Morgunblaðið - 27.01.2004, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 27.01.2004, Blaðsíða 24
LISTIR 24 ÞRIÐJUDAGUR 27. JANÚAR 2004 MORGUNBLAÐIÐ SEGJA má að nýtt upphaf sé meginþema þeirra tónleika sem hér eru til umfjöllunar. Ný tón- leikaröð í Hallgrímskirkju hóf göngu sína um helgina, Tríó Reykjavíkur fagnaði nýju ári á hefðbundinn hátt, og eftir því sem ég best veit voru þetta fyrstu tón- leikar söngkonunnar Helgu Rósar Indriðadóttur í Salnum í Kópa- vogi, þó hún hafi „debúterað“ hér á landi fyrir nokkrum árum. Vert er því að staldra aðeins við og líta til framtíðar; hverjar eru horfurn- ar í íslensku tónlistarlífi? Í nýafstaðinni athöfn þar sem Íslensku tónlistarverðlaun voru af- hent var greinilegt að menn voru mjög ánægðir með ástand mála. Í fjölmiðlaumfjölluninni um verð- launin var gjarnan rætt um fram- rás íslenskrar tónlistar á erlendum markaði og voru það ekki bara orðin tóm. Nægir að nefna stór- glæsilegan árangur Hilmars Arnar Hilmarssonar, sem samdi tónlist- ina í kvikmyndinni In the Cut, og almennt talað virðist umfjöllun er- lendra gagnrýnenda um íslenskt tónlistarfólk vera sérlega lofsam- leg. Yfirlýsing nýskipaðs mennta- málaráðherra í Kastljósi á dög- unum um að forgangsverkefni sé að koma byggingu tónlistarhússins margumrædda á almennilegt skrið, gefur fyrirheit um að eitt- hvað enn betra sé í vændum. En er ástandið í alvörunni svona gott? Eins og borgarstjóri benti á í athöfninni þegar tónlistarverð- launin voru afhent þá er undir- staða alls hins blómlega tónlistar- lífs starfsemi tónlistarskólanna. Í leiðinni notaði hann tækifærið til að stæra sig af hinum veglega styrk sem borgaryfirvöld veita tónlistarskólunum. Fékk maður á tilfinninguna að hann vildi sjálfur fá verðlaun. Skýtur það skökku við því styrkurinn er lögboðinn og kemur tónlistaráhuga borgarstjóra ekkert við. Eiginlega hefði borg- arstjóri átt að fá skammarverð- laun, því staðreyndin er sú að starfsemi tónlistarskólanna er í járnum um þessar mundir og má einkum rekja það til tveggja þátta þar sem borgaryfirvöld koma mjög við sögu. Annars vegar hafa tón- listarskólarnir í Reykjavík sætt talsverðum niðurskurði undanfarið og hins vegar hefur R-listinn gert allt til að rangtúlka kjarasaming- inn sem gerður var síðast við tón- listarkennara. Kennar hafa þannig verið sviknir um launahækkanir sem þeim hafði verið lofað á hausti liðnu, en þær áttu að koma til vegna lengingar skólaársins í sam- ræmi við grunnskólana. Skrifast það á afskiptasemi borgaryfirvalda af innra starfi tónlistarskólanna, að af þeim hefur ekki orðið. Reyndar sagði formaður Félags tónlistarkennara, Sigrún Grendal, að þessi rangtúlkun borgaryfir- valda hefði verið óviljaverk (Mbl. 25.10. 2003). Annað hefur komið á daginn þar sem óviljaverkið hefur hvorki verið leiðrétt, né fyrir það bætt. Væri því nær að tala um ein- beittan brotavilja borgarstjóra og félaga hans er reyna að sleppa sem billegast frá því að styðja við menninguna en monta sig þó af henni á opinberum vettvangi. Ný tónleikaröð í Hallgrímskirkju Hörður Áskelsson, organisti og kórstjóri, var einn þeirra sem sá um að afhenda Íslensku tónlist- arverðlaunin, enda hefur hann fengið þau sjálfur. Hann stóð líka fyrir tónleikum í Hallgrímskirkju í hádeginu síðast- liðinn laugardag, og spilaði þar á orgelið. Fyrst á dagskrá var Fant- asía í G-dúr, BWV 577 eftir Jóhann Sebastian Bach. Eftir aðeins nokkra takta hætti Hörður óvænt leik sínum og var ekki laust við að maður hrykki við; hafði hann kannski ruglast í ríminu? Nei, svo var ekki, tónleikarnir voru hluti af tónleika- röð undir yfirskriftinni Klaisorgel- ið hljómar, en þar munu ýmsir organistar ekki aðeins spila, held- ur einnig tala við áheyrendur og segja þeim frá tónlistinni sem þeir flytja. Hörður fjallaði í stuttu máli um formskipan Fantasíunnar eftir Bach, en tók síðan til við að út- skýra mismunandi raddir orgels- ins, hvernig þær eru framkallaðar og með hvaða pípum. Mörgum hef- ur örugglega fundist það fróðlegt, organistinn var a.m.k. skýrmæltur, talaði rólega og er greinilega van- ur kennari. Eftir erindi sitt settist Hörður aftur við orgelið og lék nú án þess að hika alla fantasíu Bachs. Var flutningurinn ákaflega vandaður, viðkvæmt fingraspilið var jafnt og var túlkunin markvisst byggð upp. Næst á dagskrá var Tierce en taille úr Gloríukafla messu eftir Couperin. Þar kynnti Hörður nán- ar þau mörgu blæbrigði sem hægt er að framkalla með orgelinu, og þegar hann svo spilaði var það margbrotið og stórfenglegt, en líka kristaltært. Tónlist Couperins er einstaklega hrífandi og skilaði fegurð hennar sér fyllilega til áheyrenda. Ekki síðri var hin volduga Got- neska svíta op. 25 eftir Boëllmann, en þar var orgelið eins og heil hljómsveit í meðförum Harðar. Orgelið hefur lengi verið kallað drottning hljóðfæranna, og víst er að ekkert annað hljóðfæri býr yfir eins mörgum túlkunarmöguleik- um. Þegar Hörður lék heyrðust ótal mismunandi raddir sem sköp- uðu alls konar litblæ, og var túlk- un hans sérlega sannfærandi, hömlulaus þegar við átti, en einnig innhverf og þrungin dulúð. Lokaatriði tónleikanna var Tví- söngur eftir Kjell Mørk Karlsen, en verkið hlaut fyrstu verðlaun í alþjóðlegri keppni sem Hallgríms- kirkja stóð fyrir í tilefni vígslu orgelsins fyrir um tíu árum. Hér var flutningur Harðar í fremstu röð og skapaði svo mikla hrifningu að þegar hann var búinn flykktist fjöldinn allur af æstum tónleika- gestum að listamanninum og heimtaði að fá nánari upplýsingar um orgelið. Ég er viss um að marga þeirra hefur langað til að komast í spilatíma hjá Herði. Helga Rós í Salnum Síðar sama dag kom Helga Rós Indriðadóttir sópran fram í Saln- um í Kópavogi og söng fyrst nokk- ur íslensk lög, þar á meðal Kveðju Þórarins Guðmundssonar og Draumalandið eftir Sigfús Einars- son. Söngkonan virtist tauga- óstyrk, en það leið fljótt hjá og var þá auðheyrt að hún býr yfir kraft- mikilli og glæsilegri rödd. Senni- lega hentar hún betur í óperu en í ljóðasöng, en samt var margt vel gert á tónleikunum. Aðdáunarvert var hve Helga Rós söng fallega veikt í laginu Die Stille í Söngva- sveig op. 39 eftir Schumann og þó að hún missti örlítið fókusinn á stöku stað í þessum lögum var tæknileg hlið söngsins að öðru leyti eins og best verður á kosið. Ég var hins vegar ekki alveg nógu ánægður með túlkunina á tónlist Schumanns, sem almennt talað einkennist af óheftu tilfinn- ingaflæði. Helga Rós flutti lögin allt of varfærnislega, maður sá fyrir sér tónskáldið í spennitreyju og það var ekki sérlega áhugavert. Schumann var að vísu brjálaður, en hann dvaldi ekki á geðveikra- hæli fyrr en seint á ævinni og því er óþarfi að túlka tónlist hans eins og hann hafi verið kominn út úr heiminum þegar hann samdi hana. Píanóleikarinn, Elisabeth Föll, átti stóran hlut í því hve túlkunin var óáhugaverð; hún studdi söng- inn ekki nægilega, það var lítill kraftur í leik hennar, innlifunin var takmörkuð, blæbrigðin fátæk- leg – og hvað var þá eftir? Jú, tæknilega var spilamennskan sam- kvæmt bókinni, en það var líka það eina. Tónleikarnir voru betri eftir hlé, en þá fluttu þær stöllur sex söngva op. 48 eftir Grieg og síðan fimm lög eftir Sibelius (Demanten på marssnön, Sånet på vattnet, Flick- an kom ifrån sin elsklings möte, Var det en dröm? og Svarta ro- sor). Hér var túlkunin óheftari, sérstaklega hjá Helgu Rós, en Föll hefði gjarnan mátt sleppa meira fram af sér beislinu; hún tiplaði á tánum allan tímann og var eins og hún þyrði ekki að taka almenni- lega á hljóðfærinu. Dró það tals- vert úr áhrifamætti söngsins, sem var synd því bæði söngkona og pí- anóleikari höfðu í rauninni allt til að bera til að gera þessa tónleika að eftirminnilegri skemmtun. Hcab Naitsabes Nnahój! Talsvert líflegri stemning ríkti á nýárstónleikum Tríós Reykjavíkur á sunnudagskvöldið. Ásamt tríóinu, sem samanstendur af þeim Guðnýju Guðmundsdóttur fiðlu- leikara, Gunnari Kvaran sellóleik- ara og Peter Maté píanóleikara, komu fram söngvararnir Sigrún Hjálmtýsdóttir/Diddú og Bergþór Pálsson. Á efnisskránni var alls konar léttmeti, tangó, valsar, atriði úr óperettum og fleira. Þau Bergþór og Sigrún eru skemmtikraftar af Guðs náð, bæði eru prýðilegir leikarar og krydd- uðu söng sinn tilburðum sem vöktu mikla kátínu meðal tónleika- gesta. Óþarfi er að telja upp hvert einasta atriði tónleikanna, en mað- ur verður þó að nefna Wunderbar eftir Cole Porter þar sem Bergþór talaði með þýskum hreim og bauð hina „ómótschtæðilegu Diddú“ vel- komna; hið drepfyndna Anything You Can Do úr Annie Get your Gun eftir Irving Berlin, og syrpu úr Carousel eftir Rodgers, en þar vantaði bara kúrekahattana til að fullkomna atriðið. Hljóðfæraleikararnir fluttu nokkur lög án þess að söngur kæmi við sögu og er ég ekki frá því að sumum þeirra hefði mátt sleppa. Þar á meðal var hugleiðsl- an úr Thais eftir Massenet og Tzigane eftir Ravel, sem pössuðu einhvern veginn ekki inn í dag- skrána. En hrífandi tangó eftir Pi- azzola átti miklu betur heima þarna, hann var glæsilega fluttur og vakti stormandi lukku meðal áheyrenda. Eins og áður sagði var listafólk- ið ærslafengið, en þó keyrði fyrst um þverbak þegar undarleg kona með slöngulokka (Gunnar í dul- argervi sýndist mér) truflaði Berg- þór þegar hann var að tilkynna breytingu á efnisskránni og heimt- aði að fá að spila á sellóið. Bergþór leyfði það með semingi og þá til- kynnti hún með skækri röddu að hún ætlaði að flytja verk eftir Hcab Naitsabes Nnahój. Svo upp- lýsti hún að það væri Jóhann Seb- astian Bach aftur á bak og að verkið héti Vögguvísa fyrir gamla hænu. Það samanstóð af stefnu- lausu sargi og gaggi, og var ekki ósvipað sumu af því sem maður á örugglega eftir að heyra á næstu Myrku músíkdögum. Þetta var frábær uppákoma sem auðvitað er ekki svipur hjá sjón þegar henni er lýst svona í blaða- grein. En ljóst er að þeir sem heima sátu misstu af miklu; ég held að ég geti fullyrt að þetta hafi verið bestu nýárstónleikar sem ég hef farið á. Vögguvísa fyrir gamla hænu TÓNLIST Hallgrímskirkja ORGELTÓNLEIKAR Hörður Áskelsson, organisti. Hallgríms- kirkja.Tónlist eftir Bach, Couperin, Boëll- mann og Karlsen. Laugardaginn 24. jan- úar. Salurinn í Kópavogi PÍANÓTÓNLEIKAR Helga Rós Indriðadóttir, sópran og El- isabeth Föll píanóleikari. Laugardaginn 24. janúar. Tónlist eftir Þórarin Guð- mundsson, Sigfús Einarsson, Árna Thor- steinsson, Sigvalda Kaldalóns, Schu- mann, Grieg og Sibelius. Hafnarborg NÝÁRSTÓNLEIKAR Tríó Reykjavíkur ásamt Sigrúnu Hjálm- týsdóttur og Bergþóri Pálssyni, Sunnu- daginn 25. janúar. Tónlist eftir Brahms, Mozart, Rodgers, Massenet, Boccherini, Porter, Berlin og fleiri. Morgunblaðið/Ásdís Tríó Reykjavíkur, Gunnar Kvaran, Guðný Guðmundsdóttir og Peter Máté píanóleikari, ásamt Sigrúnu Hjálmtýsdóttur og Bergþóri Pálssyni. Morgunblaðið/Brynjar Gauti Hörður Áskelsson organisti og kórstjóri. Jónas Sen FRAM kemur í fréttatilkynningu að höf- undurinn sé að verða fimmtugur og þetta sé þriðja ljóðabók hans. Ólöf Björg Björns- dóttir hefur unnið að kápunni sem er í sterkum litum, vel snotur. Titilsíða er engin. Ekki heldur bókarnúmer. Ljóðin eru kring- um tuttugu talsins á jafnmörgum blaðsíðum. En önnur hver síða er auð. Blaðsíðutal er ekkert. Efnisskrá ekki heldur. Ekki er þess heldur getið hver annast hafi prentvinnsl- una. Af öllu þessu má ráða að bókin sé af- rakstur heimilisiðnaðar. Út af fyrir sig er ekkert nema gott um það að segja. Með tölvu og góðum prentara, skurðarhníf og lími er vandalaust að búa til þokkalega bók. Það hafa fleiri gert með góðum árangri. Þannig er Í djúpum rótum hjartans ein meðal fjölda lítilla ljóðabóka sem séð hafa dagsins ljós þessi árin og kenna má við einkaframtakið. Skáldin eru tíðast á ungum aldri. Eru þá að þreifa fyrir sér, leggja lúð- ur við eyra í þeirri von að þeim berist ein- hver endurómur frá viðbrögðum lesenda. En lesendurnir eru grátlega fáir, undan- tekningarlaust! Og viðbrögðin eftir því. Heiti þessarar bókar boðar að skáldið vilji tala opinskátt, vera einlægur, koma til dyr- anna eins og hann er klæddur. Enn þykir sem sé hæfa að ákalla hjartað þegar kafað er ofan í sálardjúp eftir persónulegum hugð- arefnum, stundum til að dreyma en oftar til að rannsaka og leggja mat á eigið sjálf. Til forna töldu menn augljóst að hjartað væri bústaður tilfinninganna, sálarlífsins – hugar borg. Þess vegna notum við orð eins og hjartanlegur, hjartagóður og hjartahlýr. Fyrirsagnir ljóða eins og: Í djúpum rótum hjartans, Ímynd hins liðna, Bjartir litir, Ilm- ur, Trúr, Hugarró – benda til að skáldið leit- ist við að tala beint frá hjartanu og bókin rísi þannig undir nafni. Friðrik vill líka vera jákvæður, horfa á björtu hliðarnar í lífinu, samanber upphafslínur ljóðsins Bjartir litir: »í björtum litum / reyni ég / að sjá tilveruna í nýju ljósi« Þessu jákvæða viðhorfi er sums staðar fylgt eftir með því að skírskota til trúar og tilbeiðslu samanber ljóðin Fiskisag- an flýgur, Ímynd hins liðna, Trúr og Myndin af gúrúinum. Þannig má ætla að Friðriki sé nokkur al- vara með þessum ljóðum sínum, þó svo að hann eigi líka til að gantast með ljóðlistina. Skal þá sérstaklega bent á ljóð sem bera yf- irskriftina Doctor (þannig ritað) og Sígar- ettan. Bæði eru saman sett af fáeinum alló- samstæðum orðaleikjum sem tengdir eru saman með rímorðum. Undir fyrr talda ljóð- inu stendur raunar: »Samið í gríni.« Fáeinar rit- eða prentvillur benda til að Friðrik sé einyrki í ritbúskapnum. Glöggt má geta sér til að hann ætli þessum ljóðum sínum engan veginn stærri hlut en þau rísa undir. Og það er alltaf lofsvert ef menn kunna sér þannig hóf í sjálfsmati og metnaði. Í einlægni sagt BÆKUR Ljóð eftir Friðrik Ágústsson. Útg. höfundur. Reykjavík, 2003. Í DJÚPUM RÓTUM HJARTANS Erlendur Jónsson
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.