Morgunblaðið - 11.12.2003, Page 42
UMRÆÐAN
42 FIMMTUDAGUR 11. DESEMBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ
Í KVIKMYND Friðriks Þórs
Friðrikssonar, Djöflaeyjan, er dreg-
in upp mynd af þjóðfélagsaðstæðum
Reykvíkinga í upphafi sjöunda ára-
tugarins. Aðal persónur mynd-
arinnar bjuggu í
braggahverfi sem þótti
niðurlægjandi, því þar
bjuggu aðeins fátæk-
lingar. Þeir sem kom-
ust úr braggahverf-
unum fluttu í blokk
sem flestir litu á sem
næsta stig fyrir ofan,
þó fátæktarstimpillinn
væri kannski ekki jafn
áberandi.
Á þeim tíma og ár-
unum sem á eftir
fylgdu, var ímynd
íbúðablokkarinnar
ekki í hávegum höfð og það ekki tal-
inn vænlegur kostur að vera blokk-
aríbúi. Síðan hefur mikið vatn runn-
ið til sjávar og nú, um fjórum
áratugum síðar, er ímynd blokk-
arinnar allt önnur í hugum fólks. Á
höfuðborgarsvæðinu hafa risið fjöl-
margar blokkir, eða öllu heldur há-
reist fjölbýli eða fjölbýlishús. Þessar
háreistu byggingar hafa risið víða,
svo sem í Skuggahverfinu við Skúla-
götuna, í Sóltúninu, Grafarvogi,
Smárahverfi, Salarhverfinu, Lind-
arhverfinu og stefnt að byggingu
fjölbýlishúsa að Hörðuvöllum.
Fátt sameiginlegt
Þessi háreistu fjölbýli eiga fátt sam-
eiginlegt með blokkaríbúðunum sem
byggðar voru fyrir 3–4 áratugum.
Ég tel að þorri almennings muni
koma til með að líta á þau sem eðli-
lega byggðaþróun nú þegar hávær-
ar raddir heyrast um þéttingu
byggðar, enda munu þau að mati
greinarhöfundar falla vel inn í um-
hverfið og eiga eftir að verða eft-
irsótt vegna þess hve miðsvæðis þau
verða. Fjölbýlishúsunum munu
fylgja margir kostir, niðurgrafin
bílastæði, sérbyggð leiksvæði fyrir
hverja byggingu og frágang sem
tekur tillit til alls umhverfis á svæð-
inu.
Þrátt fyrir að íbúðir í fjölbýlis-
húsum á almennum
markaði séu nú orðnar
eftirsóttur kostur, eim-
ir enn eftir af þeim
hugsunarhætti að
mönnum séu ekki bjóð-
andi þau skilyrði sem
þar ríkja. Sá hugs-
unarháttur hefur til
dæmis bergmálað víða
í málflutningi þeirra
sem setja sig á móti
byggingu háreistra
fjölbýlishúsa í landi
Lundar í Kópavog-
inum. Notuð hafa verið
neikvæð orð um þessar fyrirhuguðu
byggingar eins og steintröll, íbúð-
arturnar, legsteinar, steinkastalar,
múr, tröllaborgir o.s.frv.
Niðurgrafin bílastæði
Í tillögum að skipulagi í landi Lund-
ar er gert ráð fyrir að háhýsin séu
af miklum gæðum. Áætlað er að á
svæðinu verði byggðar 480–500
íbúðir fyrir rúmlega 1.300 íbúa.
Fjöldi bílastæða verður við bygging-
arnar en tveir þriðju hlutar verða
niðurgrafnir. Gert er ráð fyrir fern-
um nýjum undirgöngum í tengslum
við íbúðarhúsnæðið, byggingu versl-
unar, leikskóla og bensínstöðvar.
Umfangsmiklar breytingar verða
gerðar á gatnakerfinu í næsta ná-
grenni. Í henni felst að í stað slaufu
norðan Nýbýlavegar, sem tengist
Nýbýlavegi milli Skeljabrekku og
Auðbrekku, er gert ráð fyrir rampa
af Hafnarfjarðarvegi inn í núver-
andi legu Skeljabrekku sem tengist
síðan Nýbýlavegi með hringtorgi.
Gert er ráð fyrir ,,nýrri“ Skelja-
brekku á stuttum kafla sem tengist
inn í Dalbrekku. Til þess að lág-
marka umferðarhávaða er gert ráð
fyrir að setja skermvegg á nyrðri
axlarbrún Nýbýlavegar og á ramp-
ann frá vestara hringtorgi Nýbýla-
vegar til norðurs inn á Hafnarfjarð-
arveg. Að auki verður sett upp
jarðvegsmön í boga vestan við
Lundarhverfi.
Útivistar- og frístundasvæði
Með áformuðum byggingum er
stefnt að góðri tengingu við útivist-
arsvæðið í Fossvogsdal. Annars
vegar er stór hluti svæðisins hafður
opinn og verður hannað sem nýtt
útivistar- og frístundasvæði. Komið
verður á betri tengingum frá útivist-
arsvæðinu innar í dalnum og út í
sjálfan Fossvoginn með göngustíga-
tengingum. Jafnframt er rétt að
taka fram að svæðið hefur verið af-
girt og lokað almenningi fram til
dagsins í dag.
Margir telja að íbúðir gætu orðið
óþarflega dýrar vegna alls þessa.
Greinarhöfundur vísar þeirri gagn-
rýni til föðurhúsa og vill benda á að
hagkvæmni er einn af þeim kostum
sem næst við áformað bygging-
arform og háa nýtingu á svæðinu
sem kemur kaupendum óneitanlega
til góða. Landið er verðmætt en sá
kostnaður dreifist á fleiri aðila en ef
gisnari byggðar hefði verið óskað á
svæðinu. Gisnari byggð er einmitt
það sem flestir þeir, sem gagnrýna
tillöguna, hafa farið fram á.
Breytt ímynd fjölbýlishúsa
Sverrir Hólm Reynisson
skrifar um skipulagsmál ’Í tillögum að skipulagií landi Lundar er gert
ráð fyrir að háhýsin séu
af miklum gæðum. ‘
Sverrir Hólm Reynisson
Höfundur er íbúi á Nýbýlavegi í
Kópavogi.
K
unningi minn, Vlad-
ímír Zhírínovskí,
getur aldeilis verið
ánægður með
árangur síns flokks,
Frjálslynda lýðræðisflokksins, í
þingkosningunum í Rússlandi sl.
sunnudag. Zhírínovskí fékk 11,6%
atkvæða í kosningunum en fékk
6% fyrir fjórum árum og hafði
raunar verið spáð svipuðu fylgi í
aðdraganda þessara kosninga.
Ég nota orðið kunningi um
Zhírínovskí því mér gafst tækifæri
til að eiga við hann samtal í Strass-
borg í Frakklandi seinast í sept-
ember en þar stóð þá yfir fundur
Evrópuráðsþingsins og var Zhír-
ínovskí þar einn af fulltrúum rúss-
neska þings-
ins.
Zhírínovskí
ræddi um það
þá að hann
stefndi að því
að verða for-
seti Rússlands ekki seinna en árið
2008 – en skv. núgildandi stjórn-
arskrá getur Vladímír Pútín ekki
setið lengur en til 2008 sem for-
seti.
Zhírínovskí var í ágætis skapi
þegar ég ræddi við hann. Hann
var nýkominn út úr þingsalnum í
Evrópuráðsbyggingunni, hafði
þar verið á mælendaskrá, og sat
einn frammi á bekk. Það var að
hefjast kokkteilboð þannig að ég
hugsaði með mér að það væri nú
eða aldrei að vippa sér að þessum
umdeilda stjórnmálamanni og
biðja um ofurlítið samtal.
Verð að játa að hjartað í mér sló
nokkuð ört; Zhírínovskí er jú
sennilega þekktastur á Íslandi fyr-
ir að hafa danglað til annars fram-
bjóðanda í sjónvarpsútsendingu
fyrir kosningar í Rússlandi fyrir
nokkrum árum. Maðurinn virðist
gjörsamlega óútreiknanlegur.
Nú síðast gerðist það á kjörstað
í Moskvu sl. sunnudag að Zhírín-
ovskí lenti í hávaðarifrildi við full-
trúa hins opinbera á kjörstað, sem
og við konu sem kunni því illa
hvernig hann hagaði sér. Zhírí-
novskí var hins vegar ekkert á því
að láta kveða sig í kútinn. „Hypj-
aðu þig í burtu!“ sagði Zhírínovskí
við konuna skv. frásögn Morgun-
blaðsins. „Þetta er brjáluð kona!
Sýndu mér miðann frá geðlækn-
inum þínum!“
Lauk uppákomu þessari þannig
að lífverðir Zhírínovskís drógu
konuna í burtu.
Ég minnist þess óljóst frá sam-
tali okkar Zhírínovskís í Strass-
borg að á vappi í kringum hann
hafi verið unglegir menn, sem ein-
mitt litu út fyrir að vera einhvers
konar lífverðir.
Þegar til kom reyndist þó alger
óþarfi að óttast Zhírínovskí. Raun-
ar held ég, eftir á að hyggja, að
hann hafi sumpartinn setið þarna
á bekknum í von um að einhver er-
lendur blaðamaður gæfi sig að
honum. Sannarlega var augljóst
að aðrir fulltrúar á Evrópuráðs-
þinginu voru ekki ýkja hrifnir af
Rússanum aðsópsmikla, raunar
grunar mig að margir álíti þeir
hann hálfgert úrhrak.
Blaðamaðurinn íslenski hlaut
hins vegar að hafa áhuga á því að
ræða við mann sem opinberlega
hefur lýst því yfir að hann vilji að
Ísland verði gert að fangaeyju fyr-
ir alla Evrópu. „Þetta yrði líka
gott fyrir Ísland því við myndum
borga ykkur fyrir að vista fangana
og sinna starfi fangavarða,“ sagði
hann við mig og var ekki að sjá að
hann væri að grínast.
Þetta er einmitt lykilspurning
hvað varðar alla umfjöllun um
Vladímír Zhírínovskí. Er hann al-
varlega þenkjandi maður sem hef-
ur einfaldlega sans fyrir því hvað
mun fanga athygli fólksins? Er
hann pólitískur trúður? Er hann
kannski brjálaður?
Ég ræddi við nokkra sem um
árabil hafa sótt fundi Evrópuráðs-
þingsins og þeir virtust ekki hafa
svarið á reiðum höndum. Mér var
sagt að oft kæmi fyrir að Zhírín-
ovskí flytti prýðilegar ræður um
tiltekin hagsmunamál umbjóð-
enda sinna í Rússlandi. Rétt í enda
ræðu sinnar tæki hann hins vegar
allt í einu upp á því að formæla
hommum, svo dæmi sé tekið, eins
og til að vekja þingsalinn af vær-
um svefni. Skipti þá engu að slík
umfjöllun um samkynhneigða
tengdist í engu því sem hann áður
hefði verið að segja.
Undarlegt háttalag, annað verð-
ur víst ekki sagt.
Sannarlega er Zhírínovskí ekki
eins og fólk er flest, það get ég
vottað. Sá uggur sem ég hafði bor-
ið í brjósti hvarf að vísu, enda lét
hann mig ekki hafa það óþvegið.
En hann ræskti sig í tíma og ótíma
meðan á spjalli okkar stóð, þannig
að undir tók í salnum. Hann var
líka með gullkeðjur um hvorn úln-
lið sem hann lék sér að því að
hrista ótt og títt. Mér datt helst í
hug að hann væri kannski svolítið
manískur.
Maðurinn hefur auðvitað ekki
neinar eðlilegar skoðanir. Hann
lýsti því yfir í samtali okkar að
hann vildi skipta Kína upp í sex
hluta til að draga úr hættunni sem
hann segir stafa af ríkinu (ætli
Kínverjar myndu ekki gera ein-
hverjar athugasemdir við þau
áform?), hann vill sömuleiðis að
einvörðungu verði þrír gjald-
miðlar í heiminum, dollari, evra og
rúbla, og hann vill að heiminum
verði stýrt frá Moskvu, Brussel og
Washington.
Zhírínovskí lagði síðan í samtali
okkar sérstaka áherslu á að Rúss-
land yrði gert að lögregluríki upp
á gamla skólann (e. military police
regime).
Áður hefur hann hótað að inn-
lima Alaska ef hann kæmist til
valda í Rússlandi, hann hefur haft
í flimtingum að nauðsynlegt kynni
að reynast að varpa kjarnorku-
sprengjum á Japan og hann hótaði
einhvern tíma að drekkja Þýska-
landi í geislavirkum úrgangi. Þá
hefur hann farið fögrum orðum
um hugmyndafræði Adolfs Hitlers
og hann ræktaði á sínum tíma vin-
skap við Saddam Hussein, fyrr-
verandi forseta Íraks.
Þegar ég kvaddi leysti Zhírín-
ovskí mig út með gjöfum, afhenti
mér kynningarbæklinga um
Frjálslynda lýðræðisflokkinn og
sömuleiðis afar áhugavert mynd-
band um rúmlega tíu ára sögu
flokksins. Þetta er eftirtektar-
verður maður, svo mikið er víst.
Umdeildir
menn I
Verð að játa að hjartað í mér sló
nokkuð ört; Zhírínovskí er jú sennilega
þekktastur á Íslandi fyrir að hafa
danglað til annars frambjóðanda
í sjónvarpsútsendingu fyrir kosningar
í Rússlandi fyrir nokkrum árum.
VIÐHORF
Eftir Davíð Loga
Sigurðsson
david@mbl.is
MAÐUR er nefndur Þórólfur
Árnason – frændi undirritaðs – og
ekki verri maður fyrir það! – Þessi
sami Þórólfur hefur tekið að sér að
vera borgarstjóri fyrir vinstri
bræðinginn í Reykjavík. Einkar
sárt fyrir góðan dreng ættaðan af
Snæfellsnesi! – Hann má ómögu-
lega taka upp sem fasta iðju flest
það versta í fari margra vinstri
manna þ.e. að hafa al-
gjör endaskipti á
sannleikanum, sam-
anber viðtal í Morg-
unblaðinu 5. desem-
ber sl. þar sem hann
tekur að sér að hrósa
í hástig reikningum
höfuðborgarinnar,
hafandi þó borðleggj-
andi fyrir framan sig
að skuldir borg-
arinnar hafa aukist
um – hvorki meira né
minna – 10 milljarða
króna á einu ári!
Langafi Þórólfs og ömmubróðir
greinarhöfundar, sá merki klerkur
séra Árni Þórarinsson, hinn sami
sem meistari Þórbergur gerði
ódauðlegan á sinni tíð í snjöllum
bókaflokki, var af mörgum (ómak-
lega) sagður „mesti lygari“ sinnar
samtíðar, og meistari Þórbergur
„sá auðtrúasti“. Hræddur er ég um
að gamli maðurinn hefði hins vegar
beðið Guð að hjálpa sér, hefði hann
átt að forsvara, hrósa, upphefja og
lýsa margfaldri blessun yfir tíu
milljarða skuldaaukningu á einu
ári hjá ákveðnu bæjarfélagi – svo
forhertur var gamli klerkurinn
örugglega ekki! – En í fyrrnefndu
Morgunblaðsviðtali hélt Þórólfur
frændi áfram að bera sannleik-
anum vitni – eða hitt þó heldur.
Gefum Þórólfi orðið:
„Útsvar yrði óbreytt á
næsta ári, 12,70%, á
meðan nágrannasveit-
arfélögin á höfuðborg-
arsvæðinu væru með
hærri útsvar. – Svo
mörg voru þau orð –
og gamli ömmubróðir
hefði eflaust bætt við,
„og sælir eru þeir sem
heyra“ o.s.frv.! – Til
að sannleikurinn megi
fram koma, bæði fyrir
Þórólf svo og alla þá
aðra sem áhuga hafa
fyrir álögum á skattborgara, er
hins vegar rétt að sýna svart á
hvítu, annars vegar skatta á Reyk-
víkinga undir stjórn vinstri manna
– hinsvegar skatt á Seltirninga
undir samfleytt fjögurra áratuga
stjórn sjálfstæðismanna.
Sjá töflu.
Til að kóróna „sköpunarverkið“
greiða Reykvíkingar fyrir tonnið af
heitu vatni kr. 73 á meðan Seltirn-
ingar greiða fyrir sitt heita vatn
aðeins kr. 37 fyrir tonnið. Hvorki
meira né minna en 70% munur!
Undirritaður vill helst ekki
verða valdur að því að frændi hans
fái magasár, ætti því ekki að nefna
– en geri það þó vegna ættlegrar
ótuktarsemi undirritaðs – að það
tæki Seltjarnaneskaupstað aðeins
3 ár að greiða upp allar sínar
skuldir – hins vegar Reykjavík-
urborg nær 8 ár, og sem smá inn-
legg vegna vinstri manna í Hafn-
arfirði, yrðu þeir 47 ár að greiða
allar skuldir þess bæjar!
Það stendur því sannarlega
óbreytt gamla kjörorð stjórnmála-
manna á vinstri vængnum, sem sé:
„Gott er að telja peninga úr
pyngju annarra“. Hins vegar finnst
mér sem ég heyri gamla klerkinn
hann ömmubróður minn segja:
„Heyrðu hróið mitt – hver smitaði
strákinn hann Þórólf af þessum
djeskotans vinstri vírus? – Úr því
hann er að skrökva á hann að gera
það trúverðuglega!!“ Megi á að-
ventu augu frænda míns opnast
fyrir sannleikanum – og gera
strákinn frjálsan!
Það er ljótt að skrökva,
Þórólfur frændi!
Magnús Erlendsson
fjallar um ósannsögli
’Undirritaður vill helst ekki verða valdur
að því að frændi hans
fái magasár.‘
Magnús Erlendsson
Höfundur er eldri borgari og var í tvo
áratugi bæjarfulltrúi í Seltjarnar-
nesbæ.
Reykjavík Seltjarnarnes
Útsvar 12,70% 12,46%
Sorphreinsigjald 7.260 kr. 4.800 kr.
Holræsigjald 0.115 Stórt núll. Ekkert lagt á bæjarbúa
Fasteignagjöld A-liður 0.32 0.36
Fasteignagjöld B-liður 1.65 1.12
Vatnsskattur 0.99 kr. pr. m2 0.15 pr. m2