Morgunblaðið - 12.03.2004, Qupperneq 21
ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 12. MARS 2004 21
Skeifan 2 - 108 Reykjavík - S. 530 5900
poulsen@poulsen.is - www.poulsen.is
Vidvörunarljós
og þú eignast bílinn
ÍRSKA stjórnin, sem fer með for-
mennsku í Evrópusambandinu
(ESB) þetta misserið, varaði við því
á miðvikudag að
lítill tími væri eft-
ir til stefnu til að
ganga frá sam-
komulagi um nýj-
an stjórnarskrár-
sáttmála sam-
bandsins, en góðu
fréttirnar væru
þær að teikn
væru á lofti um að
málamiðlun kynni
að vera í sjónmáli.
Dick Roche, Evrópumálaráðherra
Írlands, sagði að nú, þegar tveggja
ára viðræður um stjórnarskrársátt-
málann væru að baki, tryði hann því
ekki að auðveldara reyndist að finna
lausnir þeim ágreiningsefnum sem
efti stæðu með því að láta tímann líða
frekar.
Pattstaða
„Tíminn vinnur ekki með okkur.
Við verðum að ná samkomulagi eins
fljótt og okkur er það auðið,“ sagði
Roche í ávarpi í Evrópuþinginu í
Strassborg og varaði við þeim „hætt-
um sem sambandinu stafaði af
áframhaldandi pattstöðu.“
Til stendur að írska ESB-for-
mennskan leggi fram nýja málamiðl-
unartillögu um stjórnarskrársátt-
málann á leiðtogafundi sambandsins
25.–26. þessa mánaðar. En eftir því
sem írskur stjórnarerindreki tjáði
AFP-fréttastofunni hefur stjórnin
ekki séð sér fært enn sem komið er
að leggja ný samkomulagsdrög fyrir
ríkisstjórnir hinna ESB-landanna.
En Bertie Ahern, forsætisráð-
herra Írlands, virtist bjartsýnni eftir
fund með dönskum starfsbróður sín-
um Anders Fogh Rasmussen í Dyfl-
inni á miðvikudag. Sagði Ahern að
vísbendingar um vilja í hinum ESB-
höfuðborgunum til að sýna aukinn
sveigjanleika ykju sér bjartsýni á að
reynast myndi unnt að ná góðum
framförum í málinu, og það fljótt.
Ahern tók þó fram að enn væri og
snemmt að segja til um það hvort
takast myndi að ljúka ríkjaráðstefn-
unni um stjórnarskrársáttmálann í
formennskutíð Íra, sem lýkur um
mitt árið.
Drög að stjórnarskrársáttmálan-
um, sem felur í sér víðtæka upp-
færslu núgildandi stofnsáttmála
ESB, voru unnin á svonefndri Fram-
tíðarráðstefnu með þátttöku fulltrúa
frá öllum núverandi og tilvonandi að-
ildarríkjum sambandsins. Frá því
síðastliðið haust hafa þessi drög ver-
ið til umfjöllunar á hefðbundinni
ríkjaráðstefnu (eins og þeirri sem
t.d. tók ákvörðun um Maastricht-
sáttmálann svonefnda árið 1992) en
vonir brugðust um samkomulag á
leiðtogafundi í desember. Strandaði
á ágreiningi um atkvæðavægi aðild-
arríkjanna í breyttu ákvarðanatöku-
kerfi í stækkuðu Evrópusambandi.
Aðildarríkjunum fjölgar úr 15 í 25 1.
maí næstkomandi.
Tíminn vinnur ekki
með stjórnarskrá ESB
Strassborg. AFP.
Bertie Ahern
TVEIR stærstu stjórnarandstöðu-
flokkarnir í Suður-Kóreu reyna nú
að knýja fram atkvæðagreiðslu á
þinginu um hvort svipta eigi forseta
landsins, Roh Moo-Hyun, embætt-
inu. Stjórnmála-
skýrendur segja
að meginmark-
mið stjórnarand-
stöðuflokkanna
sé að styrkja
stöðu sína fyrir
þingkosingar í
apríl þar sem þeir
hafi átt mjög und-
ir högg að sækja.
Stærsti stjórn-
arandstöðuflokkurinn, Þjóðarflokk-
urinn, er með meirihluta á þinginu,
145 þingmenn af 271. Hann og Lýð-
ræðisflokkurinn, sem er með 62
þingmenn, hafa lagt fram tillögu á
þinginu um að forsetanum verði vik-
ið frá og búist er við að þingið greiði
atkvæði um tillöguna í dag. Roh er
sakaður um að hafa brotið kosninga-
löggjöfina með því að hvetja til mik-
illar kjörsóknar til að tryggja Uri-
flokknum, sem styður Roh, sigur í
kosningunum 15. apríl. Forsetinn á
að vera hlutlaus í þingkosningum.
Verði tillagan samþykkt með
a.m.k. 181 atkvæði þarf Roh að láta
strax af embætti þar til stjórnlaga-
dómstóll landsins hefur fjallað um
málið. Dómstóllinn þarf að staðfesta
eða hnekkja embættissviptingunni
innan hálfs árs.
Sakaðir um spillingu
Báðir stjórnarandstöðuflokkarnir
eru svarnir óvinir forsetans en máls-
höfðunartillagan stafar einkum af
vandamálum þeirra sjálfra, að sögn
stjórnmálaskýrenda. Tugir þing-
manna Þjóðarflokksins hafa verið
sakaðir um að hafa þegið fé af suður-
kóreskum stórfyrirtækjum.
Roh var í Lýðræðisflokknum en
sagði sig úr honum í september sl.
Síðan hefur fylgi þess flokks snar-
minnkað en Uri-flokksins aukist.
Suður-Kórea
Reynt að
svipta Roh
forseta-
embættinu
Seoul. AFP.
Roh Moo-hyun