Morgunblaðið - 27.01.2004, Síða 33

Morgunblaðið - 27.01.2004, Síða 33
MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 27. JANÚAR 2004 33 Þýskalandi og Danmörku. Hún þýddi líka kennslubækur og lauk kennaraprófi. Kröfur hennar um ýtrustu fag- mennsku hlutu ekki alltaf hljóm- grunn og það sárnaði henni. Fag- maðurinn einn veit um alla vinnuna sem liggur að baki fullunninni flík og henni sárnaði hroki, heimska og til- litsleysi. Eitt sinn er fjölskyldan var að setjast að jólaborði á aðfangadag hringdi síminn. Frú nokkur vildi kjól. Bergljót benti henni á dagsetn- inguna en frúin sagðist þurfa kjólinn fyrir frumsýningu í Þjóðleikhúsinu. Þegar Bergljót benti henni á helgi jólanna sagði hún: „Þetta er ekki fyrr en kl. átta á annan.“ Hún var alla tíð grönn og nett. Það sérstaka við útlit hennar voru augun, annað blátt, hitt brúnt. Munnurinn sérstakur þar sem neðri vörin var áberandi breiðari en sú efri. Hún hafði mikla útgeislun og frábæra frá- sagnarhæfileika. Hún hlustaði á fólk. Eins og margir með listræna hæfni virtist hún ekki áhugasöm um heim- ili og börn. Hugur hennar stefndi til einhvers skírra, einhvers blárra, svo við vitnum í Jón Helgason. Samt var hún afburðakokkur og bakaði af snilld þegar sá gállinn var á henni. Það var oft eins og einhver ein- semd fylgdi henni. Við nánari kynni kom í ljós að hún var tvíburi og þær systurnar Valdís og hún voru að- skildar ungar. Ótímabær dauði Val- dísar á unga aldri var sár sem aldrei greri. E.t.v. voru það þröngar að- stæður í uppeldinu sem sniðu henni stakk sem settu svip sinn á skap hennar. Hún var afar stolt kona sem vildi engum skulda, átti fáa en trausta vini. Þau kærleiksverk sem hún vann mér vildi hún örugglega ekki tíunda hér. Því fylgja hér innilegar þakkir fyrir allt sem Bergljót Ólafsdóttir gerði fyrir mig. Meðal fyrstu minninga hennar var þegar hún og Valdís leiddust inn í kirkjuna í hvítum kjólum með bláum stjörnum á jóladag. Fólki varð star- sýnt á þessu fallegu börn með slegið hárið og svona fínar. Þær litu upp og sjá; hvolf kirkjunnar var blátt með gylltum stjörnum, tákn himinsins þar sem Guð býr. Þær spurðu hvor aðra: „Kanske erum við þá bara englar.“ Nú hefur heimurinn hætt að setja sitt mark, sem stundum sveið á langri ævi Bergljótar Ólafsdóttur. Hún braust úr þeim viðjum, sem heimurinn setti henni. Hæfileikar hennar skiluðu sér í ríkum mæli til barnanna sem rækta arfleifð hennar. Nú eru þær sameinaðar á ný, engla- börnin, Bergljót og Valdís. Innilegar samúðarkveðjur til barna og ættingja. Hvíli hún í friði. Erna Arngrímsdóttir. Að heilsa og kveðjast er lífsins saga. Við Bergljót Ólafsdóttir kjóla- meistari sem nú er kvödd heilsuð- umst fyrst á haustdögum 1960, er ég hóf – á laugardegi – nám í kjólasaumi undir hennar handleiðslu. Þau Óli höfðu þá nýlokið myndarlegri við- byggingu við íbúðarhús fjölskyld- unnar undir saumastofu hennar að Laugarnesvegi 62. Bergljót var þarna á blómaskeiði starfsferils síns og mikil umsvif í starfseminni, sérsaumur, þar sem samkvæmiskjólar, dagkjólar og ekki síst brúðarkjólar urðu til. Skátabún- ingar voru framleiddir inn á milli. Þá er eftir að nefna sauma- og sníða- námskeiðin, þar sem hún kenndi af þekkingu og röggsemi. Þessi nám- skeið voru konum kærkomin fyrir margra hluta sakir, það að geta lært að bjarga sér við að sauma fatnað á sig og fjölskylduna og ekki síður menntunarþrá þeirra. Á þessum tíma voru fá tækifæri til náms fyrir konur sem höfðu stofnað heimili og áttu börn. Margar konur hafa sagt mér að þeim hafi fundist að þær væru komnar í „alvöru skóla“ því frú Bergljót gerði kröfur um ár- angur. Hún hafði ekki áhyggjur af því að námskeiðin drægju úr þörf fyrir sérsaum, þvert á móti taldi hún að með aukinni þekkingu myndu fleiri gera kröfur um fagvinnu á stóru stundunum. Það voru pressu- böllin, stangveiðiárshátíðirnar, brúð- kaupin, þar sem kjólar á marga með- limi stórfjölskyldunnar fylgdu í kjölfarið, og síðan voru viðskiptavin- ir sem þurftu dagkjóla, kokteilkjóla og þarna heyrði ég fyrst talað um „þann litla svarta“ sem gott var að eiga. Listfengi meistarans fékk oftar en ekki útrás í perlu- og pallíettu- saumi ásamt sniðagerð sem hæfði. Bergljót var ákaflega dugleg, metn- aðargjörn og framsækin. Hún fann ríka þörf fyrir að auka þekkingu sína á sem flestum sviðum. Þekkingu sem hún vildi færa áfram til næstu kyn- slóða. Hún hafði numið áður í Dan- mörku, lokið kennaraprófi hér heima og árið 1961 fór hún í fyrsta skipti, þá á vegum þýska sendiráðsins, til Þýskalands til að kynna sér fyrir- komulag og kennsluhætti í fagskól- um, þar sem hún bar stóra drauma í brjósti ásamt fleirum um að koma upp samræmdri kennslu fagsins í skóla hérlendis. Þegar heim kom, með unga þýska stúlku, menntaða í faginu, tók hún annan nema og hóf að undirbúa eigin tískusýningu sem haldin var í Sjálf- stæðishúsinu við Austurvöll 1963. Tískusýning var stór viðburður í menningarlífinu á þessum árum. Sýningin vakti mikla athygli og fyllti húsið þrisvar að mig minnir. Einnig tók hún þátt í glæsilegum sýningum Kjólameistarafélagsins, sem haldnar voru nokkuð þétt á árunum kringum 1970. Var hún virk í þeim félagsskap og tók að sér ábyrgðarstörf innan fé- lagsins. Bergljót sinnti kennslu í sniðagerð kjólasaums sem kennd var sam- ræmd í Iðnskólanum þegar nemar á samningi fóru í skólann til náms í hefðbundnum sameiginlegum grein- um iðnnáms. Fór hún margar náms- ferðir erlendis til að dýpka þekking- arbrunn sinn og víkka sjóndeildar- hringinn. Skólinn tók alfarið við kennslu fagsins árið 1978. Áður hafði skólinn farið af stað með námskeið fyrir byrjendur og starfsfólk í fata- iðnaði árið 1970, þar sem Bergljót var aðalkennari. Hún kenndi við Fataiðndeildina til starfsloka. Starfsdagur konu með stórt heim- ili og mikil umsvif í atvinnurekstri hlýtur að verða langur. Aldrei minn- ist ég þess þó að hafa heyrt meist- arann minn kvarta um þreytu, slíkur var áhuginn. Þegar ég á seinni árum afsakaði mig við hana hve langt leið á milli þess að ég hafði samband við hana sagði hún þó: „Ætli ég viti ekki manna best hvað er að hafa mikið að gera?“ Bergljótu Ólafsdóttur kveð ég með virðingu og í kærri þökk fyrir allt. Hrefna Kristbergsdóttir. fékk t.d. aldrei inflúensu meðan hún lifði. Hún minntist þess ekki að hafa fengið kvef í nös. Ég er viss um að hún skilur sátt við þetta líf. Ég vil að lokum þakka ömmu fyr- ir þann tíma sem við áttum saman. Ég hugsa að æska mín hefði ekki verið eins hamingjurík ef ömmu hefði ekki notið við. Guð blessi minningu Lóu Lúth- ersdóttur. Berglind. Kveðja til ömmu Lóu. Það er sárt fyrir mig að sjá á eftir ömmu minni, en samt léttir líka þar sem hún hafði verið veik svo lengi og erfitt að horfa á hana svona mikið veika eins og hún var síðustu fimm árin. Allt frá því ég man eftir mér sótti ég rosalega mikið í ömmu Lóu. Ég vildi helst vera hjá henni og fara með henni hvert sem hún fór. Það var ekki svo sjaldan sem ég hringdi í ömmu og bað hana að sækja mig í Lækjargötuna, því ég ætlaði að taka Hafnarfjarðarstrætó til Reykjavík- ur. En þegar amma var önnum kafin og komst ekki til að sækja, mig þá lærði ég bara á strætisvagninn sem gekk vestur í bæ og kom mér sjálf til ömmu Lóu. Ekkert vesen bara mætti hvort sem henni líkaði betur eða verr. Stundum fór ég með ömmu í vinnuna og hékk hjá henni og Helgu systur hennar í fataheng- inu á Hótel Loftleiðum og fannst ekkert skemmtilegra. Amma fór mjög oft til útlanda, Glasgow, Köben, London og víðar og beið ég yfirspennt eftir að hún kæmi heim því hún keypti alltaf eitthvað handa mér og þar að auki var ég yfirleitt farin að sakna henn- ar. Svo kom auðvitað að því að mig langaði að fara með ömmu til út- landa, og skelltum við okkur til Kö- ben þegar ég var 10 ára. Það var mögnuð ferð. Við vorum í 12 daga og fórum öll kvöldin í Tívolí, en á 10. degi sagði amma, Íris mín er virki- lega ekkert annað sem þig langar að gera en að fara í Tívolí? Þú ert búin að fara í öll tækin mörgum sinnum. Nei mig langaði akkúrat ekkert annað en að fara í Tívolí, og þá sagði amma bara, jæja förum að hafa okk- ur til og drífum okkur í Tívolí. Það var þannig sem hún var við mig, gerði allt fyrir mig alveg sama hvað það var. Svo var það þegar ég var 16 ára að við skruppum aftur til Köben. Mér fannst amma ekki nógu snör í snúningum á Strikinu því að ég varð að fara í búðir alla dagana. Ég stakk því upp á því við ömmu að hún gæfi dúfunum á meðan ég skryppi í búð- ir, sem hún samþykkti. Fundum við þennan líka fína bekk hjá gosbrunn- inum á miðju Strikinu sem ömmu fannst flottur og þar voru allar dúf- urnar. Keypti ég fóður handa dúf- unum sem ég lét hana fá, en amma var mikill dýravinur, og kíkti ég á hana á klukkutíma fresti til þess að bæta á fóðrið fyrir dúfurnar og einnig sá ég til þess að amma fengi ís og sælgæti því það var eitt af því besta sem hún fékk. Svona liðu dag- arnir á Strikinu hjá okkur ömmu og alltaf sagði hún, ertu komin aftur, Íris mín, ertu nokkuð búin í búð- unum. Hún amma Lóa var ekki erf- iður ferðafélagi enda varð þetta ekki síðasta Köben ferðin okkar saman. Oft fórum við í kaffi til Huldu vin- konu ömmu eða til Helgu systur hennar og Konna eða kíktum jafn- vel í Kringluna og tókum þá stund- um Jónu Tomm með okkur. Vinkon- um ömmu fannst ég bara hluti af henni því ég var alltaf í pilsfaldinum á henni. Þegar við Ásgeir fórum að búa saman sóttum við oft ömmu Lóu. Hjá okkur settist hún við eldhús- gluggann og horfði út yfir fjörðinn og hafði alltaf á orði hversu útsýnið væri magnað. Við töluðum saman allan tímann sem hún var hjá mér, en það var ekki aðalatriðið heldur að amma var hjá mér og ég hjá ömmu. Þannig var sambandið okkar ömmu Lóu alla tíð, bara að vera saman. Ég kveð elsku ömmu Lóu mína, bara í bili, með söknuði og eftirsjá og læt það vera mína hinstu kveðju til hennar að þakka henni fyrir allt. Íris. Elsku amma mín, nú kveð ég þig hinni hinstu kveðju. Þó finnst mér sem ég hafi hvatt þig fyrir löngu þar sem sjúkdómur þinn tók þig eigin- lega frá okkur löngu áður en að endalokum þínum kom. Við við- skilnað þinn rifjast upp margar ánægjulegar samverustundir frá æskuárunum og hlýr faðmur sem huggaði lítið hjarta. Í minningunni kemur upp mynd af þér sitja við eld- húsborðið að leggja kapal. Á meðan fékk ég að laumast í nammiskúffuna góðu, sem alltaf var full af góðgæti. Alltaf var gaman að fá að róta í dótinu þínu og þá sérstaklega saumadótinu. Enda kenndir þú mér ungri að sauma út og kveiktir áhuga minn á hannyrðum. Það var fastur liður í tilverunni að koma á hverjum sunnudegi að heim- sækja þig og afa. Þá hittumst við all- ir afkomendur ykkar og áttum góð- ar stundir saman. Héldum okkar litlu ættarmót og styrktum fjöl- skylduböndin. Síðustu æviár þín bjóst þú á hjúkrunarheimilinu Eir, við góða aðhlynningu starfsfólksins þar. Fær það mínar bestu þakkir fyrir. Nú er þinni lífsgöngu lokið og taka við nýir tímar hjá þér með afa. Ég þakka þér fyrir öll árin sem við áttum saman. Megir þú hvíla í friði, amma mín. Guðrún. Móðir okkar, EBBA PALUDAN-MÜLLER, Hrólfsskála, Seltjarnarnesi, lést laugardaginn 3. janúar síðastliðinn. Útför hefur farið fram í kyrrþey. Þökkum af alhug auðsýnda samúð og vinarþel. Ólafur Pétursson, Sigurður Pétursson. Eiginmaður minn, GUÐMUNDUR ÁMUNDASON bóndi að Ásum, Gnúpverjahreppi, er látinn. Stefanía Ágústsdóttir. Ástkær eiginkona, móðir okkar, fósturdóttir og amma, ERNA GUÐRÚN SIGURJÓNSDÓTTIR, sem lést miðvikudaginn 21. janúar, verður jarðsungin frá Langholtskirkju föstudaginn 30. janúar kl. 15.00. Gunnar Finnsson, Ragnheiður Á. Gunnarsdóttir, Hildur B. Gunnarsdóttir, Gunnar L. Gunnarsson, Magný Kristinsdóttir, Sæberg Þórðarson og barnabörn. Elskulegur farðir okkar, tengdafaðir, afi, lang- afi og langalangafi, TYRFINGUR ÁRMANN ÞORSTEINSSON, Hrafnistu, Reykjavík, andaðist á dvalarheimilinu Hrafnistu fimmtu- daginn 15. janúar. Jarðarför hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins látna. Aðstandendur þakka öllum, er auðsýndu þeim samúð og vinarhug við andlát hans og útför. Sérstakar þakkir sendum við starfsfólkinu á G-gangi 3. hæð á Hrafnistu. Arnoddur Tyrfingsson, Kristín Magnúsdóttir, Jóhanna Tryfingsdóttir, Jón Jóhannsson, Elísabet Árný Tyrfingsdóttir, Georg Valentinsson, Garðar Tyrfingsson, Erla Jónsdóttir, Þorsteinn Guðni Tyrfingsson, Ingibjörg Jakobsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, ÓLAFUR HELGI GESTSSON, Smyrilshólum 2 í Reykjavík, sem andaðist þriðjudaginn 20. janúar, verður jarðsunginn frá Grafarvogskirkju fimmtu- daginn 29. janúar kl. 13.30. Börn, tengdabörn og barnabörn. Móðir okkar, ÞURÍÐUR GUÐRÚN ÓLAFSDÓTTIR, Hæðargarði 33, lést á Landspítala Landakoti sunnudaginn 25. janúar. Jarðarförin verður auglýst síðar. Haraldur Heimir, Anna Kristín, Ólafía Bjarney.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.