Morgunblaðið - 11.12.2003, Blaðsíða 33
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 11. DESEMBER 2003 33
N
O
N
N
I
O
G
M
A
N
N
I
/
Y
D
D
A
•
1
0
6
3
3
•
si
a.
is
Ostakörfur eru kærkomin
jólagjöf til starfsmanna
og vi›skiptavina
og nú er rétti tíminn
til a› panta.
www.ostur.is
sími 569 1600/569 1620
Vi› bjó›um flér a› bæta
í gjafakörfurnar
mat e›a gjafavöru
– kynntu flér úrvali› hjá okkur.
Vi› sjáum einnig um a›
senda gjafapakka fyrir
flig til útlanda.
Sagnfræðingafélag
Íslands og Sögufélag
gangast fyrir
uppskeruhátíð í húsi
Sögufélags í Fisc-
hersundi í kvöld þar
sem kynnt verða
helstu rit sem komið
hafa út á sviði sagn-
fræði og sögulegs
efnis á árinu.
Höfundar, rit-
stjórar og útgefendur 12 rita munu
kynna verk sín. Dagskráin hefst kl.
20.30 og eru allir velkomnir. Sam-
komunni stýrir Erla Hulda Hall-
dórsdóttir sagnfræðingur.
Meðal höfunda sem kynna verk
sín eru ævisagnaritararnir Guðjón
Friðriksson, Hannes Hólmsteinn
Gissurarson og Jakob F. Ásgeirs-
son, sem allir eru tilnefndir til Ís-
lensku bókmenntaverðlaunanna í
ár, og sagnfræðingarnir Helgi
Skúli Kjartansson og Jón Þ. Þór og
Árni Björnsson þjóðháttafræð-
ingur.
Eftirtöld verk verða kynnt: Árni
Daníel Júlíusson – Saga barnaskól-
ans á Eyrarbakka, Árni Björnsson –
Úr torfbæ inn í tækniöld, Guðrún
Ása Grímsdóttir – Oddaannálar og
Oddverjaanáll, Guðjón Friðriksson
– Jón Sigurðsson, 2. bindi, Jón Þ.
Þór – Saga Sjávarútvegs á Ísl. (2.
bindi) og Hafnir, Einar Gunnar Pét-
ursson – Dalasýsla. Sýslu- og
sóknalýsingar, Jakob F. Ásgeirsson
– Valtýr Stefánsson, Gísli Pálsson –
Frægð og firnindi Vilhjálmur Stef-
ánsson, Helgi Skúli Kjartansson –
Samvinnuhreyfingin og Framtíð
handan hafs, Páll Björnsson (ritstj.)
– Borgarbrot, Þorgrímur Gestsson
– Ferð um fornar sögur, Hannes
Hólmsteinn Gissurarson – Halldór,
Helgi Þorláksson – Saga Íslands 6.
bindi.
Uppskeruhátíð
sagnfræðinga
Jakob F.
Ásgeirsson
Gísli
Pálsson
Guðjón
Friðriksson
JÓLATÓNLEIKAR Kammerkórs
Mosfellsbæjar verða í Varmárskóla
í Mosfellsbæ kl. 20 í kvöld, fimmtu-
dagskvöld.
Gestakór á tón-
leikunum er
Skólakór Mos-
fellsbæjar. Kór-
arnir syngja ým-
ist saman eða
hvor í sínu lagi.
Mest áberandi
eru þjóðum kunn
jólalög, en einnig
verða sungin lög
frá ólíkum löndum sem lítið hafa
heyrst hér. Má þar nefna lög m.a.
frá Brasilíu, Aruba og Bandaríkj-
unum. Þá eru á efnisskránni lög frá
ólíkum tímabilum, m.a. lög eftir J.
Dowland, J. Desprez, G. Caccini, J.
Haydn, K. Hamton O. Vangelis og
J. Williams. Mörg ólík stílbrigði eru
áberandi og auk hefðbundinna jóla-
laga verða m.a. sungin þjóðlög,
Maríubænir, keðjusöngvar, gospel
og kvikmyndatónlist.
Kammerkór Mosfellsbæjar hefur
starfað í rúmlega eitt ár, en hann
var stofnaður haustið 2002. Skóla-
kór Mosfellsbæjar er rótgróinn kór
í sveitarfélaginu og hefur í fjölda
ára sungið við hin ýmsu tilefni í
bænum og víðar.
Stjórnandi Kammerkórs Mos-
fellsbæjar er Símon H. Ívarsson og
stjórnandi Skólakórs Mosfellsbæjar
er Guðmundur Ómar Óskarsson.
Meðleikari kóranna er Arnhildur
Valgarðsdóttir.
Símon H. Ívarsson
Þjóðum kunn lög
á jólatónleikum