Morgunblaðið - 08.02.2004, Síða 59
BRÉF TIL BLAÐSINS
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 8. FEBRÚAR 2004 59
Fyrirtæki til sölu
Upplýsingar um fyrirtæki ekki veittar í síma
Við sölu fyrirtækja er gagnkvæmur trúnaður mikilvægur og við gefum því
ekki upplýsingar um fyrirtæki í síma. Við viljum fá kaupendur til okkar og
kynnast þeim, en með því móti getum við einnig þjónað þeim betur.
Vinsamlega hringið áður og pantið tíma. Síminn er 533 4300, en einnig er
hægt að nota tölvupóstinn: jens@husid.is .
Eftirfarandi eru stuttar lýsingar á nokkrum fyrirtækjum sem eru fáanleg, en
við auglýsum ekki nema brot af þeim fyrirtækjum sem höfum til sölu:
Álgluggaverksmiðja með miklum tækjakosti. Tilvalið til sameiningar. Með-
eign kemur til greina.
Blóma- og gjafavöruverslun í Glæsibæ. Verð aðeins 1,3 m. kr.
Arðbært þjónustufyrirtæki í byggingariðnaði með góða verkefnastöðu.
Ársvelta 60 m. kr. Tilvalið til sameiningar við fyrirtæki tengd bygg-
ingariðaði.
Söluturn í tengslum við bensínstöð í Grafarvogi. Mikil grillsala.
Rekstrarleiga með kauprétti. Stórt samkomuhús í nágrenni Reykjavíkur
með góðri aðstöðu fyrir dansleiki, veislur og fundi. Ársvelta 30 m. kr.
Gott tækifæri fyrir fagmenn.
Vitum af mörgum sérverslunum, heildverslunum og iðnfyrirtækjum í
ýmsum greinum fyrir rétta kaupendur. Ársvelta 100-1000 m. kr.
Kringlubón. Ein þekktasta og besta bónstöð landsins. Sami eigandi í 16
ár.
Þekkt vefnaðarvöruverslun. Ársvelta 60 m. kr. Góð framlegð. Tilvalið fyr-
ir „saumakonur“ með góðar hugmyndir.
Gallery bón. Lítil bónstöð í Skeifunni. Gott byrjendafyrirtæki. Auðveld
kaup.
Lítið landflutningafyrirtæki með föst viðskipti um fiskflutninga. Heppileg
viðbót við annað álíka.
Lítil rótgróin prentsmiðja með góð tæki og föst verkefni. Tilvalið til sam-
einingar eða fyrir duglega menn sem vilja vinna sjálfstætt. Auðveld
kaup.
Hárgreiðslumeistarar/sveinar óskast til samstarfs í nýrri heilsu- og dek-
urlind í Faxafeni. Gott tækifæri fyrir hæfileikafólk.
Spennandi tískuverslun í Kringlunni.
Lítil heildverslun með iðnaðarhráefni.
Lítið en mjög efnilegt plastframleiðslufyrirtæki óskar eftir framkvæmda-
stjóra - meðeiganda.
Lítil efnalaug í Keflavík. Gott atvinnutækifæri.
Sérverslun með eigin innflutning. 200 m. kr. ársvelta.
Vinsæll kaffistaður í atvinnuhverfi.
Tískuverslun á Akureyri. Ársvelta 25 m. kr. Eigin innflutningur.
Ein besta lúgusjoppa landsins. Mikil sala í grilli. Góður hagnaður.
Lítil verslun með raftæki o.fl. Tilvalið fyrir rafeindavirkja sem vill fara í
eigin rekstur.
Maraþon í Kringlunni. Sportvöruverslun með þekkt merki og mikla sölu.
Rekstrarhagnaður 11 m. kr. á ári.
Lítil heildverslun með vörur fyrir hárgreiðslustofur. Hentar vel fyrir hár-
greiðslufólk sem vill breyta um starfsvettvang.
Gagnlegur fróðleikur á heimasíðu
fyrirtækjadeildar: www.husid.is .
Suðurlandsbraut 50 (Bláu húsin v/Faxafen),
sími 533 4300, GSM 820 8658.
UNDIRRITAÐUR höfundur þessa
greinarkorns hefur á undaförnum
misserum og með vaxandi undrun
fylgst með skrifum konu nokkurrar
á Akranesi, sem öll fjalla um upp-
blástur á afréttum og heiðarlöndum
Íslands. Þetta vandamál virðist hún
eingöngu kenna sauðkindinni (sem
hún á þó líklega tilvist sína að þakka)
og sauðfjárbændum.
Eftir að hafa lesið af athygli þessi
skrif ásamt álíka greinum eftir
virðulega eldri leikkonu í Reykjavík,
leyfi ég mér að efast um að þessar
blessaðar konur hafi á síðustu ára-
tugum komið lengra út á land en að
Borgarfirði í vestri og Hellisheiði í
austri. Í það minnsta er ég viss um
að þær hafa ekki nýlega gengið um
mörg af þeim heiðarlöndum Íslands
þar sem sauðkindin heldur sig sum-
arlangt. Ofbeittar afréttir og heiðar-
lönd heyra sem betur fer að lang-
mestu leyti sögunni til. Í
Vestur-Skaftafellssýslu þar sem ég
þekki best til, og svo mun einnig vera
víða á Suðurlandi, er á haustin og
veturna víða þungt fyrir fæti þar
sem gengið er um útjörð, vegna mik-
illar sinu.
Þetta eru leifar þess gróskumikla
gróðurs, sem þessar fáu sauðkindur
sem rölta um þessa haga sumar-
langt, komast ekki yfir að bíta.
Hér hafa einnig á síðustu áratug-
um gróið upp stór landsvæði, bæði
fyrir tilverknað ötulla bænda og
Landgræðslu ríkisins en ekki síst
hefur náttúran sjálf séð um þetta
sjálf.
Vona ég að þetta stutta skrif mitt
og þær upplýsingar sem þar koma
fram, verði til þess að veita þessum
blessuðum konum örlítinn sálarfrið í
raunum þeirra.
ÞÓRIR N. KJARTANSSON,
Vík í Mýrdal.
Fýkur landið burt?
Frá Þóri N. Kjartanssyni
NÝJUSTU rannsóknir breskra vís-
indamanna sýna að börn hætta and-
legri heilsu sinni með notkun kann-
abisefna og tóbaks, auk neyslu
áfengis. Samkvæmt nýbirtri rann-
sókn á Bretlandseyjum kemur fram
að ungmenni, allt niður að þrettán
ára aldri, sem játað hafa reglulega
notkun kannabisefna og tóbaks eru
sjö sinnum líklegri til að verða fyrir
andlegum röskunum að áliti sér-
fræðinga. Drykkja enn yngri barna
leiðir svo aftur til tvöfalt meiri lík-
inda til að eiga við andlegar rask-
anir, síðar á lífsleiðinni. Við sér-
stakar þunglyndisaðstæður, eiga
börn sem neyta kannabis og eða
áfengis, tuttugu og sex falda
áhættu, miðað við aðra, á að bíða
andlegt skipbrot. Niðurstöður þess-
ar sem voru birtar í „British Journ-
al of Psychiatry“ eru nýjustu við-
varanir sérfræðinga við áhrifum
kannabis á heila ungmenna.
Aðrar rannsóknir útgefnar á s.l.
ári sýndu fram á tengsl milli kanna-
bis og aukinnar áhættu á andlegum,
heilsufarslegum og félagslegum
vandamálum ungmenna.
Þetta er fyrsta rannsóknin sem
framkvæmd hefur verið með afger-
andi hætti.
Læknar hafa nú þegar áhyggjur
af aukinni áhættu á höfuð, háls og
lungu, með tilliti til krabbameins, af
völdum kannabisefnanna.
Þau hafa hærra tjöruinnihald í
dag en nokkru sinni fyrr, þ.e. þau
eru talin u.þ.b. 10 sinnum sterkari
en á sjötta og sjöunda áratugnum.
Þar eð þau geti innihaldið allt að 10
sinnum meira af tetrahydrocannab-
inol, (THC) þetta efni sem gerir
vímuna virka hefur áhrifin á heil-
ann. THC efnið í kannabisresin get-
ur verið allt frá 1% (mjög milt) upp
að 26% (mjög sterkt).
Kannabisreykingar ungmenna
eru stöðugt að aukast á Bretland-
eyjum, samanber opinberar tölur,
sem sýna að þriðji hver fimmtán
ára unglingur hefur þá þegar reynt
efnið. Síðustu rannsóknir dr. Mich-
aels Farrells og starfsbræðra við
Maudsley sjúkrahúsið í Suður-
London, sýndu sterk tengsl á milli
notkunar tóbaks, áfengis og kanna-
bis og andlegra/félagslegra vanda-
mála.
Rannsökuð voru 2.624 börn, á
aldrinum 13-15 ára. Tíunda hvert
barn átti við ýmis geðræn vandamál
að stríða. Fram kom að tíð notkun
eins ofantalinna efna jók áhættu á
notkun hinna tveggja. Þau ung-
menni sem ekki nota tóbak eru talin
ólíklegri til að byrja neyslu á
kannabis. Upphaf kannabisneysl-
unnar reyndist svo oft upphaf
neyslu annarra sterkari ólöglegra
fikniefna (e-pillan, amfetamín, heró-
ín). Um það bil einn af hverjum tíu
ofantalinna viðurkenndu að hafa
reynt kannabis. Þau ungmenni sem
bjuggu hjá einstæðum foreldrum
voru tvöfalt líklegri til að hafa reynt
efnið, en þau sem komu frá for-
eldrum í sambúð.
Dr. Farrell segir: hinir reglu-
bundnu neytendur sem neyta allra
þriggja fíkniefnanna eru stöðugt í
meiri hættu á geðheilbrigðis-rösk-
unum, svo og á líkamlegum trufl-
unum. Telur hann mikla þörf á
frekari rannsóknum þar á. Aðrar
rannsóknir hafi margsannað að
notkun kannabis tengist aukinni
hættu á þunglyndi.
Breska þingið breytir lögum
um kannabisefnin
Einstakir þingmenn hafa verið
gagnrýndir fyrir að tjá sig um að
kannabisefnin séu ekki eins hættu-
leg og önnur ólögleg fíkniefni, með
því að færa þau úr flokki B í flokk
með svokölluðum C-lyfjum, (þ.e.
lögleg en lyfseðilsskyld lyf) s.s.
steralyfjum, róandi lyfjum og sterk-
um verkjalyfjum. Ofantaldar breyt-
ingar í lögum hjá Bretum taka gildi
í byrjun þessa árs. Nýju lögin koma
til með að heimila neyslu á efninu
meðal þeirra sem náð hafa 18 ára
aldri, svo sem ef neyslan fer fram
utan almennings á heimilum. Ólög-
legt teljist hins vegar athæfið, ef
höndlun efnisins fer fram utanhúss,
í nálægð barnaskólalóða, á kaffihús-
um, eða á þeim stöðum þar sem al-
menningur kemur saman. Ung-
menni undir 18 ára aldri fái
hinsvegar án nokkurra undan-
bragða þá sömu meðferð og tíðkast
hefur komist þau í kast við yfirvöld
vegna efnisins. Komið hefur fram í
könnunum að gríðarleg aukning á
neyslu hefur átt sér stað hjá bresk-
um ungmennum eftir að tilkynnt
var um fyrirhugaðar breytingar á
lögum. Þar eð ungmennin hafi mis-
skilið skilaboðin með því að álykta
að kannabisefnin séu sem næst
hættulaus. Samkvæmt nýjustu
könnunum er stígandi verðlækkun á
efninu á Bretlandseyjum 66 pund
fyrir únsuna af kannabisresin
(Ath.:1 únsa 28 gr). Stöðugt auknar
sannanir eru fyrir því að orsök bíl-
slysa megi rekja til ökumanna í
kannabisvímu. Helstu skýringar
stjórnvalda á ofangreindum breyt-
ingum á lögunum eru: að yfirvöld
eyði nú síauknum tíma og kröftum í
að eltast við kannabisefnin og neyt-
endur þeirra á kostnað sterkari efn-
anna. Við ofangreindar breytingar
geti yfirvöld því einbeitt sér í ríkari
mæli að öðrum hættulegri og sterk-
ari fíkniefnum.
ELÍAS KRISTJÁNSSON,
foreldri og áhugamaður
um fíkniefnaforvarnir,
Reykjanesbæ.
Kannabisefnin auka líkur á
andlegri vanheilsu ungmenna!
Frá Elíasi Kristjánssyni
EKKERT lát er á níðskrifum
dálkahöfunda blaðanna um hinn
æruverðuga janúarmánuð. Dag eft-
ir dag bölsótast þeir út skammdegið
og einhvern meintan kulda og ill-
viðri. Sömu dálkahöfundar sáu þó
ekkert sérstakt myrkur, kulda né
illviðri í desembermánuði. Þá sáu
þeir ekkert nema jólaglysið. Und-
irritaður er ekki bjartsýnn að eðl-
isfari og svokölluð „jákvæðni“ fer
óskaplega mikið í taugarnar á hon-
um. Nú getur hann þó ekki annað
en yfir sig hneyklast á öllum þess-
um óhróðri um hinn staðfasta og
hugrakka janúar sem ekkert hefur
til saka unnið. Hann er ekki einu
sinni illviðrasamasti mánuðurinn.
Það er hins vegar bróðir hans febr-
úar. Janúar er heldur ekki dimm-
asti mánuðurinn eins og vandræða-
gemlingurinn desember sem er
langleiðinlegasti mánuður ársins;
tilgerðarlegur, upphafinn og óþol-
andi góður með sig. Hann þykist
vera eitthvað spes og allir smjaðra
líka fyrir honum. Ef honum þóknast
að snjóa er það kallað „jólasnjór“
og margir eru óhuggandi ef þeir fá
ekki að brölta um í djúpum og ís-
köldum „jólasnjó“. Aftur á móti ef
janúar snjóar af hjartans lyst, eins
og er hans óbrotna eðli, fær hann
bara fúkyrði fyrir og grófar æru-
meiðingar. Samt lítur hann björtum
augum fram á veginn. Þegar des-
ember gengur í garð er næstum allt
skammdegið framundan. Það er
niðurdrepandi. Þegar janúar kemur
á sviðið er hins vegar aðeins eftir
einn mánuður af skammdeginu. Það
er uppörvandi í meira lagi.
Hvenær er annars skammdegið?
Þórbergur Þórðarson var með
ágæta skilgreiningu á því: Skamm-
degi er þegar sólin er á lofti einn
þriðja af þeim tíma sem hún er
lengst á lofti. Í Reykjavík er það
rétt rúmar sjö klukkustundir. Eftir
þessum kvarða hófst skammdegið
11. nóvember og það ríkir út jan-
úarmánuð. Og takið bara eftir því
hvað þessi afmörkun á skammdeg-
inu, sem auðvitað getur þó aldrei
orðið annað en svona hér um bil,
kemur vel heim og saman við ein-
hverja innri tilfinningu sem við höf-
um fyrir myrki og birtu.
Skammdegið á sínar björtu hlið-
ar. Skemmtilegasti dagur ársins er
til dæmis 7. janúar. Þá er búið að
taka til eftir jólasukkið og framtíðin
bíður hrein og óspjölluð með frá-
bærri stemmningu í ljósi og skugg-
um. Hafiði ekki tekið eftir því
glæsilega sjónarspili? Svo er líka
hægt að hefja hugann til stjarnanna
í stað þess að gösla sorann og
svínaríið. Til allrar óhamingju er sá
plebbalegi ósiður að ryðja sér til
rúms að láta jólaljósin lýsa langt
frameftir janúar eða lengur. Sumir
héraðshöfðingjar hvetja sveitunga
sína til að láta loga fram á vor. Með
þessu þykjast menn fæla burtu
skammdegið. En þetta er eins og að
hlæja á vitlausum stöðum í leikhús-
inu. Hátíð er hátíð vegna þess að
menn gera sér dagamun til að halda
upp á eitthvað. Allt verður þá líka
hátíðlegt. Jólaljós eftir að jólahá-
tíðin er búin og ekkert er lengur til
að halda upp á er hins vegar merk-
ingarlaus lágkúra. Miklu nær væri
að setja upp sterka ljóskastara eftir
nýár, til að mynda marglit sviðsljós
svo allir njóti sín nú virkilega vel.
Yfirleitt er veðrið í janúar skap-
legt hvað sem hver segir. Og ef
menn eru í sæmilegu skapi inni í
sér er hægt að dást að þeirri fjöl-
breytni sem blæbrigðarík skamm-
degisbirtan og blessað veðrið hefur
upp á að bjóða. Á þrettándanum
var Víkverji á Mogganum að
springa af spenningi yfir því hvort
þessi vetur myndi slá út síðasta vet-
ur í hita. Þetta er hið rétta jan-
úarhugarfar. Víkverji sagði að þetta
hitaspurmál væri miklu skemmti-
legra en Idol-keppnir og fegurð-
arsamkeppnir. Ég vil endilega bæta
við handbolta og stangarstökki. Í
veðrinu fjúka ýmiss konar met í
flestum mánuðum einhvers staðar á
landinu að ekki sé nú talað um alla
jörðina en um þau met má fræðast
á netinu. Síðasta ár var t.d. það
hlýjasta í sögu mælinga í Reykja-
vík. Og verður framhald á hlýind-
unum? Hitarnir sem lengi hafa ríkt
víða í veröldinni hafa að mestu látið
á sér standa á Íslandi. Síðustu ár
hafa verið nærri meðallagi en ekki
mikið meira en það, þrátt fyrir góða
einstaka mánuði. En svo kemur allt
í einu þetta risastökk, heilt stig eða
meira yfir meðallagi syðra. Þeir
stökkva ekki hærra Íslendingarnir
á Ólympíuleikunum. Hitabreytingar
koma stundum í stökkum og þegar
er að hlýna almennt verður stökk
númer tvö þá ennþá hærra en
fyrsta stökkið en þriðja stökkið
slær svo annað stökkið alveg út, að
ekki sé nú talað um fjórða stökkið.
Inni á milli er svo jafnara og sval-
ara. Þetta líkist dálítið því hvernig
vorið og sumarið kemur í nokkrum
stökkum. Við eigum því líklega
góða tíma í vændum.
Kætumst því meðan kostur er og
tökum næstu mánuðum og árum
með tilhlökkun!
SIGURÐUR ÞÓR GUÐ-
JÓNSSON,
Skúlagötu 68,
Reykjavík.
Til varnar janúarmánuði og
ýmislegt fleira uppbyggilegt
Frá Sigurði Þór Guðjónssyni
Nýbýlavegi 12 • 200 Kópavogi • Sími 554 4433
Opið virka daga 10-18, laugardaga 11-15
Föt fyrir
allar konur