Morgunblaðið - 27.01.2004, Síða 6

Morgunblaðið - 27.01.2004, Síða 6
Örlítil myndavél sem nemur bæði hljóð og mynd. Hægt er að koma henni fyrir nánast hvar sem er og fylgjast með því sem fyrir augu og eyru ber. TÆKI til iðnaðarnjósna eru í um- ferð hérlendis þótt ekki hafi frést af framandi hlerunarbúnaði á borð við rafvædda ólífu á kokkteilpinna, eins og dæmi er um erlendis. Hins vegar hafa sést hér háþróaðir pennar með innbyggðum hlerunarbúnaði sem gerir njósnara kleift að hlýða á sam- töl fólks í allt að 100 metra fjarlægð. Ennfremur eru til örlitlar víd- eómyndavélar sem hægt er að koma fyrir nánast hvar sem er svo lítið beri á. Þessi tæki kosta tugi þúsunda króna, sem er þó lítið brot af verði mælitækja sem gegna því hlutverki að leita uppi hlerunartæki. Samkvæmt heimildum Morg- unblaðsins geta pennar með hler- unarbúnaði kostað um 50 þúsund krónur, en verð á slíkum tækjum liggur í gæðum þeirra. Gæði tækj- anna markast síðan af drægni þeirra, orkuþörf og stærð. Varkárni og hlutlausir fundarstaðir Samkvæmt heimildum blaðsins eru fulltrúar fyrirtækja hér sem er- lendis gjarnan varkárir í sam- skiptum sínum við aðra, þegar vernda þarf viðkvæmar og um leið verðmætar viðskiptaupplýsingar. Þannig séu t.d. valdir hlutlausir fundarstaðir, (öðru nafni clean table) og tíðkast að sýna ákveðna kurteisi þegar kemur að öryggis- málum sem þessum. Erlendis verja fyrirtæki töluverð- um fjármunum í að leita uppi hler- unarbúnað innan sinna veggja en sem dæmi má nefna að mælitæki sem greinir radíótíðni í hler- unarbúnaði, getur kostað eina millj- ón króna. Það eru þó ekki eingöngu fyrirtæki í löglegum samkeppn- isrekstri sem leiða hugann að þess- um málum því dæmi eru um að fíkni- efnasalar sem óttast afskipti lögreglu hafi fengið sér slíkan bún- að. Það skal þó tekið fram að hler- anir lögreglu eru gerðar í þágu rannsókna á opinberum málum og fara ekki fram nema að fengnum rannsóknarúrskurði dómstóla. „Sweeper“ finnur „bögga“ Mælitæki til að finna hler- unarbúnað nefnast á fagmáli „sweeper“ en hlerunarbúnaður ým- iss konar gengur undir nafninu „bögg“. Í viðskiptaheiminum hérlendis munu ennfremur vera dæmi þess að ráðnir hafa verið menn til að fylgj- ast með tilteknum einstaklingum í því skyni m.a. að athuga hverja hann hittir o.s.frv. Þá er talað um að „skyggja“ viðkomandi. Nokkrir ein- staklingar hérlendis hafa starfað við að „skyggja“ og kostar slík þjónusta um 60 þúsund krónur á dag sam- kvæmt heimildum blaðsins. Hjá þeim sem til þekkja þykir ekki óeðlilegt af hálfu fyrirtækja að verja fjármunum til að verjast iðnaðar- njósnum, einkum þegar kostnaður við varúðarráðstafanir er örlítill hluti af þeim fjármunum sem um er að tefla í viðskiptum. Og iðnaðar- njósnarar reyna ýmislegt. Til eru venjuleg kreditkort með hler- unarbúnaði, sömuleiðis vasareikni- vélar, rafmagnsólífur að ógleymd- um pennum. Þessi tæki eru keypt á Netinu eins og annar varningur, enda ekki ólöglegur sem slíkur. Tæki til iðnað- arnjósna í um- ferð hérlendis Þessi penni kostar 50 þúsund krón- ur og lætur ekki mikið yfir sér fyrr en hann er dreginn í sundur og kemur þá í ljós hlerunarbúnaður. Morgunblaðið/Jim Smart Sér einhver hlerunarpennann í krukkunni? Það er sá svarti með gula toppnum fjærst á myndinni. FRÉTTIR 6 ÞRIÐJUDAGUR 27. JANÚAR 2004 MORGUNBLAÐIÐ NÝLEGA fékk Stofnun Árna Magn- ússonar að gjöf 500 þúsund Banda- ríkjadollara eða tæplega 35 milljónir króna frá erlendum velunnurum. Með þessu fé verður stofnaður Minningarsjóður Birgit Baldwin (1960–1988) og á að verja ávöxtun sjóðsins til að efla bóka- og tímarita- kost Árnastofnunar. Í fréttatilkynningu segir að stofn- endur minningarsjóðsins eru for- eldrar Birgit Baldwin, sagnfræðing- arnir prófessor Jenny Jochens og prófessor John Baldwin. Með til- styrk sonar og tengdadóttur, Peter Baldwin og Lisbet Rausing, vilja þau minnast dótturinnar Birgit. Hún lést sviplega í bílslysi 17. júní 1988 eftir árekstur við drukkinn ökumann sem ók á röngum vegarhelmingi. Var hún þá að ljúka doktorsritgerð sinni í samanburðarbókmenntun við Yale- háskóla „Þessi stórhöfðinglega gjöf er mikils virði fyrir Stofnun Árna Magnússonar, og mun gera henni kleift að stórbæta bókakost sinn, fylla í skörð eldri bóka og styrkja safnið sem helsta sérsafn íslenskt í miðaldafræðum og þjóðfræði,“ segir í fréttatilkynningunni. Árnastofnun fær 35 milljónir að gjöf DAVÍÐ Oddsson forsætisráðherra opnaði nýjan vef þar sem saga heimastjórnarinnar er rakin í máli og myndum í Þjóðmenningarhúsinu við Hverfisgötu í gær. Tilefni þess að farið var að vinna að vefnum er að 100 ár eru liðin frá því Íslend- ingar fengu heimastjórn, en vef- urinn hefur verið nokkra mánuði í vinnslu. Slóðin á vefnum er www.heimastjorn.is. Morgunblaðið/Þorkell Saga heima- stjórnarinn- ar rakin á nýjum vef „SÚ ákvörðun stjórnvalda að slíta viðræðum við Atlantsál er viss von- brigði,“ segir Reinhard Reynisson, bæjarstjóri á Húsavík, um þá ákvörðun stjórnvalda að hætta sam- starfi við Atlantsál um byggingu ál- vers á Húsavík. Eins og greint var frá í Morgun- blaðinu í gær tilkynnti Valgerður Sverrisdóttir iðnaðarráðherra heimamönnum fyrir helgi að sam- starfinu við Atlantsál yrði hætt þar sem ekki hefðu fengist fullnægjandi eða traustvekjandi upplýsingar um fjárfesta að baki fyrirtækinu. Reinhard segir að unnið hafi verið að málinu á grundvelli samnings við stjórnvöld varðandi staðarvals- ákvörðun vegna stóriðju á svæðinu og sú vinna nýtist áfram. Hins vegar þurfi að ljúka ákveðnum þáttum varðandi staðarvalið og stefnt sé að því sem fyrst til að hafa sterkari stöðu, sýni nýir aðilar málinu áhuga. Tímasetningar hafi miðað við árið 2008 eða jafnvel síðar og því sé næg- ur tími til stefnu og ekki víst að ákvörðunin raski tímaáætlunum. „Ég vil ekki mála stöðuna dekkri lit- um en hún er,“ segir hann og bætir við að hann hafi fulla trú á að stóriðja verði að veruleika á svæðinu. „Það er mjög margt í þessari vinnu sem segir okkur að aðstæður eru góðar,“ segir Reinhard um und- irbúningsvinnuna og hugsanlega stóriðju. Hægt sé að byggja þarna stóriðju í áföngum og þar sem góð hafnaraðstaða sé fyrir hendi á Húsa- vík þurfi ekki að byggja nýja stór- iðjuhöfn strax. Eins sé ljóst að miklir möguleikar á orkuöflun séu á svæð- inu, háhitavirkjanir, sem geti farið mjög langt í að skapa orku fyrir stór- iðju við Skjálfanda. Orkan sé mjög nálægt sem þýði hagkvæmni við orkuflutninginn og minni kostnað. Með tilliti til umhverfisáhrifa sé allt annað að fara í háhitavirkjanir en vatnsaflsvirkjanir með lónum. „Það eru margir svona jákvæðir þættir,“ segir Reinhard. „Uppbygging stóriðju á svæðinu styrkir líka með afgerandi hætti ákvörðun stjórnvalda að byggja upp Eyjafjarðarsvæðið, sem við tilheyr- um í raun og veru, og gera það að stærra atvinnu- og þjónustusvæði.“ Segir að tíma- áætlun þurfi ekki að raskast RÆTT VAR um próf læknanema á þriðja ári á kennsluráðsfundi í Há- skóla Íslands í gær en eins og greint hefur verið frá voru nemarnir ósáttir við að einingavægið var minnkað eft- ir prófið. Þórður Þórarinn Þórðarson, for- maður Félags læknanema, segir að engar lokaákvarðanir hafi verið teknar á fundinum. Málið verði tekið fyrir aftur á kennsluráðsfundi en eft- ir sé að boða til þess fundar. „Við er- um að reyna að setja þrýsting á að vinna við heildarskipulag námsins verði kláruð, þar með talin eininga- málin og þess háttar. Þetta á því allt eftir að skýrast betur,“ segir Þórður. Stefán B. Sigurðsson, deildarfor- seti læknadeildar, segir málið af- greitt fyrst í kennsluráði áður en það komi til deildarráðsins. Verið sé að vinna í því af fullum krafti. „Málið verður rætt í deildarráði þegar þar að kemur. Stúdentar sitja í öllum nefndum og ráðum og yfirleitt tveir fulltrúar í hverju ráði,“ segir Stefán. Próf læknanema á þriðja ári Segjast vilja skýr- ara námskipulag

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.