Morgunblaðið - 11.12.2003, Blaðsíða 48

Morgunblaðið - 11.12.2003, Blaðsíða 48
MINNINGAR 48 FIMMTUDAGUR 11. DESEMBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ Ekki eru liðnir nema rúmlega 4 mánuðir síð- an amma mín, Guðjóna Eyjólfsdóttir, var borin til grafar. Afi minn var ósköp hryggur eftir andlát hennar. Þau höfðu verið í farsælu hjónabandi í 67 ár og myndaðist því mikið tómarúm í hans lífi eftir að hún dó. Hann hafði ávallt verið heilsuhraustur en heilsu hans hrakaði hratt þessa mánuði. Þó var hann farinn að líta bjartari aug- um tilveruna þegar kallið kom. Það er stutt síðan ég skrifaði minn- ingargrein um ömmu og allt sem ég sagði þá gildir líka fyrir afa minn, því þau voru svo samrýnd að varla er hægt að minnast á annað nema að hitt komi líka í hugann. Þar sem afi hafði vinnustofu sína við heimilið, var hann alltaf nálægur og honum fannst gaman ef við litum til hans á verk- ÓLAFUR ÞÓRÐARSON ✝ Ólafur Þórðarsonfæddist í Reykja- vík 3. janúar 1913. Hann lést á Landspít- alanum í Fossvogi 21. nóvember síðastlið- inn og var útför hans gerð frá Háteigs- kirkju 3. desember. stæðið. Það var alvöru verkstæði. Þar kenndi svo sannarlega ýmissa grasa, en afi hafði þó gott skipulag á öllu. Afi var með eindæmum fagmannlegur og vand- virkur húsgagnabólstr- ari. Auk þess var hann alltaf boðinn og búinn til að aðstoða okkur í fjölskyldunni við hvað eina sem þurfti. Allt fas afa bar þess merki að hann lifði í sátt og samlyndi við sig og sína; hann gekk um léttstígur og beinn í baki. Hann var með eindæmum jafnlyndur og já- kvæður maður og það var stutt í gam- ansemi, meinlausa stríðni og hlátur. Það þarf að venjast því að Stór- holtið, þetta gamalgróna heimili, skuli ekki lengur vera miðstöð fyrir kaffiþyrsta miðbæjarfara, þar sem fólki var tekið með hlýhug og opnum örmum. Í kexskápnum mátti alltaf finna góðgæti með kaffinu og ópal- pakka í vasann þegar farið var heim. Sérstaklega var gaman að koma þar við í jólamánuðinum, því afi hafði gaman af að undirbúa jólin. Alltaf var sama gleðin þegar jólatréð spratt fullskreytt upp úr kjallaranum og kertið með grænu kúlunni var sett á stofuborðið. Silfrið var pússað svo hvergi sást blettur, pakkar voru skreyttir með litlum jólasveinum og öðru skrauti. Það verða sannarlega viðbrigði fyrir okkur öll að hafa þau afa og ömmu ekki lengur með okkur á hátíðum og í fjölskylduboðum. Ekki er hægt að hugsa um afa öðruvísi en að tala um sumarbústað- inn hans við jaðar Heiðmerkur. Bú- staðurinn var honum svo sannarlega hugleikinn og hann naut þess að rölta meðfram ánni og renna fyrir fisk. Hann skaust uppeftir hvenær sem færi gafst á sumrin, enda maður sem keyrði sína rauðu Lödu þar til nú í sumar og reyndar var það bíllinn sem gafst upp á undan honum. Þeir sem náð hafa svona háum aldri mega svo sannarlega muna tím- ana tvenna. En afi var opinn fyrir öll- um nýjungum, var með þeim fyrstu að fá sér sjónvarp, og hann átti bæði farsíma og örbylgjuofn löngu á undan mér. Afi hélt upp á 90 ára afmælið sitt 3. janúar á þessu ári með veglegri veislu. Það var í síðasta sinn sem ég sá þau saman, afa og ömmu. Í veisl- unni voru þau svo sérstaklega fín og falleg gömul hjón full af hlýju og væntumþykju til hvort annars og til síns fólks. Þannig munum við þau heiðurshjónin, Guðjónu Eyjólfsdótt- ur og Ólaf Þórðarson. Blessuð sé minning þeirra. Hildur Jóna Gunnarsdóttir. Ég var erlendis þeg- ar sú voveiflega frétt barst út að Halldór Axel Halldórsson hefði látist af slysförum. Ég missti sömuleiðis af jarðarför hans. Einhverntímann upp úr miðri síð- ustu öld, vorum við Halldór valdir saman í úrvalslið Reykvíkinga í fót- bolta. Leikurinn skyldi fara fram í Laugardalnum og Halldór vék sér að mér og spurði hvort við gætum ekki orðið samferða vestan úr bæ. Mér fannst það skrítið að Valsmaðurinn byggi í vesturbænum en saman fór- um við og fyrir mér var það upphefð, vegna þess að þá var Halldór í röð bestu knattspyrnumanna landsins og raunar gekk hann undir nafninu Ali Baba, sem átti sér auðvitað þá skýr- ingu að kappinn þótti galdramaður með bolta, töframaður á vellinum. Upp frá þessu atviki urðum við Halldór vinir, innan sem utan vallar- ins, hvor í sínu félaginu, en samherjar og skoðanabræður um listfengi og skemmtun knattspyrnunnar. Þá sýn á knattspyrnu og raunar allar íþróttir HALLDÓR AXEL HALLDÓRSSON ✝ Halldór AxelHalldórsson fæddist í Reykjavík 13. apríl 1931. Hann lést af slysförum 14. nóvember síðastlið- inn og var útför hans gerð frá Fríkirkj- unni í Reykjavík 26. nóvember. missti Halldór aldrei og löngu síðar, þegar ég sat á ritstjórastóli DV, seldi hann mér þá hug- mynd að gera unglinga- kappleiki og unglinga- starf í íþróttum að fyrirferðarmeira les- efni. Það varð úr og fé- lagar hans á íþrótta- deildinni hafa rifjað upp hversu mikla natni og metnað Halldór lagði í þessar síður sínar, sem urðu vinsælar og ómiss- andi í mörg ár. Halldór var rétt með- almaður á hæð, en þéttur á velli, katt- fimur og samsvaraði sér vel. Mikill keppnismaður en drengilegur í íþrótt sinni. Gekk hægt og hljótt um gátt með góðlátlegt bros og ljúfa fram- komu. Æsti sig aldrei en gaf ekki eft- ir. Ráðagóður og skrafsamur, fastur fyrir en skildi áður en skall í tönnum. Það var ávallt gaman að hitta hann. Íþróttirnar áttu hug hans allan. Hann keppti lengi, bæði í fótbolta og hand- bolta, þjálfaði víða og eins og fyrr er getið, stundaði ljósmyndun og blaða- mennsku af einskærum áhuga til að varpa ljósi á það mikla og skemmti- lega æskulýðsstarf og keppni, sem fram fer allan ársins hring og hring- inn í kringum landið. Hann var ein- lægur íþróttavinur og hugsjónamað- ur. Mér þótti vænt um hann Halldór. Blessuð sé minning hans. Ellert B. Schram. Elsku amma. Í dag hefðir þú orðið níræð. Við fáum ekki að gleðjast með þér eins og við vildum, því komið er að kveðjustund. En um leið og við kveðjum þig með sorg í hjarta, gleðj- umst við líka, því við vitum að þú ert ánægð, sameinuð þeim sem fyrir svo löngu kvöddu. Þótt ég sé látinn, harmið mig ekki með tár- um, hugsið ekki um dauðann með harmi eða ótta. Ég er svo nærri, að hvert eitt tár ykkar snertir mig og kvelur, þótt látinn mig haldið. En þegar þið hlæið og syngið með glöðum hug, lyftist sál mín upp í mót til ljóssins. Verið glöð og þakklát fyrir allt sem lífið gefur og ég, þótt látinn sé, tek þátt í gleði ykkar yfir lífinu. (Kahlil Gibran.) Elsku amma, það fá engin orð lýst hvernig kona þú varst, því að allt það besta bjó í þér. Eitt er víst að svo heppin vorum við og börnin okkar að fá að njóta þín í öll þessi ár. Minning- arnar um þig eru margar og allar eru þær fallegar og ljúfar, og hlýja manni um hjartarætur. Guð geymi þig. Þín barnabörn, Pétur, Signý og Elín. SIGNÝ ÓLAFS- DÓTTIR ✝ Signý Ólafsdóttir fæddist áLitlu-Borg í Vestur-Hópi í V- Húnavatnssýslu 11. desember 1913. Hún lést á Hrafnistu í Reykjavík 30. nóvember síðastlið- inn og var útför hennar gerð frá Fossvogskirkju 9. desember. Í nóvember mánuði síðast liðnum lézt sá ágæti maður Einar H. Zoëga og vil ég með fá- einum orðum minnast hans hér. Ég átti því láni að fagna að fá að starfa með Einari innan veggja Sendiráðs Bandaríkjanna um árabil og fór þar maður glöggur, traustur og einnig EINAR H. ZOËGA ✝ Einar H. Zoëgafæddist í Reykja- vík 26. mars 1934. Hann lést á Land- spítalanum 9. nóv- ember síðastliðinn og var útför hans gerð í kyrrþey. yfirvegaður húmoristi. Ég minist starfsmanna- funda þar sem víðsýni hans naut sín enda mik- ill heimsmaður og fljót- ur að eignast vini og bandamenn með hinni einstöku umgengnis- lagni sinni. Lífið er því miður ekki að eilífu, en sumir lifa þannig að þeir verða eilífir i minning- unni. Einar verður ávallt ljóslifandi í já- kvæðri minningu þeirra sem honum kynntust. Aðstandendum votta ég mína dýpstu samúð. Friðrik Ásmundsson Brekkan. Afmælis- og minningargreinum má skila í tölvupósti eða á disklingi (netfangið er minning@mbl.is, svar er sent sjálfkrafa um leið og grein hefur borist). Ef greinin er á disklingi þarf útprentun að fylgja. Nauðsyn- legt er að símanúmer höfundar og/eða send- anda (vinnusími og heimasími) fylgi með. Faðir okkar, JÓN VALGEIR ÓLAFSSON, áður búsettur á Búðarstíg, Eyrarbakka, lést á Ljósheimum, Selfossi, að kvöldi miðviku- dagsins 3. desember. Jarðarförin fer fram frá Eyrarbakkakirkju laugardaginn 13. desember kl. 11.00. Börn hins látna. Bróðir minn, GUÐMUNDUR JÓNSSON fyrrverandi sjómaður, Laufengi 23, verður jarðsunginn frá Háteigskirkju föstu- daginn 12. desember kl. 15.00. Böðvar Jónsson. Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengda- faðir, afi og langafi, SKARPHÉÐINN GUÐMUNDSSON, Hafnargötu 26, Siglufirði, lést á Sjúkrahúsi Siglufjarðar þriðjudaginn 9. desember. Fanney Vernharðsdóttir, Guðmundur J. Skarphéðinsson, Elín Anna Gestsdóttir, Anna Margrét Skarphéðinsdóttir, Sigríður K. Skarphéðinsdóttir, Sveinn Ástvaldsson, Vernharður Skarphéðinsson, Helga Jósepsdóttir, Guðfinna J. Skarphéðinsdóttir, Þröstur Ingólfsson, afabörn og langafabörn. Bróðir okkar, mágur og frændi, DEB KUMAR GURUNG, Blöndubakka 6, lést aðfaranótt laugardagsins 6. desember. Bindu Grungu, Man Kumar Grungu, Bikash Grungu, Rajendra Bahadur Grungu, Seema Grungu og aðstandendur. Elsku eiginkona mín, mamma, amma, lang- amma og tengdamamma, ÁSTRÍÐUR KARLSDÓTTIR hjúkrunarkona, Faxatúni 19, Garðabæ, andaðist á Landspítalanum við Hringbraut þriðjudaginn 9. desember. Rögnvaldur Þorleifsson, börn, barnabörn, langömmubarn og tengdabörn. Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi og lang- afi, HJALTI PÉTURSSON fyrrum bóndi, Snotranesi, sem lést á Sjúkrahúsinu á Egilsstöðum þriðju- daginn 2. desember, verður jarðsunginn frá Bakkagerðiskirkju laugardaginn 13. desember kl. 14.00. Kveðjuathöfn verður í sal Sjúkrahússins á Egilsstöðum föstudaginn 12. desember kl. 14.00. Börn, tengdabörn, barnabörn og langafabörn.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.