Morgunblaðið - 27.01.2004, Blaðsíða 48

Morgunblaðið - 27.01.2004, Blaðsíða 48
KVIKMYNDIR 48 ÞRIÐJUDAGUR 27. JANÚAR 2004 MORGUNBLAÐIÐ Hljómsveitarstjóri ::: Rumon Gamba Einleikari ::: Pekka Kuusisto Ludwig van Beethoven ::: Fiðlukonsert Dímitríj Sjostakovitsj ::: Sinfónía nr. 4 Sími 545 2500 I www.sinfonia.is M Á T T U R IN N & D Ý R Ð IN FIMMTUDAGINN 29. JANÚAR KL. 19:30 Aðalstyrktaraðili Sinfóníuhljómsveitarinnar FIÐLUKONSERT BEETHOVENS OG 4. SINFÓNÍA SJOSTAKOVITSJ Stóra svið Nýja svið og Litla svið CHICAGO eftir J.Kander og F.Ebb 5. sýn fi 29/1 kl 20 - blá kort - UPPSELT Fö 30/1 kl 20 - UPPSELT, Su 1/2 kl 20 - UPPSELT Fö 6/2 kl 20, - UPPSELT, Lau 7/2 kl 20 - UPPSELT Fö 13/2 kl 20, - UPPSELT Lau 14/2 kl 20 - UPPSELT Su 15/2 kl 20, Fö 20/2 kl 20 - UPPSELT, Lau 21/2 kl 20 - UPPSELTSu 22/2 kl 20 - UPPSELT, Lau 28/2 kl 20 - UPPSELT, Su 29/2 kl 20, Fö 5/3 kl 20 - UPPSELT, Lau 6/3 kl 20 - UPPSELT, Su 7/3 kl 20, Fö 19/3 kl 20 - UPPSELT Lau 20/3 kl 20 - UPPSELT, Fö 26/3 kl 20, Lau 27/3 kl 20 - UPPSELT, Fö 2/4 kl 20, Lau 3/4 kl 20 ÓSÓTTAR PANTANIR SELDAR DAGLEGA Miðasala: 568 8000 Nýr opnunartími: Mánudaga og þriðjudaga: 10:00 - 18:00 miðviku-, fimmtu- og föstudaga: 10:00 - 20:00 laugardaga og sunnudaga: 12:00 - 20:00 www.borgarleikhus.is midasala@borgarleikhus.is Meira (en) leikhús! SPORVAGNINN GIRND e. Tennessee Williams Fö 30/1 kl 20, Su 1/2 kl 20, Fö 6/2 kl 20, Lau 7/2 kl 20, Fö 13/2 kl 20, Lau 14/2 kl 20 ERLING eftir Hellstenius/Ambjörnssen lau 31/1 kl 20, su 8/2 kl 20, su 15/2 kl 20, su 22/2 kl 20 Aðeins þessar sýninga RAUÐU SKÓRNIR e. H.C. Andersen í samvinnu við RAUÐU SKÓNA Lau 31/1 kl 16, Su 1/2 kl 16 Athugið breyttan sýningartíma IN TRANSIT e. THALAMUS í samvinnu við leikhópinn THALAMUS Frumsýning su 8/2 kl 20,Fi 12/2 kl 20 ÖFUGU MEGIN UPPÍ e. Derek Benfield Lau 31/1 kl 20, Su 8/2 kl 20, Fi 12/2 kl 20, Lau 13/3 kl 20 SÍÐUSTU SÝNINGAR LÍNA LANGSOKKUR e. Astrid Lindgren Lau 31/1 kl 14, - UPPSELT, Su 1/2 kl 14, - UPPSELT Lau 7/2 kl 14 - TÁKNMÁLSTÚLKUÐ SÝNING, Su 8/2 kl 14,- UPPSELT, Lau 14/2 kl 14, UPPSELT, Su 15/2 kl 14, Su 22/2 kl 14, Lau 28/2 kl 14, Su 7/3 kl 14 MUNIÐ GLEÐISTUNDINA FORSALURINN OPNAR KLUKKUTÍMA FYRIR KVÖLDSÝNINGU **************************************************************** NJÓTIÐ ÞESSA AÐ GEFA YKKUR GÓÐAN TÍMA Í LEIKHÚSINU. Ath:. Ekki er hægt að hleypa í salinn eftir að sýning hefst Stóra sviðið: SÓLIN GLEYMDI DAGSINS HÁTTATÍMA Líf og list á heimastjórnarárunum 1904-1918. Frumsýning fös. 30/1 örfá sæti laus JÓN GABRÍEL BORKMANN – Henrik Ibsen 9. sýn. lau. 31/1 nokkur sæti laus, 10. sýn. fim. 5/2 nokkur sæti laus, 11. sýn. lau. 14/2. DÝRIN Í HÁLSASKÓGI – Thorbjörn Egner Sun.1/2 kl. 14:00 uppselt, sun. 8/2 kl. 14:00 uppselt og kl. 17:00 örfá sæti laus, sun. 15/2 kl. 14:00 uppselt, sun. 22/2 kl. 14:00 uppselt og kl. 17:00 nokkur sæti laus, sun. 29/2 kl. 14:00 uppselt, sun. 7/3 kl. 14:00 uppselt, sun. 14/3 kl. 14:00 örfá sæti laus, sun. 21/3 kl. 14:00 örfá sæti laus, sun. 28/3 kl. 14:00 örfá sæti laus. Litla sviðið kl 20:00: GRÆNA LANDIÐ – Ólafur Haukur Símonarson Lau. 31/1 uppselt. fim. 5/2 uppselt, lau. 7/2 örfá sæti laus, lau. 14/2. Smíðaverkstæðið kl. 20:00: VEGURINN BRENNUR – Bjarni Jónsson Lau. 31/1 örfá sæti laus, fim. 5/2, lau. 7/2. Sýningin er ekki við hæfi barna. Miðasölusími: 551 1200 Netfang: midasala@leikhusid.is Veffang: www.leikhusid.is Opið kl. 13:00-18:00 mán.-þri Aðra daga kl.13:00- 20:00. Símapantanir frá kl. 10:00 virka daga. Aðalsamstarfsaðili: JÓN GABRÍEL BORKMANN – LAUGARDAGSKVÖLD! loftkastalinn@simnet.is Lau. 31. jan. kl. 20 nokkur sæti Lau. 7. feb. kl. 20 nokkur sæti „Frábært-drepfyndin-átakanlegt“ Opið virka daga kl. 13-18 Gríman 2003 „BESTA LEIKSÝNING ÁRSINS,“ að mati áhorfenda sjá nánari upplýsingar á www.sellofon.is Miðasölusími í IÐNÓ 562 9700 og sellofon@mmedia.is IÐNÓ Fös. 30. jan. k l . 21:00 örfá sæti Fös. 13. feb. k l . 21:00 nokkur sæti Lau. 14. feb. k l . 19:00 nokkur sæti . Vegna fjölda áskorana Aukasýningar af GREASE! Í tilefni af því er VISA korthöfum boðinn 20% afsláttur á eftirfarandi sýningar: Mið. 4. feb. kl. 19.00 laus sæti Fim. 5. feb. kl. 19.00 laus sæti Mið. 11. feb. kl. 19.00 laus sæti Selma Björnsdóttir fer í hlutverk Krissu. fös. 30. jan. kl. 20 - laus sæti fös. 6. feb. kl. 18 - laus sæti Sýningar hefjast kl. 20 Miðasala í síma 555-2222 Miðsala opin mið, fim, fös, lau, kl. 16 - 19 6. sýn. fös. 30. jan. örfá sæti 7. sýn. lau. 31. jan. nokkur sæti 8. sýn. fös. 6. feb nokkur sæti 9. sýn. lau. 7. feb „Hrein snilld í Hafnarfjarðarleikhúsinu“ Valur Gunnarsson DV 7. jan. „...töfrar Hafnarfjarðarleikhússins losna fyrir alvöru úr læðingi“ „stórviðburður“ Þorgeir Tryggvason Mbl. 9. jan. „Sýningin er skemmtileg, litrík, fjölbreytileg, full af glæsilegum og skínandi hugmyndum“ Páll Baldvin DV 10. jan Miðasala í síma 552 3000 Loftkastalinn Fimmtud. 29. janúar kl. 20.00 Sveinsstykki Arnars Jónssonar Nýr einleikur eftir Þorvald Þorsteinsson FRANSKI leikarinn Jacques Perrin var viðriðinn heimildarmynd- ina Microcosmos, sem vakti mikla at- hygli fyrir nokkrum árum, en þar var skyggnst var ofan í jarðveginn og heimur skordýranna skoðaður í allri sinni dýrð. Í Heimi farfuglanna hefur Perrin sest í leikstjórastólinn og beint sjónum upp á við, að fuglum himinsins, og lagt ótrúlega alúð við að fanga heim þeirra í þessari ein- stöku heimildarmynd. Heimur far- fuglanna er afrakstur fjögurra ára vinnu, þar sem um 450 manna teymi í samvinnu við fjölmargar náttúru- fræðistofnanir, með 17 flugmönnum og 14 kvikmyndatökumönnum inn- anborðs, gengu í lið með farfuglum jarðarinnar og mynduðu þá með öll- um hugsanlegum ráðum, sérsmíðuð- um aðdráttarlinsum, loftbelgjum, hátækniflugvélum og risavöxnum skammti af þolinmæði. Svo ótrúlega hefur tekist til við að ná sjónarhorn- um á fuglana að sérstaklega er tekið fram í upphafi myndarinnar, að eng- um sjónrænum brellum hafi verið beitt við gerð hennar. Í Heimi farfuglanna er áhorfand- anum boðið að líta inn í ævintýra- heim fuglalífsins af dularfullum sögumanni, litlum glóbrystingi sem lokkar okkur með sér í gegnum skógarrjóður og inn í veröld náttúr- unnar. Þegar flokkur grágæsa legg- ur skömmu síðar upp í för sína norð- ur á bóginn er ferð áhorfandans hafin, ferð sem reynist sannkallað hnattflug áður en yfir lýkur. Slegist er í för með gæsum og öndum, hels- ingjum og margæsum, trönum og storkum sem halda frá suðri til norð- urs, yfir land og láð, frá Evrópu til Norðurlanda, frá Afríku til Norður- heimskautsins og frá Arizona til Alaska … og síðan til baka. Tilfall- andi togari eða herskip úti á rúmsjó getur veitt fuglunum kærkomna hvíld frá flugi yfir hafið, og bilaður og lekur vatnstrukkur við þjóðveg- inn reynst heppileg vatnsuppspretta þegar flogið er yfir eyðimerkur Norður-Ameríku. Leiðin liggur bæði yfir eyðilönd og mannabyggðir og stundum ber fyrir sjónir þekkt kennileiti, s.s. Kínamúrinn, Eiffel- turninn, Frelsisstyttuna og hina nú horfnu Tvíburaturna á Manhattan. En áhorfandinn þarf sjálfur að bera kennsl á staðhætti sem sjaldnast eru kynntir sérstaklega, s.s. þegar ís- lenskri náttúru bregður fyrir. Fylgst er með ótal fuglategundum og atferli þeirra á ólíkum blettum jarðarinnar, en aðeins er staldrað við um stund á hverjum stað, og litlar áhyggjur hafðar af því að kortleggja nákvæm- lega þá hegðun sem oftast er fylgst með í dýralífsmyndum, s.s. æxlun og fæðuöflun. Stöku unga bregður að vísu fyrir á dvalarstöðunum í norðri og staldrað er við listilegar aðfarir storksins við að veiða og gleypa óheppinn fisk. En megináhugi kvik- myndatökumannanna virðist ekki liggja í því að skýra hegðun fuglanna, heldur einfaldlega að horfa á þá og dást að þeim. Þannig er búin til frásögn sem lýtur jafn myndræn- um lögmálum og röklegum, frásögn sem hrífur áhorfandann með handan landamæra, handan tíma og rúms, handan mannheima og handan þyngdaraflsins. Heimur farfuglanna er því langt frá því að vera dýralífsmynd í hefð- bundnum skilningi, heldur hvort tveggja í senn, og óður til lita, forma, hreyfinga og hljóða náttúrunnar og sposk athugun á háttum fugla sem eru jafnólíkir og þeir eru margir. Orð og textar þularins (Perrin) eru fá og vel valin, en mestan part eru myndirnar og umhverfishljóðin látin tala. Upplifunin af fuglalífinu verður líka allt önnur þegar hin útskýrandi og leiðbeinandi rödd dýralífsþularins er ekki til staðar. Sum myndbrot- anna stuðla að heildstæðri frásögn af ferð fuglaflokks fram og til baka, en önnur eru aðeins andartök í nátt- úrunni sem náðust á filmu, trönur að stíga vals á vatnsborðinu, eða skringilegt andartak þar sem fiður- laus ungi bisar við að hrinda óútk- löktu eggi væntanlegs systkinis síns og keppinautar um lífsins gæði út úr hreiðrinu. Hvað þessum unga eld- huga gekk til, og hverrar tegundar hann yfirleitt er, fáum við ekkert að vita um, brotið sem við sáum segir allt sem segja þarf. Ákveðin leiðarstef varða þó frá- sögnina í þessari sérstæðu heimild- armynd, og skiptast þar á í stórum dráttum atriði sem lýsa hindrunum og hættum sem bíða fuglanna á för sinni og hin frelsandi og hrífandi flugatriði, þar sem bjartsýni og áræðni farfuglsins ráða ríkjum. Far- fuglinn á langa og áhættusama ferð fyrir höndum, en hún sækist örugg- lega, vængjatak fyrir vængjatak, og efast ferðalangurinn aldrei um hvert leiðin liggur. Það eru þessi dásam- lega mynduðu flugatriði sem gefa kvikmyndinni drifkraft sinn og að- dráttarafl, ekki síst með því að daðra við flugþrána sem fylgt hefur mann- inum frá örófi alda. Frumsamin tón- list Brunos Coulais undirstrikar þessa miðlægu tilfinningu með leið- arstefinu í tónsmíðum sínum, en á öðrum stundum fléttast frumsamin eða valin tónlistin skemmtilega sam- an við andartök og stemningar myndarinnar. Það er frábært að fá Heim far- fuglanna til sýningar í kvikmynda- húsi hér á landi, þar sem myndin býður áhorfendum upp á einstaka reynslu. Litbrigði náttúrunnar KVIKMYNDIR Háskólabíó – Frönsk kvikmyndahátíð Leikstjórn: Jacques Perrin. Handrit: Stéphane Durand og Jacques Perrin. Kvikmyndataka: Ýmsir. Klipping: Marie- Josèphe Yoyotte. Tónlist: Bruno Coulais. Aðalhlutverk: Lundi, súla, langvía, him- brimi, skúmur, kría, grágæs, æður, hels- ingi, önd, grágæs, heiðagæs, margæs, örn, kondór, storkur, pelíkani, snæugla, mörgæs o.fl. Lengd: 98 mín. Frakkland / Ítalía / Þýskaland / Spánn / Sviss. Sony Pictures Classics, 2001. HEIMUR FARFUGLANNA/ LE PEUPLE MIGRATEUR Heiða Jóhannsdóttir Í umsögn um Heim farfuglanna segir að hún sé miklu meira en hefðbundin dýralífsmynd heldur „óður til lita, forma, hreyfinga og hljóða náttúrunnar og sposk athugun á háttum fugla sem eru jafnólíkir og þeir eru margir“. AUGLÝSINGADEILD netfang: augl@mbl.is eða sími 569 1111
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.