Morgunblaðið - 08.02.2004, Side 10

Morgunblaðið - 08.02.2004, Side 10
10 SUNNUDAGUR 8. FEBRÚAR 2004 MORGUNBLAÐIÐ KRISTJÁN Þór Júlíusson,bæjarstjóri á Akureyri,segir að þeir tæplega 300þúsund íbúar sembyggja Ísland verði að starfa saman sem ein heild til að geta viðhaldið frekari vexti. Þjóðin hafi ekki efni á því að gjá myndist á milli höfuðborgar og landsbyggðar – en margt bendi reyndar til að sú gjá sé nú þegar staðreynd. „Innbyrðis ríg- ur virðist því miður vera vaxandi,“ segir hann og bætir við: „Ég held að ástæða þess sé fyrst og fremst mis- munandi afstaða fólks til þess hvern- ig á að nýta landið eða hvort það skuli nýtt yfirhöfuð. Það endurspegl- ast ágætlega í umræðunni um verk- efnið fyrir austan, virkjunina og ál- verið; meðal þeirra sem vilja ekki róta við steinvölu uppi á hálendinu eru sumir þekktir hér á landi fyrir andstöðu gegn hvalveiðum og nýt- ingu þeirra afurða, þannig að afstaða þeirra til þess hvernig á að lifa af í landinu er allt önnur en meginhluta landsmanna.“ Áttu við að það fólk geri sér ekki grein fyrir því á hverju þjóðin lifir í raun og veru? „Ég held að þarna hafi slitnað töluvert á milli. Það vakti t.d. athygli mína þegar niðursveiflan var að hefj- ast á hlutabréfamarkaðinum fyrir um það bil þremur árum, að sérfræð- ingur á einni greiningardeild verð- bréfafyrirtækis sagði allt útlit fyrir það að undirstaða íslensks efnahags væri enn sem komið er sjávarútveg- urinn! Þegar á reyndi runnu þessi sannindi upp fyrir mönnum en veru- leikinn sem búinn hafði verið til áður var allt annar; þá átti vöxtur í upp- lýsingatækni, líftækni og hugbúnað- argerð að standa undir lífsgæðum hér á landi. Þá fór í umræðunni lítið fyrir grunninum; framleiðsluat- vinnuvegunum og verðmætasköpun- inni þar. Ég er ekki að gera lítið úr hugvit- inu og því sem það getur áorkað en einhvers staðar þurfa að verða til efnisleg verðmæti sem hægt er að mæla í krónum og aurum, svo unnt sé að fæða og klæða þjóðina. Sama rótleysi endurspeglast í um- ræðunni um upptöku á auðlinda- gjaldi eða veiðileyfagjaldi, eða hvað svo sem á að kalla það, í sjávarútvegi; það er ekkert skrýtið þótt hún komi upp hjá þeim sem eru ekki í jafn- nánum tengslum við grunnatvinnu- veginn og fólk almennt um landið. Þetta gjald hefur verið kallað lands- byggðarskattur, sem getur vel verið rétt, en ég kýs að kalla það frekar sérstakan skatt á grunnatvinnuveg þjóðarinnar sem þá er orðinn skatt- lagður með öðrum hætti en aðrar at- vinnugreinar. Ég óttast að umræðan sé rekin áfram án þess að menn horfi til þess hversu mikla þýðingu sjávar- útvegurinn hefur fyrir afkomu flestra fjölskyldna í þessu landi. Ég tel að vísu að sum sjávarútvegsfyr- irtæki landsins séu komin að ákveðnum takmörkunum í vexti, vegna stjórnvaldsákvarðana. Í því sambandi má nefna kvótaþakið, sem ég tel úrelt og að hamli vexti fyr- irtækja. Í okkar tilfelli er ótvírætt að þessar takmarkanir setja vexti Ak- ureyrar ákveðnar skorður ásamt því að ég tel einnig þessar reglur hamla frekari verðmætasköpun í atvinnu- greininni til skaða fyrir allt þjóðfé- lagið. Þetta er atvinnugrein sem við kunnum sennilega hvað best að vinna við, þetta er atvinnugrein sem hefur lagt undir sig mikla starfsemi víða um lönd hér við Norður-Atlants- haf, sem sannar það enn og aftur að kunnátta Íslendinga á þessu sviði er almennt mjög mikil. Það hefði eng- inn trúað því fyrir tiltölulega fáum árum að við ættum eftir að ráða yfir veiðiheimildum stórþjóða á borð við Þjóðverja eða Breta en í dag nýta Ís- lendingar þann kvóta að stórum hluta.“ Sameining nauðsynleg Sameining sveitarfélaga er mjög á döfinni um þessar mundir og Krist- ján Þór segir nauðsynlegt að af henni verði. „Vinnan er rétt að fara í gang, hún gengur hægt en ég held að flestir séu sammála um að sveitarfélögin þurfi með einhverjum hætti að mæta sí- vaxandi kröfum. Þau ráða ekki við verkefni sem þeim er ætlað að sinna; þrátt fyrir allt tal manna um það vit- um við að úti um allt land eru íbúar sem fá ekki þá þjónustu sem þeim ber samkvæmt lögum.“ Kristján er hlynntur því að sveit- arfélög við Eyjafjörð sameinist. „Við sjáum glöggt dæmi um það hér í Eyjafirði að sveitarfélögin ráða ekki við verkefni sín; vegna hreppamarka og togstreitu milli sveitarfélaga ráða sveitarstjórnarmenn á Eyjafjarðar- svæðinu ekki einu sinni við það verk- efni að finna sameiginlega framtíð- arlausn fyrir svæðið varðandi sorpförgun. Það er fyrst og fremst vegna sveitarfélagamarka; allir horfa á þau og vilja ekki hafa sorp- förgun á sínu svæði, en hún má vera í bakgarði náungans. Slík hugsun er löngu úr sér gengin.“ Kristján heldur áfram: „Menn hér á Eyjafjarðarsvæðinu búast frekar við að af sameiningu sveitarfélaga verði og nú, í aðdrag- anda þess að hafið er samstarf á landsvísu um mikla sameiningu sveitarfélaga, sér maður þess strax merki að sveitarstjórnarmenn eru því miður farnir að búa sig undir þessa sameiningu með því að eyða fjármunum einhvers staðar úti í óræðri framtíð. Það eru áform um fjárfestingar hér út og suður um all- an fjörð sem eru mjög umdeilanlegar og væru ekki á dagskrá ef menn væru að hugsa þetta svæði sem eina heild.“ Gerir það sameiningu erfiðara en ella eða kemur jafnvel í veg fyrir hana? „Að einhverju leyti mun þetta klárlega gera sameiningu erfiðari en ella.“ Hver er draumaniðurstaðan í þín- um huga; er það að allur Eyjafjörð- urinn verði eitt sveitarfélag? „Draumastaða mín er sú að við stokkum upp það kerfi sem sveitar- stjórnarstigið er. Ég álít að ef sveit- arfélögum verður fækkað úr 104 í 40 eða 50, eins og rætt hefur verið um, sé það mikil þjóðfélagsbreyting og þá eigum við að standa svo að mál- um, að minni hyggju, að það muni um það. Að við förum að vinna með sveit- arfélögin með allt öðrum hætti en gert hefur verið hingað til. Að þetta stjórnsýslustig fái aukin verkefni og vinni af meiri ábyrgð en það hefur gert fram til þessa. Verkefni sveitar- félaganna eru næst íbúunum, nær- þjónusta sem kölluð er, og það verð- ur að segjast alveg eins og er að eft- irgjöf sveitarfélaganna í þjónustu við íbúana er oft á tíðum meiri en á rík- isvísu og ég fullyrði að víða um land eru sveitarfélög að sýsla með verk- efni sem þau eru ekki skuldbundin til að hafa með höndum að lögum. Og það er auðvitað liður í því hvernig fjárhag þeirra er háttað. Það breytir þó ekki þeirri skoðun minni að oftar en ekki erum við að innleiða alls kon- ar tilskipanir erlendis frá yfir ís- lenskt samfélag sem lendir oftast á sveitarfélögunum að framkvæma, án þess að þau fái jafnframt markaða tekjustofna til að standa undir þess- um verkefnum. Allt þetta álít ég að við eigum að stokka upp í tengslum við þessa breytingu sem verið er að ræða á sveitarstjórnarstiginu.“ Er það jafnvel lífsspursmál fyrir þjóðfélagið, að þínu mati? „Ég held það gerði okkur færari um að spila úr því sem við höfum og myndi líka auka skilning á milli landshluta. Það er þörf á annarri hugsun í þeim efnum en verið hefur. Nú er oft á tíðum ofarlega í um- ræðunni að það búi tvær þjóðir í þessu landi, annars vegar sé lands- byggðin og hins vegar höfuðborgar- svæðið en það er engin þörf á því. Við höfum ekki efni á því að haga okkur þannig í 300 þúsund manna þjóð- félagi á kletti úti í miðju Norður-Atl- antshafi. Þetta er það smátt sam- félag að við getum ekki leyft okkur það.“ Hvað þarf að gera til að þetta breytist? „Ég held það þurfi að auka skiln- ing manna á aðstæðum hvers um sig og ef ég horfi á þetta út frá sveit- arstjórnarsjónarhorninu er það kerfi sem við búum við núna – þegar sveit- arfélög eru með allt frá 50 íbúum upp í 110 þúsund manns – ekki til þess fallið að fólk hafi sama skilning á að- stæðum eða verkefnum sem verið er að glíma við hverju sinni.“ Áformað er að hefja viðræður um hugsanlega sameiningu milli Siglu- fjarðar, Ólafsfjarðar, Dalvíkur og Akureyrar síðar í þessum mánuði. „Málið var komið af stað og nú ætl- um við að reyna aftur. En ég veit ekkert hvað kemur út úr því,“ segir Kristján. Ólafsfirðingar hafa hingað til ekki verið tilbúnir í sameiningu allra sveitarfélaganna við fjörðinn. Hefur það eitthvað breyst? „Nei, ég hef að minnsta kosti ekki orðið varð við að meðal sveitarstjórn- armanna þar sé meirihluti fyrir þess- ari stóru Eyjafjarðarsameiningu.“ Telurðu að þeir „litlu“ hræðist þenn „stóra“ í þessum sambandi, að þeir hræðist Akureyri einhverra hluta vegna? „Það er voðalega erfitt að gera sér grein fyrir því hver ástæðan er. Það er auðvelt að halda því fram að í sam- einingu sé sá stóri að gleypa þann litla, og það er hugsun sem ég hef skilning á, en þegar skoðuð eru svæði þar sem sveitarfélög hafa sam- einast held ég að fulltrúar í sveitar- stjórnum sameinaðs sveitarfélags komi alls staðar frá af svæðinu og all- ir hafa sama tækifæri til þess. Það er Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson Kristján Þór Júlíusson: „Argasta bull að sjávarútvegur eigi að vera atvinnugrein sem bjargi sveitarfélögum utan Faxaflóa.“ Kristján Þór Júlíusson, bæjarstjóri á Akureyri, situr í stjórn Landsvirkjunar og er fyrrverandi stjórnar- formaður Samherja. Skapti Hallgrímsson ræddivið Kristján Þór um eitt og annað sem verið hefur á döfinni, m.a. um sjávar- útveg almennt, ÚA-málið svokallaða, sameiningu sveitarfélaga og um fjármálastofnanir sem hann gagnrýnir mjög. Arð á að nota til áfram

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.