Morgunblaðið - 27.01.2004, Side 42

Morgunblaðið - 27.01.2004, Side 42
DAGBÓK 42 ÞRIÐJUDAGUR 27. JANÚAR 2004 MORGUNBLAÐIÐ Fréttir Mæðrastyrksnefnd Kópavogs, Fannborg 5. Fataúthlutun þriðju- daga kl. 16–18. Mannamót Aflagrandi 40. Kl. 9 vinnustofa, kl. 9 jóga, kl. 13 postulínsmálun. Árskógar 4. Kl. 9–12 handavinna, kl. 9–12.30 bókband, kl. 9 leikfimi, kl. 9.30 dans, kl. 9.45 boccia, kl. 13–16.30 smíðar, kl. 20.30 línu- dans. Bólstaðarhlíð 43. Kl. 9– 9.45 leikfimi, kl. 9–16 handavinna, kl. 10– 11.30 sund, kl. 14–15 dans. Félagsstarfið, Dalbraut 18–20. Kl. 10 samveru- stund, kl. 14 félagsvist. Félagsstarfið Dalbraut 27. Kl. 8–16 handav.- stofan opin og vefnaður, kl. 13.30 myndband. Félagsstarfið, Hæðar- garði 31. Kl. 9–16 vinnustofa, tréskurður, postulín, kl. 10–11 leik- fimi, kl. 12.40 verslun- arferð, kl. 13.15–13.45 bókabíll. Félagsstarfið, Löngu- hlíð 3. Kl. 11 leikfimi, kl. 13 föndur og handa- vinna. Kl. 15 söng- og harmónikkustund í borðsal. Félagsstarf eldri borg- ara Mosfellsbæ, Dval- arheimilinu, Hlaðhömr- um. Kl. 13–16 föndur, spil og bókband kl. 16– 17 leikfimi og jóga. Kl. 16 spænska. Félagsstarf aldraðra Garðabæ. Stólaleikfimi kl. 9.30, kvennaleikfimi kl. 10.20 og kl. 11.15, spænska framh. kl. 11.30, glerbræðsla og pílukast kl. 13. Öldrun- arfulltrúi með viðtöl í Garðabergi, tímapant- anir í s. 525 8590 og 820 8553. Félag eldri borgara, Hafnarfirði, Hraunseli. Opnað kl. 9. Prjóna- stund, leikfimi í Bjark- arhúsi kl. 11.30 Brids og og biljard 13, saumur kl. 13.30. Félag eldri borgara í Kópavogi verður með „Opið hús“ fyrir félags- menn og gesti þeirra kl. 14 í Félagsmiðstöðinni Gjábakka lau. 31. jan. Félag eldri borgara, Reykjavík, Ásgarði. Leikfélagið Snúður og Snælda æfing kl. 13. Skák kl. 13. Alkort kl. 13.30. Mið.: Göngu- Hrólfar ganga frá Ás- garði kl. 10. Söngvaka kl. 20.30 Gerðuberg, félagsstarf. Kl. 9–16.30 vinnustofur opnar, kl. 10 létt ganga og fl. kl. 13. boccia. Gjábakki, Fannborg 8. Kl. 9–17 handavinna, kl. 9.30 gler og postulíns- málun, kl. 9.05 og kl. 9.55 leikfimi, kl. 10.50 róleg leikfimi, kl. 14 ganga, kl. 14.45 boccia, kl. 19 brids. Gullsmári, Gullsmára 13. Kl. 9.05 og 9.55 leik- fimi, kl. 9. 15 postulíns- málun, kl. 10 ganga, kl. 13–16. Handavinnu- stofan opin, , kl. 13 bridskennsla. Fundur hjá hláturkúbbnum í kvöld kl. 20. Hraunbær 105. Kl. 9 postlín og glerskurður, kl. 10 boccia, kl. 11 leik- fimi, kl. 12.15 versl.ferð, kl. 13 myndlist og línu- dans . kl. 15 línudans. Hvassaleiti 56–58. Kl. 9–10 boccia, kl. 9–16.30 handavinna, kl. 13.30 helgistund. Korpúlfar Grafarvogi. Á morgun Fundur í Miðgarði kl.10. Norðurbrún 1. Kl. 9- 16.45 opin vinnustofa, kl. 10–11 boccia, kl. 14 leikfimi. Vesturgata 7.Kl. 9.15– 12 skinnasaumur, kl. 9.15–15.30 handavinna, kl. 9.15–16 postulín, kl. 10.15–11.45 enska, 13– 16 spilað og bútasaum- ur. Mið. 28. jan. kl. 13.15 kemur Anna Þrúður Þorkelsdóttir, sendifulltrúi Rauða krossins, í heimsókn. Vitatorg. Kl. 8.45 smíði, kl. 9.30 glerskurður og morgunstund, kl. 10 leikfimi, kl. 13 hand- mennt, og postulín, kl. 14 félagsvist. Þjónustumiðstöðin Sléttuvegi 11. Kl. 10–12 verslunin opin, kl. 13– 16 keramik, taumálun, almennt föndur, kl. 15 bókabíllinn. Félag áhugafólks um íþróttir aldraðra. Leik- fimi í Bláa salnum kl.11 Félag eldri borgara í Gjábakka. Brids kl. 19. Félag ábyrgra feðra. Fundur í Shell-húsinu, Skerjafirði kl. 20, Sjálfsbjörg, Hátúni 12. kl. 20 bingó. Íslenska bútasaums- félagið. Félagsfundur í kvöld kl. 20 í Safnaðar- heimili Háteigskirkju. Breyting á dagskrá: M.a.: Heidi sýnir skyggnur frá Frakk- landi Þjóðdansafélag Reykjavíkur.Opið hús í kvöld kl. 20.30, að Álfa- bakka 14A. Í dag er þriðjudagur 27. janúar, 27. dagur ársins 2004. Orð dags- ins: Drottinn er ljós mitt og full- tingi, hvern ætti ég að óttast? Drottinn er vígi lífs míns, hvern ætti ég að hræðast? (Sl.. 27, 1.)     Atli Rafn Björnsson, for-maður Heimdallar, boðar nýjar lausnir í heil- brigðismálum í grein á vefritinu Tíkinni. „Fjár- hagsvandi heilbrigðis- kerfisins og þá sérstak- lega Landspítalans hafa verið mikið til umræðu síðustu vikur og daga,“ segir Atli Rafn. „Vandinn er þó alls ekki nýr af nál- inni heldur orðið að um- fjöllunarefni í kjölfar til- mæla heilbrigðisráðherra og fjárlaganefndar til sjúkrahússins að því beri að standa við fjárlög en viðvarandi framúrkeyrsla hefur einkennt rekstur sjúkrahússins um langt skeið.     Yfirmenn Landspítalanshafa brugðist við með því að boða uppsagnir til- tekis fjölda starfsmanna og bent á að laun vegi um 70% af heildarkostnaði við heilbrigðisþjónustu. Margir efast hins vegar um að uppsagnirnar muni skila sjúkrahúsinu ætluð- um árangri þar sem þær bitni aðallega á læknum og hjúkrunarfólki en ekki á þeim fjölmörgu yfir- og millistjórnendum sem starfa við sjúkrahúsið. Markmiðið virðist vera að bjarga sjúkrahúsinu tíma- bundið fyrir horn þegar langtímamarkmið ættu frekar að vera höfð í huga.     Heimdallur og fleiriungir sjálfstæðis- menn hafa nú í nokkurn tíma hvatt stjórnvöld til að endurskoða heilbrigð- iskerfið með breytingu á rekstrarfyrirkomulaginu í huga. Tillögur Heimdall- ar fela í sér aukið sam- starf ríkisins við einka- aðila um rekstur heil- brigðisþjónustu þannig að virkja megi kosti einka- framtaksins innan geir- ans. Á þann hátt telja Heimdellingar að ríkið geti aukið samkeppni inn- an geirans, bætt nýtingu fjármuna sem renna til málaflokksins og um leið aukið valfrelsi þeirra sem nota þjónustuna.     Hins vegar er ekki veriðað leggja til breyt- ingar á almannatrygg- ingakerfinu og því er rangt að halda því fram að einkaframkvæmd muni leiða af sér ,,tvöfalt kerfi“, eitt fyrir þá efna- meiri og annað fyrir þá efnaminni.     Sú staðreynd að stærstiflokkur vinstrimanna á Alþingi hefur tekið und- ir sjónarmið Heimdellinga er ánægjuleg. Það eykur líkurnar á að meirihluti Alþingis verði hlynntur auknu samstarfi ríkis- og einkaaðila um rekstur heilbrigðisþjónustu. Ærið verkefni virðist hins veg- ar vera að sannfæra for- ystumenn Framsóknar- flokksins um ágæti þessara hugmynda því sá flokkur virðist enn vera fylgjandi þeirri stefnu að farsælast sé að setja fleiri plástra á kerfi sem er að springa,“ segir Atli Rafn Björnsson á Tíkinni. STAKSTEINAR Fleiri plástra á heilbrigðiskerfið? Víkverji skrifar... Víkverji framdi lögbrot á sunnu-daginn. Að hans viti var það engu að síður gert með góðri samvisku. Lögbrotið lýtur að áfengiskaupum, þ.e.a.s. einokun ríkisins á smásölu áfengis í verslunum. Víkverji keypti nefnilega tvær bjórflöskur á veit- ingastað, „undir borðið“, og fór með þær heim til sín. Þó að Víkverji dags- ins hallist meira til vinstri á flestum sviðum pólitíkurinnar varð þessi sena á veitingastaðnum til að opna augu hans fyrir því að hvað sölu á áfengi varðar er Ísland gersamlega á stein- öld. Nauðsynlegt frelsi á þessu sviði er pínlega augljóst. Að fullorðinn maður geti ekki lallað sér út í næstu verslun á sunnudegi og keypt tvo bjóra er út í hött. x x x Senan á veitingastaðnum varkostuleg. Víkverji fann sig allt í einu í hlutverki vafasams kóna á fjórða áratugnum, semjandi við við- sjálan sprúttsala. Gjörðin atarna var eins og í bíómynd þar sem Víkverji skiptist á lymskulegum augngotum við afgreiðslustúlkuna sem ákvað að sjá í gegnum fingur sér í þetta sinnið. Loforð voru gefin um að stinga flösk- unum beint í matarpokann sem var á gólfinu. Síðan var rölt út, með barna- legan fiðring í maganum sem sagði Víkverja að hann hefði komist upp með eitthvað. x x x Þrátt fyrir að Víkverja finnist þessiuppákoma fyrst og fremst hlægi- leg á hún að vera fullkominn óþarfi. Ef mannskepnuna langar í eitthvað tiltekið verður hún sér úti um það. Eins og „rússnesku“ raðirnar í ÁTVR á föstudögum og laugar- dögum gefa til kynna, ásamt hinum lúmsku áfengisauglýsingum þar sem allir þykjast vera að auglýsa léttöl á meðan tilgangurinn er einn; að aug- lýsa áfengan bjór. Hér verður að gera gangskör að því að breyta lög- unum, þar sem þau eru hreinlega ekki í takti við það sem eðlilegt getur talist. x x x Fyrst Víkverji er byrjaður á játn-ingunum getur hann svo sem líka viðurkennt að hann hefur farið inn í landið með innkaupapoka með ostum og skinku – vöru sem reyndar fæst í búðum á Íslandi, en var engu að síður ekki með uppáskrifað heilbrigðis- vottorð yfirdýralæknis. Af þessu lög- broti hefur Víkverji heldur ekkert samviskubit. Hann telur sig ekki hafa skaðað neinn með þessum ólög- lega innflutningi sínum, nema ef vera kynni hagsmuni einokunarapparata landbúnaðarins. Honum finnst það a.m.k. langsótt að búfénaður gæti farið að lasnast vegna þess að Vík- verji fái sér danskan ost og ítalska skinku heima hjá sér. Morgunblaðið/Árni Sæberg Hvort ætli sé betra, kippa undir borðið eða að bjórsalan sé uppi á borðinu? Svínasúpan og Fréttablaðið SVÍNASÚPAN átti svona að vera andsvar Stöðvar 2 við Spaugstofunni (reynd- ar held ég að Sigurjón Kjartansson eigi nú mik- inn hlut að máli varðandi það, en hann hefur mikið hallmælt Spaugstofunni í þætti sínum Zombie og áður Tvíhöfða, og sagt að þetta sé tími til að gera eitthvað). Ég er búinn að horfa á alla þættina sem hafa verið sýndir, og ég verð að segja að þetta er bara ekkert fyndið. Þurr húmor en samt fínt efni til að sofna yfir. Ég hef lengi velt því fyrir mér hvernig Frétta- blaðið reiknar út að blaðið sé lesið svona og svona mikið á hverjum degi, vegna þess að ég hef margoft rekist á bunka að blaðinu víðsvegar um borgina og t.d var gríð- arstór bunki inni í strætó- skýli á Hverfisgötu fyrir helgina og allt orðið blautt og morkið. Í blokkinni þar sem ég bý sýnist mér flestir bara henda þessu í ruslið eins og hverju öðru ruslefni. En það getur vel verið að það finnist fólk á rusla- haugunum sem les Frétta- blaðið og þaðan koma þessar háu lesendatölur. Gísli. Frábært krem (froða) MIG langar að mæla með froðu sem ég byrjaði að nota á rauðan barnabossa. Hún hreinlega þekur bossann eins og filma. Svo var ég í vandræðum með fellingarnar á litla boltan- um mínum, ég þurfti alltaf að vera að þurrka, sér- staklega í hálsakotinu, ég prófaði að setja froðuna í fellinguna og eftir það passa ég alltaf upp á að nota hana reglulega (eng- in sár eða vond lykt). Froðan heitir NAPPY RASH og fæst í apótek- um. Ánægð móðir. Vantar Mannlíf ’84 ÉG er að binda inn Tíma- ritið Mannlíf og vantar mig eitt blað sem er 1. hefti 1. árgangs 1984. Þeir sem gætu liðsinnt mér hafi samband við Eggert í síma 588 9969. Ástandið á spítölunum EINFÖLD spurning sem aldrei hefur verið nefnd: Hvað kostar „skifstofu- bákn“ spítalans eftir sam- einingu? Og hvað er skrif- stofuhópurinn stór? Skrýtið að þetta hafi ekki verið nefnt í öllum þessum peningavandræð- um. Guðrún. Tapað/fundið Lyklar í óskilum LYKLAR fundust í Ell- iðaárdal. Upplýsingar í síma 892 8747. Dýrahald Brúskur er týndur BRÚSKUR er fress, grár og hvítur skógarköttur, ógeltur. Hann týndist sl. fimmtudag frá Löngu- brekku 7 í Kópavogi. Þeir sem hafa orðið hans varir eru beðnir að hafa sam- band í síma 564-2274. VELVAKANDI Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15  Netfang velvakandi@mbl.is LÁRÉTT 1 lífs, 4 hárs, 7 krækti saman, 8 lúkur, 9 megna, 11 úrkoma, 13 slægju- land, 14 verur, 15 pat, 17 drasl, 20 öskur, 22 málm- ur, 23 hagnaður, 24 byggja, 25 lifði. LÓÐRÉTT 1 flögg, 2 sterk, 3 þraut- góð, 4 ávöl hæð, 5 tilfinn- ingalaus, 6 dimma, 10 bál, 12 lærði, 13 bók- stafur, 15 hestur, 16 Sami, 18 dysjar, 19 trjá- viður, 20 nabbi, 21 borg- aði. LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU Lárétt: 1 holdmikil, 8 umboð, 9 illan, 10 inn, 11 lóðin, 13 narra, 15 skens, 18 hafís, 21 kýr, 22 metri, 23 önduð, 24 sannindin. Lóðrétt:2 ofboð, 3 dáðin, 4 iðinn, 5 iglur, 6 kuml, 7 snúa, 12 iðn, 14 aka, 15 sómi, 16 eitra, 17 skinn, 18 hrönn, 19 fæddi, 20 sóði. Krossgáta  Hægt er að kaupa 10 krossgátur á 600 kr. á mbl.is. Slóðin er: http://www.mbl.is/mm/folk/krossgata/index.html 1 7 11 15 22 24 12 14 3 9 20 10 4 8 21 23 25 13 17 5 18 6 19 2 16 MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍM- AR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar: 569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156, sérblöð 569 1222, aug- lýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.100 kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 190 kr. eintakið.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.