Morgunblaðið - 08.02.2004, Side 39
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 8. FEBRÚAR 2004 39
HUGVEKJA
HRAFNHILDUR Ásta Þorvalds-
dóttir hefur verið sett skrifstofu-
stjóri almennrar skrifstofu í
umhverfisráðu-
neytinu frá 1.
febrúar sl. til
þriggja ára. Hún
gegnir starfinu í
afleysingum fyrir
Þórð H. Ólafsson
skrifstofustjóra
sem mun gegna
starfi fulltrúa um-
hverfisráðuneyt-
isins í sendiráði
Íslands í Brussel.
Hrafnhildur Ásta hefur starfað
sem deildarstjóri fjármáladeildar í
umhverfisráðuneytinu frá árinu 1999
og jafnframt sem deildarstjóri
rekstrardeildar frá árinu 2003. Hún
starfaði sem fjármálastjóri Lands-
bókasafns Íslands – Háskólabóka-
safns á árunum frá 1994 til 1999 og
hjá Hagsýslu ríkisins frá 1992 til
1994. Hún lauk námi í viðskiptafræði
frá HÍ árið 1983 og mastersnámi frá
Háskólanum í Álaborg árið 1992.
Hrafnhildur er fædd 1958, gift
Yngva Ólafssyni og eiga þau 4 börn.
Skrifstofustjóri
í umhverfis-
ráðuneytinu
Hrafnhildur Ásta
Þorvaldsdóttir
Samtök atvinnulífsins halda
opinn fund þriðjudaginn 10. febr-
úar nk., kl. 8–10, í Húsi atvinnulífs-
ins, Borgartúni 35, 6. hæð. Yfir-
skrift fundarins er „Vernd skipa,
farms og farþega“. Þar verður
fjallað um væntanlega löggjöf um
siglingavernd og áhrif hennar –
eftirlit, kostnað, umsýslu o.fl., m.a.
fyrir útflytjendur, skipafélög og
hafnir.
Ari Edwald, framkvæmdastjóri
Samtaka atvinnulífsins, setur fund-
inn. Erindi halda: Sigurbergur
Björnsson skrifstofustjóri, Sigurður
Skúli Bergsson forstöðumaður,
Hörður Blöndal framkvæmdastjóri
og Ólafur J. Briem framkvæmda-
stjóri.
Snjóbrettanámskeið Brettafélag
Íslands í samvinnu við Ölgerðina
Egil Skallagrímsson mun í vetur
bjóða upp á snjóbrettanámskeið fyr-
ir byrjendur sem lengra komna.
Námskeiðið hefur hlotið nafnið
„Brettaskóli Mountain Dew“. Boðið
verður upp á námskeið í ýmsum
flokkum, ýmist flokkað eftir aldri,
styrkleika, kyni eða blandað, allt
eftir því hvað hverjum og einum
hentar best. Námskeiðin eru fyrst
og fremst kennsla á snjóbretti en
einnig verður farið yfir öryggis-
atriði og viðhald búnaðar.
Skráning fer fram í verslunum
Brims á Laugavegi og í Kringlunni
en allar nánari upplýsingar um
námskeiðin má finna á heimasíðu
Brettafélags Íslands, www.big-
jump.is.
Á NÆSTUNNI
ÁSDÍS J. Rafnar hæstaréttarlög-
maður hefur opnað lögmannsstofu
á nýjan leik í Húsi verslunarinnar,
2. hæð, Kringlunni 7, Reykjavík,
undir nafninu Rafnar lögfræðiþjón-
usta.
Ásdís rak um árabil lögmanns-
stofu í Reykjavík í samstarfi við
systur sína Ingibjörgu Þ. Rafnar
hrl. og fleiri lögmenn.
Einnig starfaði hún sem fram-
kvæmdastjóri Læknafélags Íslands
1999–2002 en hefur á síðasta ári
stundað framhaldsnám í Bretlandi.
Ásdís starfar í samvinnu við lög-
menn Lögfræðiþjónustunnar, þá
Ingólf Hjartarson hrl., Kristján
Ólafsson hrl., Sigurð Sigurjónsson
hrl. og Önnu L. Bjarnadóttur, hdl.
Hægt er að komast í samband við
Ásdísi með því að senda póst á net-
fangið arafnar@isjuris.is.
Ásdís J. Rafnar
Opnar lög-
mannsstofu
FÉLAG íslenskra sjúkraþjálfara og
Stéttarfélag sjúkraþjálfara hafa
sent áskorun til stjórnar Landspít-
ala – háskólasjúkrahúss (LSH) og
heilbrigðisyfirvalda.
„Félag íslenskra sjúkraþjálfara
og Stéttarfélag sjúkraþjálfara lýsa
þungum áhyggjum af niður-
skurðaráformum innan LSH. Fyr-
irhuguðum aðgerðum er ætlað að
skila sparnaði en ekki er fyrirséð
hvernig sá sparnaður skilar sér með
því að skera niður þjónustu á end-
urhæfingarsviði. Fækkun stöðugilda
sjúkraþjálfara leiðir til minni þjón-
ustu þeirra við sjúklinga. Markmið
spítalans er að stytta legutíma hvers
sjúklings en það er alveg ljóst að
með skertri þjónustu sjúkraþjálfara
getur legutíminn lengst, þar sem
sjúklingar hafa síður færni til að út-
skrifast. Ennfremur má búast við
endurinnlögnum vegna ótímabærra
útskrifta.
Einnig vekur það furðu að loka
eigi fyrir þjónustu endurhæfingar-
deildarinnar í Kópavogi. Er það okk-
ar mat að með þeirri aðgerð séu yf-
irvöld og stjórnendur að taka
ákvörðun sem ekki er séð fyrir end-
ann á. Á endurhæfingardeildinni í
Kópavogi hefur byggst upp dýrmæt
sérþekking í meðferð fjölfatlaðra
einstaklinga. Hver á að þjónusta þá
og hvar mun sú meðferð fara fram?
Það er siðlaust að leggja niður þjón-
ustu við þessa einstaklinga áður en
þeim er tryggð þjónusta annars
staðar. Hvers eiga þessir einstak-
lingar að gjalda sem ekki geta borið
hönd fyrir höfuð sér? Tvímælalaust
er þessi þjónusta á ábyrgð ríkisins
og í sameiningu þurfa yfirvöld og
spítalinn að finna ásættanleg úrræði
á endurhæfingarþjónustu þessara
einstaklinga. Stjórnendur spítalans
eru að sinna sínum skyldum og
skera niður, en það er nokkuð ljóst
að ef af verður þá eru „góð ráð“ dýr.
Sparnaður þarf ætíð að vera hag-
kvæmur.
Ennfremur vilja félögin hvetja
stjórnvöld til að láta verða af þeirri
fyrirætlan sinni sem kemur fram í
heilbrigðisáætluninni til ársins 2010
og skipa sem fyrst í þverfaglegt end-
urhæfingarráð. Sú vinna þarf að fara
fram áður en niðurskurðarhnífnum
er beitt innan endurhæfingarsviðs
LSH.“
Mótmæla sparnaði
á Landspítala
Þorrinn erfjórði mán-uður vetrarsamkvæmtforn-
íslensku tímatali, og
við upphaf hans tald-
ist veturinn hálfn-
aður. Hann er fyrir
nokkru kominn, eins
og alþjóð veit, reið í
hlað á bóndadaginn,
sem að þessu sinni
bar upp á 23. janúar.
Á mörgum bæjum
nýtur sólar ekki yfir
köldustu mánuðina,
einkum á Austur-
landi, Norðurlandi og
á Vestfjörðum. Að
þessu leytinu eru
Sunnlendingar heppnari en aðrir
Íslendingar. Ég er samt efins
um, að þeir átti sig fyllilega á
hvað þeir í raun og veru eru lán-
samir, eða hugsi mikið um gildi
þessa. Ekki fyrr en þeir taka sig
upp og dvelja um hríð yfir mesta
skammdegistímann í dreifbýl-
inu, í áðurnefndum landshlutum.
Því „enginn veit hvað átt hefur,
fyrr en misst hefur.“
Það hefur lengi verið siður í
hinum þröngu fjörðum og dölum
landsins að fagna á einhvern
hátt komu sólargeislanna, eftir
nokkurra vikna fjarveru þeirra,
eða jafnvel mánaða. Heimildir
um orðið sólarkaffi yfir þesslags
gleði er til a.m.k. frá því um
aldamótin 1900, og annað heiti,
töluvert yngra, er sólardagur.
Sem dæmi má nefna, að Pat-
reksfirðingar eru með slíka hátíð
6. janúar, Ísfirðingar oftast 25.
janúar, en Arnfirðingar og Seyð-
firðingar (og fleiri Austfirð-
ingar) 2. febrúar.
Sumstaðar tíðkaðist það, og
gerir e.t.v. enn, að hagyrðingur
var fenginn til að yrkja „sólar-
ljóð“ í tilefni dagsins. Á Bíldudal
varð eftirfarandi til, og skín
gleði, virðing og eftirvænting úr
hverju orði, eins og sjá má:
Komdu sæl að sunnan
sól í dalinn minn.
Öllum flytur yndi
ástarkossinn þinn.
Allt sem andann dregur
á þig fyrir vin.
Vertu eins og áður
ætíð velkomin.
Þ. Ragnar Jónasson hefur lýst
því í einni bóka sinna, hvernig
þessu var háttað yst á Trölla-
skaga, þ.e. í Siglufirði. Orðrétt
segir hann:
Það líður að vetrarsólhvörfum. Skamm-
degisrökkrið grúfir yfir byggðinni. Það
verður sífellt langvinnara en þó er verk-
ljóst um stund á hverjum degi.
Þar sem sólin sést eru áhrif hennar hverf-
andi. Geislarnir eru því sem næst láréttir
og birta þeirra skammvinn. Sá er þetta
ritar situr við glugga og horfir út í síðdeg-
ishúmið. Úti „dynur hríðin svo bitur og
köld,“ snjókornin hlaðast upp í skafla og
það glitrar á „hina hreinu, skæru, mjúku
mjöll“ …
Á næturþeli skín máninn hátt á himni og
sendir töfrabirtu yfir vetrarlöndin hvítu,
þar sem hvergi sér á dökkan díl. Svarbláir
skuggar fylla gil og daladrög. Ótal til-
brigði í glitrandi gráum og silfruðum lit-
um gera landslagið torráðið og dularfullt.
Fjörðurinn merlar í mánaskini og leiftr-
andi norðurljósalogar skreyta dimmblátt
himinhvolfið með mögnuðu sjónarspili.
Að liðnum sólhvörfum byrjar að birta á
ný, hægt en markvisst. Daginn fer að
lengja um hænufet í senn og að því kemur
að sólskinið vitjar okkar á ný þann 28. jan-
úar, á sólardaginn. Þá skín björt og fögur
vetrarsól yfir Hólshyrnu eftir 74 daga hlé
og fagnað er í bænum…
Sumardýrðin með dásemdum náttúrunnar
verður brátt alls ráðandi í þessari norð-
lægu byggð. Geislar sólar gylla fjöllin í
blíðviðrum hinnar björtu tíðar svo að
fjörðurinn allur verður ein sólskinskista.
Í nóttleysum sólmánaðar skarta fjöll og
dalir margþættum litbrigðum og hafflöt-
urinn verður sem lýsigull kvölds og
morgna.
Hvað jafnast á við lognkyrrð og fegurð
árla sumarmorguns, þegar tignarleg fjöll
og grónar hlíðar standa á höfði í fag-
urskyggndum firði?
Þá eru bætt öll vetrarmein.
Skemmsti dagur ársins er
þegar liðinn hjá samkvæmt
almanakinu, og dimman tekin að
víkja – enn fengin vissa fyrir því,
að myrkrið hafi ekki sigrað í
hinni endalausu baráttu, heldur
muni nóttlaus vorheiðríkjan
koma á ný innan skamms, í öllu
veldi sínu.
En muna skyldum við jafn-
framt og ávallt, að allt ljós, bæði
það sem kemur frá sólu og annað
sem við tendrum, hvort sem er á
kerti eða lampa, er samt hverf-
ult, eins og raunar öll hin sýni-
lega veröld; bara dauft end-
urskin hins eilífa. En ef hjarta
þitt er upplýst af þeirri orkulind,
sem á rætur í hásæti almætt-
isins, ef andleg næring þín er
komin um þá taug, ef sálin er
björt og hlý, þá ertu í góðum
málum. Því birtan hvíta, sem
trúin gefur mönnunum hlutdeild
í, er ekki undirorpin neinni
hnignun. Og á það minnir gylltur
vangakoss sólarinnar okkur um
þetta leyti árs. Líka þess vegna
er hann svona dýrmætur.
Koss
á vangann
sigurdur.aegisson@kirkjan.is
Nú þegar daginn er tekið að lengja á kostnað
næturinnar og myrkursins, er víða fagnað á
norðurhveli jarðar. Sigurður Ægisson lítur til
hinna ótalmargu þröngu fjarða og dala landsins,
og veltir fyrir sér þætti birtunnar í lífi íbúanna.
Staður Nafn Sími 1 Sími 2
Akranes Jón Helgason 431 1347 431 1542
Akureyri Skrifstofa Morgunblaðsins 461 1600
Bakkafjörður Stefnir Elíasson 473 1672
Bifröst Ólafur Snorri Ottósson 435 0098 694 7372
Bíldudalur Pálmi Þór Gíslason 456 2243
Blönduós Björn Svanur Þórisson 452 4019/864 4820/690 7361
Bolungarvík Nikólína Þorvaldsdóttir 456 7441 867 2965
Borgarnes Þorsteinn Viggósson 437 1474 898 1474
Breiðdalsvík María Jane Duff 475 6662
Búðardalur Anna María Agnarsdóttir 434 1381
Dalvík Halldór Reimarsson 466 1039 862 1039
Djúpivogur Sara Dís Tumadóttir 478 8161 662 1373
Egilsstaðir Páll Pétursson 471 1348 471 1350
Eskifjörður Björg Sigurðardóttir 476 1366 868 0123
Eyrarbakki R. Brynja Sverrisdóttir 483 1513 699 1315
Fáskrúðsfjörður Jóhanna Sjöfn Eiríksdóttir 475 1260/853 9437/475 1370
Flateyri Hjördís Guðjónsdóttir 456 7885
Garður Álfhildur Sigurjónsdóttir 422 7310 846 8123
Grenivík Hörður Hermannsson 463 3222
Grindavík Kolbrún Einarsdóttir 426 8204 426 8608
Grímsey Ragnhildur Hjaltadóttir 467 3148
Grundarfjörður Bjarni Jónasson 438 6858/854 9758/894 9758
Hella Brynja Garðarsdóttir 487 5022 895 0222
Hellissandur/Rif Aron Jóhannes Leví Kristjáns. 436 6925
Hnífsdalur Auður Yngvadóttir 456 5477 893 5478
Hofsós Bylgja Finnsdóttir 453 7418 893 5478
Hólmavík Ingimundur Pálsson 451 3333 893 1140
Hrísey Siguróli Teitsson 466 1823
Húsavík Bergþóra Ásmundsdóttir 464 1086 893 2683
Hvammstangi Gunnar Þorvaldsson 451 2482 894 5591
Hveragerði Erna Þórðardóttir 483 4421 862 7525
Hvolsvöllur Helgi Ingvarsson 487 8172/893 1711/853 1711
Höfn Ranveig Á. Gunnlaugsdóttir 478 2416 862 2416
Innri-Njarðvík Eva Gunnþórsdóttir 421 3475 821 3475
Ísafjörður Auður Yngvadóttir 456 5477 893 5478
Keflavík Elínborg Þorsteinsdóttir 421 3463 820 3463
Kirkjubæjarkl. Birgir Jónsson 487 4624 854 8024
Kjalarnes Haukur Antonsson 566 8378 895 7818
Kópasker Hrönn Guðmundsdóttir 465 2112
Laugarás Jakop Antonsson 486 8983
Laugarvatn Berglind Pálmadóttir 486 1129 865 3679
Neskaupstaður Sólveig Einarsdóttir 477 1962 848 2173
Ólafsfjörður Árni Björnsson 466 2347 866 7958
Ólafsvík Laufey Kristmundsdóttir 436 1305
Patreksfjörður Björg Bjarnadóttir 456 1230
Raufarhöfn Alda Guðmundsdóttir 465 1344
Reyðarfjörður Guðmundur Fr. Þorsteinsson 474 1488/892 0488/866 9574
Reykholt Bisk. Oddur Bjarni Bjarnason 486 8900
Reykhólar. Ingvar Samúelsson 434 7783
Reykjahlíð v/Mýv. Margrét Hróarsdóttir 464 4464
Sandgerði Sigurbjörg Eiríksdóttir 423 7674 895 7674
Sauðárkrókur Ólöf Jósepsdóttir 453 5888 862 2888
Selfoss Jóhann Þorvaldsson 482 3375 899 1700
Seyðisfjörður Hanna Lísa Vilhelmsdóttir 472 1102 690 2415
Siglufjörður Sigurbjörg Gunnólfsdóttir 467 1286 467 2067
Skagaströnd Þórey og Sigurbjörn 452 2879 868 2815
Stokkseyri Kristrún Kalmansdóttir 867 4089
Stykkishólmur Erla Lárusdóttir 438 1410 690 2141
Stöðvarfjörður Sunna Karen Jónsdóttir 475 8864
Suðureyri Tinna Sigurðardóttir 456 6244
Súðavík Ingibjörg Ólafsdóttir 456 4936
Tálknafjörður Rakel Guðbjörnsdóttir 456 2595 696 2663
Varmahlíð Ragnar Helgason 453 8134 867 9649
Vestmannaeyjar Sigurgeir Jónasson 481 1518 897 1131
Vík í Mýrdal Hulda Finnsdóttir 487 1337 698 7521
Vogar Hrönn Kristbjörnsdóttir 424 6535
Vopnafjörður Svanborg Víglundsdóttir 473 1289 473 1135
Ytri-Njarðvík Eva Gunnþórsdóttir 421 3475 848 6475
Þingeyri Arnþór Ingi Hlynsson 456 8285
Þorlákshöfn Ragnheiður Hannesdóttir 483 3945 483 3627
Þórshöfn Ragnheiður Valtýsdóttir 468 1249
Dreifing Morgunblaðsins
Hér eru upplýsingar um þá sem dreifa blaðinu á landsbyggðinni