Morgunblaðið - 08.02.2004, Side 2
„MEÐ frumvarpi til laga um erfða-
fjárskatt er gert ráð fyrir nýjum 10%
skatti á arf til líknar- og menningar-
samtaka og með þessum skatti er
verið að herja á okkur,“ segir Ragn-
ar Gunnarsson, starfsmaður Kristni-
boðssambandsins.
Ragnar segir að fyrirhuguð skatt-
lagning sé sár, ekki síst vegna þess
að yfirleitt sé um að ræða samtök,
sem byggist á miklu sjálfboðaliða-
starfi, og fái þau arf sé hann gjarnan
frá hugsjónafólki sem hafi verið með
í starfinu. „Við lítum á skattlagn-
inguna sem ákveðna aðför að okkur,“
segir hann.
Að sögn Ragnars hófst þessi að-
för, eins og hann nefnir aðgerðirnar,
að félögunum með breytingum á
skattakerfinu 1987. Fram að því hafi
gefendur til líknar- og menningar-
málafélaga fengið upphæðina upp að
ákveðnu marki frádregna frá skatti,
rétt eins og á hinum Norðurlöndun-
um, en þessi frádráttur hafi verið af-
lagður. Fjármagnstekjuskatturinn
hafi líka bitnað á þessum félögum en
svo virðist sem verið sé að gera ýms-
um félögum eins erfitt fyrir og hægt
er með aukinni skattlagningu. „Ef
einhver vill gefa 50 milljónir til svona
góðs starfs þá klípur ríkið strax af 5
milljónir,“ segir Ragnar og leggur
áherslu á mikilvægi þess að gjafir til
líknar- og menningarmálafélaga séu
skattfrjálsar.
Kemur illa við
Krabbameinsfélagið
Valgerður Jóhannesdóttir, fjár-
málastjóri Krabbameinsfélagsins,
tekur í sama streng. „Við erum mjög
undrandi á þessari stefnubreytingu
stjórnvalda gagnvart mannúðar- og
líknarfélögum sem, ef af verður, mun
koma hart niður á málefnum þeirra,“
segir hún.
„Erfðagjafir til Krabbameins-
félagsins frá einstaklingum eru fé-
laginu mjög mikils virði og nýtast til
fjölþættrar starfsemi félagsins,“
segir Valgerður. „Málefnin sem fé-
lagið vinnur að eru gefendunum mik-
ilvæg og þess vegna munar um að
upphæðin renni óskert til félagsins,“
bætir hún við og spyr hvort það sé
vilji almennings að stjórnvöld fari að
skattleggja framlög einstaklinga til
mannúðar- og líknarfélaga.
Frumvarp til laga um erfðafjárskatt
Herjað á líkn-
ar- og menn-
ingarsamtök
FRÉTTIR
2 SUNNUDAGUR 8. FEBRÚAR 2004 MORGUNBLAÐIÐ
ÓFÆRT VÍÐA UM LAND
Í gærmorgun var ófært allt frá
Norðurárdal í Borgarfirði, norður
um og austur á land og suður með
landinu. Hjá Vegagerðinni minnast
menn ekki jafn mikillar ófærðar
svo víða á landinu á sama tíma í
mörg ár. Margir voru fastir í bílum
uppi á heiðum og fjölmargir björg-
unarsveitarmenn unnu aðfaranótt
laugardags og fram eftir degi við
að bjarga fólki úr bílum. Fjöldi
manns varð veðurtepptur á þorra-
blóti á Héraði og veður varð til
þess að starfsmenn við Kárahnjúka
sátu fastir í vinnuvélum.
Gasknúnir bí lar
Hægt væri að fullnægja elds-
neytisþörf 3–4 þúsund bíla á höf-
uðborgarsvæðinu miðað við núver-
andi umsvif Metans hf. Tæknilega
er mögulegt að framleiða mun
meira gas úr lífrænum úrgangi hér
á landi. Með framtíðarþróun ætti
að vera hægt að knýja stóran hluta
bíla á höfuðborgarsvæðinu með
innlendu metani.
Kerry á s igurbraut
Kannanir bentu til, að öld-
ungadeildarþingmaðurinn John
Kerry mundi bera öruggan sigur
úr býtum í forkosningum demó-
krata í þremur ríkjum um helgina,
í Michigan og Washingtonríki í
gær og í Maine í dag. Í Michigan
var honum spáð 52% atkvæða en
engum keppinauta hans meira en
8%. Eins og staðan er nú, virðist
fátt geta stöðvað sigurgöngu
Kerrys. George W. Bush, forseti
Bandaríkjanna, hefur hins vegar
átt undir að högg að sækja vegna
vaxandi efasemda um röksemd-
irnar fyrir Íraksstríðinu.
Vil l menntað f lóttafólk
Bertel Haarder, flóttamannaráð-
herra Danmerkur, telur, að Danir
eigi aðallega að taka við flóttafólki,
sem hefur einhverja menntun og
getur aðlagast dönsku samfélagi.
Y f i r l i t
Í dag
Sigmund 8 Dagbók 60/61
Listir 34/38 Staksteinar 60
Af listum 34 Krossgáta 62
Forystugrein 36 Kirkjustarf 62
Reykjavíkurbréf 36 Þjónusta 62
Hugvekja 39 Auðlesið efni 63
Minningar 40/46 Leikhús 64
Skoðun 40/54 Fólk 64/69
Brids 57 Bíó 66/69
Myndasögur 58 Sjónvarp 70/71
Bréf 58/59 Veður 71
* * *
Kynningar – Morgunblaðinu í dag
fylgir auglýsingablaðið "Sumarsól
2004" frá Úrvali Útsýn.
Morgunblaðið Kringlunni 1, 103 Reykjavík. Sími 5691100 Innlendar fréttir frett@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Erlendar fréttir Ásgeir Sverrisson, fréttastjóri,
asv@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Guðrún Hálfdánardóttir, fréttastjóri guna@mbl.is Úr verinu Hjörtur Gíslason, fréttastjóri, hjgi@mbl.is Daglegt líf Guðbjörg Guðmundsdóttir, gudbjorg@mbl.is Listir menning@mbl.is Orri Páll Ormarsson, ritstjórnarfulltrúi,
orri@mbl.is Umræðan|Bréf til blaðsins Magnús Finnsson, fulltrúi ritstjóra, magnus@mbl.is Hallur Þorsteinsson, hallur@mbl.is Minningar minning@mbl.is Hilmar P. Þormóðsson, Stefán Ólafsson Dagbók|Kirkjustarf Ellý H. Gunnarsdóttir, elly@mbl.is Íþróttir
sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Fólk í fréttum Skarphéðinn Guðmundsson, skarpi@mbl.is Útvarp|Sjónvarp Andrea Guðmundsdóttir, andrea@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is
ÞAÐ VAR mikið neistaflug á Granda fyrir helgina þar sem verkamaður
var að logsjóða saman rör. Þótt vindar blésu af krafti utandyra var hlýlegt
um að litast innandyra í blárri birtunni frá logsuðunni.
Morgunblaðið/Heiðar Þór
Gneistar á Granda
SÚLAN EA landaði 400 tonnum af loðnu í Nes-
kaupstað á föstudag sem Bjarni Bjarnason
skipstjóri segist hafa fengið á skömmum tíma.
Skipverjar hafi hins vegar orðið fyrir því óláni
að fá hval í nótina, hún stórskemmst og þeir
þurft að koma í land til að gera við hana. Bjarni
segir umhugsunarvert hversu algengt sé að
hvalir komi í veiðarfærin nú orðið.
„Hvalirnir elta okkur á röndum á miðunum
og álpast síðan í næturnar. Þetta gerist æ oftar,
enda hefur hvölum fjölgað gríðarlega við landið.
Fyrir 15 árum þótti það viðburður ef kæmi
hvalur í nót. Nú er ekki vinnufriður fyrir þess-
um skepnum og málið satt best að segja að
verða dálítið alvarlegt. Þetta er í annað sinn á
skömmum tíma sem hvalur skemmir fyrir okk-
ur veiðarfærið og hefur af okkur dýrmætan
tíma á miðunum. Við lentum í þessu á síldinni í
haust, sem er óvanalegt, og þá ekki aðeins einn
heldur tvo. Það var mokveiði hjá öllum loðnu-
flotanum í nótt en við urðum frá að hverfa
vegna þessa.
Þegar hvalirnir lenda í nótinni æða þeir í
gegnum hana og rífa hana stundum mjög illa,
sérstaklega ef mikið er af loðnu í henni. Núna
var skaðvaldurinn hnúfubakur, hvalur sem ekki
hefur mátt drepa í heilan mannsaldur. Þessi
skaði gleymist stundum í umræðunni. Lítil út-
gerð eins og okkar hefur orðið af milljónum eða
milljónatugum vegna þess afla- og veið-
arfæratjóns og áhöfnin unnið hundruð klukku-
stunda við að sauma saman nótina eftir þessi
kvikindi.
Mér finnst það furðuleg afstaða hjá mönnum,
sem vilja aðeins leyfa útlendingum að horfa á
hvalina hér við land, en hugsa ekkert um hvað
hvalirnir éta af fiski á hverju ári eða skemma af
veiðarfærum. Þessir menn ættu að koma og
krafla með krákunum í nótina með strákunum
hér í frostinu,“ sagði Bjarni.
Skipverjar á Súlunni EA fengu hnúfubak í nótina á loðnumiðunum
Morgunblaðið/Ómar
Hnúfubakar geta valdið skaða á veiðarfærum
eins og skipverjar Súlunnar hafa reynt.
„Hvalirnir elta okkur á röndum“
AF ÖRYGGISÁSTÆÐUM hafa
söluaðilar ákveðið í samráði við
markaðsgæsludeild Löggildingar-
stofu að hætta tímabundið sölu
tveggja tegunda barnavagna, Simo
Kombi Supreme og Jysk Amalie.
Unnt er að breyta hæðarstillingu á
vögnunum með handfangi og í
ákveðinni stöðu er bilið á milli hand-
fangsins og grindarinnar þannig að
hengingarhætta getur stafað af fyrir
barnið, ef höfuð þess festist milli
handfangs og grindar. Á það við um
báðar tegundir barnavagnanna.
Varasamir barna-
vagnar teknir úr sölu
LÖG um fjármálafyrirtæki sem
snerta stofnfjárhluti í spari-
sjóðum, stjórn sjálfseignar-
stofnunar og fleira voru gefin
út í Stjórnartíðindum á föstu-
dag, en þar með öðluðust þau
formlegt lagagildi. Þar með er
tryggt að fundur stofnfjáreig-
enda SPRON, sem boðaður
hefur verið nk. þriðjudag, verð-
ur að taka tillit til þeirra.
Viðskiptaráðuneytið óskaði
sérstaklega eftir því að Stjórn-
artíðindi yrðu prentuð á föstu-
dag.
Búið að
prenta
Stjórnar-
tíðindi