Morgunblaðið - 08.02.2004, Síða 25

Morgunblaðið - 08.02.2004, Síða 25
yrði skipta einnig máli, t.d. hvort löndin eiga eigin gaslindir eða eru háð innflutningi. Fjölbreytnin er meiri og ástandið flóknara í Evrópu en Bandaríkjunum. Hvernig er með stöðlun búnaðar á þessu sviði? „Við höfum unnið að setningu staðla í Bandaríkjunum frá 1988. Ég var áður framkvæmdastjóri banda- rískra samtaka um gasknúna bíla. Það voru fyrstu samtök hagsmuna- aðila um notkun jarðgass á bíla. Fyr- ir níu árum var ég beðinn um að koma til Evrópu og koma evrópsku ENGVA-samtökunum af stað. Stöðlunarferlið er mjög flókið. Samtímis því að byggja upp stað- bundna staðla reynum við að ná fram alþjóðastöðlum með tilstilli Samein- uðu þjóðanna og ISO. Eitt af hlut- verkum okkar er að reyna að vinna að gerð nýrra staðla og samræma þessa staðla í alheimsstaðal. Þeir sem vinna að efnarafölum og vetnisnotkun líta til jarðgasbílaiðn- aðarins til að læra af því sem við höf- um gert. Við gerð staðla er þrennt mikilvægast: Öryggi, öryggi, öryggi. Öryggi og rekstraröryggi búnaðar- ins vekur traust hjá neytendum; að hlutirnir virki eins og til er ætlast og enginn bíði skaða af.“ Eru gasknúnu bílarnir að ryðja brautina fyrir aðrar tegundir af óhefðbundnu bílaeldsneyti? „Við erum að koma inn í aldar- langa sögu bílatækninnar og reynum að laga okkur að iðnaði sem býr á vissan hátt við stöðnun. Við erum ekki að blanda okkar eldsneyti við eldsneyti sem fyrir er, líkt og þegar metanóli er blandað við bensín. Við erum að bjóða valkost – annað en bensín og dísil. Fljótandi gas-iðnað- urinn (LPG) er á sama róli og þrýsti- gasiðnaðurinn (CNG). Eins vetnið, eldsneyti framtíðarinnar. Ég geri greinarmun á sérfræðiþekkingu og öðru varðandi þessa nýju stóru orku- gjafa í bílum og íblöndun gamla elds- neytisins. Við erum að kynna nýtt eldsneyti í stað þess gamla.“ Hver er helsta hindrunin sem sú hugmynd að knýja bíla með jarðgasi hefur mætt? „Stærsta hindrunin er að ná utan um staðnaða tækni ríkjandi elds- neytisgerða og notkun olíuiðnaðar- ins, bílaiðnaðarins og jarðgasiðnað- aðarins á þeim. Þessar rótgrónu atvinnugreinar standa gegn breyt- ingum. Ég nota gjarnan þá samlík- ingu að við séum maurinn og þeir fíll- inn. Við trítlum fyrir fætur fílsins og reynum að fá hann til að breyta um stefnu. Kyrrstaðan er fíllinn.“ Telur þú að markmið fram- kvæmdastjórnar ESB um að óhefð- bundið eldsneyti verði orðið 20% eldsneytisnotkunar árið 2020 sé raunhæft? „Ég held að það sé raunhæft, ef allir sem hlut eiga að máli taka sér tak og vinna að því heilshugar. Já, ég held að það sé framkvæmanlegt. Held ég að það náist? Það er spurn- ing sem er erfiðara að svara. Ég tel að lykillinn felist í evrópskri löggjöf, tilskipun um aðra kosti í eldsneyti en þá hefðbundnu. Neytendur hafa einkum áhyggjur af fjárhagshliðinni. Sparar maður á því að aka á jarðgasi? Við þurfum að byrja á að svara þeirri spurningu. Ef við gerum það ekki, hverjir munu þá kaupa bílana og eldsneytið? En hið knýjandi afl heildarmynd- arinnar til lengri tíma litið hlýtur að vera framsýnar ríkisstjórnir sem móta langtíma stefnu og hafa getu til að viðhalda samfellu í stefnumótun sinni. Ég trúi því að ef við getum í sam- einingu skapað þetta laga- og reglu- gerðaumhverfi þá muni það hvetja til framfara og að hagsmunaaðilar muni sjá gildi þess sem við erum að gera. Þetta er að gerast. Aðilum ENGVA hefur fjölgað úr 63 í meira en 270. Við reynum að verka hvetjandi og uppörvandi á þróunina. Við erum örugglega á réttri braut.“ TENGLAR .............................................. www.engva.org www.iangv.org MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 8. FEBRÚAR 2004 25 Fáðu fréttirnar sendar í símann þinn VIÐSKIPTI mbl.is Mikið úrval af fallegum rúmfatnaði Skólavörðustíg 21, Reykjavík, sími 551 4050

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.