Morgunblaðið - 20.12.2003, Blaðsíða 86
ÍÞRÓTTIR
86 LAUGARDAGUR 20. DESEMBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ
Þrjú skylmingafélög sinna skylm-ingum barna og unglinga,
Skylmingafélag Reykjavíkur, FH og
Skylmingafélag Sel-
tjarnarness en vísir
er enn að félagi á
Bifröst í Borgarfirði.
Talsverð aukning hefur verið á með-
al þeirra yngstu og á Íslandsmótinu
með höggsverði í Hagaskóla mættu
tæplega hundrað börn og unglingar
til leiks en fjöldi iðkenda hefur þre-
faldast á þremur árum. Sá yngsti var
6 ára og réð sér varla fyrir kæti allt
mótið en á þessu móti var köppum
skipt í hópa eftir aldri og einnig eftir
því hvort þeir voru að byrja eða
höfðu verið lengur en eitt ár. Fyrir
vikið var oft mjótt á munum. Þau
yngstu skildu ekki alveg flóknar
reglur um vörn og sóknarrétt en það
kom ekki að sök, þrautreyndir dóm-
arar sáu um það.
Þetta var því fyrsta mót fyrir
marga og spennan mikil, jafnvel
stundum stutt í tárin en þá ekki
vegna höggs heldur spennu. Stund-
um reyndist dómurum erfitt að sinna
sínu hlutverki því glæsilegir taktar
og uppstillingar voru þeim alveg ný,
svo þeir gleymdu sér augnablik –
horfðu á hugfangnir eins og hinir því
oft voru tilþrif á kostnað lagsins eða
höggsins.
Margir vildu gefa stig fyrir
skemmtilegan stíl en það er alveg
gagnstætt reglum.
Morgunblaðið/Stefán Stefánsson
Vaskur hópur skylmingamanna bíður eftir að komast í úrslit í Hagaskóla. Í efri röð frá vinstri Gunnhildur Garðarsdóttir, Jónas Ásgeir
Ásgeirsson, Kári Sveinsson, Alexander Lárusson, Romuald Máni Bodinaud, Örvar Steinbach, Andri Björn Stefánsson, William Val-
geir Wiley og Nikulás Ari Hannigan. Í neðri röð Andrés Gísli Ásgeirsson, Klemens Nikulásson, Benjamín Jóhann Johnsen, Hannes
Kristinn Stefánsson, Bergur Frostason og Viktor Hagalín Magnason.
Baldur Helgason með
brugðið sverð og við öllu bú-
inn ef hann skyldi vera kall-
aður til bardaga.
Flokkur þeirra sem byrjuðu að æfa fyrir skömmu og tóku þátt í sínu fyrsta móti. Frá vinstri Hlynur
Hákonarson, Haukur Örn Eiríksson, Benjamín Jóhann Johnsen, Hannes Kristinn Stefánsson,
Klemens Nikulásson, Bergur Frostason, Sindri Freysson, Andrés Gísli Ásgeirsson, Gísli Þór Ing-
ólfsson, Sigurður Þórhallsson, Páll Gestsson, Viktor Zdravkov Demirev, Viktor Hagalín Magna-
son, Vilberg Sindri Elíasson og Elías Ásgeirsson.
TILÞRIFIN voru mörg hver glæsileg og flestir skylmingakappa, jafnt
drengja sem stúlkna, lifðu sig rækilega inn í hvern einasta bardaga
á Íslandsmóti barna og unglinga – sex til fimmtán ára, sem fram fór í
íþróttahúsi Hagaskóla á dögunum. Foreldrar, sem mættu til að
fylgjast með ungviði sínu, skylmdust í huganum, tóku nokkrar
sveiflur á pöllunum og ekki laust við stöku tilþrif hjá þeim, þó án
sverðs. Fyrir vikið skemmtu sér allir hið besta, ekki síst aðrir áhorf-
endur – áhuginn neistaði af krökkunum, sem og foreldrum.
Þrír lúnir en sáttir. Sindri Freysson, Hlynur Hákonarson og Vil-
berg Sindri Elíasson.
Skylmingastúlkur framtíðarinnar – ágætar vinkonur úr FH og
Skylmingafélagi Reykjavíkur. Frá vinstri Hlín Þórhallsdóttir, El-
ísabet Kolbrá Úlfarsdóttir, Karen Ýr Sigurjónsdóttir, Gunnhild-
ur Garðarsdóttir og Unnur Sesselía Ólafsdóttir.
Páll Gestsson valdi hanska af kostgæfni, enda má lítið útaf
bregða þegar á hólminn er komið.
Íslandsmót í
skylmingum
Skrautlegar sveiflur með sverðinu
Stefán
Stefánsson
skrifar