Morgunblaðið - 27.01.2004, Qupperneq 12

Morgunblaðið - 27.01.2004, Qupperneq 12
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF 12 ÞRIÐJUDAGUR 27. JANÚAR 2004 MORGUNBLAÐIÐ - Lengd: 132 stundir. - Næsta námskeið: 4. feb. - Kennslutími: 2 kvöld og laugard. - Stgr.verð: 116.850 Hagnýtt námskeið í fjármálum og rekstri fyrirtækja þar sem tekin eru fyrir grunnatriði í rekstrar- hagfræði, vaxta- og fjármálaútreikningar og notkun þeirra við mat á fjárfestingum. Kennd er notkun Excel við úrlausnir verkefna sem tengjast rekstri og fjármálaútreikningum, s.s. með notkun fjármálafalla og gerð rekstrarlíkana. NÁMSGREINAR: Rekstrarfræði - 54 Fjármálastjórnun - 48 Notkun Excel við fjármál og rekstur - 30 Nauðsynlegt er að nemendur hafi undir- stöðu í vaxtareikningi og notkun Excel. DRÖG að áreiðanleikakönnun sem gerð hefur verið samkvæmt skilyrði í kauptilboði frá Jóni Snorra Snorrasyni og hópi fjár- festa í Ingvar Helgason/Bílheima liggja nú fyrir. Fyrirtækið er í eigu fjölskyldu Ingvars heitins Helgasonar. Jón Snorri segist gera ráð fyr- ir að fá viðbrögð við drögunum að áreiðanleikakönnuninni í dag og að líklega muni skýrast í dag eða á morgun hver niðurstaðan verði. Morgunblaðið/Sverrir Áreiðan- leikakönn- un á Ingvari Helgasyni ÚRVALSVÍSITALA Kauphallar Ís- lands fór í fyrsta skipti yfir 2.400 stig í gær. Hefur hún hækkað um 14,14% það sem af er ári og um 79,49% síð- ustu tólf mánuði. Í gær voru viðskipti með hlutabréf í Kauphöll Íslands fyrir 2.174 milljónir króna og hækkaði vísitalan um 1,89%. Lokagildi hennar var 2.413,27 stig. Mest viðskipti voru með hlutabréf Pharmaco eða fyrir 1.498 milljónir króna. Hækkaði gengi Pharmaco um 6,4%. Gengi Kaldbaks hækkaði um 5,6% , Straums um 2,5% og Flugleiða um 2,2%. Af atvinnugreinavísitölum hefur vísitala samgangna hækkað mest á árinu eða um 21,64%. Vísitala fjár- festingarfélaga hefur hækkað um 19,72%. Vísitala fjármála og trygg- inga hefur hækkað um 13%. Eina at- vinnugreinavísitalan sem hefur lækk- að á árinu er vísitala þjónustu og verslunar en hún hefur lækkað 0,25% það sem af er ári. Úrvalsvísi- talan yfir 2.400 stig Hækkun ársins 14,14% ÁFRÝJUNARNEFND samkeppn- ismála hefur fellt úr gildi úrskurð samkeppnisráðs þess efnis að Slát- urfélag Suðurlands skuli skilja fjár- hagslega á milli rekstrar áburðar- deildar sinnar og annarrar starfsemi félagsins. Málið á sér þann aðdraganda að haustið 2002 barst Samkeppnis- stofnun erindi frá Áburðarverk- smiðjunni þar sem kvartað var yfir tilteknum viðskiptaháttum Slátur- félags Suðurlands. Áburðarverk- smiðjan taldi meðal annars að Slát- urfélagið hefði misnotað markaðsráðandi stöðu sína fyrir slátrun á búfé til stuðnings áburð- arsölu félagsins. Þessu hafnaði samkeppnisráð í úrskurði sínum á síðasta ári, en komst um leið að þeirri niðurstöðu að vegna mark- aðsráðandi stöðu og ákveðins stuðnings ríkisins við greinina, meðal annars í formi beingreiðslna, bæri Sláturfélaginu að stofna sér- staka einingu um rekstur áburð- ardeildarinnar og halda sjálfstætt bókhald fyrir hana. Sláturfélagið mótmælti því að um opinberan stuðning væri að ræða, auk þess sem bókhald og fjárreiður afurða- stöðvarinnar væru lögum sam- kvæmt aðskildar frá öðrum rekstri félagsins. Samkeppnisráð taldi hins vegar að fjárhagslegur aðskilnaður væri ekki nægur, þó að stjórnunar- legur aðskilnaður væri fullnægj- andi. Með úrskurði áfrýjunarnefndar samkeppnismála er þessu áliti hafn- að. Þar segir að markmið sam- keppnisráðs með ákvörðun sinni um fjárhagslegan aðskilnað hafi verið að gæta þess að samkeppnisrekstur væri ekki niðurgreiddur af hinni meintu einkaleyfis- eða vernduðu starfsemi. Áfrýjunarnefndin telji að þegar haft sé mið af ákvæðum stjórnsýslulaga hefði þessu mark- miði, að svo miklu leyti sem það kunni að hafa átt rétt á sér, betur verið mætt með öðrum og vægari hætti en þeirri íhlutun sem fyr- irmælin um fjárhagslegan aðskilnað áburðarstarfsemi og annarrar starfsemi hafi falið í sér. Engin ákvörðun um framhaldið Steinþór Skúlason, forstjóri Slát- urfélags Suðurlands, sagðist í sam- tali við Morgunblaðið sáttur við nið- urstöðuna sem hann teldi rétta. Hann sagði þó slæmt að þurfa að eyða tíma og peningum í svona mál. Ekki lægi nákvæmlega fyrir hversu mikill kostnaðurinn hefði verið, en hann hefði verið töluverður, bæði í aðkeyptri vinnu og vinnu innan- húss. Steinþór sagði málið hafa verið fjarstæðukennt, því að ljóst væri að afrakstur sauðfjárslátrunar hafi ekki verið þannig að hún gæti nið- urgreitt annan rekstur. Sigurður Þór Sigurðsson, fram- kvæmdastjóri Áburðarverksmiðj- unnar, sagði ekkert liggja fyrir um það hvort niðurstöðunni yrði skotið til dómstóla, enda væri úrskurð- urinn nýr og hann ætti bæði eftir að ráðfæra sig við lögmann fyr- irtækisins og stjórn þess. Hann sagðist þó mjög undrandi á nið- urstöðunni og að hún væri mikil vonbrigði. Úrskurður samkeppnis- ráðs um SS felldur úr gildi Áfrýjunarnefnd samkeppnismála fellst ekki á kröfur um aukinn fjárhagslegan aðskilnað FLUGLEIÐIR hafa sent frá sér tilkynningu þar sem segir að horfur séu á að minnsta kosti 1.200 millj- óna króna hagnaði fyrir skatta á síðasta ári. Í tilkynningunni segir að þetta verði næstbesta afkoma rekstrarins í þrjátíu ára sögu fé- lagsins og komi næst árinu 2002. Hún náist þrátt fyrir tekjutap vegna Íraksstríðs og bráðalungn- abólgu á fyrri hluta síðasta árs og aukna samkeppni í flugi til og frá Íslandi. Í tilkynningunni kemur ennfremur fram að félagið muni birta ársreikning fyrir síðasta ár þann 25. febrúar næstkomandi og að það verði sá fyrsti eftir viðamikl- ar skipulagsbreytingar í upphafi árs 2003. Birt til upplýsingar Tilkynningin frá Flugleiðum var birt undir yfirskriftinni afkomuvið- vörun í Kauphöll Íslands í gær, en Einar Sigurðsson, aðstoðarforstjóri Flugleiða, segir að félagið hafi ekki sent tilkynninguna frá sér sem af- komuviðvörun heldur til upplýsing- ar. Ekkert hafi verið birt áður um afkomuna, en ákvörðun hafi verið tekin um að birta þessar upplýs- ingar nú með hliðsjón af því að þær hafi legið fyrir en langt sé í birtingu ársreikningsins. Í Hálffimm fréttum greiningar- deildar KB banka í gær segir að þessi afkomuviðvörun komi nokkuð á óvart og hún sé jafnvel nokkuð óskýr þar sem á jákvæðan hátt sé tilkynnt um áætlaðan hagnað sem sé heldur undir eða í samræmi við afkomuspár markaðsaðila. Hagnaður Flugleiða yfir 1.200 milljónir fyrir skatta ÁFRÝJUNARDÓMSTÓLL, Eystri Landsréttur í Danmörku, kvað í gær upp dóm þess efnis að dótturfélag Pharmaco, Unit- ed Nordic Pharma (UNP), mætti á ný hefja sölu á þung- lyndislyfinu Citalopram þar í landi. Með þessum dómi fellur úr gildi lögbann sem undirréttur í Horsholm lagði sl. haust á sölu UNP á Citalopram. Lyfið er samheitalyf fyrir Cipramil sem danska lyfjafyrirtækið Lund- beck framleiðir. Tvö önnur samheitalyfjafyrir- tæki voru aðilar að málinu, með UNP, að því er segir í frétta- tilkynningu frá Pharmaco. Þessi dómur þýðir að nú get- ur UNP hindrunarlaust selt Citalopram í Danmörku. Samheitalyfið Citalopram aftur í sölu í Danmörku ALCOA, álfyrirtækið sem ætlar að byggja álverksmiðju við Reyðar- fjörð, segist ætla að spara 83 millj- arða íslenskra króna, 1,2 milljarða Bandaríkjadala, á næstu þremur ár- um, samkvæmt sérstakri áætlun fyrirtækisins um minnkun kostnað- ar. Nýju áætluninni er hrint í fram- kvæmd beint í kjölfar annars vel heppnaðs þriggja ára tímabils sem skilaði fyrirtækinu rúmum milljarði dala í sparnað, eða um 70 millj- örðum íslenskra króna. Í frétt á vef Alcoa segir að þegar þessari áætlun verði lokið hafi fyr- irtækinu tekist að spara alls 3,3 milljarða Bandaríkjadala, eða sem svarar til 228 milljarða íslenskra króna. Í fréttinni segir að um sé að ræða varanlega minnkun kostnaðar hjá fyrirtækinu, sem snýr þó ekki að kaupum á orku eða gjaldmiðlaáhrif- um. Einnig segir að sparnaðurinn hafi átt sér stað á nokkrum sviðum innan fyrirtækisins sem er með starfsemi um allan heim. Þau svið þar sem meðal annars hafa sparast umtalsverðir peningar eru í inn- kaupum, framleiðslu og stjórnun. Alcoa spar- ar 228 millj- arða króna GJALDÞROT skiltafyrirtækis- ins Nota Bene hefur verið sent til ríkislögreglustjóra. Kröfur í bú Nota Bene námu 214 milljónum króna, þar af voru forgangskröfur 38 milljón- ir. Nota Bene var lengst af dótturfélag Frjálsrar fjölmiðl- unar hf. Nota Bene til ríkislög- reglustjóra AUGLÝSINGADEILD netfang: augl@mbl.is eða sími 569 1111 ♦♦♦

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.