Morgunblaðið - 12.03.2004, Qupperneq 8
FRÉTTIR
8 FÖSTUDAGUR 12. MARS 2004 MORGUNBLAÐIÐ
Glasgow
Ferðatímabil: 1. apríl–15. júní og 20. ágúst–31. október.
Innifalið: Flug á áfangastað, bílaleigubíll í A flokki í 1 viku, flugvallarskattar og þjónustugjöld.
* M. v. 2 fullorðna og 2 börn í bíl í 1 viku. ** M. v. 2 fullorðna í bíl í 1 viku.
Ferðalag á bílaleigubíl um Skotland er ógleymanlegt
ævintýri fyrir alla fjölskylduna. Þar leggst allt á eitt,
náttúrufegurð, fjölbreytni í landslagi, heillandi
bæir og þorp, skemmtigarðar, kastalar, fornar
minjar, söfn og síðast en ekki síst gestrisnir
og vingjarnlegir Skotar.
5000 Ferðapunktar upp í pakkaferð
Handhöfum Vildarkorts VISA og Icelandair býðst að nota 5000 Ferðapunkta,
jafnvirði 5.000 kr., sem greiðslu upp í pakkaferðir Icelandair, ef bókað er fyrir 1. apríl.
Hafið samband við söluskrifstofur Icelandair eða við Fjarsölu Icelandair í síma 50 50 100
(svarað mánud.–föstud. kl. 8–18, laugard. kl. 9–17 og á sunnud. kl. 10–16).
VR orlofsávísun
Munið ferða-
ávísunina
Flug og bíll
út í heim
Verð frá 31.600 kr. á mann*
Verð frá 40.630 kr. á mann**
London – Flug og bíll – SAMA VERÐ
Ofangreind verðdæmi og skilmálar fyrir pakkaferðir með flugi og bíl
til Glasgow gilda einnig fyrir pakkaferðir með flugi og bíl til London.
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
IC
E
23
82
9
3/
20
04
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
IC
E
23
82
9
3/
20
04
Helgi minn, hefur þú eitthvað verið að stríða Bruce Bjarnason?
Málþing: Breytt samfélag – Breyttur skóli
Skólinn bregst
við breytingum
Skólamálaþing Kenn-arasambands Ís-lands 2004 verður
haldið á morgun, laugar-
daginn 13. mars, á Hótel
Loftleiðum í Reykjavík og
hefst kl. 9 árdegis. Önnur
ráðstefna um sama efni
verður haldin í Mennta-
skólanum á Akureyri laug-
ardaginn 20. mars. Morg-
unblaðið ræddi af þessu
tilefni við Kristínu Jóns-
dóttur, formann skóla-
málaráðs Kennarasam-
bands Íslands.
– Hver er tilurð þessa
þings, tilefni þess og til-
gangur?
„Kennarasamband Ís-
lands hefur meðal annars
það hlutverk að halda ráð-
stefnur eða þing um fagleg
málefni. Þingið nú er hið fyrsta
sem haldið er eftir að öll kenn-
arafélögin sameinuðust í einu
sambandi en áður höfðu félögin
sameinast um að halda uppeldis-
málaþing og skólamálaþing. Það
hefur verið venja að halda tvö
þing svo sem flestum félagsmönn-
um gefist kostur á að taka þátt í
þinghaldinu. Markmið með þing-
unum er að styrkja kennara fag-
lega og vekja athygli á nýjum
hugmyndum og því sem efst er á
baugi í skólamálum.“
– Hverjar verða helstu áherslur
á þinginu … hvaða spurningum
verður helst leitast við að svara?
„Eins og yfirskrift þingsins gef-
ur til kynna þá hefur samfélag
okkar breyst á undanförnum ár-
um, ekki síst með tilkomu alþjóða-
væðingar og fjölgun íbúa af er-
lendum uppruna. Aukin áhersla
er á einstaklingsmiðað nám og
fjölbreytta kennsluhætti. Skólinn
verður að bregðast við þessu
breytta samfélagi og á þinginu
munum við fá að heyra hvernig
hægt er að gera það og hvað verið
er að gera í ýmsum skólum.“
– Segðu okkur eitthvað frá dag-
skrá þingsins?
„Aðalfyrirlesari á þinginu verð-
ur Guðrún Pétursdóttir fé-
lagsfræðingur. Heiti fyrirlestrar-
ins er ,,Hvernig á að bregðast við
margbreytileikanum? Fjölmenn-
ingarleg menntun til góðs fyrir
alla nemendur.“ Guðrún er sér-
fræðingur í fjölmenningarlegri
kennslu og starfar hjá Inter Cult-
ural Iceland. Hún er höfundar
bókanna ,,Fjölmenningarleg
kennsla og ,,Allir geta eitthvað –
enginn getur allt.“
Guðrún hefur um árabil verið
samstarfsmaður Filippe Paelm-
ans og þekkir vel til verka hans.
Paelman starfar hjá stofnuninni
,,Center for Intercultural Educa-
tion“, sem tengist háskólanum í
Ghent í Belgíu. Hann er höfundur
námsefnis sem notað er með
CLIM-kennsluaðferðinni (Co-
operative Learning in Multicult-
ural Classes) en hún byggist á
hugmyndum um samvinnunám
eða samvirkt nám. Til stóð að Pa-
elmann yrði aðalfyrirlesari á
þinginu en hann for-
fallaðist á síðustu
stundu vegna veikinda.
Guðrún mun kynna
okkur þessa kennslu-
aðferð sem talin er
henta við kennslu allra nemenda.
Að loknum fyrirlestri Guðrúnar
fáum við kynningu á þróunar-
verkefnum sem unnin eru í ís-
lenskum skólum. Nína Magnús-
dóttir kennari kynnir þróunar-
verkefni í móttökudeild Austur-
bæjarskóla þar sem Filippe
Paelman hefur veitt ráðgjöf.
Fríða Jónsdóttir aðstoðarleik-
skólastjóri segir frá fjölmenning-
arlegu starfi í leikskólanum
Lækjaborg og Valdimar J. Hall-
dórsson mannfræðingur segir frá
nýbúabraut við Menntaskólann á
Ísafirði. Eftir hádegi flytur Ingi-
björg Hafstað fyrirlestur sem hún
nefnir ,,Hvenær skilur maður
mann? Mannleg samskipti þvert á
menningarheima.“ Ingibjörg
starfar sem forstjóri Fjölmenn-
ingar ehf. og hefur langa reynslu í
menntun og móttöku nýrra Ís-
lendinga. Jón Ingi Hannesson,
IB-stallari, segir frá IB-diplóma
námi í Menntaskólanum við
Hamrahlíð. Að lokum fjalla María
Pálmadóttir, formaður Kennara-
félags Reykjavíkur, og Elín Jón-
asdóttir sálfræðingur um hand-
leiðslu kennara, þ.e. hvernig
kennarar geta stutt hver annan í
starfi. Þess má geta að Náms-
gagnastofnun verður með sýn-
ingu á námsgögnum á skólamála-
þinginu. Geta má þess að
dagskrár þinganna beggja má
kynna sér á www.ki.is.“
– Er þetta lokað þing eða opið?
„Skólamálaþing er haldið fyrir
félagsmenn Kennarasambands
Íslands og opið öllum innan vé-
banda þess en einnig eru nokkrir
boðsgestir.“
– Áttu von á góðri þátttöku?
„Þátttaka á skólamálaþingum
er yfirleitt góð og margir hafa
skráð sig á þingið. Við væntum
einnig góðrar þátttöku á skóla-
málaþinginu á Akureyri en skrán-
ingu á það lýkur mánudaginn 15.
mars.“
– Verður þetta á einhvern hátt
stefnumarkandi fyrir skólastarf-
ið?
„Vonandi hefur þing-
ið áhrif á skólastarf í
landinu. Skólar og
kennarar á öllum
skólastigum hafa sýnt
það í gegnum árin að
þeir eru tilbúnir að taka upp ýmsa
nýbreytni sem ætluð er til góðs
fyrir nemendur skólanna þannig
að skólastarf verði öllum til góðs.
Á skólamálaþingunum er verið að
fjalla um ýmislegt sem gæti bætt
skólastarf í landinu.
Námskrá allra skólastiganna
gerir ráð fyrir að allir fái nám við
hæfi. Kannski er þarna komin ein
leið til að nálgast það markmið.“
Kristín Jónsdóttir
Kristín Jónsdóttir er fædd á
Húsavík 16. desember 1950.
Hún lauk kennaraprófi frá Kenn-
araskóla Íslands 1972 og námi
fyrir stjórnendur í starfsleikni-
námi í grunnskólum frá KHÍ
1987. Hún hefur verið kennari
við Breiðholtsskóla frá 1976.
Kristín er formaður skólamála-
ráðs Kennarasambands Íslands.
Hún er gift Ögmundi Guðmunds-
syni og eiga þau þrjú börn, Guð-
mund, Jón og Unni.
Vonandi hefur
þingið áhrif
á skólastarf
STEFNT er að því að Samfylkingin
flytji í nýtt framtíðarhúsnæði á 2.
hæð í Húsi iðnaðarins við Hallveig-
arstíg þar sem Útflutningsráð var
áður til húsa. Karl Th. Birgisson,
framkvæmdastjóri Samfylkingar-
innar, segir búið að undirrita kaup-
samning og stefnt sé að því að flytja í
nýja húsnæðið á sumardaginn
fyrsta.
„Þetta eru ákveðin tímamót í sögu
flokksins því nú er frumbýlingsárum
hans lokið. Þetta er mikið fagnaðar-
efni,“ segir Karl Th. Samfylkingin
hefur verið í leiguhúsnæði í Austur-
stræti 14. uppi á 5. hæð og segir Karl
Th. það auðvitað ekki vera mjög að-
gengilegt félagshúsnæði.
Hæðin sem Samfylkingin hefur
keypt í Húsi iðnaðarins er rúmlega
400 fermetrar. Auk skrifstofa flokks-
ins munu Ungir jafnaðarmenn fá að-
stöðu í nýja húsnæðinu, félagið í
Reykjavík verða þar og formaður
flokksins en auk þess verður þar
fundaraðstaða sem Karl Th. segir
flokkinn hafa sárlega skort.
Góð aðstaða til funda
„Þarna verður aðstaða bæði til lít-
illa og stærri funda. Húsnæðið sem
við höfum verið í hefur varla verið
boðlegt fyrir svona samtök og að-
gengið ekki nógu gott. Við Hallveig-
arstíg eru hins vegar næg bílastæði.
Þetta er alger bylting.“
Samfylkingin flytur í eigið
húsnæði við Hallveigarstíg