Morgunblaðið - 14.12.2003, Side 1
STOFNAÐ 1913 339. TBL. 91. ÁRG. SUNNUDAGUR 14. DESEMBER 2003 PRENTSMIÐJA ÁRVAKURS HF. mbl.is
Rómantíkin
er hans fag
Love Actually er þó frumraun Rich-
ards Curtis sem leikstjóra | Fólk 64
Tímaritið og Atvinna
Tímaritið | Hver er Einar Örn? Feðginin Sally og Magnús
Magnússon á slóðum forfeðranna Atvinna |Atvinnuleysi há-
skólamenntaðra nokkuð stöðugt Skýr stefnumótun
5 6 9 0 9 0 0 0 0 0 9 0 0
SUNNUDAGUR VERÐ KR. 300
ÍTALSKI forsætisráðherrann Silvio Ber-
lusconi sagði í gær að leiðtogar Evrópusam-
bandsins myndu ræða málamiðlunartillögur
sínar fram eftir laugardeginum, en hann
vonaðist til að þær gætu orðið til að rjúfa
þráteflið um síðasta óleysta ágreiningsmálið
sem væri í veginum fyrir samkomulagi um
nýjan stjórnarskrársáttmála sambandsins.
Aðalverkefni leiðtogafundarins nú var að
ganga frá slíku samkomulagi, tímanlega fyr-
ir inngöngu tíu nýrra ríkja í sambandið í vor.
Berlusconi, sem gegnir nú formennsku-
hlutverkinu í ESB, tjáði blaðamönnum í
Brussel að það væri „eitt atriði eftir sem
ekki er sátt um,“ en það væri hið fyrirhug-
aða breytta kerfi atkvæðagreiðslna með
vegnum meirihluta, við ákvarðanatöku í ráð-
herraráðinu. Gaf Berlusconi þar með til
kynna að tekizt hefði á fyrsta sólarhring
fundarins að leysa önnur ágreiningsmál
varðandi stjórnarskrársáttmálann.
Fjórar útfærslutillögur
Sagði Berlusconi að ítalska formennskan
legði fram fjórar tillögur að málamiðlunar-
útfærslum á atkvæðakerfinu, aðalbitbeininu
sem Spánverjar en einkum og sér í lagi þó
Pólverjar hafa ekki viljað samþykkja.
Berlusconi hafði áður sagt að leiðtogarnir
myndu ekki láta fundinn dragast meira á
langinn en fram á daginn í dag. Verði ekkert
samkomulag þá í höfn verði ekki um annað
að ræða en að fresta því fram á nýja árið að
hnýta lausa enda stjórnarskrársáttmálans.
AP
Berlusconi talar við blaðamenn í gær.
Reynt að
rjúfa
þráteflið
Brussel. AFP, AP.
FLUGSTÖÐ
Leifs Eiríkssonar
verður stækkuð
um samtals u.þ.b.
2.200 fermetra í
tveimur áföngum,
og er reiknað
með að fram-
kvæmdum verði
lokið í júní 2005.
Á bilinu 50 til 70
störf munu skapast við framkvæmdirnar.
Tveir 1.000 fermetra glerskálar verða byggðir við
flugstöðina, annar vestanmegin til að stækka brott-
fararsal og hinn austanmegin til að bæta aðstöðu
fyrir komufarþega. Einnig verður hluta þaksins á
flugstöðinni lyft og þriðja hæðin þannig stækkuð, og
skrifstofur sem nú eru á annarri hæð fluttar þang-
að. Plássið sem þá losnar á annarri hæðinni verður
notað til að auka þjónustu fyrir brottfararfarþega,
en einnig verður vopnaleitin flutt á aðra hæðina.
Höskuldur Ásgeirsson, framkvæmdastjóri flug-
stöðvarinnar, segir að meðal nýjunga í flugstöðinni
megi nefna sjálfsafgreiðslustöðvar þar sem farþegar
geta innritað sig sjálfir og fengið brottfararspjald.
Einnig verður aðstaða fyrir komufarþega bætt til
muna, fríhöfnin tvöfölduð að stærð og aðstaða fyrir
þjónustuaðila, svo sem bílaleigur og ferðaskrifstof-
ur, stórbætt. Kostnaður við framkvæmdirnar er
áætlaður á bilinu 1.100 til 1.200 milljónir, og mun
hlutafélagið leggja til hluta fjárins og taka lán fyrir
hluta.
Stækkun Flugstöðvar Leifs Eiríkssonar boðin út
Kostnaður áætlaður
röskur milljarður
Framkvæmdum/6
UM 160 karlar greinast árlega með krabbamein
í blöðruhálskirtli og eru þeir jafnmargir og þær
konur sem greinast með brjóstakrabbamein.
Kemur þetta m.a. fram í skýrslu Krabbameins-
félagsins um árlegan meðalfjölda krabbameina
hjá körlum og konum 1998 til 2000.
Einnig kemur fram að árlegur meðalfjöldi
lungnakrabbameins sé rúmlega 50 hjá hvoru
kyni og 48 karlar og 38 konur fái ristilkrabba-
mein.
verið fram á meiri tíðni meinsins í ákveðnum
ættum. Í viðtali í Tímariti Morgunblaðsins segir
hann nýjar aðferðir hafa komið fram við að
greina krabbamein í blöðruhálskirtli, t.d. sér-
hæft blöðruhálskirtilsmótefni (PSA), sem
mælist í blóði. „Karlmenn hafa leitast við í
auknum mæli að láta skoða sig án þess að hafa
nokkur einkenni,“ segir hann.
Greiningartilfelli blöðruhálskirtilskrabba-
meins hafa tvöfaldast á síðustu tuttugu árum og
er það langalgengasta krabbamein meðal karla
eins og brjóstakrabbamein hjá konum, sem þó
búa við fullkomnara eftirlitskerfi.
Guðmundur Vikar Einarsson, þvagfæra-
skurðlæknir og dósent við læknadeild Háskóla
Íslands, bendir á að aukning á blöðruhálskirt-
ilskrabbameini geti átt rætur að rekja til
breyttra lífshátta, t.d. mataræðis, og sýnt hafi
Um 160 karlar greinast á ári
Karllægir/Tímarit 17
Krabbamein í blöðruhálskirtli hefur tvöfaldast á 20 árum
DÖGUNIN ber með sér nýja von og er oft ægi-
fögur um þetta leyti ársins á Austurlandi. Þeg-
ir bærinn og vetrarsólin glampar á Reyðar-
firðinum. Yst glittir í eyjuna Skrúð.
ar horft er úr kirkjugarðinum á Eskifirði ber
sáluhlið garðsins við himin en fyrir neðan kúr-
Morgunblaðið/Helgi Garðarsson
Sáluhlið í nýrri dögun
SAMKVÆMT rannsóknaniðurstöðum vís-
indamanna í Kaliforníu er einn stakur
erfðavísir ábyrgur fyrir vímuáhrifum
áfengis á dýr og menn. Sé viðkomandi
erfðavísir tekinn úr sambandi hljótast eng-
in vímuáhrif af neyzlu áfengis, sama hve
mikils magns er neytt.
Að þessu komust Andrew Davies og sam-
starfsmenn hans á Ernest Gallo Clinic and
Research Center í San Francisco í til-
raunum sem þeir gerðu á bandormum.
Ormarnir létu það ekkert á sig fá að vera
helltir fullir af alkóhóli, eftir að vís-
indamennirnir höfðu fjarlægt svonefndan
slo-1-erfðavísi úr þeim. Þetta gerði þá
ónæma fyrir áfengi. Fullyrða vísindamenn-
irnir í grein sem þeir skrifa um rannsókn-
ina í nýjasta hefti vísindaritsins Cell að hið
sama eigi við um menn, að því er greint er
frá á fréttavef Der Spiegel.
Vonazt er til að uppgötvunin geti leitt af
sér ný lyf til meðhöndlunar á áfengissýki.
Vímugenið
fundið?
♦ ♦ ♦