Morgunblaðið - 13.12.2003, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 13.12.2003, Blaðsíða 28
Höfuðborgin | Akureyri | Suðurnes | Landið | Árborg Minnstaður Höfuðborgarsvæðið Svavar Knútur Kristinsson, svavar@mbl.is, sími 569-1100. Suðurnes Helgi Bjarnason, helgi@mbl.is, sími 569-1310 og 897-9706. Akureyri Skapti Hallgrímsson, skapti@mbl.is, Margrét Þóra Þórsdóttir, maggath@mbl.is og Kristján Kristjánson, krkr@mbl.is, sími 461-1600. Vesturland Ásdís Haraldsdóttir, asdish@mbl.is, sími 898-5258. Austurland Steinunn Ásmundsdóttir, austurland@mbl.is, sími 862-1169. Árborgarsvæðið og Landið Guðrún Aðalsteinsdóttir, frett@mbl.is, sími 569-1290. Mínstund frett@mbl.is Áhugasamir um Eyjagos | Gott inn- legg í Íslandssöguna var meðal annars það sem gagnrýnendur Morgunblaðsins sögðu um fyrstu bók Axels Gunnlaugs- sonar, Eldgos í garð- inum. Axel skrifar þar um upplifun sína í kringum Heimaeyj- argosið og á það vel við að bókin komi út í ár þegar 30 ár eru liðin frá þessum merka atburði í sögu landsins. Axel var á heimaslóðum um síð- ustu helgi þar sem hann las upp úr bók sinni og áritaði. Eyja- menn hafa greinilega mikinn áhuga á sögu Axels enda var fullt út úr dyrum á Kaffi Kró þegar kappinn las upp og hafði hann nóg að gera í áritunum í Pennanum bóka- búð í kjölfarið. Úr bæjarlífinu HÉÐAN OG ÞAÐAN Landsmót á Krókinn | Stjórn Ung- mennafélags Íslands ákvað á fundi sínum 6. desember sl. að fela Ungmennasambandi Skagafjarðar að halda 7. unglingalandsmót Ungmennafélags Íslands árið 2004. Ung- lingalandsmótið verður því haldið dagana 30. júlí til 1. ágúst 2004 á Sauðárkróki. Launamunur | Á fundi jafnréttis- og fjöl- skyldunefndar Akureyrar í vikunni bar Þorlákur Axel Jónsson fram tillögu um að jafnréttisráðgjafa yrði falið að hafa sam- band við samtök launþega og atvinnurek- enda um það hvaða þættir í kröfugerð þeirra og tilboðum eigi að draga úr launa- mun kynja í næstu kjarasamningum. Til- lögunni var vísað frá með 3 atkvæðum, einn var á móti frávísun og einn sat hjá. Áfundi jafnréttis- ogfjölskyldunefndarí vikunni var tekið fyrir erindi frá Ásu Elísu Einarsdóttur, barnalækni á FSA, þar sem hún grein- ir frá átaksverkefni gegn offitu barna á Akureyri og óskar eftir stuðningi frá Akureyrarbæ í formi greiðslu launa fyrir íþróttafræðing og/eða fríð- indum svo sem frítt í sund og í Hlíðarfjall. Óskað var eftir umsögn jafnréttis- og fjölskyldu- nefndar. Nefndin lýsir yfir ánægju með framtak FSA, Heilsugæslu Akureyrar og Eflingar um að standa fyrir átaksverkefni gegn offitu barna á Akureyri og telur að þar sé um þarft heilbrigðismál að ræða. Nefndin telur hins veg- ar að það sé hlutverk rík- isins fremur en sveitarfé- lags að styrkja verkefni á þessu sviði. Offita Búðardalur | Lionsklúbburinn í Búðardal gaf Dval- arheimilinu Silfurtúni sjúkralyftu nýlega. Er þetta kærkomin gjöf þar sem ekki var slík lyfta til áður og full þörf talin fyrir hana á heimilinu. Guðjón Guð- mundsson afhendir lyftuna og Guðrún Sigurðardóttir og Sigríður Árnadóttir veita henni viðtöku. Morgunblaðið/Helga H. Ágústsdóttir Gáfu sjúkralyftu G-strengur er ákaf-lega skjóllítil flíkað dómi Friðriks Steingrímssonar í Mý- vatnssveit. Eitthvað voru menn þar um slóðir að velta þessu nafni fyrir sér og fundu nýtt orð eftir að hafa flett upp í orðabók. Úr varð vísa: Fráleitt heilla fljóðin mig þó fegurð séu gæddar, sem skríða um og skaka sig skapadulu klæddar. Af skapadulum Fagridalur | Hinn 26. september 1903 var nautgriparæktarfélag Dyrhólahrepps stofnað og var tilgangur félagsins að bæta kúa- kynið í sveitinni. Þetta félag starfar en þann dag í dag þó að áherslur og allar aðstæður hafi breyst mjög mikið og þá líklega urðu mestu breytingarnar þegar sæðingar hófust því að áður fólst mikill hluti af starfi félagsins í að eiga og sjá um naut fyrir bænd- ur. Til að halda upp á afmælið buðu nautgripabændur í félaginu til mikillar veislu á Ketilsstöðum og nutu við það hjálpar frá kven- félagi Dyrhólahrepps, en eins og veislustjórinn, Hermann Árna- son, sagði þá eru þessi félög mjög samofin. Núverandi formaður, Sigurjón Eyjólfsson í Eystri-Pétursey, setti samkomuna og Magnús Þór Snorrason í Sólheimatungu, rit- ari félagsins, rakti sögu félagsins frá stofnun og til dagsins í dag og kom þar fram að þetta er elsta nautgriparæktarfélag landsins. Einnig fluttu Sveinn Sigmunds- son, framkvæmdastjóri Bún- aðarsambands Suðurlands, og Eysteinn Jónsson, aðstoð- armaður landbúnaðarráðherra, ásamt Eyþóri Ólafssyni frá Skeiðflöt ávörp. Morgunblaðið/Jónas Erlendsson Svaladrykkur: Erna Ólafsdóttir gefur veislugestum að drekka úr mjólkurbrúsunum. Nautgriparækt í hundrað ár Morgunblaðið/Jónas Erlendsson Gjafir: Sigurjón Eyjólfsson tek- ur við gjöfum sem Sveinn Sig- urmundsson afhenti fyrir hönd Búnaðarsambands Suðurlands. Breyttar aðstæður EIGENDUR ullarþvottastöðvarinnar Ístex í Hveragerði hafa undirritað viljayfirlýsingu um að flytja starfsemina til Blönduóss að því er kemur fram í Húnahorninu, huni.is Blönduóssbær hefur nú þegar skipað vinnuhóp um byggingu iðnaðarhúss á staðn- um í tengslum við fyrirhugaðan flutning ull- arþvottastöðvarinnar. Ætlunin er að reisa 1.800 fermetra hús með aðkomu heimaaðila og hugsanlega opinberra aðila og hefur bæj- arstjórn samþykkt fyrirheit um hlutafé að upphæð 7 milljónir króna til stofnun hluta- félags um bygginguna. Ljóst má vera að flutningur Ullarþvottastöðvarinnar yrði mikil lyftistöng fyrir héraðið, en um er að ræða 10-15 ársverk, segir á huni.is. Ístex ræðir flutning til Blönduóss SAMTÖK eigenda sjávarjarða hafa sent Kristni. H. Gunnarssyni, formanni sjávar- útvegsnefndar Alþingis bréf, þar sem bent er á að Alþingi hafi, með lögum um línu- ívilnun, enn á ný ráðstafað úr sameiginlegri auðlind án samráðs við löglega meðeigendur. Alþingi hafi ekki heim- ild eða umboð sam- kvæmt stjórnarskránni, segir í bréfinu, til þess að svipta eigendur sjáv- arjarða eignum sínum með því að samþykkja lög sem taki yfir lögleg- ar stjórnarskrárbundn- ar eignir og réttindi eig- enda sjávarjarða eins og gert sé í lagafrum- varpi um línuívilnunina. „Samtök eigenda sjávarjarða taka í sjálfu sér ekki afstöðu til hugmyndarinnar um sk. línuívilnun sem slíkrar, en það er krafa þeirra að Alþingi virði rétt sjávar- jarða og hafi fullt samráð við löglega með- eigendur að sjávarauðlindinni um aðgerðir sem hér eru boðaðar. Ef almenningsþörf krefst þess, og verði eigendur löglega skyldaðir til að láta af hendi þessa eign, skal fullt verð koma fyrir. Við fyrri aðgerð- ir og ráðstafanir á sjávarauðlindinni hefur eigendum sjávarjarða verið sýnt algjört fá- læti og lögmætum kröfum þeirra hefur ekki verið sinnt. Tímabært er að breyting verði þar á,“ segir í bréfi samtakanna. Alþingi virði rétt sjávarjarða ♦ ♦ ♦ Kuldagallakuldi | Fimmtudagurinn var kaldur á Norðurlandi. Svo lýsir JS fimmtu- dagsmorgninum á Húsavík á þingeyska fréttavefnum skarpur.is: „Kaldasti morg- unninn um langt skeið.... . En morgunninn er ægifagur (orðið dregið af Ægi Eika)... Kiddi Lúlla röltir í kuldagalla niður Hjarð- arhólinn, enda kuldagallakuldi og þetta því eina flíkin við hæfi... Einhver stingur sér inn í Bókabúðina þar sem Siddi snýst eins og skopparakringla umhverfis kúnnana …“          Andrés H. Valbergvar mikill hagyrð-ingur og skemmti- legur sögumaður. Hann átti jafnan síðasta orðið á fundum Kvæðamanna- félagsins Iðunnar. Andrés orti um jólin: Jólaljós í höll og hreysi, heldur styttast nóttin fer, víkur burtu vonarleysi, vaknar þrá í brjósti mér. Hækka tekur himinsólin, hættum lítt ég kvíða þarf, endurnærður eftir jólin aftur hef ég lífsins starf. Í höll og hreysi pebl@mbl.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.