Morgunblaðið - 04.12.2003, Blaðsíða 27
myndfleti. Andlitin sem horfa til
móts við áhorfandann úr hverju
verki eru hins vegar mannlegri en
portrett karlanna og ólíkt mann-
eskjulegri, líkt og það sé raunveru-
leg manneskja, en hvorki söguleg
frægð né getgátur, sem hér býr að
baki myndefninu.
Merkisbyggingar
Það er fátt sameiginlegt með
myndvefnaði þeirra Sigríðar og
Leifs og sýningunni á japanskri
samtímabyggingarlist sem sett hef-
ur verið upp í Gerðarsafni samhliða
myndvefnaðinum, þótt margar
bygginganna skipi óneitanlega ekki
síðri sess innan byggingalistasög-
unnar en söguhetjur fortíðar og
merkismenn framtíðar kunna að
gera í mannlegu tilliti.
Alls má finna ljósmyndir af 99
byggingum, sem reistar voru á ár-
unum 1985–1996, á sýningunni sem
er ferðasýning er virðist hafa verið
á flakki frá því 1997. Hér á landi er
uppsetning hennar samvinnuverk-
efni Japansjóðsins, japönsku arki-
tektamiðstöðvarinnar, sendiráðs
Japans á Íslandi og Gerðarsafns, en
öll gögn og upplýsingar eru á ensku
sem efalítið hentar sýningargestum
misvel.
Sá mikli fjöldi bygginga sem ber
fyrir augu, felur í sér að sýningin
er í raun eins konar prufuspjald
eða sýnishorn af þeirri áhugaverðu
byggingalistaflóru sem finna má í
Japan. Einungis ein mynd er af
hverri byggingu fyrir sig og stuttur
texti sem geymir ágrip af sögu,
áhrifum og hlutverki byggingarinn-
ar. Í nokkrum tilfellum má einnig
finna teikningu er veitir kynning-
unni heilsteyptari mynd, en engu
að síður vantar töluvert á að sýn-
ingargestir nái fullri tilfinningu fyr-
ir hverri byggingu fyrir sig. Ein
ljósmynd, hversu vel sem hún er
annars tekin, verður aldrei annað
en takmörkuð kynning á bygging-
arlist sem gefa kann lofsamleg fyr-
irheit um það sem í kringum lins-
una leynist.
Þessi annmarki nær þó ekki að
dylja að sköpunargleði, frumleiki,
áræðni og óttaleysi í hönnun mætir
víða lofsamlegum viðbrögðum jafnt
hjá fyrirtækjum sem og innan jap-
anska stjórnkerfisins.
Stílhreinar glæsibyggingar þar
sem naumhyggjan ein er höfð í fyr-
irrúmi setja vissulega víða sinn svip
á hönnunina, en einnig má finna
fjölda sýnishorna af hönnun sem
byggist á umhverfi, menningu og
trúarbrögðum ekki síður en tilgangi
og starfsemi byggingarinnar, sem
og skemmtileg dæmi um óheft flug
ímyndunaraflsins. Þannig hefur til
að mynda Mozuna Kikoo arkitekta-
stofan leikið sér á frumlegan hátt
með form við hönnun Notojima-
glerlistasafnsins líkt og Arata Iso-
zaki gerir einnig við gerð Nagi
samtímalistasafnsins, sem er sér-
kennilegur valkostur við hönnun
safns fyrir hinar margbreytilegu
nútímalistir – hér eru sýningarrým-
in höfð í lögun kassa, hálfmána og
sívalnings – sem látin eru tákna
bæði jörðina og tunglið, auk þess að
veita mystíska túlkun á alheimin-
um. Stutt er þá í áhrif vísindaskáld-
skapar í SYNTAX-byggingu Shin
Tamatsu sem minnir einna mest á
járnfugl með útbreidda vængi og
þá er eldslogi látin teygja sig upp
úr þaki Super Dry Hall-byggingar
Philippe Stark sem óneitanlega
tryggir að athygli vegfarenda bein-
ist að annars hefðbundinni bygg-
ingunni.
Það er þessi áræðni og óttaleysi
við hönnun svo margra bygging-
anna sem gera sýninguna áhuga-
verða. Óneitanlega hefði þó verið
æskilegt að sjá húsunum bregða
fyrir frá fleiri sjónarhornum og
sömuleiðis hefði íslensk þýðing ver-
ið uppsetningunni til framdráttar,
en sem sýninshorn af því áhuga-
verðasta í japanskri byggingarlist
frá þessu tímabili þá er sýningin
engu að síður vel heimsóknarinnar
virði.
Anna Sigríður Einarsdóttir
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 4. DESEMBER 2003 27
FIMMTUDAGS-
TILBOÐ
Suðurlandsbraut 54
Sími 533 3109
Opið
mán.-fös. kl. 12-18
laugardaga kl. 10-16
40%
afsláttur
af öllum
dömuskóm!
f immtudag, föstudag
og laugardag
PASSÍA Hafliða Hallgrímssonar,
sem var frumflutt á páskum árið 2001,
er nú loksins komin út á geisladiski.
Hún er fyrir tvo einsöngvara, bland-
aðan kór, hljómsveit og tvö orgel, og
er textinn aðallega úr
Passíusálmum Hall-
gríms Péturssonar. Inn
á milli eru brot úr ljóð-
um eftir nokkur tuttug-
ustu aldar skáld, auk
bænar eftir Bjarna
Jónsson skáld.
Nú mætti ætla að
textinn sé einhverskon-
ar sundurlaus samtín-
ingur, en það er hann
ekki. Nútímaljóðin eru
inngangur að frásögn-
inni um krossfest-
inguna, og eiga það sam-
eiginlegt að hafið kemur
mjög við sögu. Hafið er
tákn sem er útskýrt
strax í upphafi með orð-
um Matthíasar Johannessen: „Óend-
anlega stór er kærleikur þinn./Ég er
sandkorn á ströndinni,/kærleikur
þinn hafið.“
Tónlistin er ákaflega framandi,
jafnvel annarleg. Stundum jaðrar hún
við að vera óhugnanleg, sem er viðeig-
andi þegar viðfangsefni tónskáldsins
er haft í huga. Tónmálið er þó fínlegt
og í raun tiltölulega einfalt, t.d. er
mikið um langa, íhugula tóna, og yf-
irleitt þarf áheyrandinn ekki að
leggja á sig nein sérstök heilabrot til
að átta sig á hvað sé að gerast hverju
sinni.
Ef grannt er skoðað eru allskonar
myndlíkingar í verkinu, pákudrunur
magna upp áhrif tónlistarinnar þegar
kórinn syngur „inni í sortanum heyrði
ég þrumurnar tala“, og vel er hægt að
ímynda sér að tónstigi niður á við,
sem oft kemur fyrir og samanstendur
af litlum og stórum tvíundum á víxl,
standi fyrir einhverskonar himnesk
áhrif, jafnvel ljósgeisla. Sömuleiðis
gæti manni dottið í hug að hægir
hörputónarnir í lokin, sem leita með
misstórum skrefum upp á við, séu
tákn fyrir sjálfan himnastigann, eða
upprisuna.
Þetta líkingamál útskýrir þó ekki
anda tónlistarinnar. Hver einasti
samhljómur er þrunginn merkingu
sem er ekki mögulegt
að skilgreina, nema að
mjög takmörkuðu leyti.
Dettur manni þá í hug
það sem Victor Hugo
sagði, að tónlist sé um
eitthvað er ekki verður
tjáð með orðum, en er
heldur ekki hægt að
þegja yfir.
Mary Nessinger
mezzósópran og Garð-
ar Thór Cortes tenór
eru einsöngvarar og
skila hlutverkum sínum
með sóma. Þau hafa
bæði fallegar raddir,
prýðilega tækni og
skýran framburð.
Sömuleiðis syngur
Mótettukór Hallgrímskirkju hreint
og af mikilli vandvirkni, ennfremur er
flutningur hljóðfæraleikaranna í senn
nákvæmur og tilfinningaþrunginn.
Hörður Áskelsson stjórnar og gerir
það af öryggi og smekkvísi.
Upptakan, sem fram fór í Hall-
grímskirkju og var í höndum Sveins
Kjartanssonar og Vigfúsar Ingvars-
sonar, er í senn tær og hljómmikil.
Allur annar frágangur er einnig góð-
ur, falleg mynd framan á geisladisk-
inum og bæklingurinn sem fylgir er
ítarlegur. Þetta er frábær geisladisk-
ur og skyldueign fyrir þá sem hafa
áhuga á trúarlegri list.
Óendanlega
stór er
kærleikur þinn
TÓNLIST
Geislaplötur
Hafliði Hallgrímsson: Passía, op. 28. Ein-
söngvarar: Mary Nessinger og Garðar
Thór Cortes. Mótettukór og Kammersveit
Hallgrímskirkju. Orgel: Douglas A. Brotch-
ie og Kári Þormar. Stjórnandi: Hörður Ás-
kelsson. Útgefandi: Ondine Inc.
PASSÍA
Jónas Sen
Hafliði
Hallgrímsson
Súfistinn, Hafnarfirði kl. 12.10
Þjóðlagahljómsveitin Bardukha með
fiðluleikarann Hjörleif Valsson í far-
arbroddi leikur gleðitónlist.
Anddyri Borgarleikhússins kl.
20.30 Lesið úr nýjum bókum: Linda
Vilhjálmsdóttir, Ólafur Gunnarsson,
Þráinn Bertelsson, Sjón, Guð-
mundur Andri Thorsson, Elísabet
Jökuldsdóttir.
Café Borg, Hamraborg kl. 20 Rit-
listarhópur Kópavogs opnar sýningu
á ljóðum og ljóðmyndverkum eftir
Eyvind P. Eiríksson. Eyvindur er
Strandamaður að ætt og uppruna,
hefur haft skriftir að aðalstarfi frá
1988 og sent frá sér m.a. allmargar
ljóðabækur, sögur og leikrit ásamt
þýðingum, alls um 30 bókmennta-
verk. Sýningin er sú fjórða af þessu
tagi í röðinni hjá Ritlistarhópnum og
stendur út desembermánuð.
Pakkhúsið á Höfn kl. 20.30
Hin árlega bókmenntasamkoma í
desember á vegum Menningar-
miðstöðvar Hornafjarðar er nú hald-
in í 10. sinn. Að þessu sinni lesa Guð-
mundur
Steingrímsson úr bók-
inni Áhrif mín á mann-
kynssöguna, Silja Að-
alsteinsdóttir úr
bókum Madonnu,
Ensku rósirnar og
Eplin hans Peabodys,
Jón Kalman Stef-
ánsson úr bókinni Snarkið í stjörn-
unum, Vigdís Grímsdóttir úr bókinni
Þegar stjarna hrapar, Ævar Örn
Jósepsson úr bókinni Svartir englar
og Ingunn Jónsdóttir les úr bókinni
Félagsvinurinn, sem Ungmenna-
félagið í Öræfunum gefur út.
Norska húsið, Stykkishólmi kl.
14 Fjórir hönnuðir frá Skólavörðu-
holtinu í Reykjavík opna samsýn-
ingu: Anna María Sveinbjörnsdóttir
gullsmiður, Kristín Cardew fata-
hönnuður, Sigríður Elfa Sigurð-
ardóttir textílhönnuður og Soffía
Árnadóttir leturlistakona. Sýndir
verða handunnir skartgripir, föt,
peysur, sjöl, treflar, letur og mynd-
list. Opið kl. 14–18 til laugardags.
Einnig hefur verið sett upp sýning
frá ýmsum tímaskeiðum á jólatrjám,
jólaskrauti, jólakortum og öðru sem
tengist jólum og jólahaldi.
Í DAG
Sjá einnig Staður og stund á mbl.is
Jón Kalman
Stefánsson
ÍSLENSKU barnabókaverðlaunin
hafa verið hækkuð í hálfa milljón
króna í tilefni af því að verðlaunin
verða veitt í tuttugasta sinn á næsta
ári. Þetta var ákveðið á aðalfundi
Verðlaunasjóðs íslenskra barnabóka
sem haldin var á dögunum en sjóð-
urinn stendur árlega að Íslensku
barnabókaverðlaununum. Frestur
til að skila inn handritum í sam-
keppni næsta árs er til 1. febrúar.
Yrsa Sigurðardóttir hlaut verðlaunin
í ár fyrir bók sína Biobörn.
Verðlaunasjóður íslenskra barna-
bóka veitir Íslensku barnabókaverð-
launin árlega. Markmið sjóðsins er
að stuðla að auknu framboði á vönd-
uðu íslensku lesefni fyrir æsku
landsins. Í þessu skyni efnir sjóður-
inn árlega til samkeppni um verð-
launin. Þannig hyggst sjóðurinn
örva fólk til að skrifa bækur fyrir
börn og unglinga og stuðla jafnframt
að auknu framboði íslensks lesefnis
fyrir áðurnefnda aldurshópa.
Að Verðlaunasjóði íslenskra
barnabóka standa Vaka-Helgafell,
fjölskylda Ármanns Kr. Einarsson-
ar, IBBY á Íslandi og Barnavina-
félagið Sumargjöf. Stofnað var til
verðlaunanna í tilefni af 70 ára af-
mæli Ármanns árið 1985. Stjórn
Verðlaunasjóðsins skipa þau Pétur
Már Ólafsson útgáfustjóri Vöku-
Helgafells formaður, Kristín Ár-
mannsdóttir kennari, Jón Freyr
Þórarinsson fv. skólastjóri, Oddný S.
Jónsdóttir barnabókaritstjóri Vöku-
Helgafells og Brynja Baldursdóttir
íslenskukennari en hún kom í stað
Sólveigar Ebbu Ólafsdóttur sem gaf
ekki kost á sér til endurkjörs.
Verðlaunafé
hækkað
RAKEL Steinarsdóttir er að ljúka
námi við Listaháskólann í Ed-
inborg og er verk eftir hana á út-
skriftarsýningu meistaranema.
„Á Íslandi lauk ég námi úr MHÍ
1990, var síðan eitt ár í gler-
listadeild listaháskólans í Strass-
borg og hef síðan verið hér í tvö og
hálft ár,“ segir Rakel. Hún segist
vera að vinna með gler á spennandi
hátt. „Það er þó ekki eina efnið sem
ég nota heldur nota ég einnig
steypu, kísil, ljósmyndir, vídeó og
ljós. Glerið er flotgler eða rúðugler
en það efni finnst mér mjög spenn-
andi. Ég læt ljósið vinna með gler-
inu og með endurspegluninni skapa
hluta af verkinu. Í öðrum verkum
læt ég kanta glersins drekka í sig
ljósið og glóa og annars staðar er
það áhorfandinn sem speglast í
hluta glersins. Ég kalla sýninguna
Hringrás vatnsins með manninum
en á ensku „Iceland bags more for
your money,“ sem er slagorð versl-
unarkeðjunnar Iceland og vísar til
þess að þar getir þú fengið meira í
pokann þinn fyrir peninginn. Ég
vísa hins vegar til þess að á Íslandi
sé nóg pláss fyrir fleira fólk ef
borgað er. Þannig fjallar sýningin
um eins og titillin segir til um
hringrás vatnsins og leið þess til
sjávar og um það hvernig mað-
urinn nýtir vatnið á ýmsan hátt.“
Sýningunni lýkur 10. desember.
Verk eftir Rakel Steinarsdóttur á sýningu útskriftarnema í Edinborg.
Ljósið glóir í glerinu
NÍU listamenn opna vinnustofusýn-
ingu í Skipholti 33b, (fyrir aftan
gamla Tónabíó) annað kvöld, föstu-
dagskvöld, kl. 20-23. Einnig verður
þar sameiginleg sýning í hluta rým-
isins. Málverk, músík, ljósmyndir,
skúlptúrar, hönnun, innsetningar og
fleira er að sjá og heyra. Þeir sem að
sýningunni standa eru Þórunn Inga
Gísladóttir, Ásta Guðmundsdóttir,
Sandra María Sigurðardóttir, Heið-
ar Þór Rúnarsson, Karen Ósk Sig-
urðardóttir, Hrund Jóhannesdóttir,
Hermann Karlsson og Margrét M.
Norðdahl. Opið er laugardag og
sunnudag frá kl. 14-18 og framvegis
á sunnudögum.
Vinnustofu-
sýning