Morgunblaðið - 13.12.2003, Blaðsíða 90
FÓLK Í FRÉTTUM
90 LAUGARDAGUR 13. DESEMBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ
Í RÚM fjörutíu ár hefur Hnotu-
brjótur Tsjajkovskíjs í endursköpun
Dukes Ellingtons og Billys Stray-
horns fylgt mér. Því beið ég óþreyju-
fullur eftir að heyra Stórsveit Reykja-
víkur flytja verkið undir stjórn
Kanadamannsins af íslenskum ætt-
um: Richards Gilles – þeim hinum
sama er blés á trompet með Guitar
Islancio á kanadísku plötunni þeirra:
Connections. Hafði hann ásamt
tveimur félögum sínum skrifað verkið
upp eftir hljóðritun Ellingons fyrir
Columbiu frá 1960 og eftir því sem ég
get dæmt nokkuð nákvæmlega. Það
er ekki heiglum hent að glíma við
verk Ellingtons. Djassstórsveit er
meðal annars ólík sinfóníuhljómsveit
að því leyti að hver djassleikari reynir
að skapa sér persónulegan tón í stað
þess að hljóma líkt og aðrir er leika á
sama hljóðfæri – djasshljómsveit lík-
ist að því leyti kór er aðeins væri skip-
aður fyrsta klassa einsöngvurum með
einstaka meðaljón til uppfyllingar.
Því má þekkja bestu stórsveitir djass-
ins á hljóminum einum og þó enga
einsog stórsveit Ellingtons. Sömu
stórmeistararnir léku með honum í
áratugi og stefgjöld meistarans fóru í
að borga himinhá laun þeirra. En
einsog Ellington sagði: ,,Þegar ég
skrifa hef ég alltaf ákveðinn hljóð-
færaleikara í huga fyrir hverja rödd
og þá vil ég ekki missa og án þeirra
get ég ekki skrifað. Þess vegna hljóm-
aði Ellington-bandið öðruvísi en allar
aðrar hljómsveitir. Hann var hinn
mikli meistari tónalitanna. Því hefur
gengið á ýmsu þegar stórsveitir hafa
verið að flytja verk Ellingons. Þó hef-
ur ýmsum tekist það allvel einsog
Stórsveit danska ríkisútvarpsins þeg-
ar hún var uppá sitt besta með menn
á borð við Jesper Thilo innanborðs og
sem betur fer tókst Stórsveit Reykja-
víkur nokkuð vel upp í flutningi sínum
á Hnotubrjótnum. Auðvitað hljómaði
sveitin ekki einsog Ellington-bandið
með Hodges, Gonsalves og Carney í
saxasveitinni og Ray Nance á tromp-
etinn, Lawrance Brown á básúnuna
og Sam Woodyard bak við trommurn-
ar. Það datt heldur engum í hug að
reyna slíkt.
Ellington og Strayhorn nota fyrst
og fremst laglínur Tsjajkovskíjs
Hljómar og hrynur er þeirra. Þetta er
djassverk byggt á lagasmíðum Tsjaj-
kovskíjs. Röð dansanna er örlítið
breytt en að sjálfsögðu var byrjað á
Forleiknum, sem var dálítið kraftlítill
í flutningi sveitarinnar, en í Dansi
reyrflautuleikaranna, sem Ellington
nefnir Toot Toot Tootie Toot, var
meira jafnvægi komið á og Jóel Páls-
son og Sigurður Flosason á klarinett-
in einsog Hamilton og Procope. Mars-
inn er nefnist Peanuts Brittle Brigade
uppá ellingtonísku svíngaði vel þótt
riffið hefði mátt vera kraftmeira og í
„Dansi plómudísarinnar“, sem Elling-
ton nefnir Sugar Rum Cherry, komst
bandið býsna nálægt Ellingtonsánd-
inu og Jóhann trommaði með höndum
og var þá miklu meira í takti við
Woodyard en þegar hann beitti kjuð-
unum. Jóel lék fínan tenórsóló all-
fjarri Gonsalves; harður og oft urg-
andi þótt mýktin skyti upp kollinum á
stundum. Forleikslaglínan réð ríkjum
í millikaflanum þarsem menn blésu
stutta en hnitmiðaða sólóa: Jóel (Gon-
salves), Stefán (Hodges), Kristinn
(Carney), Samúel (Bown) og Sigurð-
ur (Hamilton). Rússneski dansinn,
The Volga Vounty, var ansi daufur og
það sama má segja um þann kín-
verska (Chinoiserie) enda skrifaður
með Gonsalves og Hamilton eina í
huga. Blómavalsinn (Danse of the
Floreadores) var ekki lengur vals
heldur tjútt og bandið fínt og svo kom
Arabadansinn (Arabesque Cookies)
þar sem Árni Heiðar var á tambórínu
einsog Juan Tizol og Siggi Flosa blés
bambusreyrflautukafla Procopes á
pikkalóflautu. Jóel var í hlutverki
Carneys á bassaklarinett í dúett við
Sigurð sem Hamilton á klarinett.
Skiluðu þeir sínu með elegans, en
þegar arabahrynurinn varð að heitri
sveiflu blés Ólafur Jónsson í tenórinn.
Það var ágætissóló, en þarna var
Hodges í einleikshlutverki hjá Elling-
ton og mikið hefði verið gaman að
heyra Sigurð Flosason spreyta sig
þar einsog Thilo gerði hjá dönskum.
En því miður var of mikið að gera í
flautu og klarinettudeildinni. Kjartan
og Snorri blésu Nance sólóana með
ágætum í Hnotubrjótnum og David
Bobroff gat líka sveiflað demparanum
einsog Booty Wood og Sigurður Þor-
bergsson var sterkur í básúnusveit-
inni. Að sjálfsögðu voru sólóar okkar
manna ekki kópíur af sólóum Elling-
ton-meistaranna, en báru keim af
þeim – annars hefði heildarmynd
verksins skekkst. Þegar á allt er litið
stóðst Stórsveitin þessa prófraun með
ágætum. Auðvitað hefðu æfingar
mátt vera fleiri og brassið tandur-
hreint – en Ellington-andinn var til
staðar.
Kristjana Stefánsdóttir söng þrjú
lög í Ellustíl með áætum og fleiri jóla-
lög flutu með. Sérílagi var gaman að
upphafi tónleikanna þegar Árni Heið-
ar, sem nú er kominn heim eftir
þriggja ára nám í klassík og djassi í
Englandi, lék tríóinngang að Jingel
Bell Basies. Svo blés Gilles með milli-
nafnið Jóhann trompetsóló í Winther
Wonderland í sölsustíl. Góður tromp-
etleikari og vesturíslenskur í báðar
ættir og þökk sé Stórsveit Reykjavík-
ur fyrir enn einn snilldarkonsert sem
af er vetri.
Morgunblaðið/Sverrir
Stórsveitin hefur haldið hverja stórtónleikana á fætur öðrum.
Hnotubrjótur Ellingtons
og Tsjajkovskíjs
DJASS
Ráðhús Reykjavíkur
Einar St. Jónsson, Snorri Sigurðarson,
Kjartan Hákonarson og Örn Hafsteinsson
trompetar og flygilhorn; Samúel Jón Sam-
úelsson, Björn R. Einarsson og Sigurður
Þorbergsson básúnur; David Bobroff
bassabásúnu; Sigurður Flosason, Stefán
S. Stefánsson, Ólafur Jónsson, Jóel Páls-
son og Kristinn Svavarsson saxófónar og
klarinettur; Árni Karlsson píanó, Birgir
Bragason bassa og Jóhann Hjörleifsson
trommur. Söngkona: Kristjana Stef-
ánsdóttir. Stjórnandi Richard Gilles sem
einnig blés í trompet.
Föstudagskvöldið 5.12. 2003.
STÓRSVEIT REYKJAVÍKUR
Vernharður Linnet
AUGLÝSINGADEILD
netfang: augl@mbl.is eða sími 569 1111
Pálmi Gunnarsson
með nýja hljómsveit í kvöld
Leikhúsgestir munið 15% afslátt - Spennandi matseðill!
LAU. 13/12 - KL. 18 UPPSELT
LAU. 13/12 - KL. 22 ÖRFÁ SÆTI LAUS
SUN. 14/12 - KL. 19 UPPSELT
LAU. 20/12 - KL. 15 LAUS SÆTI
SUN. 21/12 - KL. 15 LAUS SÆTI
ATH! SÝNINGAR HÆTTA UM ÁRAMÓTIN
ÓSÓTTAR PANTANIR SELDAR DAGLEGA
Leikhópurinn Á senunni
nýtt barnaleikrit
eftir Felix Bergsson
Sun. 14. des. kl. 14. uppselt
Sun. 21. des. kl. 14.
Lau. 27. des. kl. 14. uppselt
Lau. 27. des. kl. 16. uppselt
Sun. 28. des. kl. 14.
Sun. 28. des. kl. 16. örfá sæti
Miðasala í síma 866 0011
www.senan.is
Miðasala í síma 562 9700
www.idno.is
Opið frá kl. 18 fimmtudags-
sunnudagskvöld.
Edda Björgvinsdóttir
tekur á móti gestum og losar um
hömlur á hádegi föstudaga kl. 11.45.
Carmen
Jólakvöldverður og gullmolar úr
Carmen
Lau. 13. des. örfá sæti
Tónleikar gullmolar úr Carmen
Fös. 19. des.
Tenórinn
Sun. 14. des. kl. 20.00. Örfá sæti
Lau. 27. des. kl. 20.00. Laus sæti
Sellófon
Gríman 2003: „Besta leiksýningin“
að mati áhorfenda
Þri. 30. des. kl. 21.00. örfá sæti
Fös. 2. jan. kl. 21.00. nokkur sæti
WWW.sellofon.is og sellofon@mmedia.is
Stóra svið Nýja svið og Litla svið
LÍNA LANGSOKKUR e. Astrid Lindgren
Í dag kl 14 - UPPSELT, Su 14/12 kl 14 - UPPSELT
Lau 27/12 kl 14 - UPPSELT, Su 28/12 kl 14 - UPPSELT
Lau 3/1 kl 14 - UPPSELT, Su 4/1 kl 14,
Lau 10/1 kl 14, Su 11/1 kl 14 Su 18/1 kl 14, - UPPSELT,
Lau 24/1 kl 14, Su 25/1 kl 14 - UPPSELT, Lau 31/1 kl 14
Su 1/2 kl 14, Lau 7/2 kl 14 - TÁKNMÁLSTÚLKUÐ SÝNING
ÖFUGU MEGIN UPPÍ e. Derek Benfield
Fö 9/1 kl 20
Miðasala: 568 8000
Nýr opnunartími: Mánudaga og þriðjudaga: 10:00 - 18:00
miðviku-, fimmtu- og föstudaga: 10:00 - 20:00
laugardaga og sunnudaga: 12:00 - 20:00
SAUNA UNDER MY SKIN
Gestasýning Inclusive Dance Company - Noregi
Su 14/12 kl 20
www.borgarleikhus.is midasala@borgarleikhus.is
Meira (en) leikhús!
TIL SÖLU ALLA DAGA: LÍNU-BOLIR, LÍNU-DÚKKUR
****************************************************************
LÍNU-LYKLAKIPPUR, HERRA NÍELS, HESTURINN
****************************************************************
GJAFAKORT Á LÍNU LANGSOKK KR. 1.900
****************************************************************
GJAFAKORT Á CHICAGO KR. 2.900
****************************************************************
ALMENN GJAFAKORT - GILDA ENDALAUST
SPORVAGNINN GIRND e. Tennessee Williams
Forsýning fö 26/12 kl 20 - kr. 1.500
FRUMSÝNING lau 27/12 kl 20 - UPPSELT
Su 28/12 kl 20,
Fö 2/1 kl 20,
Lau 3/1 kl 20
Miðasala í síma 552 3000
Loftkastalinn
Sunnudagur 14. des.
kl. 20.00 laus sæti
Sveinsstykki
Arnars Jónssonar
Nýr einleikur
eftir Þorvald Þorsteinsson
INCLUSIVE
DANCE COMPANY
frá Þrándheimi, Noregi
SAUNA UNDER MY SKIN
dansleikhús - videólist
Sunnudagskvöld
kl. 20 á Nýja sviði
Borgarleikhússins
Miðasala 568 8000
GESTALEIKSÝNING
Jólaskemmtun
í Kaffileikhúsinu
lau. 13. des. og sun. 14. des.
kl. 20.00
Miðapantanir í síma 661 2525
og á hugleik@mi.is