Morgunblaðið - 08.02.2004, Side 54

Morgunblaðið - 08.02.2004, Side 54
SKOÐUN 54 SUNNUDAGUR 8. FEBRÚAR 2004 MORGUNBLAÐIÐ „HÖNNUN er auðlind,“ segir Svavar Gestsson, sendiherra í Stokk- hólmi, í grein í Morgunblaðinu í nóv- ember á nýliðnu ári. Til þess að virkja auðlindina, hönnun, enn frekar en gert hefur verið segir sendiherr- ann að allir þeir sem hlut eigi að máli verði að standa saman, þétt. Það sé mikilvægt því að úrtöluraddirnar séu háværar svo sem eðli- legt sé þegar erfitt sé að sjá samhengi hlut- anna sem skyldi. Til þess að leggja ís- lenskri hönnun lið hef- ur sendiráðið í Stokk- hólmi ákveðið að undir- búa íslenska hönnun- arsýningu í Svíþjóð á árinu 2005 og í haust verður einnig efnt til hönnunarsýn- ingar í París. Þetta eru vissulega gleðitíðindi fyrir alla þá sem starfa á sviði hönnunar sem og þeirra sem vilja veg íslenskrar hönnunar sem mestan og eru sannfærðir um að verðmæti felst í hönnun, verðmæti sem getur skilað sér margfaldlega til íslenska þjóðarbúsins sé rétt á mál- um haldið. Sýningin Mót sem Form Íslands stóð fyrir og haldin var á Kjarvals- stöðum árið 2000, þótti takast vel. Sýningin var einn liður í röð viðburða sem tengdust verkefninu Reykjavík menningarborg. Þarna uppgötvuðu margir sem ekki höfðu áður leitt hug- ann að hönnun að hún er allt í kring- um okkur og verður daglega á vegi okkar jafnt í smáu sem stóru. Kannski er gamli ópalpakkinn eitt besta dæmið, umbúðir utan um vin- sælt sælgæti, sem eru svo nátengdar vörunni að enginn hugsar út í að pakkinn er verk hönnuðar og hefur án efa átt stóran hlut í að draga at- hygli margra að ópalinu sjálfu sem í honum er. Marka þarf ákveðna hönnunarstefnu Mót var góð sýning en það vantaði að fylgja henni eftir. Þar kemur til kasta stjórnvalda sem þurfa að marka ákveðna hönnunarstefnu og koma á fót hönnunarmiðstöð rétt eins og frændur okkar á hinum Norðurlönd- unum hafa gert. Í desember 2002 skipaði Valgerður Sverrisdóttir, iðn- aðar- og viðskiptaráðherra, nefnd sem ætlað var að meta hver ávinning- ur væri af hönnunarmiðstöð hér á landi. Í skipunarbréfi nefndarinnar segir að hönnun skipi sífellt veiga- meira hlutverk í fram- leiðslu og markaðs- setningu á tímum harðnandi samkeppni og styttri líftíma vöru og þjónustu. Þar segir líka að gildi hönnunar hafi aukist á síðari árum sökum almennrar þró- unar í átt til svokallaðra þekkingarhagkerfa, þar sem vægi mannlegra auðlinda og þekkingar fari vaxandi. Enn- fremur segir í skip- unarbréfinu: „Góð hönnun eykur jafnframt verðmæta- sköpun og styrkir verulega sam- keppnishæfni fyrirtækja. Stærri fyr- irtæki eiga þó að öllu jöfnu auðveldara með að sinna hönnun en þau smærri, vegna stærðarhag- kvæmni þó að mikilvægi hönnunar sé ekki minni fyrir þau smærri. Þar sem íslensk fyrirtæki eru yfirleitt smá á erlendan mælikvarða er mikilvægt að þau hafi þekkingu sem og gott að- gengi að hönnun og ráðgjöf á því sviði.“ Stefnan mörkuð á hinum Norðurlöndunum Nefndinni var ætlað að meta ávinn- ing af rekstri hönnunarstöðvar fyrir íslenskt efnahagslíf og koma með til- lögur í því sambandi. Nefndin hefur skilað af sér greinargerð um mál- efnið en hún hefur enn ekki verið birt. Fullyrða má að ávinningur hér á landi af hönnunarmiðstöð yrði veru- legur en til samanburðar má nefna að markaðsátak, hönnunarmiðstöðvar sem Írar settu á fót fyrir nokkrum árum, er talið hafa skilað mjög góð- um árangri. Það er því ekki úr vegi að skora nú á iðnaðarráðherra, Val- gerði Sverrisdóttur, að hrinda í fram- kvæmd hugmyndum um íslenska hönnunarmiðstöð og um leið að marka íslenska hönnunarstefnu. Í því sambandi ætti að vera auðvelt að fylgja dæmi Dana, Norðmanna, Svía og Finna sem allir hafa markað sér ákveðna hönnunarstefnu sem sögð er hafa gagnast vel. Danir settu á fót nefnd sem gerði úttekt á hönn- unarmálum og kom með tillögur sem birtast í umfangsmikilli skýrslu sem danska atvinnumálaráðuneytið gaf út í júní 1997, Designfremme i er- hvervslivet og Regeringens De- signredegörelse. Í Svíþjóð nefnist hönnunaráætlunin sem þar hefur verið hrundið af stað Framtids- former: Sveriges handlingsprogram för arkitektur, formgivning og de- sign. Í Finnlandi hefur verið gefið út plaggið Design 2005, Government Decision-in-Principle on Finnish De- sign Policy 15.06. 2000. Í Noregi hef- ur iðnaðar- og viðskiptaráðuneytið skipað nefnd sem ætlað er að kanna hvernig hönnun nýtist sem tæki til að auka verðmæti og stuðla að framför- um á ýmsum sviðum. Fyrir tveimur árum ákvað norska stjórnin einnig að leggja aukið fé til hönnunar og styðja m.a. með því Norsk Designråd og norska hönnun. Íslensk hönnun kynnt í sendiráðunum Fram að þessu höfum við Íslendingar verið langt á eftir öðrum Norður- landaþjóðum þegar kemur að því að styðja hönnun og hönnuði. Við gæt- um þó með góðu átaki komist langt áleiðis til hagsbóta fyrir íslenska hönnuði sem sækja nú verulega á bæði hér heima og erlendis. Hönnun- arsýningar á borð við þær sem halda á í Stokkhólmi og París eru vissulega stór liður í að kynna íslenska hönnun. Stjórnvöld geta kynnt íslenska hönn- un með öðrum hætti og hafa reyndar verið að gera það með því að búa ís- lenskar sendiráðsskrifstofur hús- gögnum og búnaði sem íslenskir hönnuðir eiga heiður af og er auk þess í flestum tilvikum framleiddur hér á landi. Með því móti eru verk ís- lenskra hönnuða „á sýningu“ allan ársins hring víða um heim. Í Morgun- blaðsgreininni segir Svavar Gestsson sendiherra ennfremur: „Með því að hafa íslenska hönnun í sendiráðinu erum við að sýna íslenska menningu; hún birtist til dæmis í ballett, popp- tónlist, óperusöngvurum, bókmennt- um og glæsilegum hestum. Það finnst engum tiltökumál; en þegar kemur að hönnun húsgagna birtast vandlætingargreinar. Af hverju? Það er umhugsunarefni því hönnun er líka menning.“ Sem dæmi um íslenska hönnun í sendiráðum erlendis má nefna að á skrifstofu Fastanefndar Íslands hjá NATO í Brussel eru fundarhúsgögn hönnuð af Sturlu Má Jónssyni og framleidd hjá Á. Guðmundssyni. Sama er að segja um skrifstofu- og fundarhúsgögn á skrifstofu sendi- ráðsins í London en þar er einnig að finna sófa og stóla hannaða af Guð- björgu Magnúsdóttur. Húsgögn sendiráðsskrifstofanna í Kaup- mannahöfn og Ottawa í Kanada eru hönnuð af Guðrúnu Margréti Ólafs- dóttur, Oddgeiri Þórðarsyni, Erlu Sólveigu Óskarsdóttur og Pétri B. Lútherssyni. Í sendiherrabústaðnum í Maputo í eru stólar og sófi frá GÁ húsgögnum, hönnun Guðbjargar Magnúsdóttur. Á skrifstofu sendi- ráðsins í Stokkhólmi eru húsgögn frá Á. Guðmundssyni o.fl. og hönnuðirnir eru Sturla Már Jónsson, Sigurður Gústafsson og Leó Jóhannsson. Ís- lenska sendiráðið í Berlín er gott dæmi um verk íslenskra arkitekta og hönnuða. Arkitekt hússins er Pálmar Kristmundsson, arkitekt/pk-hönnun arkitektar. Í lýsingu arkitektanna á verkinu segir m.a. „Eitt af mark- miðum verkefnisins var að sendiráðið bæri íslensku hug- og handverki fag- urt vitni. „ Um þetta segir Ingimund- ur Sigfússon, nú sendiherra í Tokyo en þá í Berlín í viðtali við Hús og hí- býli að sendiráðsbyggingin hafi hlotið mikið lof. Húsgögn séu öll sérsmíðuð og sömuleiðis innréttingar en hvort tveggja sé hannað af pk-hönnun og framleitt af Smíðastofu Sigurðar R. Ólafssonar og Desform. Auk þess séu í sendiráðinu stólar sem Erla Sólveig Óskarsdóttir húsgagna- og iðnhönn- uður hafi hannað. Á skrifstofu sendi- ráðsins í Tokyo eru húsgögn hönnuð af Yrki-arkitektum og í sendiherra- bústað eru sófasett og borðstofu- húsgögn hannað af Yrki en stólar hannaðir af Þórdísi Zoëga. Loks er tímaritastandur í sendiráðinu í Hels- inki, hönnun Guðmundar Einars- sonar. Japanska keisarafjölskyldan og íslensk hönnun Eftir þessa upptalningu má svo ekki gleyma að í Brussel, Ottawa og í Tokyo eru sérhönnuð glös frá Gler í Bergvík, verk þeirra Sigrúnar Ein- arsdóttur og Sörens S. Larsen. Þess glös eru einmitt frábært dæmi um áhrif þess að nýta, kynna og sýna verk íslenskra hönnuða í sendiráðum Íslands hvar sem þau eru í heim- inum. Glösin rötuðu nefnilega inn á borð japönsku keisarafjölskyldunnar eftir að fulltrúar hennar höfðu notið þess að handfjalla þau og drekka úr þeim í veislu í sendiráðinu í Tokyo. Íslensk stjórnvöld eru vissulega á réttri leið. Í Danmörku er það inn- kaupastefna hins opinbera að skoða danskar vörur áður en ákvörðun um vörukaup er tekin. Eins ættum við ævinlega að líta í kringum okkur og huga að því hvað til sé íslenskt sem uppfyllir óskir og þarfir í hverju til- viki fyrir sig, áður en annað er keypt. Samt sem áður verður alltaf að hafa til hliðsjónar að kaupa verður það sem passar hverju sinni en sé ís- lenska hönnunin jafngóð þeirri er- lendu á hún að verða fyrir valinu. Ef ekkert er til sem hæfir er ef til vill ástæða til að gefa einhverjum tæki- færi til þess að hrinda af stað fram- leiðslu á hlutum sem kannski hafa þegar verið hannaðir en eru ekki komnir í framleiðslu. Það hefur svo sannarlega áhrif á markaðsetningu íslenskrar hönnunar erlendis þegar fólk kemur í sendiráðin og sér hvað íslenskir hönnuðir hafa upp á að bjóða. Vantar herslumuninn Margt hefur verið jákvætt gert til að stuðla að auknum framgangi ís- lenskrar hönnunar en ekki má gleyma að huga að framtíðinni. Nú vantar bara herslumuninn. Koma þarf upp hönnunarmiðstöð sem ekki má vera háð einstaklingum heldur rekin af hinu opinbera og svo vantar enn stefnu ríkisstjórnarinnar í hönn- unarmálum eins og nefnt var hér að framan. Hvorugt verkefnið ætti að þurfa að verða mjög kostnaðarsamt. Oft hefur verið talað um virði hönnunar og nú hefur Aflvaki hf., fyrirtæki í eigu Reykjavíkurborgar, lýst yfir vilja til að finna rétta aðila til að vinna skýrslu þar um. Þegar skýrslan liggur fyrir mun koma í ljós að hönnun er mikils virði og verð- mætin verða til á ýmsum sviðum. Sem dæmi má taka umbúðir utan um fiskinn okkar. Væri hann einungis settur í plastpoka og utan á þá stimplaðar lögboðnar upplýsingar vekti hann ekki sömu athygli og þeg- ar hann er kominn í fallega hannaðar umbúðir. Það fer ekki á milli mála að velhannaðar umbúðir auka verðgildi fisks jafnt sem annarra vara og auð- velda sölu þeirra. Virði góðrar hönn- unar er óumdeilanlegt. Þar við bætist að íslensk hönnun er hluti af íslenskri menningu á sama hátt og bók- menntir, myndlist og tónlist þótt menn hafi ekki hampað henni til jafns við þessar listgreinar enn sem komið er. Hvers vegna er íslensk hönnun ekki talin með? Í áramótaávarpi sínu sagði forseti Ís- lands, Ólafur Ragnar Grímsson, að framlag okkar til nýsköpunar, fersk- leiki í hugmyndum og listalífi, nýj- ungar í vísindum, tækni og atvinnu- háttum mundi einkum ráða orðspori okkar á komandi árum. Hann sagði einnig að á liðnu ári hefði ungri kyn- slóð tekist að vekja enn meiri áhuga annarra þjóða á samtímamenningu okkar Íslendinga. Hann nefndi síauk- inn áhuga erlendis á verkum ís- lenskra rithöfunda, á íslenskri mynd- list og dansi en kannski líður ekki á löngu þar til íslensk hönnun verði einnig nefnd í slíkri upptalningu. Ís- lenskir hönnuðir hafa sýnt með verk- um sínum og þeim verðlaunum og viðurkenningum sem þeir hafa hlotið erlendis að þeir eru óumdeilanlegur og mikilsverður hluti íslenskrar menningar. Hönnun er hluti íslenskrar menningar Eftir Eyjólf Pálsson ’Koma þarf upp hönn-unarmiðstöð sem ekki má vera háð einstak- lingum heldur rekin af hinu opinbera…‘ Eyjólfur Pálsson Höfundur er húsgagnaarkitekt. Bæjarhrauni 10 • Hafnarfirði   Magnús Emilsson löggiltur fasteignasala NAUSTAHLEIN - GARÐABÆ - PARHÚS Nýkomið í einkasölu sérlega fallegt 78 fm parhús á einni hæð. Parket. Sólskáli. Ræktaður garður. Góð staðsetning. Útsýni. Þjónusta við Hrafnistu. Laust strax. Hagst. lán byggsj. ca 4 millj. Verð 16,2 millj. NAUSTAHLEIN - GBÆ - PARHÚS M. BÍLSKÚR Nýkomið í einkasölu á þessum frábæra stað mjög gott parhús á einni hæð ásamt góðum bílskúr með geymslulofti, samtals um 101 fm. Húsið stendur á fallegum útsýnisstað og skiptist í forstofu, þvottahús, hol, eldhús, garðskála, stofur og svefnherbergi. Gólfefni eru parket og flísar. Fallegur gróinn garður. Útsýni. Eignin er laus strax. ELDRI BORGARAR Netfang: kjoreign@kjoreign.is Heimasíða: www.kjoreign.is Sími 533 4040 • Fax 533 4041 Opið í dag frá kl. 12-14 TRAUST OG ÖRUGG ÞJÓNUSTA Ármúla 21 • Reykjavík jöreign ehf Dan V.S. Wiium hdl., lögg. fasteignasali Erlendur Davíðsson, lögg. fasteignasali Hákon R. Jónsson, sölumaður Ólafur Guðmundsson sölustjóri, 4RA HERB. KLEPPSVEGUR Góð 4ra herbergja endaíbúð á 1. hæð. Íbúðin skiptist í rúmgóða forstofu, eldhús, 3 svefnherbergi, bað, eldhús og stofu. 2 geymslur í kjallara ásamt 2 frystihólfum. Þvottahús í kjallara. Verð 12,7 millj., áhv. 8,7 millj. húsbréf og viðbótarlán. LJÓSHEIMAR - LYFTUHÚS Mikið endurnýjuð og falleg 4ra herb. íbúð á 8. hæð í lyftuhúsi. Glæsilegt útsýni. Vandaðar innréttingar og nýstandsett baðherbergi. Parket. Suðvestursvalir. Áhv. húsbréf 5,8 millj. Verð 13,5 millj. nr. 3679 VESTURGATA Rúmgóð 4ra herb. íbúð á 3. hæð í fjórbýlishúsi. Sérþvottahús í íbúð. Svalir í suðvestur. Íbúðin getur verið laus fljótlega. Áhv. húsbréf 5,0 millj. Verð 13,8 millj. nr. 3801 RAÐ- OG PARHÚS NEÐSTALEITI Vandað parhús á tveimur hæðum með innb. bílskúr. Geymslukjallari undir hluta hússins. Arinn, frábært útsýni. Afhending strax. Frábær staðsetning. Hús í góðu ástandi. Verð 35,0 millj. nr. 2506 SELBRAUT - SELTJ.NES. Sérlega fallegt endaraðhús á tveimur hæðum með innbyggðum tvöf. bílskúr. Sígildar og vel með farnar innréttingar. Rúmgott hús með fallegum garði. Stærð hússins er 281 fm. Uppl. á skrifstofu.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.