Morgunblaðið - 14.12.2003, Síða 29

Morgunblaðið - 14.12.2003, Síða 29
hringja aftur hálftíma síðar. Hann stóð við það og sagðist hafa fundið öskju með beinum sem ég gæti litið á ef ég kæmi strax. Ég var fljótur niður í miðbæ og fann Vís- indasafnið við þá götu sem kennd er við Erling skakka Kyrpinga-Orms- son sem fékk Magnús son sinn krýndan konung yfir Noregi fimm ára, brá sér til Þrándheims þegar hann frétti að Þrændur hefðu gert bandalag við Valdimar Knútsson Danakonung en gerði síðar sjálfur bandalag við Valdimar og þáði af honum jarlstign yfir Noregi. Erling- ur var hár maður og harðvaxinn, baraxlaður, langleitur og skarpleit- ur, ljóslitaður og gerðist hærður mjög, bar höfuðið nokkuð hallt eða skakkt og hefur fengið viðurnefnið af því. Ole Bjørn Petersen vísaði mér niður í kjallarageymslu og þar lágu höfuðskel og lærleggur á loki af pappaöskju, auk nokkurra beina- brota í plastpoka. Á hauskúpunni er um fjögurra sentímetra löng sprunga á vinstra gagnauga, um tveimur sentímetrum ofan við aug- að. Neðri kjálkann vantar, en allar tennur eru í efri gómi. Lærlegg- urinn hefur greinilega klofnað á efri þriðjungi en gróið saman, skakkt þó. Hinn lærleggurinn sem apótek- araekkjan skilaði til safnsins 1919 sást hvergi. Þetta var stór stund. Þarna horfði ég ef til vill í tómar augntóttir fornkappans sem lét lífið fyrir Helgu hina fögru frá Borg en fékk aldrei að njóta hennar. Þeir á Vísindasafninu hafa ekki hafnað því formlega að þetta séu bein Gunn- laugs ormstungu, enn fylgir bein- unum miði sá sem Petersen gamli skrifaði árið 1919. Þeim texta lýkur þannig: „Öll spurningin um að þekkja þessar beinaleifar Gunn- laugs ormstungu er þó mikilli óvissu háð og varla verður nokkru sinni komist að endanlegri niðurstöðu.“ Ormurinn langi Ég tók það rólega morguninn eft- ir í húsi frænku minnar, úti fyrir skein laugardagssólin og var komin hátt á suðurhimininn þegar ég rölti út og hélt áfram að skoða gamla Niðaróssbæinn, fór út að Hlöðum, sem heitir nú einungis Lade, gekk umhverfis Hlaðakirkju og horfði heim til gamla Hlaðabæjarins gegn- um voldugt rimlahlið úr járni. Þar sem Hlaðajarlar sátu áður og Har- aldur Hálfdanarson gerði að aðsetri sínu ræður nú húsum kolonialmaj- orinn Reidan sem á matvörukeðj- una Rima 1000. Frá Hlöðum hélt ég út á Hlaðhamar og skimaði yfir mannmergðina sem naut sumars og sólar og svamlaði í fjöruborðinu þar sem Ólafur konungur Tryggvason lét smíða Orminn langa eftir Orm- inum skamma sem hann tók frá Rauði hinum ramma norður í Sálpta. Síðar um daginn settist ég niður utan við gamalt veitingahús á eystri bakka Niðar, þar sem heitir Baklandet sem er líklega Niðar- bakkalandið þar sem Ólafur kon- ungur skipaði að skyldi vera kaup- staður, gaf mönnum tóttir til að gera sér þar hús en lét gera kon- ungsgarð upp frá Skipakrók. Þarna er nú röð gamalla húsa sem eru sum meira en tveggja alda gömul og standa hugsanlega á hinum fornu tóttum. Þegar ég reis úr rekkju árla sunnudagsmorguns var blíðunni lokið í bili, komið þokuloft og rign- ing en hlýtt, 17 stiga hiti; það var svo sem ekki slæmt. Fáir voru á ferli í miðbænum þegar ég ók þar í gegn og stefndi á Grákarlinn sem rís í rúmlega 550 metra hæð upp úr skóglendinu vestan Þrándheims sem nefnt er Bymarka eða Bæj- arskógurinn; þar er aðalútivistar- svæði Þrándheimsbúa, sumarpara- dís á skógarstígum, vetrarparadís á skíðaslóðum. Akvegurinn hlykkjast fyrir fjallið með sjónum, sums stað- ar undir háum hömrum, út með Þrándheimsfirði og Flakkfirði, svo suður þá láglendu og frjósömu sveit Bynes eða Bæjarnes. Ferð um fornar sögur – Noregsferð í fót- spor Snorra Sturlusonar eftir Þorgrím Gestsson er gefin út af Sögufélaginu og Hinu íslenska bókmenntafélagi. Bókin er 232 bls. að lengd og prýdd fjölda mynda. Hinar fornu Hlaðir hafa löngum verið höfðingjasetur og stórbýli. Nú eru bæjar- húsin í miðjum Þrándheimi, sem var áður nefndur Niðarós, en Þrándheims- nafnið haft um sveitirnar í kring, sem heita nú Þrændalög. Íbúðarhúsið sem nú stendur á Hlöðum er í eigu eiganda einnar stærstu keðju matvælaverslana í Noregi. Fólk nýtur veðurblíðunnar undir Hlaðhamri í Þrándheimi, skammt frá Hlöðum. Þarna lét Ólafur konungur Tryggvason gera skipið Orminn langa og hafði Orm- inn skamma, skip Rauðs hins ramma, að fyrirmynd. MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 14. DESEMBER 2003 29 KENNARAHÁSKÓLI Íslands og Fræðslumiðstöð Reykjavíkur hafa undirritað samstarfssamning þar sem Kennaraháskólinn tekur að sér að bjóða grunnskólum Reykjavíkur námskeið á grundvelli stefnumót- unar fræðsluráðs í starfsáætlun fræðslumála í Reykjavík og sí- menntunaráætlana skólanna. Markmiðið með samningnum er að tryggja framboð á námskeiðum fyrir grunnskóla Reykjavíkur í samræmi við stefnumótun fræðslu- ráðs. Fræðslumiðstöð Reykjavíkur ber ábyrgð á að endurnýja samn- inginn árlega og miðla upplýsing- um til Kennaraháskólans um nýja stefnumótun. Kennsluráðgjafar munu veita ráðgjöf um framkvæmd námskeiðanna ef skóli óskar eftir því. Kennaraháskólinn ber ábyrgð á að bjóða grunnskólum í Reykja- víkur námskeið og sér um kynn- ingu á þeim, t.d. í bæklingi eða á vefsíðu, og framkvæmd þeirra í samráði við viðkomandi skóla. Kennaraháskólinn ber einnig ábyrgð á vottun námskeiðanna. Stofnuð verði samráðsnefnd þess- ara aðila ásamt fulltrúum skóla- stjóra og kennara. Áherslur á þessu skólaári eru: Einstaklingsmiðað nám og sam- vinna nemenda, fjölbreyttir náms- og kennsluhættir og fjölbreytt námsmat í skóla án aðgreiningar, sjálfsmynd nemenda og fé- lagsfærni, tengsl skóla og grennd- arsamfélags. Reykjavíkurborg hef- ur markað þá stefnu að þróun kennsluhátta sé í átt að einstak- lingsmiðaðra námi en nú er með áherslu á samvinnu nemenda og skóla án aðgreiningar, segir í fréttatilkynningu. KHÍ og borgin semja um námskeið FORSVARSMENN Skipaafgreiðslu Húsavíkur afhentu á dögunum fulltrúum meistaraflokks Völsungs í knattspyrnu 50.000 kr. til styrktar knattspynudeildinni í tilefni af frá- bærum sigri félagsins á Íslands- mótinu í knattspyrnu innanhúss á dögunum. Þeir Helgi Pálsson, framkvæmdastjóri Skipaafgreiðsl- unnar, og Hannes Höskuldsson, eigandi hennar, segja þetta lið í stefnu fyrirtækisins að styrkja íþróttastarf á Húsavík og verðlauna menn þegar góðum árangri er náð. Arngrímur Arnarson, fyrirliði Ís- landsmeistaranna, og Höskuldur Skúli Hallgrímsson, formaður knattspyrnuráðs, tóku við gjöfinni og þökkuðu fyrir stuðninginn. Þeir segja svona stuðning ómetanlegan og sýna vel hug fyrirtækisins til fé- lagsins og eflaust væru fleiri sem hugsuðu á sömu nótunum. Morgunblaðið/Hafþór Arngrímur Arnarson, Höskuldur Skúli Hallgrímsson, Hannes Höskuldsson og Helgi Pálsson. Skipaafgreiðslan styrkir Íslands- meistara Völsungs STJÖRNUSPÁ mbl.is

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.