Morgunblaðið - 11.12.2003, Síða 60

Morgunblaðið - 11.12.2003, Síða 60
DAGBÓK 60 FIMMTUDAGUR 11. DESEMBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ Víkverji skrifar... Víkverja fannst athyglisvert aðlesa frétt Morgunblaðsins um að Rússar ætluðu að hverfa frá uppboðum á aflaheimildum og hygðust þess í stað taka upp svipað kvótakerfi og er á Íslandi. Ekki liggur enn fyrir hvað þarf að greiða fyrir aflaheimildirnar í Rússlandi en þó var nefnt að útgerðarmenn þar myndu væntanlega þurfa að borga 13 þúsund krónur fyrir hvert tonn af þorski sem þeir fá að veiða í Barentshafi. Úthlutað aflamark á þessu fisk- veiðiári hér á Íslandi losar rúm 400 þúsund þorskígildistonn og því reiknast Víkverja til að ef sama gjald væri tekið hér og í Rússlandi þyrftu íslenskir útgerðarmenn að greiða á sjötta milljarð króna fyrir að fá að veiða úr sameiginlegri auð- lind landsmanna. x x x Dóttir Víkverja er í kirkjukór ogstefnt að því að kórinn haldi til útlanda á næsta sumri. Ekki er sú ferð ókeypis og því datt mönnum það frumlega ráð í hug að gera kórstúlkurnar út í sölumennsku og skyldi ágóðinn af sölu hverrar stúlku ganga upp í ferðakostnað hennar. Víkverja er slík sölu- starfsemi eitur í beinum og finnst hreinlegra að foreldrar greiði (eða greiði ekki) fyrir ferðina en ekki sé gert út á vonir um sölu barna eða unglinga á jólapappír og salern- ispappír eða öðru ámóta. Stað- reyndin er sú að oftast sitja for- eldrarnir – og kannski nánustu ættingjar einnig – uppi með margra ára birgðir af fyrrgreindri vöru. Dóttir Víkverja, sem gerði sér háar hugmyndir um mikla sölu og rífandi gróða, reyndi eina kvöld- stund að koma þessum varningi út með afar lélegum árangri. Var al- gerlega úr henni allur söluvindur að þeirri ferð lokinni – og hefur hún nú neitað að reyna að selja meira. Hluti vandans er auðvitað sá að fólk notar orðið greiðslukort og liggur yfirleitt ekki með mikla pen- inga á lausu heima hjá sér, sem gerir slíka sölu erfiða. x x x Vart verður því þverfótað fyrirjóla- og salernisvarningi í gang- vegi íbúðar Víkverja þessa dagana og hefur raunar legið við slysum vegna þess. Varningi sem um leið er æpandi minnisvarði um brostna söludrauma ungrar kórstúlku. Ekki stendur þó annað til en dóttir Víkverja fari í ferðina góðu næsta sumar. En Víkverja hefði engu að síður þótt betra að sleppa við sölustússið allt og greiða hrein- lega uppsett verð fyrir ferðina í stað þess að verða nú að pranga jóla- og klósettpappír inn á ætt- ingja og vini. Og auðvitað að nota hann sjálfur langt fram eftir öld- inni. Morgunblaðið/Kristinn Lítill hluti af jólapappírsbirgðum Víkverja. Námskeið fyrir fátæka HÚRRA, húrra, fyrir fé- lagsmálaráði Reykjavíkur, borgar sem er ýmist er kölluð borg eymdarinnar eða allsnægtanna þessa dagana. Nú á að bjóða upp á skjólstæðingum félags- þjónustunnar endurhæf- ingu og fjárhagslega ráð- gjöf. Fátækt fólk sem leitað hefur til félagsþjón- ustunnar hefur áður verið sent til ráðgjafa, t.d. sagði einstæð móðir mér að hún hefði verið send til slíks ráðgjafa, þar var henni ráðlagt að hætta að kaupa Moggann og sleppa því að horfa á sjónvarp. Hví ekki að ráðleggja þessu fólki að láta loka fyrir rafmagnið og hitann eða vera bara nokkuð að reyna að halda heimili. Ég veit að það er til fólk sem fer ekki nógu vel með peninga sína eins og Björk Vilhelmsdóttir heldur fram. En það er ekki aðal- orsök fátæktar hér á landi, heldur eru það of lág laun og bætur. En nú birtir til þegar farið verður að kenna þessu fátæka fólki að herða sultarólina frægu enn frekar. Þótt þó nokkir peningar hafi verið settir í neyðarhjálp hjá fé- lagsþjónustunni er það eins og dropi í hafið því að fátæktin er orðin stórt og mikið vandamál og þarf að gera átak til þess að leið- rétta kjör þessa fólks en ekki að senda það á nám- skeið sem greinilega er gert til þess að kenna fólki að lifa á nánast engu. Samtök gegn fátækt mótmæla þessum vinnu- brögðum og hvetja borg- arfulltrúa til þess að horf- ast í augu við staðreyndir. Sigrún Á. Reynisdóttir, formaður samtaka gegn fátækt. Ósammála húsmóður ÉG er ósammála húsmóð- ur úr vesturbænum um að myndirnar á mjólkurfern- unum séu ósmekklegar, mér finnst þær mjög sæt- ar, (þó augun séu soldið ýkt) við í fjölskyldunni hjá mér höfum verið að föndra með myndirnar, klippt þær út og sett framan á heimagerð jólakort. Ég vil þakka mjólkur- samsölunni fyrir með von um framhald næstu jól. Húsmóðir í austurbænum. Góð útvarpssaga ÉG vil koma á framfæri þakklæti fyrir útvarpssögu eftir Rannveigu Löve, hún er mjög góð. Og innilegt þakklæti til Guðrúnar Gísladóttur fyrir mjög góðan lestur á sögunni. Hulda B. Magnúsdóttir. Erfið áskrift ÉG vil byrja á því að þakka starfsfólki Morgun- blaðsins fyrir góða þjón- ustu. En að öðru. Okkur var sent DV í 4 daga eftir að það kom út að nýju. Þá ákváðum við að kaupa áskrift í 1 mánuð. Ég hringdi til að gerast áskrifandi, en ekki kom blaðið. Við hringdum öðru hvoru en aldrei fengum við blaðið. Að lokum lentum við á almennilegri konu í áskriftinni og þá fengum blaðið í örfáa daga. En nú fáum við hvorki Frétta- blaðið né DV. En svo fyrir stuttu síðan fundum við hinum megin við húsið okkar blaða- bunka fyrir hverfið – ennþá í plastinu. Lesandi. Náttúra Íslands KYNNI mín af gróðurfari Íslands og orsök gróður- eyðingar og álit fræði- manna í jarðvegs og gróð- urmálum hafa sannfært mig um að í dag sé lausa- ganga búfénaðar stærsti glæpurinn gegn náttúru Íslands. 250944-4709. VELVAKANDI Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15  Netfang velvakandi@mbl.is Morgunblaðið/Kristinn 1 7 11 15 22 24 12 14 3 9 20 10 4 8 21 23 25 13 17 5 18 6 19 2 16 MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍM- AR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar: 569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156, sérblöð 569 1222, aug- lýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.100 kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 190 kr. eintakið. Fréttir Bókatíðindi 2003. Númer fimmtud. 11. des. er 079379. Mannamót Norðurbrún 1, Furu- gerði 1, Hvassaleiti 56–58 og Hæð- argarður 31. Aðventu- ferð, mánud. 15. des. verður farið í hand- verkshús á Hellu, og Gallerý hjá Guðfinnu í Saurbæ, farið að Hest- heimum í jólakaffihlað- borð Lagt af stað kl. 12.30 frá Norðurbrún 1 og teknir farþegar í Furugerði. Skráning í Norðurbrún s. 568 6960, Furugerði s. 553 6040, Hvassaleiti s. 535 2720 og Hæð- argarði s. 568 3132. Aflagrandi 40. Kl. 9 vinnustofa og jóga, kl. 10 boccia, kl. 13 mynd- list. Árskógar 4. Kl. 9–12 handavinna, kl. 9–12.30 bókband, kl. 9.30 boccia, kl. 10.30–10.55 helgistund, kl. 11 leik- fimi, kl. 13–16.30 smíð- ar og handavinna, kl. 13.30 myndlist. Bólstaðarhlíð 43. Kl. 9–9.45 leikfimi, kl. 9–12 myndlist, kl. 9–16 handavinna, kl. 13–16 bókband. Félagsstarfið Dalbraut 27. Kl. 8–16 handa- vinnustofan opin. Félagsstarfið Dalbraut 18–20. Kl. 9 postulín, kl. 13 handavinna. Félagsstarfið, Hæð- argarði 31. Kl. 9–16.30 glerskurður, kl. 10–11 leikfimi, kl. 13.30 söng- hópurinn, kl. 15.15 dans. Félagsstarfið, Löngu- hlíð 3. Kl. 13 föndur og handavinna. Félag eldri borgara, Hafnarfirði, Hraunseli, vídeókrókurinn opinn, pútt kl. 10–11.30, leik- fimi kl. 11.20, glerlist kl 13, „Opið hús“ kl. 14 jólafundur í Hraunseli. Söngur 5 ára barna frá Viðivöllum. Gafl- arakórinn, jólasaga, séra Gunnþór flytur jólahugvekju. Happ- drætti og jólakaffi. Félag eldri borgara, Reykjavík, Ásgarði. Brids kl. 13, félagsvist kl. 20. Félagsstarf eldri borg- ara Mosfellssveit. Kl. 13 bókband og tré- skurður, kl. 13.30 les- klúbbur, kl. 17 starf kórs eldri borgara. Gerðuberg, fé- lagsstarf. Kl. 10.30 helgistund, frá hádegi vinnustofur og spilasal- ur opinn. Gjábakki, Fannborg 8. Kl. 9–15 handavinna, kl. 9.05 og 9.55 leikfimi, kl. 9.30 glerlist og ker- amik, kl. 10.50 róleg leikfimi, kl. 13 gler-og postulín, kl. 20 gömlu dansarnir, kl. 21 línu- dans. Kl. 14 aðventuhá- tíð, nemendur úr Hjallaskóla flytja dag- skrá undir stjórn Guð- rúnar Magnúsdóttur, bernskujólin Heiður Gestsdóttir, óvænt at- riði, fjöldasöngur, Ólaf- ur Ólafsson stjórnar og leikur undir á harm- ónikku, einsöngur Ingibjörg Aldís Ólafs- dóttir, hugleiðing á að- ventu, sr. Magnús Björnsson. Gullsmári, Gullsmára 13. Kl. 9.15 postulín, kl. 10 ganga, kl. 13–16 handavinna, brids kl. 13. Hraunbær 105. Kl. 9 handavinna, perlu- saumur, kortagerð og hjúkrunarfræðingur, kl. 10 boccia, kl. 11 leik- fimi, kl. 14 félagsvist. Hvassaleiti 56–58. Kl. 9–13 bútasaumur, kl. 10–11 boccia, kl. 13–16 hannyrðir, kl. 13.30–16 félagsvist. Litlu jólin eru á morgun. Korpúlfar Grafarvogi. Á morgun sundleikfimi í Grafarvogslaug kl. 9.30. Norðurbrún 1. Kl. 9– 16.45 opin vinnustofa, kl. 10–11 sam- verustund og leir. Vesturgata. Kl. 9.15– 15.30, handavinna, kl. 9–10 boccia, kl. 10.15– 11.45 enska, kl. 13–14 leikfimi, kl. 13–16 kór- æfing. Vitatorg. Kl. 8.45 smíði, kl. 9.30 gler- skurður og perlusaum- ur, kl. 10 boccia, kl. 13 handmennt og bridge. Þjónustumiðstöðin Sléttuvegi 11. Kl. 9.15 leikfimi, kl. 10–12 verslunin. Gullsmárabrids. Brids að Gullsmára 13. Skráning kl. 12.45. Spil hefst kl. 13. Félag áhugamanna um íþróttir aldraðra. Leikfimi í Bláa salnum kl. 11. Kiwanisklúbburinn Geysir, Mosfellsbæ. Félagsvist í kvöld kl. 20.30 í Kiwanishúsinu. Kvenfélag Kópavogs. Jólafundur í kvöld kl. 20 að Hamraborg 10. Jólahugvekja, jólalög. Konur, munið jóla- pakkana. Kristniboðsfélag kvenna, Háaleitisbraut 58–60. Jólafundurinn verður kl. 16 í umsjá Betsýar Halldórsson og hefst með kaffi. Í dag er fimmtudagur 11. des- ember, 345. dagur ársins 2003. Orð dagsins: Sá sem vill elska lífið og sjá góða daga, haldi tungu sinni frá vondu og vörum sínum frá að mæla svik. (1Pt. 3, 10.)     Íslendingar hafa eins ogaðrir mátt hlusta á – og jafnvel líða fyrir af- leiðingarnar af – barátt- unni gegn vinnusparn- aði,“ segir í Vef-Þjóðviljanum á and- riki.is. „Fylgjendur erf- iðrar lífsbaráttu hafa í gegnum aldirnar barist gegn framförum og fund- ið þeim flest til foráttu. Þeir hafa svo sem ekki komið hreint fram og lýst sig andsnúna fram- förum, heldur hafa þeir yfirleitt önnur yfirlýst markmið.     Hér á landi hefur áundanförnum árum mátt sjá límmiða með slagorðinu „3x meiri at- vinna“, sem á að vísa til þess að smábátaútgerð fylgi margfalt meiri at- vinna en togaraútgerð og þess vegna eigi smábátar að hljóta sérstaka náð fyrir augum stjórnvalda. Þessi barátta hefur því miður skilað árangri og útgerðir smábáta hafa notið forréttinda umfram aðrar útgerðir eins og sjá má af auknum afla þeirra miðað við heildarafla. Og einn angi vandamálsins skaut upp kollinum á dögunum þegar ákveðið var að veita svokallaða „línuívilnun“ eftir mikinn þrýsting frá þröngum sérhagsmunahópi.“     Vef-Þjóðviljinn vitnar íhagfræðinginn Wal- ter Williams um dæmi af miklum vinnusparnaði. „Williams segir frá því að árið 1970 hafi 421.000 manns starfað við miðlun símtala í Bandaríkjunum og að þá hafi Bandaríkja- menn hringt 9,8 milljarða langlínusímtala. Nú hringi Bandaríkjamenn meira en tífalt fleiri lang- línusímtöl á ári og ef hið opinbera hefði gripið fram fyrir hendurnar á tækninni væru nú yfir 4,2 milljónir Bandaríkja- manna starfandi við að koma símtölum áleiðis, eða 3% af vinnuafli lands- ins.“ Raunin er þó sú, segir pistilhöfundur, að aðeins 78.000 manns vinna við að miðla símtöl- um Bandaríkjamanna.     Sérhagsmunir og mis-skilningur hafa í gegnum tíðina haldið aft- ur af framförum á mörg- um sviðum og kostað marga sára fátækt. Willi- ams nefnir einmitt dæmi um einn mann sem lík- lega vildi vel en tókst þó að vinna töluvert ógagn með baráttu gegn vinnu- sparnaði, en það var Ma- hatma Gandhi á Indlandi árið 1924. Gandhi barðist gegn vélvæðingu með þeim orðum að vélar ættu ekki að vinna gegn handverki manna og af- leiðingarnar voru að sögn Williams þær, að ár- ið 1970 var framleiðni í vefnaði á Indlandi sú sama og á þriðja ára- tugnum í Bandaríkj- unum. Þetta er ágætt að hafa í huga næst þegar hugmyndir um að draga úr framleiðni skjóta upp kollinum hér á landi,“ segir í Vef-Þjóðviljanum. STAKSTEINAR Smábátar og framleiðni LÁRÉTT 1 koma fyrir, 4 fótmál, 7 tínt, 8 málmur, 9 beita, 11 nesoddinn, 13 lof, 14 krap, 15 úrræði, 17 skoð- un, 20 ambátt, 22 lengd- areining, 23 hakan, 24 magrar, 25 á næsta leiti. LÓÐRÉTT 1 frekast, 2 brjóstnæla, 3 tóma, 4 hákarlsöngull, 5 röltir, 6 gaffals, 10 svara, 12 veiðarfæri, 13 ósoðin, 15 gleður, 16 heiðrar, 18 læsir, 19 nes, 20 skordýr, 21 nákomin. LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU Lárétt: 1átakanleg, 8 labba, 9 sadda, 10 kák, 11 ríkti, 13 akrar, 15 hrygg, 18 klúrt, 21 ról, 22 saggi, 23 arinn, 24 hrokafull. Lóðrétt: 2 tóbak, 3 klaki, 4 níska, 5 eldur, 6 hlýr, 7 gaur, 12 tog, 14 kol, 15 hæsi, 16 ylgur, 17 grikk, 18 klauf, 19 úrill, 20 töng. Krossgáta

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.