Morgunblaðið - 08.02.2004, Page 61
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 8. FEBRÚAR 2004 61
DAGBÓK
STJÖRNUSPÁ
Frances Drake
VATNSBERI
Afmælisbörn dagsins:
Þú hefur tæknilega hæfi-
leika auk mikils næmis. Þú
ferð vandlega yfir hlutina
áður en þú fellir dóm og fyr-
ir vikið þykir þú forspár. Ef
þú treystir á sjálfa/n þig
mun árið nýtast vel.
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Venus er í merki þínu og
mun hjálpa þér að eiga sam-
skipti við aðra. Nú er ákjós-
anlegur tími til að til að ryðja
gömlum ágreiningi úr vegi.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Þú gætir þurft að annast ein-
hvern annan eða láta þínar
þarfir mæta afgangi vegna
þess að einhver þarf á hjálp
þinni að halda. Rétt er að
sinna kallinu.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Á næstu dögum er rétti tím-
inn til að huga að hópefli og
skemmta sér með vinum. Þú
munt njóta þín í hvers kyns
mannfagnaði.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Þótt þú kunnir að starfa við
annað er sennilegt að þú
verðir beðin/n um aðstoð við
listrænt verkefni af ein-
hverjum toga.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Nú er rétti tíminn til að fara í
ferðalag til að slappa af, þótt
það kunni að vera hægara
sagt en gert. Þú þarft á til-
breytingu að halda og gætir
orðið þér úti um hana á
heimaslóðum.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.)
Þú gætir átt von á búbót í
gegnum maka eða félaga.
Velgengni annarra gæti
komið sér vel fyrir þig.
Vog
(23. sept. - 22. okt.)
Þú átt erfitt með að sýna um-
hyggju þessa dagana og það
mun koma sér vel í um-
gengni við vini og þína nán-
ustu.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Allt sem snertir starfið mun
ganga betur nú en áður. Þú
munt eiga auðveldara með að
starfa með öðrum og þeir
með þér.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.)
Þú átt auðvelt með að ná
sambandi við börn og nú er
rétti tíminn fyrir leiki,
skemmtanir og frí. Aðrir
munu njóta samvista við þig.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Samskipti við foreldra og
fjölskyldu munu batna og þú
munt í þokkabót taka til
hendinni heimafyrir.
Vatnsberi
(20. jan. - 18. febr.)
Þú hefur sterka löngun til að
koma auga á fegurðina í um-
hverfi þínu og munt kunna
að meta listaverk sem dag-
lega ber fyrir augu.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Næstu vikurnar eru ákjósan-
legar til samninga um fjár-
mál. Þú hefur líka hug á að
bæta í fataskápinn og auga-
stað á listmunum.
Stjörnuspána á að lesa sem
dægradvöl. Spár af þessu tagi
eru ekki byggðar á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.
VÖGGULAG
Rokkið er úti,
og regnið á rúðunni streymir.
Hjá vöggunni þinni
eg vaki og veit, að þig dreymir.
Eg veit, að þig dreymir
í vöggunni þinni,
að nóttin sé harpa og Heimir
hræri auðmjúka strengi.
Dreymi þig
– dreymi þig lengi.
Kristinn Reyr
LJÓÐABROT
ÁRNAÐ HEILLA
BRÚÐKAUP. Gefin voru saman 12. júlí 2003 í Lágafells-
kirkju þau Rósa Viggósdóttir og Emil Magnússon.
Áfram heldur bridsprófið,
10 þrautir, þar sem mest eru
gefin 10 stig fyrir rétta
lausn. Í þetta sinn er lesand-
inn í austur í vörn gegn fjór-
um spöðum:
Þraut fimm:
Norður
♠1053
♥K8
♦DG32
♣D1095
Austur
♠64
♥ÁD65
♦74
♣ÁK862
Vestur Norður Austur Suður
– – – 1 spaði
Pass 2 spaðar Pass 4 spaðar
Pass Pass Pass
Það er út af fyrir sig
fræðilegt vandamál hvort
austur eigi að blanda sér í
sagnir við tveimur spöðum,
annaðhvort með dobli eða
þremur laufum, en hér hefur
hann tekið varfærna af-
stöðu. Ókosturinn við dobl
er sá að makker gæti svarað
með þremur tíglum, og lauf-
ið er heldur óþétt til að þola
innákomu á þriðja þrepi.
En allt er þetta málinu
óviðkomandi. Vandinn er að
hnekkja fjórum spöðum.
Það hefði verið ljúft að fá út
hjarta, en makker byrjar á
laufsjöunni, sem er ann-
aðhvort ein á ferð eða hærra
frá tvíspili.
Hvernig á að verjast?
– – –
Norður
♠1053
♥K8
♦DG32
♣D1095
Vestur Austur
♠D9 ♠64
♥G97432 ♥ÁD65
♦965 ♦74
♣74 ♣ÁK862
Suður
♠ÁKG872
♥10
♦ÁK108
♣G3
Lausn: Eitt vekur sér-
staka athygli: suður á ekkert
sérlega mikið af punktum
fyrir stökki sínu í fjóra
spaða. Sem bendir til að
hann sé að melda svolítið út
á góða skiptingu. Það má slá
því föstu að hann eigi ÁK í
tígli og ÁK í spaða a.m.k. Og
sennilega á hann tíu spil í
báðum litum, 5–5 eða 6–4. Ef
þetta er rétt ályktað þá fær
austur sennilega aldrei
nema einn slag á hjarta. En
til að byrja með ætti hann að
taka fyrsta slaginn á laufás,
ekki kóng, því ef makker á
eitt lauf er rétt að sýna styrk
í hjartanu. Síðan kemur
laufkóngur. Þegar makker
fylgir þar lit er örugglega
best að leggja niður hjartaás
áður en þriðja laufinu er
spilað. Þá er nóg að makker
eigi Dx í spaða eða Gxx.
Stig: Ofanrakin vörn: 10
stig. (Og líka fyrir KÁ í laufi,
hjartaás og lauf, þó ekki sé
það jafn nákvæmt.) Fyrir að
spila ÁK og áttu í laufi færðu
4 stig, en 3 fyrir KÁ og áttu.
Meira er ekki að hafa.
BRIDS
Guðmundur
Páll Arnarson
1. d4 d5 2. c4 c6 3. Rc3 Rf6 4.
Rf3 e6 5. e3 Rbd7 6. Dc2
Bd6 7. g4 dxc4 8. Bxc4 b6 9.
e4 Bb7 10. e5 c5 11. exf6
Bxf3 12. fxg7 Hg8 13. Dxh7
Rf6 14. Bb5+ Ke7 15. Bg5
Bf4 16. Dh3 Bxh1 17. Bxf4
Dxd4 18. Dg3 Re4
19. Dh4+ Df6 20. g5
Df5 21. O-O-O Had8
22. Hxd8 Kxd8 23.
Bd3 Hxg7 24. Rxe4
Hh7
Staðan kom upp á
alþjóðlegu móti sem
lauk fyrir skömmu í
Bermúda. Boris
Gelfand (2709) hafði
hvítt gegn Alexand-
er Shabalov (2623).
25. Bc7+! og svartur
gafst upp enda verð-
ur hann manni undir
eftir 25... Kxc7 26.
Dg3+ e5 27. Rf6. Lokastaða
mótsins varð þessi: 1. Giov-
anni Vescovi (2633) 7 vinn-
inga af 10 mögulegum 2.
Boris Gelfand (2709) 6½ v.
3. Sergei Movsesjan (2639)
6 v. 4. Viorel Iordachescu
(2634) 4 v. 5. Alexander
Shabalov (2623) 3½ v. 6.
Bartlomiej Macieja (2653) 3
v.
SKÁK
Umsjón Helgi Áss
Grétarsson
Hvítur á leik.
Glæsileg hús og íbúðir
Dollarinn mjög hagstæður
70-75% lán og lágir vextir
Upplýsingar í síma 4076283606
netfang: sigridreal@aol.com
Sími 698 1635.
Flórída - Flórída
MEÐ MORGUNKAFFINU
FRÉTTIR
NÍTJÁN ára piltur hefur verið
dæmdur í 12 mánaða fangelsi
fyrir þjófnað og fíkniefnalaga-
brot. Tveir aðrir menn, 20 og 22
ára, sem ákærðir voru í sama
máli, hlutu 30 daga og þriggja
mánaða fangelsi en refsing þeirra
var skilorðsbundin til þriggja
ára.
Tveir mannanna brutust inn í
íbúðarhúsnæði í Grafarvogi í apr-
íl í fyrra og stálu fartölvu að
verðmæti um 200.000 kr. og GPS-
tæki að verðmæti um 75.000 kr.
Sá er þyngstan dóminn hlaut
var einnig dæmdur fyrir fíkni-
efnalagabrot í málinu, en hann
reyndist hafa í vörslu sinni 8,85
grömm af amfetamíni á heimili
sínu er afskipti voru af honum
höfð daginn eftir framangreint
innbrot. Á hann langan sakarferil
að baki þrátt fyrir ungan aldur
og hefur ítrekað hlotið skilorðs-
dóma og ítrekað rofið skilorð.
Sakarferill þess er þriggja
mánaða dóminn hlaut er einnig
nokkur og var tekið tillit til þess
við ákvörðun refsingar, ásamt því
að hann braust inn í íbúðarhús og
framdi brot sitt í félagi við annan
mann. Jafnframt var horft til
þess að hann játaði brot sitt
greiðlega.
Sá er léttasta refsingu hlaut
var dæmdur fyrir hlutdeild í
þjófnaði með því að hafa veitt
hinum tveimur upplýsingar um
aðstæður og innbú í íbúðarhús-
næðinu sem þeir brutust inn í, en
greiða átti honum fyrir upplýs-
ingarnar með fíkniefnum.
Dóminn kvað upp Ingveldur
Einarsdóttir héraðsdómari.
Nítján ára
dæmdur í 12
mánaða fangelsi
FYRIRTÆKI TIL SÖLU
www.fyrirtaekjasala.is
FYRIRTÆKJASALA
ÍSLANDS
Síðumúla 15 • Sími 588 5160
Gunnar Jón Yngvason
lögg. fasteigna- og fyrirtækjasali
GENGI GJALDMIÐLA
mbl.is