Morgunblaðið - 11.12.2003, Side 55

Morgunblaðið - 11.12.2003, Side 55
FRÉTTIR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 11. DESEMBER 2003 55 SÍÐASTI skiladagurinn til að póst- leggja jólapakka til Evrópulanda er föstudaginn, 12. desember, svo þeir komist örugglega til viðtakenda fyrir jól. Þá þarf að póstleggja jólakort til Evrópu fyrir 15. desember til að tryggja að þau skili sér til viðtak- enda fyrir jól.Móttökustaðir eru öll pósthús á landinu og jólapósthús sem Íslandspóstur er með í desem- ber í Kringlunni, Smáralind, Mjódd- inni, Firði í Hafnarfirði og á Gler- ártorgi á Akureyri. Jólapósthúsin eru opin samkvæmt verslunartíma. Einnig er Íslandspóstur með af- greiðslu í öllum Nóatúnsverslunum á höfuðborgarsvæðinu, þar er opið frá morgni til kvölds, alla daga. Helgina 13.–14. desember verða pósthúsin á höfuðborgarsvæðinu og á Akureyri opin kl. 13–18. Dagana 15.–19. desember eru þau opin kl. 9– 18. Helgina fyrir jól, 20.–21. desem- ber, verður opið kl. 13–18. Mánudag- inn og þriðjudaginn 22.–23. desem- ber, verður opið kl. 9–18 og á aðfangadag kl. 9–12. Pósthúsin á Akranesi, Borgarnesi, Egilsstöðum, Húsavík, Höfn, Ísa- firði, Keflavík, Sauðárkróki, Selfossi og í Vestmannaeyjum eru opin kl. 9– 18, vikuna 15.–19. desember. Helgina 20.–21. desember verður op- ið kl. 13–16. Mánudaginn og þriðju- daginn 22. og 23. desember verður opið kl. 9–18 og á aðfangadag kl 9– 12. Önnur pósthús verða með óbreyttan afgreiðslutíma í desember nema að opið verður sunnudaginn 21. desember kl. 13-16. Skiladagar jóla- sendinga til Evrópu SLYSAVARNAKONUR í Reykja- vík færðu Björgunarsveitinni Ár- sæli eina milljón kr. í styrk í nóv- ember sl. upp í kaup á björgunar- bát. Í fréttatilkynningu segir: „Það var kvennadeildarkonum mikil ánægja að fá að ráða nafninu á þennan björgunarbát og var nafnið Gróa Pétursdóttir þeim efst í huga. Gróa Pétursdóttir var einhver sú kraftmesta slysavarnakona sem uppi hefur verið og sat hún í stjórn deildarinnar í Reykjavík til margra ára og var þar formaður í fimmtán ár. Slysavarnakonur um allt land hafa ætíð stutt við sínar björg- unarsveitir, og um áraraðir hefur deildin í Reykjavík, sem er elsta Kvennadeildin á landinu, ekki látið sitt eftir liggja. Enginn veit betur en þeir sem að slysavarna- og björgunarmálum starfa hversu mikla vinnu björg- unarsveitarmenn inna af hendi, ekki einungis við björgunarstörf heldur einnig við vinnu við fjárafl- anir, viðhald á vélum, búnaði sveitarinnar og sjá um menntun og fræðslu til nýliða. Slysavarna- og björgunarstörf eru þjónustustörf, fórnfús sjálf- boðaliðastörf sem mótuð eru af skilningi og umhyggju fyrir sam- ferðamanninum og velferð þjóð- arinnar í heild. Fjáraflanir Kvennadeildarinnar eru með margvíslegum hætti, en kaffisalan á sjómannadaginn stendur jafnan hæst þegar konur safnast saman, baka og selja kaffi. Slysavarnadeild kvenna í Reykja- vík sendir jólakveðju öllum þeim fjöldamörgu sem hafa stutt deild- ina í gegn um árin.“ Jólafundur deildarinnar verður haldinn fimmtudaginn 11. desem- ber kl. 20 í Höllubúð, Sóltúni 20, og eru allar konur velkomnar. Birna Björnsdóttir, formaður Slysavarnadeildar kvenna í Reykjavík, af- hendir Gylfa Sævarssyni, formanni Björgunarsveitarinnar Ársæls, styrkinn. Gáfu milljón til kaupa á björgunarbáti HEIMDALLUR, félag ungra sjálf- stæðismanna í Reykjavík, sendir frá sér eftirfarandi: „Heimdallur félag ungra sjálfstæð- ismanna í Reykjavík leggst eindregið gegn frumvarpi sjávarútvegsráð- herra um línuívilnun fyrir dagróðra- báta. Með línuívilnun eru aflaheimild- ir færðar frá núverandi handhöfum til fámenns hóps manna. Tekjutilfærslur af þessu tagi eru ósanngjarnar og óréttmætar auk þess sem hringlanda- háttur löggjafans hvað varðar laga- umhverfi sjávarútvegsfyrirtækja er með öllu ólíðandi. Einkaeignarréttur á kvóta er mikilvæg forsenda til að tryggja megi stöðugleika og auka hagræði í sjávarútvegi.“ Heimdallur leggst gegn línuívilnun dagróðrabáta WWW.HOLT.IS BERGSTAÐASTRÆTI 37 • SÍMI: 552 5700 Komið í heimsókn á www.holt.is Skoðið verðið á gistingu og veitingum

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.