Morgunblaðið - 08.02.2004, Side 66
66 SUNNUDAGUR 8. FEBRÚAR 2004 MORGUNBLAÐIÐ
Sýnd kl. 10.20. B.i. 14
Kvikmyndir.com
Tilnefning til
óskarsverðlauna1
Sannkölluð kvikmyndaperla í anda
Forrest Gump. Í leikstjórn Tim Burtons.
Sýnd kl. 5.45 og 8.Sýnd kl. 6, 8 og 10.10.
„Glæsilegt ævintýri. Hreinn
unaður frá upphafi til enda.“
Fréttablaðið
SV Mbl.
BILL MURRAY SCARLETT JOHANSSON
TILNEFND TIL GOLDEN GLOBE-VERÐLAUNA. M.A. SEM
BESTA MYNDIN OG BESTI AUKALEIKARI
MIÐAVERÐ
KR. 500.
FRUMSÝNING
FRUMSÝNING
ÓHT Rás2
Allir þurfa félagsskap
„Dýrmætt
hnossgæti“
EPÓ Kvikmyndir.com
Vann 3 Golden Globe
Besta gamanmynd
Besta handrit
Besti gamanleikari í aðalhlutverki
Ein athyglisverðasta mynd ársins
ann olden lobe
esta ga an ynd
esta handrit
esti ga anleikari í aðalhlutverki
Ein athyglisverðasta ynd ársins
Tilnefningar til
óskarsverðlauna
Besta mynd, besti leikstjóri, besta
handrit og besti leikari í aðalhlutverki
4
Sýnd kl. 2 og 4. Íslenskt tal
Sýnd kl. 2.
HUGSAÐU STÓRTMiðasala opnar kl. 13.30
EINI THX LÚXUSSALUR LANDSINS
Sýnd kl. 1.40, 3.45, 5.50 og 8.
Stórskemmtileg gamanmynd með
Brittany Murphy
(8 Mile og Just Married) sem fer
að passa ríka litla stelpu eftir að
hún stendur uppi
peningalaus. Með hinni
frábæru Dakotu Fanning.
Tilnefning til
óskarsverðlauna1
Sýnd kl. 10.15. B.i. 14 ára.Sýnd kl. 4 og 8. B.i. 12.
kl. 2, 6 OG 10
Yfir 90.000 gestir
TILNEFND TIL GOLDEN GLOBE-VERÐLAUNA. M.A. SEM
BESTA MYNDIN OG BESTI AUKALEIKARI
11 Tilnefningar til óskarsverðlauna
Kvikmyndir.com
ÓHT Rás2
Sýnd kl. 2.30, 5.20, 8 og 10.40.Sýnd kl. 3, 5.40, 8 og 10.20.
Sannkölluð kvikmyndaperla í anda
Forrest Gump. Í leikstjórn Tim Burtons.
„Glæsilegt ævintýri.
Hreinn unaður frá
upphafi til enda.“
Fréttablaðið
SV Mbl.
FRUMSÝNING
Sýnd kl. 2. Með ísl. tali.
Allir þurfa félagsskap
Vann 3 Golden Globe
Besta gamanmynd
Besta handrit
Besti gamanleikari í aðalhlutverki
Ein athyglisverðasta mynd ársins
ann olden lobe
esta ga an ynd
esta handrit
esti ga anleikari í aðalhlutverki
Ein athyglisverðasta ynd ársins
„Dýrmætt
hnossgæti“
EPÓ Kvikmyndir.com
Tilnefningar til
óskarsverðlauna
Besta mynd, besti leikstjóri, besta
handrit og besti leikari í aðalhlutverki4
Ekki er svo langt síðan svo virt-ist sem franskir tónlist-armenn væru í þann mundað leggja undir sig heiminn.
Etienne de Crecy / Motorbass, Kid
Loco, Alex Gopher, Les Rythmes Di-
gitales, Daft Punk, Cassius, Dimitri
from Paris og Air voru á allra vörum,
báru með sér nýjar hugmyndir, ljúfa
söngvæna raftónlist í bland við frum-
lega útúrsnúninga á tónlistarhefðum.
Hápunktur þessarar bylgju var und-
ir lok síðasta áraugar en eins og
hendi væri veifað var allt fallið í ljúfa
löð aftur, Frakkarnir eiginlega allir
horfnir.
Sú hljómsveit sem lengst náði í
frönsku raftónlistarbylgjunni var
Air, sem varð gríðarlega vinsæl þó
aldrei hafi hún náð hátt á vinsælda-
listum. Fyrsta breiðskífa sveit-
arinnar, Moon Safari, seldist þó mjög
vel en aðallega rataði tónlistin í sjón-
varp – auglýsingar og sjónvarps-
þætti. Hún var einhvern veginn
þannig, forvitnileg og skringileg án
þess þó að vera ögrandi og skrýtin.
Framhaldið var þó annað en menn
kannski bjuggust við.
Air-menn eru þeir Nicolas Godin
og Jean-Benoît Dunckel. Þeir hafa
verið vinir frá táningsaldri, kynntust
í skóla og stofnuðu saman hljómsveit
sem kallaðist Orange. Sú sveit náði
nokkurri hylli meðal raftónlistarvina
í Frakklandi en mætti litlum skiln-
ingi hjá plötufyrirtækjum svo þeir
gáfust upp á hljómsveitastússi um
tíma, Godin fór að læra arkitektúr en
Dunckel í kennaraskóla til að læra til
stærðfræðikennara.
Með fram náminu hélt Godin
áfram að semja tónlist og átti meðal
annars lag á safnplötu frá Virgin í
Frakklandi sem barst víða, meðal
annars í hendurnar á Mo’ Wax mönn-
um sem gáfu lagið út í Bretlandi. Um
það leyti voru þeir Godin og Dunckel
teknir að vinna saman aftur, nú undir
nafninu Air, og áhuginn í Bretlandi
og síðar í Bandaríkjunum varð til
þess að nú vildu allir gefa þá út.
Fyrsta skífan, áðurnefnd Moon Saf-
ari, kom svo út sumarið 1998.
Næsta verkefni Air-manna var að
gera tónlistina við kvikmynd Sophia
Coppola, The Virgin Suicides, sem
kom út tveimur árum á eftir Moon
Safari og var almennt vel tekið, dreg-
ur nokkuð dám af Moon Safari þó
hún sé frekar safn af hugmyndum og
hugdettum en heilsteypt plata, átti
heldur ekki að vera það og ekki að
vera næsta eiginlega plata á eftir
Moon Safari.
Byrjað upp á nýtt
Þegar kom að því að taka upp nýja
hljóðversplötu voru þeir félagar
orðnir leiðir á stemningunni á Moon
Safari, að því er þeir segja sjálfir.
Þeir gátu ekki hugsað sér að gera þá
plötu aftur, vildu gera eitthvað nýtt
og forvitnilegt og helst að byrja upp
á nýtt, ef svo má segja, gleyma öllu
sem þeir höfðu áður gert. Afrakst-
urinn varð 10,000 Hz Legend, kom út
2001, plata sem fáir kunnu að meta
og enn færri keyptu. Lítil sala á skíf-
unni var þeim eðlilega nokkurt áfall
og ekki síður sú yfirhalning sem þeir
fengu frá gagnrýnendum sem áður
máttu ekki vatni halda af hrifningu –
nú tættu þeir þá Godin og Dunckel í
sig og fundu þeim allt til foráttu.
„Okkur fannst 10,000 Hz Legend það
besta sem við höfðum gert fram að
því,“ segja þeir í dag: „Og okkur
finnst hún enn vera frábær plata.“
Eftir átökin við að kynna 10,000
Hz Legend tóku þeir félagar sér
stutt frí til að ná áttum, en komu sér
síðan af stað aftur á næstsíðasta ári,
eyddu árinu að mestu í hljóðveri sínu
í París, sömdu 40 lög. Átján þeirra
voru samin við skáldsögu ítalska rit-
höfundarins Alessandro Barrico og
nítján voru fyrir ballett eftir franska
danshöfundinn Angelin Preljocaj. Að
þeim verkum loknum tóku þeir svo
til við að búa til plötu fyrir sjálfa sig,
settu saman tíu lög til viðbótar og
kölluðu Talkie Walkie. Tvö laganna á
plötunni enduðu reyndar í kvik-
myndum, eitt, Alone In Kyoto, í
myndinni Glötuð þýðing eftir Sofia
Coppola, sem gerði einnig The Virg-
in Suicides, og hitt, Mike Mills, var
skrifað fyrir kvikmynd félaga þeirra
Mike Mills.
Eitt af því sem gerði Moon Safari
eins heilsteypta og hún vissulega er
var að þeir Godin og Dunckel unnu
hana nánast að öllu leyti sjálfir. Á
nýju skífunni eru þeir aftur einir á
ferð og syngja líka allt sjálfir. Að því
er þeir segja sjálfir varð tónleikaferð
vegna 10,000 Hz Legend til þess að
þeir ákváðu að syngja allt sjálfir,
enda þá búnir að syngja allt sem
þurfti að syngja á ríflega 100 tón-
leikum.
Rabblabb í stað labbrabb
Nafn plötunnar hefur orðið mörg-
um tilefni vangaveltna, en að sögn
Air-manna er það einmitt eins og
Frakkar kalla fyrirbærið, þ.e. rabb-
labb í stað labbrabb. „Það rímar við
það hvernig við búum til tónlist, snú-
um hlutunum við,“ sagði Godin í við-
tali fyrir skemmstu og bætti við að
þeir syngju á ensku vegna þess að
þeir væru ekki nógu góðir til að geta
slegið í gegn á frönsku.
Þeir segja plöturnar sýna þroska-
feril þeirra: Á Moon Safari kveðja
þeir sakleysi æskunnar, á 10,000 Hz
Legend glíma þeir við það að vera
miðaldra og á Talkie Walkie eru þeir
búnir að sættast við lífið, lognið á eft-
ir storminum – platan fjalli um ást-
ina; á henni sé allt það sagt sem þeir
þori ekki að segja upphátt við stúlk-
ur.
Tónlist á sunnudegi
Árni Matthíasson
Lognið á eftir
storminum
Franska hljómsveitin Air sló í gegn fyrir löngu
með forvitnilega og skringilega tónlist en hvarf
síðan sjónum manna um hríð. Nú snýr Air aftur
með plötu sem þykir á við það besta sem frá henni
hefur komið.