Morgunblaðið - 27.01.2004, Blaðsíða 27

Morgunblaðið - 27.01.2004, Blaðsíða 27
UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 27. JANÚAR 2004 27 HAFNARFIRÐI Sigurbjörn Skarphéðinsson, lögg. fasteignasali OPIÐ VIRKA DAGA 9.00 - 18.00 OG NÚ Á LAUGARDÖGUM 11.00 - 14.00 Sonja MagnúsdóttirSigursveinn Jónsson Gyða GerðarsdóttirEiður ArnarsonSigurbjörn Skarphéðinsson Andri Björgvin Arnþórsson Strandgötu 41, 220 Hafnarfjörður www.hf.is Sími 590 9595 ÁLFASKEIÐ - 220 HAFNARFIRÐI Nýkomið í einkasölu mjög gott, 198,6 fm einbýli með 43,1 fm bílskúr á þessum vinsæla stað. Stór stofa með arni, rúmgott hol, möguleiki á séríbúð. Eign sem vert er að skoða. UPPL. EINGÖNGU Á SKRIFST. Uppl. gefur Eiður Arnarson. sími 820- 9515 HAUKANES - 210 GARÐABÆ Glæsilegt einbýlishús á Arnarnesinu, innst í botnlanga með frábæru útsýni. heitur pottur. Eign fyrir vandláta! Verð: tilboð, ath. eignaskipti koma til greina. Allar uppl. veita Gyða í s. 820-9510 eða Svenni í s. 820-9525. HRINGBRAUT 15 - OPIÐ HÚS Björt og falleg hæð og ris með sérinngangi á besta stað í Hafnarfirði. Eignin er 120 fm og möguleiki á fjórum til fimm svefnherbergjum. Gyða S.820-9510 og Svenni S. 820-9525 sölufulltrúar taka á móti gestum milli 17.00 og 19.00 ÁLFHOLT - 220 HAFNARFIRÐI Mjög falleg, 4ra herb. íbúð auk stúdíó-íbúðar í kjallara. Glæsilegt eldhús, þrjú svefnherbergi, stofa, borðstofa og sólskáli. Sérgarður og verönd. SJÓN ER SÖGU RÍKARI. Verð 15,9 millj. Uppl veita Gyða í s. 820-9510 og Sigursveinn í s. 820-9525. GRENIÁS - 210 GARÐABÆ Nýkomið í einkasölu glæsilegt endaraðhús á tveimur hæðum ca 188 fm með innb. bílskúr á frábærum útsýnisstað. Afhendist fullbúið að utan og nánast tilbúið til innréttinga að innan. Nánari upplýsingar veitir Sigursveinn sölufulltrúi í s. 820-9525. LÆKJASMÁRI - 200 KÓPAVOGI Nýkomin í einkasölu 110,9 fm íbúð á 2. hæð. Þrjú sv.herb., stofa, sjónvarpskr., eldhús, borðkr. og þvottahús. Stórar vestursvalir. Gegnheilt eikarparket á gólfum. Vönduð eign, stutt í alla þjónustu. Verð 15,9 millj. Uppl. gefur Eiður Arnarson í s. 820-9515. HÖRGSHOLT - 220 HAFNARFIRÐI Falleg, björt og rúmgóð, 107,1 fm íbúð á efstu hæð í góðu fjölbýli. Rúmgóð stofa og 3 góð herbergi. Rúmgott eldhús með góðum borðskrók. Þvottahús innan íbúðar. Stutt í skóla og leikskóla. LAUS STRAX. Uppl. gefur Eiður Arnarson í s. 820-9515. ÁLFASKEIÐ - 220 HAFNARFIRÐI Nýkomið í einkasölu stórglæsileg, 115 fm, 4-5 herb. íbúð á annari hæð í fjölbýli. Íbúðin er mikið endurnýjuð, rafm., gluggar o.fl. Húsið er nýl. viðgert. Stutt í leikskóla og skóla. Nánari uppl. veitir Sigursveinn í s. 820-9525. Verð 14,5 millj. FURUGRUND - 200 KÓPAVOGI Falleg, 3ja herbergja íbúð með aukaherbergi í kjallara. Flísalagt baðherbergi. Stór stofa. Svalir í suður. Gluggar í þrjár áttir, og mjög gott útsýni. Verð 13,5 millj. Hafið samband við Andra í s. 820- 9509. HRAUNSTÍGUR - 200 HAFNARFIRÐI Var að fá í einkasölu rúmgóða, 3ja herb., risíbúð í miðbænum. Rúmgóð stofa með parketi. Frábært útsýni úr íbúð og góð staðsetning. Allar uppplýsingar gefur Gyða Gerðarsdóttir í s. 820-9510 og 590-9510. EINBÝLISHÚS RAÐ & PARHÚS 5-7 HERB. OG SÉRH. 4 HERBERGJA 3 HERBERGJA HÓLABRAUT – 220 HAFNARFIRÐI Vorum að fá í sölu glæsilega 3ja herb 93 fm á annari hæð í góðu fjölbýli. Kirsuberja innréttingar og hurðir, Eikarparket á gólfum.ÍBÚÐIN ER LAUS STRAX. Nánari upplýsingar Sigursveinn í síma 820-9525 – 590-9525. Verð 13.5 millj NÖKKVAVOGUR 11- OPIÐ HÚS Falleg, tveggja herbergja íbúð með aukaherbergi í kjallara í snyrtilegu fjórbýli. Skipulag sérstaklega skemmtilegt. Sameiginlegt þvottahús. Verð 9,9 millj. Andri Björgvin í s. 820-9509 tekur á móti gestum á milli kl. 18.00 og 19.00 í kvöld. VALLARBARÐ - 220 HAFNARFIRÐI Falleg, björt, 2ja-3ja herbergja íbúð. Stór stofa og hol, mjög rúmgott svefnherbergi. Gott eldhús og bað. Þvottahús á hæðinni. Góð staðsetning og útsýni. Laus strax! Allar upplýsingar gefur Gyða Gerðarsdóttir í s. 820-9510 og 590-9510. 2 HERBERGJA3 HERBERGJA Persónuleg þjónusta alla leið Vantar allar gerðir eigna á skrá AÐ UNDANFÖRNU hafa all- margir tekið til máls um ævi- sagnaritun og heimildanotkun í framhaldi af deilum sem geisað hafa um bók Hannesar Hólmsteins um Halldór Laxness. Þar hefur því miður margt verið missagt og ýms- ir farið offari, og engu líkara en að skyndilega séu tilvís- anir í heimildir og notkun þeirra orðið rammpólitískt mál. Þar hefur m. a. þung- um skeytum verið beint að höfundum sem ég gef út undir merkjum Máls og menningar og því tel ég mig knúinn til þess að leiðrétta ákveðnar rangfærslur í um- ræðunni og taka fram eftirfarandi: Deilan um bók Hannesar snýst um tvennt: annars vegar að tilvísanir í heimildir séu ófullnægjandi og að hann geri ekki nógsamlega grein fyrir því hvernig hann styðjist við rit annarra, og hins vegar hvort hann geri texta annarra höfunda að sínum. Að jafna þessum atriðum saman við gagnrýni á Guðjón Friðriksson fyr- ir að sviðsetja atburði í sínum ævi- sögum án þess að geta heimilda er á hinn bóginn alveg út í hött. Sú að- ferð við ævisagnaritun að setja at- burði á svið, og túlka þá, er æva- gömul og fullkomlega gjaldgeng. Það er ekkert óheiðarlegt við þá að- ferð og það er ekkert eðlilegra en að ævisöguhöfundur túlki og leggi mat á viðfangsefni sitt. Menn skrifa yfirleitt ævisögur um fólk vegna þess að þeir hafa þar eitthvað til málanna að leggja. Almennt séð fara íslenskir ævi- sagnahöfundar yf- irleitt mjög varlega í sviðsetningum og byggja þar iðulega á heimildum og fróðleik sem á vegi þeirra hef- ur orðið í rannsóknum og heimildakönnun, en kjósa af ýmsum ástæð- um að setja hann fram með þessum hætti. Ástæðulaust er að orð- lengja um þetta, en þess má geta að um sviðsetningar og ýms- ar hliðar ævisagnaritunar var fjallað á ágætri ráðstefnu Félags íslenskra fræða um ævisögur í febrúar í fyrra, sem virðist hafa farið framhjá fjölmiðlum og þeim sem nú sýna þessari merkilegu bókmenntagrein áhuga. Guðjón Friðriksson hefur rutt brautina í ritun ævisagna sem ætl- aðar eru almenningi, en þar sem stuðst er við vönduð fræðileg vinnubrögð í hvívetna, enda getur þetta vel farið saman. Slíkar bækur hafa notið mikilla vinsælda um langan aldur um heim allan. Fyrir þetta ber Guðjóni heiður og sóma, en ekki dylgjur og aðdróttanir, þótt menn kunni að vera ósammála hon- um um túlkanir í einstökum efnum, sem þeir hafa auðvitað fullt leyfi til. Enn furðulegra er tal um að rit- höfundar og skáld hafi „stolið“ efni og fært inn í skáldrit sín. Þar hafa verið nefndir í greinum og taldir fingralengstir Halldór Laxness og Guðmundur Andri Thorsson. Það er alkunna að bækur fæðast af bók- um, og rithöfundar verða fyrir áhrifum af því sem þeir lesa og heyra, og almennt öllu sínu sam- félagi. Góðar ævisögur gera einmitt grein fyrir slíkum áhrifum. Halldór Laxness var manna snjallastur í því að vinna listaverk úr misjöfnum efnivið, og gott dæmi um það eru dagbækur Magnúsar Hjaltasonar sem voru honum innblástur í þá frábæru skáldsögu Heimsljós. Hann fór ekkert í felur með þetta, enda getur hver maður borið sam- an dagbækurnar og sögu Halldórs, eins og t.d. Peter Hallberg hefur gert ítarlega. Sama gerir Guð- mundur Andri Thorsson í skáld- sögu sinni Íslandsförinni. Í at- hugasemd á undan sögunni nefnir hann helstu heimildir sem urðu honum innblástur að skáldsögunni og hann nýtir við ritun hennar og því fráleitt að láta sem það sé eitt- hvert nýuppgötvað launungarmál. Sá mikli munur er hins vegar á sagnfræðiverkum og sögulegum skáldsögum að rithöfundar hafa fullt leyfi til að vinna á hvern þann hátt sem þeim sýnist úr efnivið sín- um, og þess vegna að skrifa söguna upp á nýtt, öfugt við fræðimenn. Jafnsjálfsagða hluti ætti í raun- inni ekki að þurfa benda mönnum á, en er gert hér að gefnu tilefni. Að gefnu tilefni Páll Valsson skrifar um ævisagnaritun ’Sú aðferð við ævi-sagnaritun að setja at- burði á svið, og túlka þá, er ævagömul og full- komlega gjaldgeng.‘ Páll Valsson Höfundur er útgáfustjóri Máls og menningar. Stórhöfða 21, við Gullinbrú, s. 545 5500. www.flis.is  netfang: flis@flis.is lím og fúguefni Mörkinni 3, sími 588 0640 www.casa.is Opið mán.-fös. 11-18, lau. 11-15. Húsgögn Ljós Gjafavara Laugavegi 54, sími 552 5201 Útsala stærðir 36-46 Árshátíðarkjólar AUGLÝSINGADEILD netfang: augl@mbl.is eða sími 569 1111
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.