Morgunblaðið - 27.01.2004, Qupperneq 13

Morgunblaðið - 27.01.2004, Qupperneq 13
ÚR VERINU MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 27. JANÚAR 2004 13 Smiðjuvegi 14 • Kópavogi • www.veislusmidjan.is • Pantanir og uppl. í símum 587 3800 og 899 2959. Þorramaturinn eins og þú vilt hafa hann Meira af þessu og minna af hinu Hafðu samband eins oft og þú vilt! Þorrablótið í sal Ferðafélagsins í Mörkinni Taktu lífinu létt - ostur fullkomnar salatið ÓDÝRT HÖFÐABAKKI 9 112 REYKJAVÍK SÍMI: 544 5330 FAX: 544 5335 en gott Við bjóðum 14 34 / TA K T ÍK n r. 4 0 C Stærð: D: 50 cm B: 30/40 cm H: 180 cm Stál- skápar fyrir vinnustaði kr. 7.719,- Verð frá Stálskápar (Fyrsti skápur kr. 8.840,-) STOFNAÐ hefur verið nýtt stétt- arfélag, Félags skipstjórnarmanna. Að stofnun hins nýja félags standa gamalgróin félög skipstjórnar- manna, en þau eru Skipstjóra- og stýrimannafélag Norðlendinga stofnað 1918, Skipstjóra- og stýrimannafélag- ið Aldan sem er eitt elsta starf- andi stéttarfélag landsins stofnað 1893 og Félag ís- lenskra skip- stjórnarmanna sem varð til upp úr sameiningu þriggja eldri félaga árið 2000, en á rætur að rekja aftur til ársins 1919. Forsvarsmenn þessara þriggja fé- laga hafa undanfarin tvö ár unnið að samruna félaganna. Mikilvægum áfanga lauk síðan með allsherjarat- kvæðagreiðslu meðal félagsmanna sl. sumar þar sem 95 % þeirra sem atkvæði greiddu, lýstu sig hlynnta sameiningu félaganna. Á síðari stigum þessa ferlis leit- uðu forsvarsmenn Skipstjóra- og stýrimannafélagsins Sindra á Aust- fjörðum eftir aðild að hinu nýja fé- lagi. Eftir sameininguna eru yfir 70% af öllum íslenskum skipstjórn- armönnum félagsmenn í Félagi skipstjórnarmanna sem þar með er langstærsta aðildarfélag innan Far- manna- og fiskimannasambands Ís- lands. Nú stendur yfir atkvæða- greiðsla meðal félagsmanna Skipstjóra- og stýrimannafélagsins Bylgjunnar á Vestfjörðum um aðild að Félagi skipstjórnarmanna, og standa væntingar til að Vestfirðing- ar samþykki sameiningu, sem styrkti félagið enn frekar. Aðalskrifstofa félagsins verður í Borgartúni 18 í Reykjavík, en einnig verður starfrækt þjónustuskrifstofa á Akureyri. Formaður hins nýja félags er Árni Bjarnason, varaformaður Magnús Harðarson og fram- kvæmdastjóri Guðjón Ármann Ein- arsson. Nýtt félag skipstjórn- armanna stofnað Árni Bjarnason LOÐNUVEIÐI var heldur treg í gær, en flotinn var þá að veiðum djúpt austur úr Glettinganesi. Slæmt veður var á miðunum á sunnudag og lágu þá veiðar að mestu niðri en skipin hófu veiðar í gærmorgun þegar veðrinu slotaði. Lítið hafði fengist þegar Morg- unblaðið ræddi við skipstjórn- armenn síðdegis í gær en þeir sögðu þó enga ástæðu til að ör- vænta, nóg væri af loðnu og hún myndi gefa sig um leið og aðstæður yrðu skaplegar. Alls hafa borist um 25 þúsund tonn af loðnu á land frá áramótum, samkvæmt upplýsingum frá Sam- tökum fiskvinnslustöðva. Mest hef- ur verið landað af loðnu hjá Eskju hf. á Eskifirði eða um 10.572 tonn- um en Síldarvinnslan í Neskaupstað hefur tekið á móti 9.578 tonnum. Aðrar verksmiðjur hafa tekið á móti mun minna magni. Miklu landað á Akranesi Vinnsla í síldar- og fiskimjöls- verksmiðju HB er nú í fullum gangi. Landanir fyrir og um helgina voru alls 4.616 tonn af loðnu. Faxi RE landaði á föstudag- inn 1.459 tonnum, Víkingur AK 100 landaði aðfaranótt sunnudagsins 1.264 tonnum og Ingunn AK 150 landaði í gær 1.893 tonnum. Vinnslan fer vel af stað og eru af- köst verksmiðjunnar nú um 1000– 1100 tonn á sólarhring. En þess má geta að við slík afköst er fram- leiðslan á mjöli rúm 170 tonn á sól- arhring og framleiðslan á lýsi er um 100 tonn. En fituinnihald loðn- unnar er mjög breytilegt eftir árs- tíma. Miklar breytingar voru gerðar á verksmiðjunni fyrir nokkrum árum og hún nánast endurbyggð frá grunni árið 1997 og er í dag ein fullkomnasta verksmiðja sinnar tegundar hér á landi og þótt víða væri leitað. Reksturinn hefur geng- ið vel undanfarin ár og hafa mjöl- og lýsisafurðir verksmiðjunnar lík- að mjög vel. Allur aðbúnaður í verksmiðjunni hefur tekið miklum breytingum og er þetta sennilega eina bræðslan í heiminum með mál- verk á veggjum. Morgunblaðið/Albert Kemp Frysting loðnu fyrir Rússlandsmarkað er nú hafin víða um land, enda markaðsaðstæður góðar. Hoffell SU landaði um helgina fyrstu loðnu ársins á Fáskrúðsfiði, um 560 tonnum, og fór stærstur hluti aflans til frystingar. Treg veiði á loðnumiðunum

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.