Morgunblaðið - 14.12.2003, Side 69

Morgunblaðið - 14.12.2003, Side 69
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 14. DESEMBER 2003 69 S agt hefur verið að Bruce Springsteen sé samviska bandarísku þjóðarinnar og þá ekki bara þess hluta hennar sem telst vinstri- sinnuð, heldur einnig þeirra sem halla sér hægri, kjósa George Bush og Jesú Krist. Víst hefur Springsteen verið talinn meðal vinstrimanna í gegnum árin fyrir texta sína þar sem hann hefur verið ódeigur við að benda á það sem miður fer í banda- rísku samfélagi, en hann hefur líka verið iðinn við að hylla Bandaríkin og íbúa þeirra. Þegar Ronald Reagan bauð sig fram til forseta á sínum tíma notuðu kosningastjórar hans Springsteen- lagið Born in the USA sem herhvöt á fundum stuðningsmanna og um tíma varð það eins konar þjóðsöngur þjóð- rembunnar, nokkuð sem Springsteen kunni alls ekki að meta. Málið er aft- ur á móti að í laginu felst tvenns kon- ar boðskapur, annars vegar gagnrýni á hernaðarhyggju hægrimanna og síðan á hræsni vinstrimanna; lagið fjallar um þá geggjun að senda bandarísk ungmenni milli heimsálfa til að drepa önnur ungmenni í Víet- nam og sýna þeim síðan fyrirlitningu þegar þau sneru aftur eftir að hafa þjónað landi sínu. Álíka var uppi á teningnum þegar Springsteen sendi frá sér plötuna Rising í kjölfar árásar hryðjuverka- manna á skotmörk í New York og Washington fyrir tveimur árum. Margir vinstrimenn lögðu áherslu á það í kjölfar árásanna að Bandaríkja- menn hefðu safnað glóðum elds að höfði sér, en Springsteen orti um al- menning, lögreglu- og slökkviliðs- menn, þá sem létu lífið fyrir aðra í árásunum og hvaða afleiðingar árás- irnar höfðu fyrir þá sem eftir lifðu, – segja má að platan sé frekar um 12. september en hinn 11. Titillag plötunnar er nokkuð dæmigert fyrir Springsteen, há- dramatískur undirtónn falinn í ein- faldleika lagsins, textanum um slökkviliðsmanninn sem gengur upp stigann inn í brennandi turninn til móts við örlög sín. Það gefur ágæta mynd af Springs- teen að á fyrstu tónleikum í tónleika- ferðinni til að kynna Rising, flutti hann hið hádramatíska titillag skíf- unnar næst á eftir laginu umdeilda (American Skin) 41 Shots, en í því lagi segir hann frá því er bandarískur blökkumaður, Amadou Diallo, afr- ískur innflytjandi, var skotinn 41 sinni af lögreglumönnum í New York, en við rannsókn málsins kom í ljós að Diallo var óvopnaður. Þetta lag reitti lögreglumenn í New York og víðar svo til reiði að þeir neituðu að taka vaktir á tónleikum hans. Með því að spyrða lögin svo saman er Springsteen að segja það sama, að það geti verið banvænt að vera bandarískur. Þessar vangaveltur kviknuðu við útgáfu á ágætu safni Springsteen- laga sem kom út fyrir skemmstu og heitir the Essential Springsteen, en á þeirri skífu er lagið umdeilda, (Am- erican Skin) 41 Shots, næst á undan laginu Land of Hope and Dreams; má líta á það sem yfirlýsingu um mik- ilvægi þess að trúa á drauminn þó að hann snúist oft upp í martröð. Hvað The Rising varðar þá kemur The Ghost of Tom Joad sem eins kon- ar inngangur að því. Vel til fundið að skeyta svo saman kassagítarballöðu um nauðsyn þess að geta búið sér til fyrirmyndir/hetjur þegar engar slíkar virðast til og laginu um hinar raun- verulegu hetjur sem létu lífið fyrir aðra. Nú er það svo að þeir sem hlustað hafa á Springsteen af einhverjum áhuga eiga allir sín uppáhaldslög, hvort sem það eru lög af breiðskífum eða lög sem hann hefur aldrei gefið út og menn ýmist heyrt á tónleikum eða bootleg-útgáfum. Þar innanum eru svo ágæt lög sem afgangur af The River, From Small Things (Big Things One Day Come), annað lag sem átti að fara á Born In the USA, None But the Brave, ýmis lög úr kvikmyndum og af safnplötum sem ekki hafa verið fáanleg annars og svo má telja. Samviska þjóðarinnar Bruce Springsteen, samviska bandarískrar alþýðu, sendi á dögunum frá sér safn helstu laga. Tónlist á sunnudegi Árni Matthíasson KEFLAVÍK Kl. 3, 5.30, 8 og 10.30. KEFLAVÍK Kl. 10.15. B.i. 16. AKUREYRI Sýnd kl. 3, 5.40, 8 og 10.30. Frá framleiðendum Four Weddings, Bridget Jones & Notting Hill Fráframleiðendum Four Weddings, Bridget Jones & Notting Hill Kemur jólapakkinn í ár EINNIG SÝND Í LÚXUS VIP Í ÁLFABAKKA KL. 8. KRINGLAN Sýnd kl. 2.45, 4.50 og 6.55. Ísl. tal. AKUREYRI Sýnd kl. 2, 4 og 6. Ísl. tal ÁLFABAKKI Sýnd kl. 1.45, 3.50 og 5.55. Ísl. tal. Sýnd kl. 1.45, 3.50, 5.55, 8, 10.10. Enskt. tal. KEFLAVÍK Sýnd kl. 2, 4 og 6. Ísl. tal. Vinsælasta mynd ársins í USA. Vinsælasta teiknimynd frá upphafi í USA. Frá framleiðendum Toy Story og Monsters Inc.  Kvikmyndir.com „ATH!SÝND MEÐÍSLENSKU OGENSKU TALI“ HJ. Mbl ÁLFABAKKI Sýnd kl. 2, 4, 6, 8 og 10. ÁLFABAKKI Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10.10. B.i. 16 ára. Veistu hvað gerðist í húsi þínu, áður en þú fluttir inn ??  HJ.MBL Kvikmyndir.isGH. Kvikmyndir.com Frá framleiðendum Four Weddings, Bridget Jones & Notting Hill Frumsýning r ÁLFABAKKI kl. 2. Ísl. tal. KRINGLAN kl. 3. Ísl. tal. ÁLFABAKKI kl. 2. Ísl. tal. ÁLFABAKKI Kl. 8 og 10.15. B.i. 12. STÓRMYND GRÍSLA ÁSTRÍKUR & KLEÓPATRA KRINGLAN Sýnd Kl. 9 og 11.15. B.i. 16. KEFLAVÍK Sýnd Kl. 8. B.i. 16.  Kvikmyndir.com

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.