Morgunblaðið - 08.02.2004, Síða 47
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 8. FEBRÚAR 2004 47
www.hofdi.is
Runólfur Gunnlaugsson, viðskiptafræðingur, löggiltur fasteigna- og skipasali.
Suðurlandsbraut 20
Sími 533 6050
Bæjarhrauni 22
Sími 565 8000
Hrísrimi 2
Opið hús í dag milli kl. 14-16
Smáralind - 1. hæð
Opið 14-17 lau. og sun.
Sími 565 8000
Erum með í sölu sérlega
glæsilega 4ra herb. endaíbúð á
neðri hæð í fallegu tveggja hæða
fjölbýli. Sérinngangur og sér-
timburverönd úr stofu.
Parket og flísar á öllum gólfum.
Gunnar og Helga taka vel
á móti þér milli kl. 14 og 16
í dag.
Fjarðargötu 17 - Hafnarfirði
Sími 520 2600 - Fax 520 2601
Netfang as@as.is
Heimasíða http://www.as.is
Kári Halldórsson, löggiltur fasteignasali,
Jónas Hólmgeirsson, Eiríkur Svanur Sigfússon,
Birna Benediktsdóttir, Melkorka Guðmundsdóttir
BOÐAHLEIN - HRAFNISTA
Fallegt og vel viðhaldið 59,7 fm RAÐHÚS á einni hæð við
Hrafnistu í Hafnarfirði/Garðabæ. Sérinngangur. Parket og flísar á
gólfum. Timburverönd með skjólveggjum. FRÁBÆRT ÚTSÝNI.
2244
GVENDARGEISLI 26 - 3. HÆÐ - OPIÐ HÚS Í DAG
SUNNUDAG FRÁ KL. 15-17
Falleg, ný 4ra herbergja íbúð á 3. hæð
(efstu) með sérinngangi í litlu fjölbýlis-
húsi ásamt stæði í bílageymslu. Eignin
skiptist m.a. í stofu, þrjú herbergi og bað-
herbergi. Geymsla og þvottahús í íbúð.
Innréttingar eru maghómí. Íbúðin er án
gólfefna. Laus strax. V. 17,9 m. 3865
EIKJUVOGUR - VANDAÐ EINBÝLI
Fallegt einlyft einbýli á eftirsóttum stað
við Eikjuvog í Reykjavík. Eignin skiptist
m.a. í forstofu, stofu, borðstofu, snyrt-
ingu, baðherbergi, eldhús, þvottahús, þrjú
herbergi og sjónvarpsherbergi. Allar
hitalagnir hafa verið endurnýjaðar. Ný-
legurpappi á þaki. Góð eign. V. 30 m.
3890
SELBRAUT - SELTJARNARNESI
Vorum að fá í sölu mjög vandað 282 fm
endaraðhús á tveimur hæðum á Seltjarn-
arnesi. Tvöfaldur bílskúr. Húsið skiptist
m.a. í stofu, arinstofu, borðstofu og 5-6
herbergi. Mjög stórar svalir á þaki bíl-
skúrs. Falleg gróin lóð með verönd. V. 36
m. 3887
EIÐISTORG - GLÆSILEGT ÚTSÝNI
Vorum að fá í sölu fallega 100 fm, 3ja
herb. íbúð á 3. hæð í góðu fjölbýli við
Eiðistorg á Seltjarnarnesi. Tvennar svalir
til suðurs og norðurs. Glæsilegt útsýni. V.
17,5 m. 3894
SELBREKKA - MEÐ FALLEGU ÚTSÝNI
REYNIMELUR
Björt og falleg 106 fm endaíbúð á 1.
hæð, sem skiptist í forstofu, samliggjandi
stofu og borðstofu, eldhús, 3 herbergi og
bað. Í kjallara er sérgeymsla, sameigin-
legt þvottahús og hjólageymsla. Parket á
gólfum og endurnýjað baðherbergi. V.
15,7 m. 3879
VINDÁS - EINSTAKLINGSÍBÚÐ
Falleg lítil 33,8 fm einstaklingsíbúð á
efstu hæð í blokk við Vindás. Eignin
skiptist í stofu/alrými, eldhús og baðher-
bergi. Í kjallara er sérgeymsla og sameig-
inlegt þvottahús með vélum. V. 5,9 m.
3891
Fallegt og vel skipulagt 224,9 fm raðhús með innb. 30,0 fm bílskúr á fallegum út-
sýnisstað í Kópavogi. Á neðri hæðinni er bílskúr, geymslur, gott svefnherbergi,
þvotthús, baðherbergi og hol. Á efri hæðinni er hol, 2 saml. stofur, eldhús, baðher-
bergi og 3-4 svefnherbergi. Lóðin er falleg og með hellulagðri verönd og trjágróðri.
Hiti er undir stéttum að norðanverðu. Parket og flísar á gólfi, hornbaðkar og arinn
í stofu. V. 26,9 m. 3881
REKAGRANDI
Falleg og vel skipulögð 52 fm íbúð á 2.
hæð er skiptist í hol, stofu, svefnherbergi,
baðherbergi og eldhúskrók. Parket gólf-
um og flísar á baði. Á jarðhæð er sér-
geymsla, hjólageymsla og þvottahús.
V. 9,7 m. 3883
HALLDÓR Ásgrímsson utanríkis-
ráðherra sat á föstudag óformlegan
samráðsfund aðildarríkja Atlants-
hafsbandalagsins sem haldinn var í
München í aðdraganda leiðtogafund-
ar bandalagsins í Istanbúl á komandi
sumri.
Á fundinum var fjallað um starf-
semi öryggissveita Atlantshafs-
bandalagsins í Afganistan, samstarf
bandalagsins og Evrópusambands-
ins í Bosníu-Hersegóvínu, ástandið í
Írak og nauðsyn eflingar á bolmagni
bandalagsins.
Utanríkisráðherra gerði grein fyr-
ir undirbúningi á samræmingarhlut-
verki Íslands á Kabúlflugvelli frá og
með 1. júní nk. og færði þakkir
stjórnvöldum þeirra aðildarríkja
sem hyggjast leggja af mörkum til
rekstrar flugvallarins.
Flytja þyrlu til Afganistan
Hann staðfesti ennfremur þá
ákvörðun ríkisstjórnar Íslands að
styðja starfsemi öryggissveita
bandalagsins í Afganistan með því að
annast flutninga á hollenskri þyrlu-
sveit á vettvang. Að auki átti utan-
ríkisráðherra tvíhliða fundi með Ja-
ap de Hoop Scheffer, nýskipuðum
framkvæmdastjóra Atlantshafs-
bandalagsins, Harald Kujat, for-
manni hermálanefndar, og Peter
Struck, varnarmálaráðherra Þýska-
lands. Á þeim fundum var meðal
annars fjallað um fyrrnefnt sam-
ræmingarhlutverk Íslands á Kabúl-
flugvelli. Þetta verkefni var einnig
rætt við varnarmálaráðherra nokk-
urra þeirra ríkja sem þar munu hafa
liðsmenn.
Halldór Ásgrímsson á samráðsfundi aðildarríkja NATO
Gerði grein fyrir undir-
búningi á Kabúlflugvelli
SJÁLFSTÆÐISFLOKKUR bætir
við sig fylgi samkvæmt nýrri skoð-
anakönnun Talnakönnunar fyrir
vefsvæðið heimur.is, fengi 37,3% at-
kvæða ef kosið væri nú borið saman
við 33,7% í síðustu kosningum.
Fylgi Samfylkingar minnkar og
nýtur flokkurinn nú fylgis 29,3%
kjósenda en fékk 31% í síðustu
kosningum. Sama á við um Fram-
sóknarflokk, hann fær 14,6% at-
kvæða en fékk 17,7% í kosningun-
um. Vinstri grænir bæta við sig
fylgi, fengju 12,5% ef gengið væri
að kjörborðinu nú en fengu 8,8% í
kosningunum síðast. Þá minnkar
fylgi Frjálslyndra, en þeir fáu 6,1%
en fengu 7,4% í síðustu alþingis-
kosningum.
Samkvæmt þessu fengi D-listi
23–24 þingmenn, en hefur 22 nú,
Samfylking fengi 18–19, hefur 20
nú, þingmenn Framsóknar yrðu 9
en eru 12 núna og Vinstri grænir
bæta við sig þremur þingmönnum
og fengju átta. Þingmannatala
Frjálslyndra er óbreytt, 4 þing-
menn. Meirihluti stjórnar heldur
samkvæmt könnuninni, hún fengi
32–33 menn kjörna. Úrtakið í könn-
uninni var 608 manns, 21% höfðu
ekki gert upp hug sinn, 17% neituðu
að svara og 2% hugðust skila auðu.
Könnun á fylgi
stjórnmálaflokkanna
Sjálfstæðis-
flokkur og
VG bæta við
sig fylgi
FÉLAGAR í Karlakórnum Glað á
Eskifirði hafa ákveðið að styrkja
ungan og efnilegan söngvara, Þor-
stein Helga Árbjörnsson.
Styrkurinn, eitthundrað þúsund
krónur, sem renna eiga til söng-
náms Þorsteins Helga, var afhentur
á dögunum og tók faðir hans, Ár-
björn Magnússon, við fjármunum
fyrir Þorsteins Helga hönd.
Þorsteinn Helgi lauk 8. stigi í
söng frá Tónlistarskóla Austur-
Héraðs s.l. vor og er nú í framhalds-
námi í Oklahoma í Bandaríkjunum.
Honum hefur verið boðið á mán-
aðarlangt námskeið í sumar hjá
messósópransöngkonunni Marlees
Horn, en þau námskeið eru að sögn
þeirra sem til þekkja mjög eftirsótt.
Styrkja efni-
legan söngvara
til náms
Morgunblaðið/Helgi Garðarsson
Félagar úr karlakórnum Glað afhenda Árbirni Magnússyni styrk en kórinn
ákvað að styrkja son hans, Þorstein Helga, í söngnámi.
SMS tónar og tákn
Fréttir á SMS