó kl. 15. Félagsstarf aldraðra Garðabæ. Kl. 9.45 gler- bræðsla, kl. 12 Thai- Chie, kl. 13.15 leikfimi karla og bútasaumur, kl. 14 biblíufræðsla í Garðabergi. Félag eldri borgara, Hafnarfirði, Hraunseli. Opnað kl. 9, vídeókrók- urinn opinn, pútt kl. 10–11.30, leikfimi í Bjarkarhúsi kl. 11.20, glerlist kl. 13, bingó kl. 13.30, kóræfing hjá Gaflarakórnum kl. 17. Félag eldri borgara, Reykjavík, Ásgarði Brids kl. 13, framsögn kl. 16.15, félagsvist kl. 20. Aðventukaffi verð- ur sunnud. 7. des. í Hestheimum. Farið frá Ásgarði, kl. 13. Ásta Begga syngur í Hest- heimum. Komið við í Handverkshúsinu á Hellu. Skráning á skrifstofu FEB í s. 588 2111 Félagsstarf eldri borg- ara Mosfellssveit. Kl. 13 bókband og tré- skurður, kl. 13.30 les- klúbbur, kl. 17 starf kórs eldri borgara. Gerðuberg, félags- starf. Kl. 10.30 helgi- stund, frá hádegi spila- salur og vinnustofur opnar. Gjábakki, Fannborg 8. Kl. 9–15 handavinna, kl. 9.05 og 9.55 leikfimi, kl. 9.30 glerlist og ker- amik, kl. 10.50 leikfimi, kl. 13 gler- og postulín, kl. 14 handverksmark- aður, kl. 20 gömlu dansarnir, kl. 21 línu- dans. Gullsmári, Gullsmára 13. Kl. 9.15 postulín, kl. 10 ganga, kl. 13–16 handavinna brids kl. 13. Hraunbær 105. Kl. 9 handavinna, perlu- saumur, kortagerð og hjúkrunarfræðingur á staðnum, kl. 10 boccia, kl. 11 leikfimi, kl. 14 fé- lagsvist. Hvassaleiti 56–58. Kl. 9–13 bútasaumur, kl. 10–11 boccia, kl. 13–16 hannyrðir, kl. 13.30–16 félagsvist. Fótaaðgerð- ir virka daga, hár- snyrting þriðju- og föstudaga. Korpúlfar Grafarvogi. Á morgun, föstudag, sundleikf. Grafarvogs- laug kl. 9.30. Norðurbrún 1. Kl. 9– 16.45 opin vinnustofa, kl. 10–11 samveru- stund og leir. Vesturgata. Kl. 9.15– 15.30, handavinna, kl. 9–10 boccia, kl. 10.15– 11.45 enska, kl. 13–14 leikfimi, kl. 13–16 kór- æfing. Vitatorg. Kl. 8.45 smíði, kl. 9.30 gler- skurður, perlusaumur og morgunstund, kl. 10 boccia, kl. 13 hand- mennt og bridge. Þjónustumiðstöðin Sléttuvegi 11. Opið kl. 9–14. Kl. 9.15 leikfimi, kl. 10–12 verslunin. Gullsmárabrids. Brids í félagsheimilinu að Gullsmára 13 mánu- og fimmtud. Skráning kl. 12.45. Spil hefst kl. 13. Félag áhugamanna um íþróttir aldraðra. Leikfimi í Bláa salnum kl. 11. Kiwanisklúbburinn Geysir, Mosfellsbæ. Félagsvist í kvöld kl. 20.30 í Kiwanishúsinu . Kristniboðsfélag kvenna, fundur að Háaleitisbraut 58–60. kl. 17. Undirbúningur fyrir basarinn 6. des. Lífeyrisþegadeild SFR, jólafundurinn verður í félagamiðstöð- inni Grettisgötu 89, laugard. 6. des. kl. 14. Kvenfélag Hreyfils, jólafundurinn verður föstud. 5. des. kl. 20, munið eftir jólapökk- unum. Ný dögun, fundur í Fossvogskirkju í kvöld kl. 20–22. Guðrún Ás- mundsdóttir flytur hugleiðingu. Í dag er fimmtudagur 4. desem- ber, 338. dagur ársins, Barbáru- messa. Orð dagsins: Á þeim degi munuð þér skilja, að ég er í föður mínum og þér í mér og ég í yður. (Jh. 14, 20.)     Þorbjörg Helga Vigfús-dóttir fjallar á tikin.is um uppsagnarbréf ríkis- starfsmanna til fjármála- ráðherra.     Hún segir: „Á vinnustaðhjá almennu fyrir- tæki jafnt sem stofnun þarf óhjákvæmilega að hagræða í rekstri, breyta skipulagi og aðlaga vöru eða þjónustu að nýju um- hverfi. Ástæður fyrir sér- stakri vernd opinberra starfsmanna hjá ríkinu er því til trafala fyrir skatt- greiðendur og skilvirkni þjónustu við þegna lands- ins. Eðli málsins sam- kvæmt eru uppsagnir starfsmanna oftast vegna þekktra aðstæðna og at- vika og eru sjaldnast án fyrirvara nema um gjald- þrot eða alvarlega rekstr- arerfiðleika sé að ræða. Ef segja þarf upp starfs- manni sem stendur sig ekki nægilega vel er eðli- legt að gefa viðkomandi tækifæri til að bæta sig áður en til uppsagnar kemur enda örþrifaráð og dýrt fyrirtækjum að þurfa að segja upp starfs- manni og þjálfa nýjan.     Viðbrögð sambanda rík-isstarfsmanna bera vott um skiljanlegt óör- yggi sem fylgir breyt- ingum og nýjum áhersl- um. Breytingin er þó, ef að er gáð, jákvæð fyrir framgöngu hæfra starfs- manna ríkisins og bætt starfsumhverfi þeirra. Viðhorf almennings til opinberra starfsmanna er oft neikvæðara en við- horf til starfsmanna fyrirtækja í einkaeigu. Þessi afstaða stafar að miklum hluta til af því að umhverfi þeirra er verndaðra og mikilvægt er að það viðhorf breyt- ist.     Eftir að breytingarganga í gegn ættu starfsmenn ríkisstofnana einmitt að fagna því að störf þeirra verði metin eftir frammistöðu og að stjórnendum sé gert kleift að gera starfsum- hverfi þeirra betra. Starfsmanni sem hentar ekki til starfans er einnig greiði gerður með því að kynna viðkomandi vanda- málið fyrr en síðar og áð- ur en að út í skriflegar áminningar er farið eða átök hefjast. Að lokum gerir skilvirkni stofnana og markvissar ráðningar starfsmönnum einnig kleift að vinna í rökrétt- ari starfsþróun og endur- menntun.     Núverandi lög eru tíma-skekkja og frum- varpið þarf að fá fram- gang á Alþingi. Frum- varpið er jákvætt fyrir alla aðila, aðila vinnu- markaðarins, ríkisstarfs- menn og skattgreið- endur. Sambönd ríkis- starfsmanna þurfa að horfa fram á veginn og horfa frekar á framvindu einstaklingsins í starfi sem mikilvægasta þáttinn en að álykta gegn ráð- herra og stefna þannig kjarasamningum í upp- nám.“ STAKSTEINAR Uppsagnarbréfið Víkverji skrifar... Stundum þykir Víkverja skringi-lega til orða tekið þegar fjallað er um veður og færð. Í útvarpi eru ökumenn ósjaldan varaðir við „ís- filmu“ í merkingunni fljúgandi hálka. Sumir grípa jafnvel til tann- læknisfræðinnar til að lýsa færðinni og tala um „glerung“. Eins gott að gæta sín á honum að vetrarlagi. Hvað gætu ökumenn gert til að auka öryggið þegar glerungurinn ógnar því? Klína tannkremi á hjólbarðana? Svo er „snjóstormur“ að verða vin- sælli á vörum landsmanna en sem betur fer hafa hugtök á borð við hríð og stórhríð ekki gleymst. Logndrífa heyrist hins vegar æ sjaldnar og oft er bara talað um „jólasnjó“ eða „jólakortaveður“ í logndrífu. Skiptir þá ekki máli hvaða mánuður er. Hríðarhraglandi heyrist þá æ sjaldnar. Sama má segja um útsynn- ings- og landsynningsél og hunds- lappadrífu. Súld er þá æ oftar köll- uð„úði“ eða „regnúði“. Þá kallast rok og rigning oft „brjálað veður“. Veðurlýsingar í skáldsögu Þorgils gjallandi, Upp við fossa, eru kjarn- yrtar svo ekki sé meira sagt. Þar er t.d. talað um harðviðris frost sem er einkar hnyttilega að orði komist. Víkverji minnist þess ekki að Þorgils nefni „glerung“ eða „ísfilmu“ í sögu sinni. Það skyldi þó aldrei vera að hinn nýbyrjaði desember verði álíka hlýr og í fyrra? Desember í fyrra var ótrúlega hlýr, 10 stiga hiti dögum og vikum saman og alveg snjólaust á gamlárskvöld, a.m.k. sunnanlands. Talsverðu kuldakasti í nóvember lauk síðasta dag þess mánaðar og það sem af er desember hafa hlýind- in ein ráðið ríkjum og útlit fyrir áframhaldandi hlýindi. x x x Yfir í allt annað. Hnefaleikar eruað verða eitt helsta umræðuefni í boðum þessa dagana og minnir um- ræðan þá stundum á handbolta- umræðu þegar íslenska landsliðinu gengur sem best á heimsmeistara- mótum. Þá hafa allir skoðanir, jafn- vel þeir sem alla jafna fylgjast ekk- ert með íþróttum. Og nú eru það hnefaleikarnir sem allir tala um. Skoðanir eru auðvitað misjafnar en allir vilja leggja orð í belg. Eitt er víst að allir finna sig í þessari um- ræðu og það væri synd að segja að hnefaleikar sameinuðu ekki heilu fjölskyldurnar þessa dagana. Vík- verji er alfarið á móti boxi, hvort heldur er áhugamannabox eða at- vinnubox. Höfuðhögg er dauðans al- vara hvernig sem á það er litið. Þeir sem enn halda því fram að box sé örugg íþrótt miðað við margar aðrar íþróttir hljóta að fara að hugsa málið upp á nýtt í kjölfar slyssins í Eyjum á laugardag. Höfuðhögg eru alltaf meiðsli. Slík meiðsli koma hins vegar ekki alltaf í ljós strax. Morgunblaðið/Árni Torfason Hann hlýtur að bragðast vel snjór- inn hvar sem hann er þessa dagana. LÁRÉTT 1 stuðningsmanns, 8 orð- rómur, 9 skurðurinn, 10 hestur, 11 ledda, 13 til viðbótar, 15 klettar, 18 slagi, 21 auðug, 22 dóna, 23 gotra, 24 atburðarás. LÓÐRÉTT :2 neita, 3 ríki dauðra, 4 andartak, 5 svipaðar, 6 samsull, 7 trylltum, 12 söngflokkur, 14 fáláta, 15 nakið, 16 bárur, 17 þyngdareining, 18 riti, 19 grasvöllur, 20 svelg- urinn. LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU Lárétt: 1 hlýri, 4 forði, 7 leifi, 8 rúður, 9 nam, 11 regn, 13 brár, 14 óragi, 15 sult, 17 klám, 20 ann, 22 ærleg, 23 ansar, 24 trana, 25 tauta. Lóðrétt: 1 hylur, 2 ýfing, 3 ilin, 4 form, 5 ræður, 6 iðrar, 10 akarn, 12 nót, 13 bik, 15 stælt, 16 lalla, 18 lustu, 19 merla, 20 agga, 21 naut. Krossgáta
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.