Morgunblaðið - 11.12.2003, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 11.12.2003, Blaðsíða 25
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 11. DESEMBER 2003 25 Hafnarfjörður | Fjárhagsáætlun Hafnarfjarðarbæjar fyrir árið 2004 var tekin til fyrri umræðu í bæjar- stjórn á þriðjudag. Þar kemur fram að liðlega 700 milljónum verði varið til nýbygginga á árinu. Stærstur hluti fjárins, 400 milljón- ir, fer í nýbyggingu Víðistaðaskóla, og 200 milljónir í nýjan átta deilda leikskóla í Áslandi, en það verður stærsti leikskóli sem byggður hefur verið hérlendis. Einnig verður fé var- ið til stækkunar Flensborgarskóla og til að hefja undirbúning að stækkun Hvaleyrarskóla. Einnig hefst undir- búningur að byggingu 50 fermetra yfirbyggðrar sundlaugar á Ásvöllum. Í tilkynningu frá Hafnarfjarðarbæ vegna umræðu um fjárhagsáætl- unina kemur fram að sveitarfélög búi yfir höfuð við þrönga stöðu, og skýrt hafi komið fram að ástæður þessa séu að tekjuskipting milli ríkis og sveitar- félaga sé „á engan hátt í samræmi við þær sífellt auknu kröfur og skuld- bindingar sem settar eru á herðar sveitarfélaganna, hvort heldur eru í menntamálum, skipulags- og um- hverfismálum, eða velferðarmálum yfir höfuð“. Nefnt er að breytt fyrirkomulag í skattkerfi vegna einkahlutafélaga hafi skert tekjur sveitarfélaganna um að minnsta kosti 1 milljarð, auknar álögur og skuldbindingar í þjónustu- verkum hafi kostað sveitarfélögin mörg hundruð milljónir án þess að nokkrar tekjur hafi komið á móti þessum nýju útgjöldum. „Við þetta verður ekki lengur unað,“ segir í til- kynningunni. Langtímaskuldir lækka um 200 milljónir Fjárhagsætlunin gerir ráð fyrir að rekstrarafkoma fyrir fjármagnsliði í samstæðureikningi bæjarins verði jákvæð upp á nærri 301 milljón króna sem er ríflega tvöfalt betri afkoma en gert er ráð fyrir á yfirstandandi ári. Gert er ráð fyrir að tekjur samstæð- unnar aukist um 509 milljónir, eða um 7,5% á milli áranna 2003 og 2004 og að rekstrarútgjöld aukist um 352 milljónir, eða um 5,3%. Þegar horft er til sjóðstreymis og tekið hefur verið tillit til reiknaðra stærða eins og afskrifta og verðbóta er gert ráð fyrir að veltufé frá rekstri verði 667 milljónir í stað 477 milljóna á árinu 2003, og aukist þannig um 190 milljónir, og handbært fé frá rekstri um 568 milljónir í stað 172 milljóna á þessu ári. Áætlað er að eignir samstæðunnar verði samtals um 18,7 milljarðar í lok ársins 2004 og þær aukist um 413 milljónir Áætlað er að langtíma- skuldir samstæðunnar verði um 10,8 milljarðar og lækki um 201 milljón. Byggja átta deilda leikskóla í Áslandi Reykjavík | Jafnréttisnefnd Reykja- víkur hvetur samtök í atvinnulífi, á vinnumarkaði og í stjórnmálum til að ræða um hlut kvenna í stjórnun fyrirtækja. Í nýlegri könnun Bryn- dísar Ísfoldar Hlöðversdóttur kom fram að í stjórnum fyrirtækja skráð- um í Kauphöll Íslands sé aðeins um 5% stjórnarmanna konur. „Jafnrétt- isnefnd þykir þessi staðreynd veru- legt áhyggjuefni og skekkja miðað við upplýsandi jafnréttisbaráttu síð- ustu áratugi. Jafnréttisnefnd Reykjavíkur hvetur hluthafa þess- ara stærstu fyrirtækja landsins sem og annarra fyrirtækja til þess að auka hlut kvenna í stjórnum fyr- irtækja til þess að tryggja að reynsla og sjónarmið kvenna fari ekki for- görðum í þeirri mikilvægu vinnu sem þar á sér stað,“ segir í ályktun sem samþykkt var einróma í jafn- réttisnefnd á mánudaginn. Hluthafar íhugi framlag kvenna Reykjavík | Eigendur Austurbæj- arbíós hafa ekki svarað óskum húsa- friðunarnefndar ríkisins um and- mæli við friðun hússins. Bréf þess efnist var fyrst sent 28. október sl. Á fundi nefndarinnar á föstudaginn var ákveðið að ítreka þetta boð enda málið til umfjöllunar þar. Magnús Skúlason, forstöðumaður húsafriðunarnefndar, segir að ekki sé búið að taka formlega afstöðu um friðun hússins. Fyrst hefur verið óskað eftir umsögnum. Að teknu til- liti til þeirra tekur nefndin ákvörðun um hvort leggja eigi til við mennta- málaráðherra að húsið verði friðað. Svara ekki húsafriðunarnefnd Reykjavík | Í dag verður opnaður nýr tónmenntavefur sem ætlaður er til kennslu í grunnskólum. Mun hann nýtast jafnt tónmenntakennurum sem almennum kennurum. Inni á vef- svæðinu geta nemendur stundað sjálfsnám og gert verkefni undir handleiðslu kennara. Einnig geta kennarar sótt sér ítarefni, verkefni eða upplýsingar um það sem að þeirra fagi snýr. „Tónmennt er án efa viðamesti þátturinn á tonmennt.is en þar eru einnig kennslustundir í hlustun á hljóð, hljóðfæri, mismunandi tónlist og greining. Nemendum gefst kostur á að gera greinarmun á hljóðfærum, mismunandi hljóðfærahópum, um- hverfishljóðum, greina djúpa-háa tóna, sterka-veika tóna, hratt-hægt o.s.frv.,“ segir í fréttatilkynningu. Þórólfur Árnason borgarstjóri opnar vefinn klukkan 11 í dag. Tónmenntavefur opnaður       AUGLÝSINGADEILD netfang: augl@mbl.is eða sími 569 1111
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.