Morgunblaðið - 14.12.2003, Blaðsíða 35

Morgunblaðið - 14.12.2003, Blaðsíða 35
LISTIR MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 14. DESEMBER 2003 35 HINN stefnulausi, firrti nútíma- maður er aðalpersóna fyrstu skáld- sögu Guðmundar Steingrímssonar. Þessi persóna er kunnugleg úr verkum ungra samtímakarlrithöf- unda, s.s. Braga Ólafssonar, Hall- gríms Helgasonar og Mikaels Torfasonar. Nútímamaðurinn er póstmódernískur í hugsun og hátt- um, hann er afsprengi fjölmiðla, neysluhyggju og trúleysis. Ein- hvers staðar á lífsleiðinni tapaði hann áttum, týndi landakortinu og ráfar því stefnulítið um jörðina í leit að áfangastað, tilgangi eða enda- stöð. Hlutirnir gerast yfirleitt fyrir tilviljun í lífi hans, hann berst með straumnum, ábyrgðar- og hugsun- arlaust. Aðalsöguhetjan í Áhrif mín á mannkynssöguna, Jón Eyvindar- son, hefur einfalda lífssýn: „Ég hafði ekki hugmynd um neitt á þessari stundu, ekki frekar en nokkru sinni áður og ekki frekar en nokkur annar hefur hugmynd um nokkuð yfirhöfuð í lífinu. Allt getur gerst. Allir hafa áhrif á alla í eilíf- um, ófyrirsjáanlegum spuna. Eng- inn veit hvað gerist fyrr en það ger- ist“ (195–6). Jón er blaðamaður á fréttablaði í London þar sem hann hefur búið um nokkurt skeið. Hann kemur timbraður heim til Íslands á að- fangadag í sjö daga jólafrí. Sagan greinir frá röð tilviljana sem verða til þess að hann kynnist nýjum hlið- um á sjálfum sér og kemst sömu- leiðis að því hversu auðvelt er að hafa áhrif á mannkynssöguna. Hann áttar sig líka á því að fjarvera hans hefur haft meiri áhrif á tengslin við vini hans og fjölskyldu en hann hafði órað fyrir. Fléttan er frekar hæg og lopinn teygður ansi mikið en ágætir sprettir eru inn á milli, sér- staklega þegar Jón rifjar upp gaml- ar minningar, setur fram heim- spekilegar pælingar eða leggst í naflaskoðun. Jón er frekar fráhrind- andi persóna, sjálfselskur og latur og framtaksleysi hans gegndar- laust. Aðrar persónur sögunnar eru vart meira en skuggamyndir; fjöl- skyldan aðeins leikmunir, gamli skipstjórinn sem ætti þó að vera gulltryggður karakter nær ekki einu sinni að lifna í hugskotinu og kvenfólkið er fjarlægar staðalmynd- ir. Stebbi bróðir með stuttmyndina sína um Jesú er afar óljós og ótrú- verðugur; klisjuleg hliðstæða við guð sem lélegan leikstjóra þar sem lífið er kvikmynd án handrits (189). Í bókinni ægir öllu saman en um leið gerist ekki neitt. Vangaveltur um t.d. pönk og pólitík, Pílatus og Krist blandast sögunni og er ætlað að dýpka persónuleika Jóns í huga lesandans. En hann er vingull og rola sem göfgar eigið aðgerðaleysi: „Hvort maður leitaði eða leitaði ekki, það skipti ekki svo miklu máli. Maður myndi alltaf finna eða ekki finna. Ég hallaðist fremur að því að betra væri að leita ekki. Þegar mað- ur leitaði ekki, þá fyndi maður. Þar á ofan vissi ég heldur ekki hvar ég ætti að leita, ef ég vildi leita“ (76). Sagan er alls ekki leiðinleg þrátt fyrir hæga og stefnulitla framvindu og endirinn er „óvæntur“ en vand- ræði Jóns hreyfa ekki við lesand- anum og spennan kringum filmuna dularfullu nær aldrei flugi. Hug- myndin um að hafa áhrif á mann- kynssöguna er ágæt en miklu held- ur efni í þétta smásögu en tvöhundruð blaðsíðna skáldsögu. Lopinn teygður BÆKUR Skáldsaga eftir Guðmund Steingrímsson. 196 bls. Forlagið 2003. ÁHRIF MÍN Á MANNKYNSSÖGUNA Morgunblaðið/Einar Falur Guðmundur Steingrímsson Steinunn Inga Óttarsdóttir Kringlusafn kl. 15 Möguleikhúsið sýnir leikritið Jólarósir Snuðru og Tuðru eftir Iðunni Steinsdóttur. Ókeypis aðgangur. Kringlusafn er eitt af útibúum Borg- arbókasafnsins og er í Kringlunni Borgarleikhúsmegin. Listasetrið Kirkjuhvoli, Akranesi kl. 16 Höfundar lesa úr nýjum bók- um: Bragi Þórðarson (Kátir karlar), Gyrðir Elíasson (Tvífundnaland og Hótelsumar), Jón Kalman Stef- ánsson (Snarkið í stjörnunum), Æv- ar Örn Jósepsson (Svartir englar) og Kristján Kristjánsson (Maurabúið hennar Söru eftir Harry Gilbert). Í DAG  Sjá einnig Staður og stund á mbl.is ARNARHEIÐI LYNGHEIÐI LYNGHEIÐI LYNGHEIÐI BORGARHEIÐI BORGARHEIÐI BO RG AR HR AU N ÞELAMÖRK BO RG AR HR AU N HEIÐMÖRK LA UF SK ÓG AR SUNNUMÖRK BR EI ÐA M ÖR K AUSTURMÖRK ÞELAMÖRK IÐJUMÖRK HEIÐMÖRK AUSTURMÖRK RE YK JA M ÖR K ÞELAMÖRK GR ÆN AM ÖR K HEIÐM RÉTTARHEIÐI ÞELAMÖRK BL ÁS KÓ GA R HEIÐMÖRK LA UF SK ÓG AR FR UM SK ÓG AR þELAMÖRK LI TL AM ÖR K HEIÐMÖRK BL ÁS KÓ GA R HV ER AM ÖR K BR EI ‹A M Ö RK ¦RSM™RK FLJÓTSMÖRK FLJÓTSMÖRK SKÓLAMÖRK HVERAHLÍÐ RE YK JA M Ö RK ARNARHEIÐI HRAUNBÆ R HÓTEL ÖRK EDEN HVERASVÆÐI KIRKJA LEIKSKÓLI ÍÞRÓTTAHÚS TJALDSVÆÐI GRUNNSKÓLI H H H H H H 40 50 3 RÉTTARHEIÐI Finnmörk Hraunbær Hraunbær Opið grænt svæði 1 - Suðurlandsvegur LEIKSKÓLALÓÐ H 2 3 4 1 23 2 23 25 27 21 RÉTTARHEIÐI Finnmörk Hraunbær Hraunbær Opið grænt svæði - Suðurlandsvegur LEIKSKÓLALÓÐ 43 45 4749 51 53 55 30 28 26 24 22 2 1 4 6 810 12 14 16 18 20 3 5 7 9 11 13 15 171921 23 25 27 29 31 33 35 37 39 41 H V E R A G E R Ð I S B Æ R HRAUNBÆJARLAND Í HVERAGERÐI NÝTT ÍBÚÐARHVERFI 12 einbýlishúsalóðir við Hraunbæ í Hveragerði eru lausar til umsóknar og nærliggjandi lóðir í undirbúningi. Lóðir til úthlutunar eru nr. 22, 24, 26, 28, 30, 43, 45, 47, 49, 51, 53 og 55. Flatarmál lóðanna er frá 734m² til 1.008m² og skal hvert hús ekki vera minna en 130m² að grunnfleti. Gert er ráð fyrir að lóðirnar verði byggingarhæfar 15. maí 2004. Frestur til að sækja um lóðirnar rennur út 1. febrúar 2004 og verður þeim þá úthlutað í samræmi við reglur um úthlutun lóða í Hveragerði. Umsóknareyðublöð liggja frammi á skrifstofu bæjarins, Hverahlíð 24, Hveragerði og á heimasíðu Hveragerðisbæjar, , undir flipanum ,,eyðublöð" og einnig má fá upplýsingar í síma 483 4000. Skipulags- og byggingarfulltrúi Hveragerðisbæjar. http://www.hveragerdi.is/ LANDFORM Harmoniku- tónlist Flick Flack er ný geislaplata með harmonikuleikaranum Matthíasi Kormákssyni. Hún inniheldur blöndu af heimstónlist og klassískri harmonikutónlist. Matthías hefur leikið á fjölda tónleika um allt land og tók þátt í Evrópumeistarakeppni í harmonikuleik í Finnlandi árið 1999. Dreifing er í höndum Skífunnar.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.