Morgunblaðið - 12.03.2004, Side 26

Morgunblaðið - 12.03.2004, Side 26
AUSTURLAND 26 FÖSTUDAGUR 12. MARS 2004 MORGUNBLAÐIÐ Vopnafjörður | Nokkrir víðsýnir einstaklingar og Vopnafjarð- arhreppur hafa tvö síðustu sumur stundað tilraunir með að veiða þorsk í botnlægar eldisgildrur innst í Vopnafirði og ala hann þar áfram í heppilega sláturstærð. Guðmundur W. Stefánsson hjá Vopnfiski ehf. hefur umsjón með verkefninu og segir hann að eldið lofi góðu þrátt fyrir að það hafið ekki skilað eins miklu í fyrrasumar og menn vonuðust til. Guðmundur segir að verið sé að þróa gildrurnar betur, því komið hafi ljós að þær þurfi að styrkja til að þola betur sjógang. Eins munu menn vera að skoða ýmis atriði sem varða veiðitæknina. Fyrirhugað er að vera með fimm til sex kvíar í sjó í sumar og er von- ast til að hver þeirra gefi af sér um átta tonn af þorski. Guðmundur segir því menn vera bjartsýna á framhaldið. Búið er að fá starfsleyfi, kvóta og fjármagn fyrir sumarið og heldur því þróunarvinnan áfram í sumar. Vopnfiskur hefur leyfi fyrir allt að 20 kvíum og 180 tonna ársfram- leiðslu. Morgunblaðið/Jón Sigurðarson Bjartsýnir á þorskeldið: Guð- mundur W. Stefánsson og Gísli Arn- ar Gíslason vinna að áframeldi hjá Vopnfiski í Vopnafirði. Vopnfirðingar í áframeldi á þorski Neskaupstaður | Snjóleysi hefur verulega háð notkun á skíðasvæð- inu í Oddsskarði, milli Eskifjarðar og Norðfjarðar, það sem af er þess- um vetri. Stóra lyftan svokallaða, sem flytur skíðaþyrsta í aðalbrekk- urnar, hefur einungis verið opin sex sinnum en sólskinsbrautin svo- kallaða, sem er fyrst og fremst barna- og byrjendabraut, hefur verið opin aðeins oftar. Þetta er annar veturinn í röð sem snjóleysi háir mjög nýtingu á svæð- inu. Skíðaiðkendur eru vonum aumir yfir ástandinu og börn og unglingar sem stunda skíðaæf- ingar, hafa þurft að fara annað til að sinna íþrótt sinni. Aðspurður um mögulegar úrbæt- ur á skíðasvæðinu til þess að auka nýtinguna, sagði Rúnar Jóhanns- son, forstöðumaður skíðamiðstöðv- arinnar í Oddsskarði, að ekki hefði slíkt komið til tals. Ekki virðast íbúar í Fjarðabyggð bjartsýnir á að úr rætist á þessum vetri, en í könnun á heimasíðu sveitarfélagsins telur ríflega helm- ingur svarenda að skíðavertíðinni í Oddsskarði sé lokið. Afleitri skíðaver- tíð lokið? Morgunblaðið/Kristín Ágústsdóttir Í Oddsskarði: Snjóleysi veldur vonbrigðum meðal skíðaiðkenda og ung- lingar sem stunda æfingar hafa þurft að fara annað til að sinna íþróttinni. Leikskóladeild | Fundin hefur ver- ið bráðabirgðalausn á húsnæð- isvanda leikskólans í Neskaupstað. Hefur fræðslunefnd Fjarðabyggð- ar samþykkt að koma á stofn leik- skóladeild á Kirkjumel í Norðfjarð- arsveit og verður elsta deild leikskólans þar til húsa uns varanleg lausn á málefnum leikskólans er fundin. Stefnt er að því að deildin verði tilbúin í vor. Skaftfell | Sólveig Alda Halldórs- dóttir hefur verið ráðin for- stöðumaður Menningarmiðstöðv- arinnar Skaftfells á Seyðisfirði. Átta manns sóttu um starfið. Sólveig er myndlistarmaður og lauk námi við Listaháskóla Íslands sl. vor. Hún starfaði hjá Skaftfelli sl. ár að ýmsum verkefnum en tek- ur nú til við að skipuleggja sýning- arhald og viðburði í Skaftfelli, auk þess að sjá um daglegan rekstur þess.    1 w w w. g u l VORIÐ ER Vertu vel upplýstur með ljósum frá Ljósbæ Faxafeni 14 s. 568 0850 Fyrir páska og fermingar 50% afsláttur PERLU: JAKKAR, SJÖL TOPPAR og BRJÓSTAHÖLD Mikið úrval fermingargjafa Sigurstjarna Bláu húsin v/Faxafen s. 588 4545 Kárahnjúkavirkjun | Útlit er fyrir að risaborvél- in sem flutt var inn frá Bandaríkjunum seint á síðasta ári og flutt í Kárahnjúka, verði gangsett í mánaðarlok. Unnið hefur verið að samsetningu borsins frá í desember og er unnið í sérstakri upphitaðri skemmu við aðgöng þrjú. Samsetningin mun vera nokkuð flókin og hefur hópur manna unnið að henni þessar vikur. Borvélasamstæðan er alls um 130 tonn að þyngd og var stærsta einstaka stykkið 75 tonn. Samstæðan var flutt í hlutum frá höfninni í Reyðarfirði upp í Glúmsstaðadal og verður notuð í heilborun aðganga þrjú og síðar aðrennsl- isganga í áttina að Fremri Kárahnjúk, en þau verða alls 40 km löng og ríflega 7 metrar í þver- mál. Í samstæðunni eru bæði verkstæði og matsal- ur og fylgist stjórnandi borsins með allri vinnslu samstæðunnar á tölvuskjám úr stýrieiningu. Lengd samstæðunnar er um 120 metrar og á hún að geta brotið sér 24 metra vegalengd á sól- arhring. Allt efni flyst aftur úr henni og áfram út göngin að sérstöku haugstæði eftir færiböndum. 50 km heilborun Borsamstæðan var tekin í sundur eftir heil- borun jarðganga fyrir hraðbraut undir Queens- hverfinu í New York og sett í skip í Cleveland til flutnings upp til Íslands. Tvær borvélasamstæður til viðbótar eru vænt- anlegar til landsins á næstu vikum, önnur í lok mars og hin að áliðnum aprílmánuði. Fyrri sam- stæðan verður notuð við aðgöng tvö hjá Axará en sú síðari fer í aðgöng eitt á Valþjófsstað- arfjalli í Fljótsdal. Risaborarnir þrír eiga að heil- bora 50 km af þeim 72 km sem jarðgangakerfi Kárahnjúkavirkjunar nemur. Auk aðrennsl- isganganna frá Kárahnjúkastíflu að Fljótsdal á að heilbora 10 km vegalengd af ríflega 13 km löngum aðrennslisgöngum úr svokölluðu Ufs- arárlóni. Heilborun að hefjast Morgunblaðið/Þorkell Risabor: Borhausinn einn og sér er mikill um sig. Verið er að ljúka við samsetningu borsins við Kárahnjúka. Tvær borvélasamstæður til viðbót- ar eru væntanlegar til landsins á næstu vikum.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.