Morgunblaðið - 14.12.2003, Blaðsíða 61
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 14. DESEMBER 2003 61
DAGBÓK
STJÖRNUSPÁ
Frances Drake
BOGMAÐUR
Afmælisbörn dagsins:
Þú ert mikil einstaklings-
hyggjumanneskja en berð á
sama tíma mikla umhyggju
fyrir umhverfi þínu.
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Það er einhver léttleiki yfir
þér og það liggur eittvað
óvænt í loftinu. Gerðu ráð
fyrir óvæntum uppákomum í
tengslum við börn og þína
nánustu.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Löngun þín til að bæta þig á
einhvern hátt er af hinu góða.
Láttu verða af því að fara á
námskeið eða í leikfimi og
settu markið hátt.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Ræddu hugmyndir þínar við
aðra. Þú gætir þurft að fá lán
eða aðstoð og þú munt að öll-
um líkindum fá það.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Láttu verða af því að taka til í
kring um þig. Þetta er eitt-
hvað sem þú þarft að gera.
Umhverfi okkar hefur áhrif á
líðan okkar og öfugt.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Ástin setur svip sinn á líf
þeirra sem eru fæddir í ljóns-
merkinu þessa dagana. Það
er líklegt að ný ást kvikni í
brjósti þeirra eða að kulnuð
ást blossi upp að nýju.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.)
Nánasta samband þitt er á
einhvern hátt að breytast til
batnaðar og það hefur já-
kvæð áhrif á líðan þína.
Vog
(23. sept. - 22. okt.)
Þú ert að reyna að gera of
margt í einu. Skriftir, lestur
og fundarsetur taka mikinn
tíma auk þess sem þú þarft
að sinna heilsu þinni og
skyldum þínum bæði á heim-
ilinu og í vinnunni. Úff!
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Gættu þess að rugla ekki
sjálfsímynd þinni saman við
eigur þínar. Þú ert sá/sú sem
þú ert sama hversu miklar
eignir þú átt.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.)
Þú færð góðar hugmyndir
sem geta ýtt undir orðstír
þinn og starfsframa. Vertu
óhrædd/ur við að koma þér á
framfæri
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Flestir sem eru fæddir í
steingeitarmerkinu munu
fara í ferðalag á komandi ári.
Ævintýrin liggja í loftinu og
tækifærin standa þér opin
fram á næsta haust.
Vatnsberi
(20. jan. - 18. febr.)
Á næstu mánuðum verða
stjörnurnar einstaklega hag-
stæðar fyrir vatnsbera.
Gerðu ráð fyrir jákvæðum
uppákomum.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Þú nýtur óvenjumikillar at-
hygli og ættir því að leggja
þig fram um að líta sem best
út. Mundu að fyrstu kynni
geta haft áhrif á viðhorf fólks
í langan tíma.
Stjörnuspána á að lesa sem
dægradvöl. Spár af þessu tagi
eru ekki byggðar á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.
HLUTAVELTA
Systurnar og vinkonurnar Bylgja Kristjánsdóttir, Lísa
Margrét Jónsdóttir og Birta Kristjánsdóttir héldu tombólu
og söfnuðu 1.410 kr. fyrir Hjálparstarf kirkjunnar.
„MEÐ bestu vörn! Hvers-
lags sagnhafi er það sem
gefur vörninni færi á bestu
vörn?“ Þetta er tilvitnun í
hina eftirminnilegu sögu-
persónu Mollos, Göltinn
grimma, sem hefur unnið
fleiri óvinnandi samninga en
nokkur lifandi maður. Það
þarf töluvert til að hrífa
Göltinn, en hann hefði
örugglega kunnað að meta
handbragð sagnhafa í spili
dagsins:
Norður
♠ G2
♥ D63
♦ K964
♣Á1095
Vestur Austur
♠ 8653 ♠ ÁK1094
♥ Á742 ♥ 98
♦ 3 ♦ 752
♣KG84 ♣763
Suður
♠ D7
♥ KG105
♦ ÁDG108
♣D2
Spilið kom upp í öldunga-
móti á nýliðnum haustleik-
um Bandaríkjamanna í New
Orleans. Fyrrum landsliðs-
maðurinn Fred Hamilton
var með spil suðurs og vakti
á einu grandi, sem makker
hans lyfti í þrjú. Eins og
sést standa þrjú grönd ekki
beinlínis á borðinu, en Ham-
ilton var heppinn með út-
spilið – lítið lauf. Sér lesand-
inn einhverja vinningsvon?
Það er augljóst að vörnin
fær annað tækifæri til að
spila spaða, því sagnhafi
kemst ekkert áleiðis án þess
að reka út hjartaásinn.
Vandinn er sá að hvetja
vörnina til að skipta ekki
yfir í spaða. Hamilton fann
snjalla leið til þess: Hann
stakk upp laufás (!) í fyrsta
slag og spilaði hjarta á
kónginn. Vestur tók á
hjartaásinn og spilaði strax
litlu laufi um hæl, enda hafði
fyrsti slagurinn „sannað“ að
austur átti drottninguna!
Tíu slagir.
Gölturinn.
BRIDS
Guðmundur
Páll Arnarson
1. e4 c5 2. Rf3 e6 3. d4 cxd4
4. Rxd4 a6 5. c4 Rf6 6. Rc3
Dc7 7. a3 b6 8. Be3 Bb7 9. f3
Rc6 10. b4 Be7 11. Hc1 O-O
12. Be2 Re5 13. O-O d6 14.
g4 h6 15. f4 Rxc4
Staðan kom upp á al-
þjóðlegu móti sem lauk fyrir
skömmu í Dóm-
íníska lýðveldinu.
Hinn gamalreyndi
argentíski refur
Daniel Campora
(2503) hafði hvítt
gegn Jaan Ehlvest
(2602). 16. Bxc4!
Dxc4 17. Rb1!!
Svartur hefur ekki
séð þennan leik fyr-
ir þegar hann drap
peðið á c4 í 15. leik.
Nú tapar hann
drottningunni og
nokkru síðar skák-
inni. 17...Dxc1
svartur hefði einnig tapað
drottningunni eftir 17... Da2
18. Hc2 Da1 19. Rb3. 18.
Bxc1 Rxe4 19. Bb2 Hfc8 20.
Rd2 Bf6 21. Rxe4 Bxe4 22.
De2 Bb7 23. De3 e5 24. fxe5
Bxe5 25. Hc1 b5 26. Hxc8+
Hxc8 27. Rf5 Bxb2 28.
Re7+ Kf8 29. Rxc8 Bxc8 30.
De4 Bd7 31. Da8+ Ke7 32.
Dxa6 d5 33. a4 bxa4 34.
De2+ og svartur gafst upp.
SKÁK
Helgi Áss
Grétarsson
Hvítur á leik.
Í SÍÐUSTU pistlum hef-
ur mér orðið tíðrætt um
so. að deyja og aðrar þær
sagnir, sem hafa að sjálf-
sögðu sömu merkingu, en
eru þó ekki að öllu leyti
gjaldgengar hver fyrir
aðra, ef svo má orða það.
Þetta held ég lesendur
hafi flestir skilið. Þó kom
ein fyrirspurn í síma frá
ungum lesanda, eftir
röddinni að dæma, en
hann var að velta því fyrir
sér, hvers vegna verið
væri að spyrja um so. að
deyja. Ég held ég hafi
þegar skýrt það rækilega
fyrir lesendum, og eins
hafa þeir skilið, hvert var
verið að fara eftir þeim
svörum sem borizt hafa.
Einn svarenda talar um
blæbrigði málsins í þessu
sambandi, og það er ein-
mitt mergurinn málsins.
Hér má bæta dæmi við úr
alveg nýrri frétt í blaði
11. þ.m. Þar segir í fyr-
irsögn: „Fjórir fjall-
göngumenn létust.“ So.
að látast fær að sjálf-
sögðu staðizt í frásögn-
inni, en þar sem um slys
var að ræða, hefði ég
fremur notað so. að farast
í þessu sambandi. Svo
fylgir sumum sagnorðum,
sem fylgja andláti manna
sérstök áherzla eða skoð-
un þess, sem notar þau, á
fráfalli þeirra.
Við notum so. að
hrökkva upp af eða drep-
ast fremur í niðrandi
merkingu um hinn látna.
Í því sambandi má líka
hafa um þetta að geispa
golunni. Menn mundu
ekki komast svo að orði
um nýlátinn vin sinn. Þá
má vera, að sumum þyki
of hátíðlegt að nota so. að
andast eða lo. andaður,
sem heyrist, að ég hygg,
sjaldnar en áður var í út-
varpi og sést ekki oft á
prenti. Þá benti einn
svarenda á so. að láta líf-
ið. Finnst honum fylgja
þvi einhvers konar virðu-
leikablær. Get ég verið
sammála um þá skoðun.
Talað er um, að hann hafi
látið lífið fyrir málstaðinn,
sem hann barðist fyrir.
Símanúmer 557 -4977
og tölvufang jaj@simnet-
.is - J.A.J.
ORÐABÓKIN
Farast
MORGUNBLAÐIÐ birtir
tilkynningar um afmæli,
brúðkaup, ættarmót og
fleira lesendum sínum að
kostnaðarlausu. Samþykki
afmælisbarns þarf að fylgja
afmælistilkynningum og/
eða nafn ábyrgðarmanns
og símanúmer. Fólk getur
hringt í síma 569-1100, sent
í bréfsíma 569-1329, eða
sent á netfangið ritstj
@mbl.is.
Einnig er hægt að skrifa :
Árnað heilla,
Morgunblaðinu,
Kringlunni 1, 103
Reykjavík
Kápur úr ull og kasmír
Engjateigi 5, sími 581 2141.
Opið í dag frá kl. 13.00—18.00.
Seltjarnarnesi, sími 561 1680
Kringlunni, sími 588 1680.
iðunn
tískuverslun
Glæsilegt
úrval af
fatnaði
Hverafold 1-3
Torgið Grafarvogi
Sími 577 4949
Sun. 14. des. frá kl. 12-18
Fim. 18. des. frá kl. 11-22
Fös. 19. des. frá kl. 11-22
Lau. 20. des. frá kl. 12-22
Sun. 21. des. frá kl. 12-22
Mán. 22. des. frá kl. 11-22
Þri. 23. des. frá kl. 11-23
Mið. 24. des. frá kl. 10-12
Opnunartími fyrir jólin
Gísli Ingvarsson
sérfræðingur í húðsjúkdómum,
opnar stofu hjá Lækningu ehf.
í Lágmúla 5 frá 1. janúar 2004
Tímapantanir daglega frá kl. 9-16 í síma 533 3131
Þakkir
Kærar kveðjur til þeirra sem mundu mig,
85 ára. Innilegar þakkir til allra þeirra mörgu
sem unnu að því að geisladiskur með Sigurði
Ólafssyni söngvara er kominn út.
Lifið heil, gleðileg jól.
Inga Valfríður Einarsdóttir (Snúlla)
TIL ERU FRÆ
Til eru fræ, sem fengu þennan dóm:
Að falla í jörð, en verða aldrei blóm.
Eins eru skip, sem aldrei landi ná,
og iðgræn lönd, er sökkva í djúpin blá,
og von sem hefur vængi sína misst,
og varir, sem að aldrei geta kysst,
og elskendur, sem aldrei geta mæst
og aldrei geta sumir draumar ræst.
Til eru ljóð, sem lifna og deyja í senn,
og lítil börn, sem aldrei verða menn.
Davíð Stefánsson frá Fagraskógi
LJÓÐABROT