Morgunblaðið - 04.12.2003, Blaðsíða 40

Morgunblaðið - 04.12.2003, Blaðsíða 40
MINNINGAR 40 FIMMTUDAGUR 4. DESEMBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ V ið stóðum fyrir utan Bókakaffið – en dyra- vörðurinn hikaði við að hleypa okkur inn. Hann sagði að tón- leikarnir væru bráðum búnir og að það tæki því ekki fyrir okkur að koma inn. Bókakaffið er í Harare í Zimb- abve í sunnanverðri Afríku – og okkur tókst að kaupa okkur inn með því að suða í dyraverðinum. Við reyndumst eina hvíta fólkið á staðnum og sennilega bjóst dyravörðurinn ekki við að við gæt- um dansað við tónlist Mbira Dze- Nharira – sem semur verk sín út frá hefðbundinni Zimbabve-tónlist þar sem hljóð- færið Mbira er í öndvegi. Mbira á sér sess í þúsund ára sögu Shona- fólksins. (sjá: www.mbira.org). Á bókakaffinu er lítið svið og ekki stórt dansgólf en þar var dansað af krafti. Ég stóð við dans- gólfið og langaði út á það, þannig að ég var fljótlega dreginn í dun- andi dansinn. Tvær konur sýndu mér útfærslu á afródansi þannig að ég gæti bjargað mér. Það ríkti mikil gleði á bókakaffinu og tón- listin var mögnuð. Ég dvaldi nýlega hálfan mánuð í Zimbabve, í höfuðborginni Harare og fór í ferðalag suðaustur á bóginn. Þótt tvær vikur séu ekki langur tími og ég sé vissulega grænjaxl – nægði það til að hefja endurskoðun á ímynd minni af Afríku. Í Zimbabve er margt af því flottasta í heiminum hvort sem það er af náttúrunnar eða mann- anna hendi. Afríka í (eldri) skólabókum og fjölmiðlum var heillandi þegar fjallað var um kynstrin öll af dýr- um: Fílum, blettatígrum, ljónum, nashyrningum, gíröffum og sebra- hestum. Fréttir af íbúum hafa aft- ur á móti flestar verið dapurlegar, falist í hungursneyð, sjúkdómum í formi faraldra, borgarastyrjöldum o.s.frv. Fréttir af dýrum hafa þó orðið dapurlegar á síðustu árum sökum útrýmingarhættu tegund- anna. Ég gæti fylgt þessari neikvæðu línu og einblínt á efnahagslegan ófögnuð stjórnar Róberts Mugabe – því fall dollarans í landinu er því- líkt um þessar mundir. Sjötíuþús- und zim-dollarar voru eittþúsund íslenskar fyrrihluta nóvember. En ég náði bara ekki að festa hugann við þetta neikvæða því það var annað sem kom mér á óvart og var ekki skýrt í ímyndinni – það voru heimamenn. Skólakerfið í Zimbabve hefur t.d. lengi verið talið gott, og metn- aður foreldra fyrir hönd barna sinna varðandi nám. En Zimbabve er þriðja heims land – og þar búa flestir þröngt – en þar er einnig rík millistétt og launamunurinn er ægilegur. Margfalda má laun verkamanns þrjúhundruð og fimmtíuþúsund sinnum til að fá út laun forstjóra í Harare. Opinbert atvinnuleysi er um 70% í landinu – en sú tala er sem betur fer lægri því margir sjá sér farborða með því að selja t.d. afurðir eins og grænmeti sem þeir rækta, eða listmuni sem þeir skapa. Einnig er alnæmisfaraldur í landinu og jafnframt þöggun á sjúkdómnum. Landmenn eru um 15 milljónir og eru 33% smituð af HIV-veirunni. Jarðarfarir eru svo tíðar að settur var tímakvóti á þær: 15 mínútur og starfsmenn fyrirtækja fá aðeins klukkustund á dag til að fara í jarðarför. Það gengur ekki að taka hálfan daginn undir jarðarför. Munaðarlausum börnum fjölgar ótt og títt og full- orðnir sem eftir lifa treysta sér ekki til að taka fleiri börn að sér en þegar er gert. Harare er nútímaborg með framúrskarandi veitingastöðum, listasöfnum, þjónustu og fag- mennsku. En sveitafólkið býr í hefðbundnum afrískum strákofum og allar aðstæður erfiðar. Hrein- læti er samt mjög hátt skrifuð dyggð: Konur, menn og börn í tandurhreinum fatnaði – sé það mögulegt. Æðruleysi er sennilega ríkulega gefin sálargáfa. Hlýja í samskiptum var greinileg. Löng listahefð er í landinu og hvar sem við fórum voru listmunir til sölu, í búðum eða við þjóðvegi. Listrænir hæfileikar búa aug- ljóslega með þjóðinni og eru lista- menn í hávegum hafðir í samfélag- inu. Mér var sagt að í Harare væru þeir efnilegustu sem ynnu að list á götunni valdir og kostaðir í nám. Efnið sem unnið er með er m.a. steinn, viður, járn og endur- unninn fílakúkur auk efnis sem notað er í klæðnað og teppi. Þjóð- in er þekkt fyrir munstur í kart- öflur sem notaðar eru sem stimpl- ar, t.d. á teppi og kodda. Zimbabve er í raun ríkt land af auðlindum, þar eru gull- og dem- antanámur, gróðursæl jörð og mjög miklir möguleikar á vist- vænni ferðaþjónusta. Viktor- íufossar eru stundum taldir með sjö mestu undrum náttúrunnar og þar er villiflóran fjölbreytt. Við fundum aðeins kurteisi í okkar garð og brosmildi, og eng- inn greinarmunur gerður á fram- komu gagnvart hvítum eða svört- um. Samt hefur ríkisstjórn Mugabes grafið undan hvítum bændum, svift þá jörðum sínum og gert að blórabögglum óreið- unnar. Ríkisstjórnin hefur látið reka alla erlenda fréttaritara úr landinu, loka eina stjórnarand- stöðudagblaðinu. Fólkið kvelst vissulega undan stjórnarfarinu. 24. nóvember sl voru t.d. mótmælaborðar á lofti: „No more torture in Zim“ – sjötíu mótmælendur voru handteknir! Ég gæti haldið svona áfram - en vil ekki missa sjónar á fólkinu sem stenst allar þessar þrengingar. Fólkið á skilið stærri hlut í ímynd Afríku. Þessi þjóð á eftir að njóta velmegunar – eins og Íslendingar – sem bjuggu við matarskort, sjúkdóma og misjafnt yfirvald fyrr á öldum. Ímynd Afríku á Vesturlöndum er skökk. Hana skortir andblæ fólksins. Set Mbira DzeNharira á fóninn og loka augunum. Ímyndir Afríku Myndir frá Afríku í fjölmiðlum og sögu- bókum gefa skakka mynd af álfunni. Vestræna ímynd Afríku skortir andblæ fólksins. Líf fólks við þriðja heims að- stæður er þungt en þjóðarkarakterinn er sterkur einsog viljinn til breytinga. VIÐHORF Eftir Gunnar Hersvein guhe@mbl.is ✝ Jóel KristinnSigurðsson fæddist í Reykjavík 5. nóvember 1924. Hann andaðist á Hrafnistu í Hafnar- firði 28. nóvember síðastliðinn. Foreldr- ar hans voru Sigurð- ur Jónsson, verka- maður og bifreiða- stjóri í Reykjavík, f. 13. janúar 1884 í Framnesi á Stokks- eyri, d. 25. júní 1930 í Reykjavík, og kona hans Halldóra Bjarnadóttir, f. 7. mars 1895 á Stokkseyri, d. 1. október 1990 í Reykjavík. Bræður Jóels eru Sig- urður, f. 27. desember 1922, Ingi Björgvin, f. 14. desember 1927, d. 12. júní 1992, og Guðmundur, f. 13. júlí 1929, d. 28. janúar 1976. Jóel kvæntist Sigurdísi Sæ- mundsdóttur 2. nóvember 1946. Hún fæddist 1. nóvember 1925 í Reykjavík og andaðist 25. nóvem- Guðrún Brynjólfsdóttir. Þau eiga tvo syni: Jóel Ísak og Júlían Má. 5) Gerður, f. 27. júlí 1963, viðskipta- fræðingur, maki Rafn Svanur Oddsson. Þau eiga eina dóttur, Svandísi. Fyrir á hún einn dreng, Matthías. Á yngri árum starfaði Jóel sem lögreglumaður, lengst af í Reykja- vík og síðar á Húsavík. Hann nam múrverk við Iðnskólann í Reykja- vík og varð múrarameistari 1965. Jóel starfaði sem yfirskálastjóri í Álverinu í Staumsvík frá 1967 til 1990. Jóel var mikill afreksmaður í íþróttum. Hann keppti í spjótkasti á Evrópumeistaramótinu sem fram fór í Ósló 1946 og í Brussel 1950. Jóel keppti á Ólympíuleikun- um í London árið 1948. Ári síðar setti hann Íslandsmet í spjótkasti 66,99 metra, sem stóð í 25 ár. Árið 1951 var hann í sigursveit Íslands sem vann Norðmenn og Dani í landskeppni í frjálsum íþróttum á Bislett-leikvanginum í Ósló. Jóel var einnig í sigurliði ÍR í hand- knattleik árið 1946 er þeir unnu sinn fyrsta Íslandsmeistaratitil fyrir hönd félagsins. Útför Jóels verður gerð frá Fossvogskirkju í dag og hefst at- höfnin klukkan 13.30. ber 1994. Hún var dóttir hjónanna Sæ- mundar Sigurfinns Kristjánssonar fisk- sala og Þorgerðar Valgerðar Sveinsdótt- ur. Börn Jóels og Sig- urdísar eru: 1) Sæþór, f. 10. desember 1946, sjómaður, d. 19. maí 1974. Hann átti þrjú börn: Önnu Dóru sem á þrjú börn, Írisi sem á tvær dætur og Gunnar sem á einn son. 2) Dóra, f. 29. maí 1951, íþróttakennari, maki Ólafur Guðmundsson. Þau eiga tvö börn: Sæþór sem á eina dóttur og Sigurdísi. 3) Snorri, f. 27. maí 1956, starfsmannastjóri, maki Ás- dís Björnsdóttir. Þau eiga tvö börn: Guðrúnu og Snorra Björn. Fyrir á hann fjögur börn: Sigurð Þór sem á einn dreng, Ragnar Tryggva, Ingibjörgu Eddu og Fannar Stein. 4) Jóel, f. 3. október 1957, húsasmíðameistari, maki Kær vinur og félagi Jóel Sigurðs- son múrarameistari lést á Hrafnistu í Hafnarfirði 28. nóvember sl. Kynni okkar hófust í Íþróttafélagi Reykjavíkur fyrir rúmum 60 árum. Jóel var einn mesti afreksmaður Ís- lands um miðbik síðustu aldar. Sér- grein hans var spjótkast þar sem hann átti Íslandsmet í 25 ár. Hann keppti á Evrópumeistara- mótinu í Ósló 1946 og 1950 í Brussel, Ólympíuleikunum í London 1948, auk Norðurlandanna. Ógleymanleg- ar eru keppnis- og sýningarferðirnar með ÍR heima og erlendis svo sem Norðurlandaför 1947, Húsavík 1943 og Vestfirðir 1944. Skotland og Ír- land 1949, svo eitthvað sé nefnt. Jóel var einnig liðtækur í öðrum íþróttagreinum og var m.a. Íslands- meistari og Reykjavíkurmeistari í handknattleik 1945 og 1946. Fim- leika, badminton og hnefaleika stundaði hann um tíma. Jóel var mjög eðlisgreindur maður og fylgdist vel með því sem var að ske í landsmálunum á hverjum tíma og hafði ákveðnar skoðanir á mönn- um og málefnum. Hann missti ungur föður sinn og þurftu bræðurnir fjórir að byrja snemma að vinna til aðstoðar stórri fjölskyldu. Jóel lauk námi við Héraðsskólann á Laugarvatni og gerðist lögreglu- maður, en það starf stundaði hann í tæp 20 ár. Þegar álverksmiðjan tók til starfa gerðist hann liðsmaður þar frá upphafi og var sendur ásamt úr- valsliði til Sviss til þess að læra verk- stjórn og var yfirverkstjóri í ker- skála þar til hann hætti störfum sakir aldurs. Múrverk lærði Jóel meðan hann stundaði lögreglustörfin og vann við það ásamt aðalstarfinu. Hann var hamhleypa til vinnu. Hann byggði sér fallegt hús á Sunnuflöt í Garða- bæ. Í sama bæ byggði hann veglegt iðnaðarhúsnæði. Hann sat aldrei auðum höndum. Síðustu árin stundaði hann sund reglulega með okkur félögum úr ÍR, meðan heilsan leyfði, og fengum við okkur gjarnan kaffisopa á eftir og ræddum málin, þar sem íþróttir bar að sjálfsögðu á góma. Við þökkum Jóel samfylgdina. Ættingjum hans og venslafólki send- um við innilegar samúðarkveðjur. Finnbjörn, Ingólfur og Magnús. Kveðja frá ÍR Íþróttafélag Reykjavíkur kveður góðan félaga, Jóel Kristin Sigurðs- son. Jóel var mikill afreksmaður í frjálsum íþróttum og handbolta og landsþekktur frá unga aldri. Hann átti stóran þátt í að gera ÍR að stórveldi í frjálsum íþróttum og bar uppi merki félagsins með afrek- um sínum. Jóel keppti í spjótkasti á Evrópu- meistaramóti, Ólympíuleikum og tók þátt í landskeppnum. Hann átti Ís- landsmetið í spjótkasti í heil 25 ár, sem er einstakt afrek. ÍR kveður Jó- el með þakklæti og vottar aðstand- endum samúð. Íþróttafélag Reykjavíkur. Félagar í frjálsíþróttadeild Íþróttafélags Reykjavíkur kveðja í dag kæran vin og íþróttafélaga, Jóel Kristin Sigurðsson, fyrrverandi lög- reglumann, múrarameistara og síð- ast yfirverkstjóra hjá Ísal í Straums- vík. Jóel hóf ungur eða um 1940 að æfa íþróttir með ÍR. Hann varð á keppn- isferli sínum margfaldur Íslands- meistari og methafi, einkum í spjót- kasti og var fastur landsliðsmaður í þeirri grein á þeim tíma sem nefndur hefur verið „Gullaldartímabil“ frjálsra íþrótta hér á landi og reynd- ar í fjölmörg ár eftir það. Þá varð hann Íslandsmeistari í handbolta með ÍR árið 1946, í eina skiptið sem félagið hefur unnið til þess titils enn þá. Árið 1949 setti hann með tréspjóti með snærisvafningi Íslandsmet í spjótkasti, 66,99 m sem var mjög gott afrek á þeim tíma. Það met stóð í 25 ár eða þar til það var bætt af fé- laga hans í ÍR, Óskari Jakobssyni, árið 1974. Síðasta keppni hans var laust upp úr 1960. Hafði þá keppn- isferill hans staðið með glæsibrag í tvo áratugi. Hélt hann einna lengst út í keppni af þeim er skipuðu „Gull- aldarliðið“. Jóel var skemmtilegur og góður félagi sem lífgaði oft hressilega upp á andrúmsloftið á æfingum og í keppn- um. Það varð honum, og okkur, gleði- efni þegar sonur hans, Snorri, fetaði í fótspor hans og náði prýðisárangri í spjótkasti undir góðri leiðsögn föður síns, gamla meistarans. Eftirlifandi börnum Jóels og öðr- um ættingjum vottum við innilega samúð nú við fráfall hans og þökkum góðar samverustundir og minningar frá liðnum árum. Blessuð sé minnning Jóels Sig- urðssonar. F.h. frjálsíþróttadeildar ÍR, Jón Þórður Ólafsson. Kveðja frá Frjálsíþrótta- sambandi Íslands Fallinn er í valinn einn besti liðs- maður gullaldarliðs okkar í frjáls- íþróttum. Með Jóel er einnig geng- inn einn dugmesti og farsælasti keppnismaður íslenska frjálsíþrótta- landsliðsins á síðustu öld. Afrek hans voru mörg á íþróttaferlinum og þó að Íslandsmet hans í spjótkasti bæri af, met sem stóð í aldarfjórðung. Ferill Jóels á íþróttavellinum var glæsilegur og meiri og lengri en margir geta státað af, en hann var keppandi í fremstu röð í rúma tvo áratugi og varð Íslandsmeistari í grein sinni, spjótkasti, 11 ár í röð. Fyrsti sigur hans í spjótkasti var á drengjamóti Ármanns árið 1939, en þá var hann aðeins 14 ára að aldri. Jóel tók þátt í landskeppnum á fimmta og sjötta áratugnum og var m.a. í liðinu sem bar sigurorð af bæði Dönum og Norðmönnum á Bislet- leikvanginum í Ósló í júní 1951, ásamt því að vera í fyrstu lands- keppninni sem fram fór gegn Noregi á Melavellinum í Reykjavík árið 1948. Jóel var líka fulltrúi lands og þjóðar á erlendum stórmótum, en hann keppti á Ólympíuleikunum í London 1948, Evrópumeistaramót- unum í Ósló 1946 og í Brussel 1950, sem á þeim tíma var helsta mótið í frjálsíþróttum að Ólympíuleikunum frátöldum. En Jóel var ekki aðeins mikill af- reksmaður á vellinum, hann var líka góður félagi og vinur utan vallar. Hann var mikill áhugamaður um frjálsíþróttir og mætti á flest helstu mót innan hreyfingarinnar fram á síðustu ár. Jóel hlaut gullmerki FRÍ fyrir framlag sitt og þátttöku í íþróttinni árið 2001. Aðstandendum færi ég samúðar- kveðjur og þakkir fyrir framlag Jó- els til íþróttarinnar. Jónas Egilsson, formaður Frjálsíþróttasambands Íslands. Þær eru smám saman að týna töl- unni íþróttahetjurnar okkar frá gull- aldarárum frjálsra íþrótta um miðja síðustu öld. En deyr fé, deyja frænd- ur en orðstír deyr aldrei. Sá orðstír sem fór af þessum köppum mun lifa með þjóðinni svo lengi sem Ísland er byggt. Svo mikill dýrðarljómi fór af þeim, svo stór skerfur var framlag þeirra til sjálfstæðis og fullveldis ís- lensku þjóðarinnar. Og svo mikil voru afrek þeirra við erfiðar og oft frumstæður aðstæður. Jóel Sigurðsson var í hópi þessara gullaldardrengja. Meðan aðrir hlupu og stukku, kastaði Jóel spjótinu og reyndar var hann einnig mjög fram- bærilegur kúluvarpari. En það var spjótkastið sem hann lagði mesta áherslu á og var þar alger yfirburða- maður. Met hans, 66,99 metrar, stóð í aldarfjórðung eftir að keppnisferli hans lauk. Hann var með í lands- keppninni frægu gegn Dönum og Norðmönnum, þann eftirminnilega dag, 29. júní 1951, og hann var í landsliði Íslendinga sem keppti á Evrópumeistaramótunum 1946 og 1950, tók þátt í Ólympíuleikunum 1948 og átti langan og farsælan feril. Jóel er gott dæmi um gildi íþrótta- iðkunar en hann sagði svo frá í viðtali að hann hefði verið væskilslegur krakki og hvattur til þess sem ung- lingur að leggja stund á íþróttir til að bókstaflega halda lífi. Alvarleg kirtlaveiki var að draga hann til dauða tíu ára gamlan. Það var ekki að sjá á Jóel þegar hann var upp á sitt besta og raunar til síðasta dags. Þar fór maður JÓEL KRISTINN SIGURÐSSON
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.