Morgunblaðið - 14.12.2003, Qupperneq 52

Morgunblaðið - 14.12.2003, Qupperneq 52
MINNINGAR 52 SUNNUDAGUR 14. DESEMBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ Hjartans þakkir til ykkar allra sem auðsýnduð okkur samúð og vinsemd við andlát og útför SIGRÍÐAR FJÓLU ÁSGRÍMSDÓTTUR, Skarðsbraut 13, Akranesi. Guð geymi ykkur öll. Ásgrímur Ragnar Kárason, Jóhanna G. Þorbjörnsdóttir, Þórður Ægir Óskarsson, Sigurborg Oddsdóttir, Guðmunda Hrönn Óskarsdóttir, Stefán Eiríksson, Irma Sjöfn Óskarsdóttir, Hrólfur Ölvisson, barnabörn og barnabarnabörn. Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför elskulegr- ar eiginkonu minnar, móður okkar, tengda- móður og ömmu, JÓRUNNAR STEFÁNSDÓTTUR, Borgarhrauni 19, Grindavík. Sérstakar þakkir til starfsfólks Heilbrigðis- stofunar Suðurnesja og starfsfólks krabba- meinsdeildar 11 E Landspítala við Hringbraut. Ólafur Jóhannesson, Jón Ægir Pétursson, Björg Helga Atladóttir, Arnar Ólafsson, Bjarný Sigmarsdóttir, Ómar Ólafsson og barnabörn. Innilegar þakkir til ykkar allra, sem heiðruðu minningu elsku mömmu okkar, tengda- mömmu, ömmu og langömmu, GUÐNÝJAR HREIÐARSDÓTTUR, Þrastanesi 3. Guð gefi ykkur öllum gleðilega jólahátíð Maj-Britt Kolbrún Hafsteinsdóttir, Hafsteinn Guðbjörnsson, Auður Helga Hafsteinsdóttir, Karl Stefánsson, Rannveig Kristín Hafsteinsdóttir, Haukur Ragnar Hauksson, Hulda Fanný Hafsteinsdóttir, Kjartan B. Kristjánsson, ömmubörn og langömmubörn. Hjartans þakkir færum við öllum þeim sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför ástkærs eiginmanns míns, sonar, föður okkar, tengdaföður og afa, ÞORBJÖRNS ÁRNASONAR, Kársnesbraut 111, Kópavogi. Sérstakar þakkir til lækna og starfsfólks gjör- gæsludeildar Landspítala háskólasjúkrahúss fyrir ómetanlegan styrk og hlýju. Guðs blessun sé með ykkur öllum. Birna Sigurðardóttir, Árni Þorbjörnsson, Árni Þór Þorbjörnsson, Hólmfríður Ólafsdóttir, Helga Hrönn Þorbjörnsdóttir, Arnar Már Baldvinsson, Atli Björn Þorbjörnsson, Hulda Árnadóttir, Sigurður Þór Sæmundsson, Kolbrún Sigurjónsdóttir og barnabörn. Útför eiginkonu minnar, ÁSTRÍÐAR KARLSDÓTTUR hjúkrunarkonu, Faxatúni 19, Garðabæ, fer fram frá Fossvogskirkju miðvikudaginn 17. desember kl. 13.30. Rögnvaldur Þorleifsson og aðstandendur. ✝ ValgerðurHanna Valdi- marsdóttir fæddist á Stokkseyri 26. októ- ber 1921. Hún lést á líknardeild Land- spítalans 4. desem- ber síðastliðinn. For- eldrar hennar voru Valdimar Hannes- son, f. 7. febrúar 1891 í Miðhúsum í Sandvíkurhreppi, d. 17. okt. 1965, smið- ur, sjómaður og verkamaður á Stokkseyri og í Hafnarfirði, og Guðrún Sigurðar- dóttir, f. 18. janúar 1881 í Bratt- holti í Stokkseyrarhreppi í Árn., d. 6. október 1944 í Hafnarfirði. Hálf- systur Hönnu, sem báðar eru látn- ar, voru Guðrún og Ólafía Andr- 29. maí 1944. Börn hennar og Þor- steins Ingólfssonar eru: a) Ingólf- ur, f. 11. ágúst 1977, í sambúð; b) Hanna Valdís, f. 19. nóvember 1979. 2) Pétur, f. 7. mars 1948, í sam- búð með Sjöfn Ágústsdóttur. Börn hans eru: a) Ragnar, f. 6. júlí 1979, á dóttur; b) Hlín, f. 13. ágúst 1982; c) fóstursonur Ólafur, f. 27. júlí 1969, kvæntur og á tvö börn. 3) Jónína, f. 13. apríl 1953, gift Ólafi Jónssyni. Börn þeirra eru: a) Jón- ína Herdís, f. 20. maí 1986; b) Stef- án Steinar, f. 21. október 1987. 4) Ragnheiður, f. 27. maí 1959, í sam- búð með Sigurjóni Ásgeirssyni. Börn hennar eru: a) Berglind, f. 12. janúar 1982, í sambúð; b) Rak- el, f. 17. september 1986; c) Óðinn Kári, f. 2. desember 1993. 5) Hanna, f. 31. ágúst 1960, gift Kristni Guðlaugssyni. Börn þeirra eru: a) Elías Kristinn, f. 23. júní 1999; b) Elísa Katrín, f. 18. desem- ber 2000. Auk þeirra eru börn Hönnu: c) Davíð Valdimar, f. 3. febrúar 1990; d) Kristín Anna, f. 7. september 1994. Útför Hönnu var gerð 12. des- ember, í kyrrþey að ósk hinnar látnu. ésdætur. Hálfbróðir Hönnu er Svavar Valdimarsson. Hanna ólst upp á Stokkseyri, en flutti með foreldrum sínum til Hafnarfjarðar 1933. Hún gekk í Barnaskóla Hafnar- fjarðar og síðan í Flensborg og Sam- vinnuskólann. Hanna vann við skrifstofu- störf og kennslu á sín- um yngri árum, en var síðan húsmóðir og saumakona. Hanna giftist eftirlifandi eiginmanni sín- um, Ragnari Péturssyni, bæjar- stjóra í Neskaupstað og síðar kaupfélagsstjóra í Hafnarfirði, 14. maí 1943 og eignuðust þau fimm börn. Þau eru: 1) Guðrún Valdís, f. Nú er langt liðið á aðventu, en jólaundirbúningur er óvenju skammt á veg kominn á heimilinu okkar, þar sem erfitt er að hafa hugann við jólin. Elsku móðir mín hefur yfirgefið þetta líf eftir meira en ellefu ára hetjulega baráttu við illvígan sjúkdóm. Af æðruleysi háði hún lokabaráttuna síðustu mánuð- ina og bjó okkur öll undir það sem koma skyldi. Hún tókst á við nokkra erfiða sjúkdóma á lífsleið- inni og vegna langvarandi og erf- iðra veikinda ættum við að vera þakklát fyrir að hún fékk loks hvíld- ina, en söknuðurinn er sár. Minn- ingarnar streyma fram, um góða móður og vin. Móður sem var úr- ræðagóð, veitti stuðning og hvatn- ingu, sem lét sér annt um fjölskyldu sína, börn og barnabörn. Móður sem var í senn ákveðin og föst fyrir, blíð og umhyggjusöm. Þau pabbi kenndu okkur systkinunum snemma að vera ábyrg og standa á eigin fótum. Mér er sérstaklega minnisstæður allur sá stuðningur og traust sem mamma sýndi mér alla tíð. Þegar ég lagðist í ferðalög út í heim af einskærri ævintýraþrá og forvitni hvert sumar frá unga aldri, oft ein. Þegar ég síðar hagaði barnauppeldinu á annan hátt en hún taldi rétt og þegar ég tók stór- ar ákvarðanir, sem hún var ekki sammála. Þó að ég hafi haft hana sem fyrirmynd í uppeldi barna minna, sagði hún mér skömmu fyrir andlát sitt, er við ræddum einu sinni sem oftar uppeldismál, að hún hefði ekki síður lært af mér. Ég hef oft hugsað að svona ættu mæður að vera. Fátt er meira virði fyrir börn og fullorðna en að finna að þeim sé treyst. Ég hef stundum lært af mis- tökunum, en þau pabbi leyfðu mér það og þegar upp er staðið, held ég að ég sé sterkari fyrir vikið. Mamma sagði stundum, bæði í gamni og alvöru að eftir að hafa alið upp þrjú börn, hefði hún loksins verið búin að læra eitthvað um upp- eldi og að ekki væri gott að of- vernda börn. Við Ragga nutum því meira frjálsræðis en eldri systkinin, þó alltaf giltu ákveðnar reglur á heimilinu. Á síðari árum varð VALGERÐUR HANNA VALDIMARSDÓTTIR Að lokum verðum við öll að hlýða þvi kalli er okkur ber, ævibraut vor endar, og nú hefur Guð faðir kallað þig móðir kær til fylgdar við sig, og hjá honum munt þú mæta Jesú Kristi er þú trúðir svo á og öllum þeim er á undan eru gengnir og dá- ið hafa í trú á honum. Þar mun ríkja eilífur friður og gleði. Er ég sit hér og set niður þessa KARLOTTA MARÍA FRIÐRIKSDÓTTIR ✝ Karlotta MaríaFriðriksdóttir frá Hóli við Nesveg fæddist þar 3. júlí 1911. Hún lést á öldr- unardeild Landspít- ala í Landakoti 5. nóvember síðastlið- inn og var útför hennar gerð 21. nóv- ember, í kyrrþey að ósk hinnar látnu. minningargrein um þig, fyllist hugurinn af svo mörgum fallegum minningum að fyllt gæti heilar bækur. Ég minnist bernskuáranna að Hóli við Nesveg, en í því húsi fæddumst við bæði, þú fyrst af ætt- inni og ég síðastur. Bernskuárin voru örugg og kærleiksrík hjá þér og honum föð- ur mínum. Þótt oft væri ekki mikið um pening í buddunni, þá skorti okkur aldrei neitt. Á vorin og sumrin sótti pabbi sjóinn á litla bátnum sínum og mik- ið var það gaman fyrir lítinn dreng að fá að fara með, og koma síðan heim til mömmu með vænan þorsk eða rauðmaga. Trúlega er það sú stærsta bless- un sem nokkru barni getur hlotn- ast að alast upp í öryggi á trúuðu heimili. Það var gæfa okkar systk- inanna og hefur verið okkur mikill styrkur í stormviðrum lífsins. Kærleikur þinn og hinn ótrúlegi lífsneisti er alltaf gat séð eitthvað jákvætt í öllum kringumstæðum, mun um langan tíma lýsa okkur af- komendum þínum um ótroðinn veg. Ég var ungur að árum er ég yf- irgaf bernskuheimilið og hélt út í heiminn og gerðist sjómaður á tog- ara, aðeins 14 ára að aldri. Þetta voru örlagarík spor og ekki til heilla fyrir unglinginn. Árin liðu. Allan þennan tíma gat ég sótt styrk og hjálp til þín, þótt vissuleg greindi okkur stundum á, og þegar litla dóttir mín, Ásta María, kom á heimili þitt nokkra mánaða gömul tókuð þið pabbi henni sem ykkar eigin dóttur og umvöfðuð hana kærleika og ást. Það var líka þín lífsins stærsta sorg er Ásta María var kölluð heim ung að árum. Í þeirri sorg sýndir þú okkur börnunum þínum hvernig ást, kærleikur og óbilandi trú get- ur sigrað alla erfiðleika. Er árin liðu tókst mér með Guðs hjálp að ná tökum á lífi mínu, eign- aðist yndislega konu og tvo drengi. þetta veitti þér mikla gleði og ró. Oft heyrði ég þig á þínum efri árum þakka Guði fyrir þá blessun er hann veitti þér og þínum og hvernig hann leysti allan þann vanda er að þér og ástvinum þínum steðjaði. Að vera æðsti yfirmaður í sinni stöðu á erlendum skipum með allra þjóða áhöfn, en það hefur verið mitt hlutskipti til margra ára, kall- aði oft á erfiðar ákvarðannir sem ekki var alltaf auðvelt að taka. Þá var gott að geta hringt í mömmu. Já, engir skólar höfðu getað kennt mér að leysa vandann á þann hátt sem hún gerði, er ég leitaði ráða hjá henni. En nú er bara eftir að kveðja og þakka. Það geri ég heilshugar. Guð blessi minningu þína, móðir kær, hafðu þökk fyrir allt. Þinn sonur, tengdadóttir, börn og barnabörn. Ólafur Snævar Ögmundsson. MORGUNBLAÐIÐ birtir afmælis- og minningargreinar endurgjalds- laust alla daga vikunnar. Greinunum má skila í tölvupósti (netfangið er minning@mbl.is - svar er sent sjálfvirkt um leið og grein hefur borist) eða á disklingi og þarf útprentun þá að fylgja. Nauðsynlegt er að til- greina símanúmer höfundar og/eða sendanda (vinnusíma og heimasíma). Tekið er á móti afmælis- og minningargreinum á 1. hæð í húsi Morg- unblaðsins, Kringlunni 1 í Reykjavík, og á skrifstofu Morgunblaðsins Kaupvangsstræti 1 á Akureyri. Ekki er tekið við handskrifuðum grein- um. Minningargreinum þarf að fylgja formáli með upplýsingum um hvar og hvenær sá sem fjallað er um er fæddur, hvar og hvenær dáinn, um for- eldra hans, systkini, maka og börn og loks hvaðan útförin verður gerð og klukkan hvað. Ef birta á minningargrein á útfarardegi verður hún að berast fyrir hádegi tveimur virkum dögum fyrr. Ef útför er á sunnudegi, mánudegi eða þriðjudegi þurfa greinarnar að berast fyrir hádegi á föstu- degi. Berist greinar hins vegar ekki innan hins tiltekna skilafrests er ekki unnt að lofa ákveðnum birtingardegi. Þar sem pláss er takmarkað getur þurft að fresta birtingu greina, enda þótt þær berist á réttum tíma. Birting afmælis- og minningargreina
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.