Morgunblaðið - 14.12.2003, Side 26
26 SUNNUDAGUR 14. DESEMBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ
F
áar bækur hafa vakið
annað eins umtal og
deilur og The Da Vinci
Code, eða Da Vinci-
lykillinn eins og bókin
heitir í íslenskri útgáfu
Bjarts, og hugsanlega
hafa deilurnar haft eitthvað að
segja um það hve bókin er enn
vinsæl. Hún er mest selda bók á
Amazon þegar þessi orð eru skrif-
uð, tíu mánuðum eftir að hún kom
út. Sala á henni fór líka bratt af
stað.
Fjórar milljónir eintaka
Da Vinci-lykillinn er fjórða bók
Dans Browns og önnur bókin sem
er með Robert Langdon sem aðal-
persónu. Aðstandendur útgáfu
hans voru svo vissir um að þeir
væru með metsölubók í höndunum
að þeir greiddu Brown metfé í
fyrirframgreiðslu, um 40 milljónir
króna, eftir að hafa lesið stutta
kynningu á henni og fóru svo af
stað með látum þegar bókin var
tilbúin.
Þannig dreifðu þeir 10.000 ein-
tökum til fjölmiðla og ýmissa
áhrifamanna sem var talsvert
meira en selst hafði af Dan
Brown-bók fram að því. Svo vel
tókst þeim upp við að skapa eft-
irspurn að bókin fór beint á topp-
inn á metsölulista New York Tim-
es sem vakti að vonum gríðarlega
athygli; svoleiðis gera ekki nema
frægustu höfundar núorðið, ekki
síst eftir efnahagssamdrátt og
ýmsa kröm.
Fyrstu tvo dagana seldust af Da
Vinci-lyklinum 8.000 eintök og síð-
an smábætti hún við sig; eftir
mánuð voru þau komin yfir
350.000 og fyrir stuttu fór salan
yfir fjórar milljónir eintaka og
virðist síst vera að draga úr henni.
Varla þarf að taka fram að til
stendur að kvikmynda bókina,
gott ef það er ekki þegar hafið.
Frábrugðin
öðrum metsölubókum
Da Vinci-lykillinn er frábrugðin
öðrum metsölubókum fyrir það
hvernig menn hafa tekið henni,
því ekki er bara að mikið hafi ver-
ið um hana fjallað sem fram-
úrskarandi spennubók, heldur
hafa menn deilt hart á hana fyrir
það hvaða mynd hún dragi upp af
kristinni trú og þá ekki síst fyrir
það hve ráðist sé harkalega á kaþ-
ólskan sið, eða svo segja í það
minnsta kaþólikkar víða um heim.
Eins og fram kemur er bókin
spennubók, hefst á morði og við
tekur æsispennandi eltingarleikur.
Bókin byrjar á því að for-
stöðumaður Louvre-safnsins
franska er særður til ólífis en áður
en hann deyr afklæðir hann sig og
stillir sér upp á ákveðinn hátt.
Bandaríski táknmyndasérfræðing-
urinn Robert Langdon, sem stadd-
ur er í París til að hitta forstöðu-
manninn, er kallaður til og í
framhaldi af því kemur til sög-
unnar barnabarn forstöðumanns-
ins, Sophie Neveu, dulmálsfræð-
ingur frönsku lögreglunnar. Áður
en varir eru þau Langdon og
Neveu á flótta undan lögreglunni
og kaþólskri reglu sem kallast
Opus Dei. Eina von þeirra virðist
vera að finna gralið helga og
leynireglu Síonsbræðra.
Þótt söguþráðurinn sé kannski
ekki merkilegri en gengur og
gerist með slíkar bækur þá gerir
það bókina eins fróðlega og raun
ber vitni hvað Brown fléttar
saman við hana skýringum sínum
á ýmsum leyndardómum frum-
kristninnar, enda kemur snemma í
ljós að gralið helga er ekki bik-
arinn sem Jesús og félagar notuðu
við síðustu kvöldmáltíðina, heldur
barn Maríu Magdalenu, ástkonu
(eiginkonu) Jesú.
Goðgá
gagnrýnd
Kristnir menn vestan hafs hafa
margir orðið til þess að mótmæla
goðgá þeirri sem þeir segja felast
í bókinni.
Víða á Netinu má finna ítarlega
gagnrýni á bók Browns, tínd til
þau atriði þar sem hann fari rangt
með staðreyndir og tíundaðar
rangtúlkanir hans. Greinilegt er
að menn hafa talið þörf á að gagn-
rýna skáldsögu Browns eins og
væri hún sagnfræðirit, eflaust
vegna þess að Brown hefur verið
ófeiminn við að gefa yfirlýsingar
um að hann sé að fletta ofan af
aldagömlu samsæri kirkjunnar
sem hafi afbakað kristna trú til að
tryggja stöðu og vald sitt og um
leið afbakað kenninguna til að
gera hlut kvenna sem minnstan.
Dan Brown er þó ekki fyrstur
til að setja fram efasemdir um að
söguskýring geistlegra yfirvalda
sé rétt, ýmsir fræðimenn hafa sett
fram aðrar kenningar, sumar
býsna ævintýralegar. Þannig hef-
ur Brown greinilega tekið mið af
metsölubókinni Holy Blood, Holy
Grail frá 1986 sem hélt því fram
að gralið helga væri ekki kaleikur-
inn sem drukkið var af við síðustu
kvöldmáltíðina og gengið hefur
aftur í altarisgöngum þar sem
menn drekka af honum „blóð“
Krists, heldur væri hann konu-
líkami sem hefði borið í sér barn
Krists, „blóð“ hans.
Var Jóhannes María?
Meðal röksemda sem Brown
vísar til í bók sinni er að á frægri
mynd Leonardo Da Vinci af síð-
ustu kvöldmáltíðinni sé ekki sýni-
legur kaleikur en þó sé gralið
helga til staðar Jesú á hægri
hönd, María Magdalena, en ekki
guðspjallamaðurinn Jóhannes. Um
þetta hafa menn reyndar deilt
lengi því persónan sem situr þar
er vissulega kvenleg en gæti eins
verið ungur síðhærður karlmaður
eins og Jóhannes vissulega var,
lærisveinninn sem Jesús elskaði.
Þetta sést enn betur á myndinni í
dag en ekki er langt síðan lokið
var við umdeilda hreinsun hennar
þar sem allt sem aðrir höfðu mál-
að en Da Vinci var fjarlægt.
Þótt ákveðinn ævintýraljómi sé
yfir þessari söguskýringu fellur
hún þó á því að Da Vinci málaði
myndina hálfu öðru árþúsundi eft-
ir að atburðurinn sem hún lýsir á
að hafa gerst. Brown setur reynd-
ar þá kenningu fram í bókinni að
Da Vinci hafi verið meðlimur í
leynireglu Síonsbræðra sem nefnd
er og því haft aðgang að leyni-
legum upplýsingum um hið sanna
í þessu efni, en erfitt að sjá hvers
vegna það ætti að gera kenn-
inguna trúlegri.
Ekki er þó allt talið sem Dan
Brown og fleiri hafa tínt til sem
þeir segja renna stoðum undir
þessar skýringar sínar. Þegar kom
að því að setja saman Biblíuna á
sínum tíma fóru menn í gegnum
þá trúartexta sem voru í notkun
og völdu úr þá sem þóttu upp-
runalegastir að því kirkjunnar
menn segja, en Brown og fleiri
eru á öðru máli; segja að menn
hafi einfaldlega sleppt þeim text-
um sem ekki hafi fallið að þeirri
kristni sem valdamenn vildu. Ýms-
ir af þeim textum sem sleppt var
nefni þannig að María Magdalena
María,
María,
María
Síðasta kvöldmáltíð Leonardos da Vinci. Búið er að hreinsa burt seinni tíma viðbætur og kaleikurinn er hvergi sjáanlegur.
Metsölubókin Da Vinci-lykillinn hefur valdið
meiri deilum en dæmi eru um að bók hafi gert
á síðustu árum. Árni Matthíasson segir frá bók-
inni, höfundinum og Maríunum þrem.
Guðspjallamaðurinn Jóhannes eða María Magdalena? Eftir hreinsun.
Guðspjallamaðurinn Jóhannes eða
María Magdalena? Fyrir hreinsun.