Morgunblaðið - 27.01.2004, Qupperneq 15

Morgunblaðið - 27.01.2004, Qupperneq 15
ERLENT MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 27. JANÚAR 2004 15 EPLAEDIK MEÐ KRÓMI Öflug hjálp í baráttunni við aukakílóin. Áður: 2.090 kr. KJARNAHVÍTLAUKUR 100% hreinn hvítlaukur, laus við öll fylliefni. Engin eftirlykt. Allra meina bót! Áður: 997 kr. – 100 stk. Áður: 1.840 kr. – 250 stk. NONI JUICE Við hlustum! T ilb o ð in g ild a ti l 1 0. 2. 2 00 4 Áttu eitthvað styrkjandi gegn sleni og svoleiðis? G O T T F Ó LK M cC A N N · S ÍA · 2 5 2 3 4 2.952 Noni safinn eflir ónæmiskerfið, fer vel í maga og er góður fyrir meltinguna. Áður: 3.937 kr. 1.499 1.380 250 stk. 747 100 stk. DEMÓKRATINN John Kerry hlust- ar á fyrirspurn á kosningafundi í New Hampshire-ríki í Bandaríkj- unum í gær. Samkvæmt skoð- anakönnunum eru allar líkur á að Kerry sigri í forkosningum Demó- krataflokksins sem fram fara í rík- inu í dag. Ekki var þó á vísan að róa fyrir Kerry því margir kjósendur áttu eftir að gera upp hug sinn, og veðurspáin var ekki hagstæð. Allir frambjóðendurnir sjö voru á ferð og flugi um New Hampshire í gær í þeim tilgangi að reyna ð styrkja stöðu sína í forvalinu í dag. Vinni Kerry sigur þar er staða hans orðin afar vænleg og keppinautar hans lögðu því allt kapp á það í gær að brúa bilið. Samkvæmt niðurstöðu könnunar, sem Newsweek birti um helgina, gæti Kerry sigrað George W. Bush Bandaríkjaforseta ef forsetakosn- ingarnar færu fram nú. Kerry, sem er öldungadeildarþingmaður frá Massachusetts, fengi 49% atkvæða á landsvísu samkvæmt könnuninni en Bush 46%. Kerry hefur einnig forustu í bar- áttunni um útnefningu Demókrata- flokksins sem forsetaefni en sjö frambjóðendur keppa um að mæta Bush í forsetakosningunum í nóv- ember. Samkvæmt könnun CNN/ USA Today/Gallup í gær nýtur Kerry fylgis um 35% kjósenda Demókrataflokksins en Howard Dean, fyrrverandi ríkisstjóri, sem naut mests fylgis fyrir nokkrum vikum, er með 23%. Wesley Clark, fyrrverandi hershöfðingi, hefur 14% og öldungadeildarþingmenn- irnir John Edwards og Joseph Lie- berman 11% og 10%. Kerry með vænlega stöðu AP DAVID Kay, fyrrverandi yfirmaður vopnaleitar Bandaríkjamanna í Írak, segir að það veki alvarlegar spurn- ingar um upplýsingaöflun banda- rískra leyniþjónustustofnana að ger- eyðingarvopn skuli ekki hafa fundist í Írak. Kay spáði því í fyrra að slík vopn myndu finnast í Írak en nú, eftir níu mánaða leit, kveðst hann ekki hafa séð nein merki þess að stórfelld framleiðsla gereyðingarvopna hafi farið fram í Írak frá því Persaflóa- stríðinu lauk árið 1991. „Ég tel ekki að þau séu til,“ sagði hann í útvarps- viðtali á sunnudag. Kay bætti við að málið snerist um hvort CIA og aðrar bandarískar leyniþjónustustofnanir hefðu getað „safnað gildum og sönnum upplýs- ingum“ í Írak. Þegar hann var spurður hvort George W. Bush Bandaríkjaforseti skuldaði þjóð sinni skýringu á ósamræminu milli yfirlýsinga hans fyrir stríðið og nið- urstöðu Kays, svaraði hann: „Ég tel reyndar að leyniþjónustumennirnir skuldi forsetanum, fremur en að for- setinn skuldi bandarísku þjóðinni.“ „Gátu falsað áætlanir“ Embættismenn í Hvíta húsinu í Washington sögðust enn telja að gereyðingarvopn finnast í Írak. John Kerry, sem sækist eftir því að verða forsetaefni demókrata í kosningun- um í nóvember, sagði ummæli Kays um helgina staðfesta að stjórn Bush hefði ýkt hættuna sem stafaði af Írak og villt um fyrir þjóðinni. Kay sagði í viðtali við The New York Times að bandarísku leyni- þjónustustofnanirnar hefðu ekki átt- að sig á því að íraskir vísindamenn hefðu lagt metnaðarfullar en óraun- hæfar áætlanir um þróun gereyðing- arvopna fyrir Saddam Hussein en síðan notað peningana, sem hann lof- aði þeim, í annað. „Saddam stjórnaði sjálfur verkefnum sem engir aðrir höfðu eftirlit með. Vísindamennirnir gátu falsað áætlanir.“ Vopn flutt til Sýrlands? Kay telur að helsta vandamál bandarísku leyniþjónustunnar CIA felist í því að hún hafi ekki haft nógu marga njósnara í Írak til að geta afl- að trúverðugra upplýsinga. Hann kveðst ekki telja að stjórnin hafi knúið sérfræðinga CIA til að skrifa skýrslur sem samræmdust stefnu stjórnarinnar. Þá segir Kay að vegna glundroð- ans í Írak eftir stríðið geti menn ekki vitað með vissu hvort Írakar hafi átt bönnuð vopn. Fram hafi komið vís- bendingar um að Írakar kunni að hafa flutt vopn til Sýrlands fyrir stríðið. „Gervihnattamyndir og fréttir frá Írak bentu til stöðugs straums flutn- ingabíla og lesta yfir landamærin. Við vitum einfaldlega ekki hvað var flutt,“ sagði Kay. „Það er mjög lítið sem hægt er að gera í Írak til að komast að því. Svörin við því eru í Sýrlandi og sýrlenska stjórnin hefur ekki sýnt nokkurn áhuga á því að hjálpa okkur að ráða fram úr þessu máli.“ Kay gagnrýnir þátt CIA í Íraksmálinu Lætur í ljósi efa- semdir um upp- lýsingaöflunina Washington. AP, AFP.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.