Morgunblaðið - 12.03.2004, Qupperneq 28

Morgunblaðið - 12.03.2004, Qupperneq 28
28 FÖSTUDAGUR 12. MARS 2004 MORGUNBLAÐIÐ Grétar Guðmundsson æfði sund og frjálsar sem barn og unglingur. Mörgum árum síðar var hann kominn í kyrrsetu- vinnu og var hættur að geta hreyft sig að vild vegna verkja í ökklum og hnjám. “Ég var nánast hættur að geta hreyft mig fyrir verkjum, sat bara orðið fastur„ segir Grétar. „Mér var ráðlagt að prófa Lið-Aktín og þegar ég var búinn að nota það í mánuð gat ég aftur farið að hreyfa mig eðlilega. Tveim mánuðum síðar fór ég að keppa í aflraunum og hef núna 2 ár í röð verið í þriðja sæti í keppninni Sterkasti maður Íslands“ „Ég ráðlegg öllum sem eru slæmir í liðum að nota Lið-Aktín. –Það virkar!“ Lið-Aktín kom mér í verðlaunasæti Himnesk steik; mjúk ogbragðgóð var umsögnungs manns sem fórmeð fjölskyldunni út að borða á Grillinu á Hótel Sögu um daginn. Sósan var að hans mati sér- lega ljúffeng, en hvorki var í henni hveiti né smjör. „Hún var þynnri og er eflaust mun hollari en þetta danska sósugutl sem maður er van- ur,“ sagði hann. Blaðamaður hringdi um- svifalaust í Bjarna Gunnar Krist- insson, yfirkokk á Grillinu, og spurði hann um galdurinn. „Sumum viðskiptavinum finnst steik þung í magann, en langar samt í hana. Sumir sögðu að steikin yrði eins og steinn í maganum, þannig að við ákváðum að beita aðferðum til að létta máltíðina,“ segir Bjarni Gunn- ar. Aðferðin fólst í því að nota nauta- lund, humar og uxahala af nautinu í léttum vökva. „Kjöt með fiskívafi getur átt vel saman, það er fínn millivegur,“ segir hann. Sósan með þessu er líka vel upp byggð. Hún er grænmetissoð. „Grænmeti er hitað í potti, vatni hellt á það og það látið liggja í sól- arhring til að ná næringunni og ferskleikanum í grænmetinu út í vatnið, sem svo er notað í sósu með fleiru,“ segir hann. „Þetta er í raun léttur réttur, byggður upp í hátíðar-galastíl og upplagt að fá sér ef fólk ætlar að kíkja á lífið,“ segir Bjarni Gunnar og segist hafa fengið mjög góð við- brögð við þessum rétti sem byggð- ur er á frönskum grunni.  EFTIRLÆTISRÉTTUR|Mjúk og bragðgóð steik á Grillinu á Hótel Sögu Morgunblaðið/Árni Sæberg „Sumum fannst steikin of þung í magann þannig að við fundum milliveg- inn,“ segir Bjarni Gunnar. guhe@mbl.is BJARNI Gunnar Kristinsson yfir- matreiðslumaður á Grillinu gefur lesendum Morgunblaðsins uppskrift að nautalundum í humarhjúp með uxahala. Hún er fyrir 4. Hráefnið er: Nautalund og humar 600 g 4x 150 g nautalund 100 g humar Aðferð: Nautalundin er skorinn langsum og í fjóra bita og lögð á plastfilmu með humarfarsi, kryddað með salti og pipar, plastfilmunni er rúllað upp og bundið fyrir báða enda. Nautalundin er lögð í 80°C heitt vatn í 10 mín og látinn standa í 5 mín. við stofuhita, tekin úr filmunni og skorin í tvennt. Humarinn er best að sjóða í sós- unni rétt fyrir framreiðslu. Humarfars 100 g humar 1 eggjahvíta 50 ml rjómi Aðferð: Allt sett í mat- vinnsluvél og látið saxast í 1 mín. Kryddað með salti. Uxahalar 2 stk uxahalar 2 gulrætur skornar í teninga 2 laukar 1stk fennel 300 ml rauðvín 500 ml Nage (grænmetissoð) Blandaður grænmetisafskurður steiktur og soðinn í vatni, í 30 mín. og látið standa yfir nótt í vökvanum. Aðferð: Uxahalarnir eru fituhreinsaðir og brúnaðir í potti, grænmetinu er bætt í, og síðan rauðvíni og grænmetis- soði. Sett inn í ofn við 150°C í 2 tíma (með álpappír yfir). Þegar kjötið er klárt er það rifið af beinunum og sett aftur út í vökvann. Kryddað til með salti og pipar. Rauðvínssósa 20 g laukur 2 g garðablóðberg 10 ml ólífuolía 200 ml rauðvín 200 ml nautasoð (vökvinn af uxahölunum) 100 ml Nage (grænmetissoð) Blandaður grænmetisafskurður steiktur og soðinn í vatni í 30 mín. og látinn standa yfir nótt í vökvanum. (20 g smjör eða ólífuolía, má sleppa) Aðferð: Laukurinn er léttsteiktur í ólífu- olíunni og rauðvíni bætt í, rauðvínið er soðið niður um helming, svo er soðinu af uxahölunum og grænmet- issoði bætt saman við. Sósan er látin sjóða niður um helming og krydduð til með salti og smá smjörklípu ef fólk vill. Borið fram með góðum kartöflum og grænmeti. Nautalundir í humarhjúp með uxahala Nautasteikin vafin í humarinn á Grillinu. Þremur vikum eftir fæð-ingu ákvað ég að fara íverslunarleiðangur ogkaupa mér eitthvað af nýjum fötum. Enn var ég ekki far- in að komast í nema kannski 10% af gömlu fötunum. Allt í skápunum samanstóð af óléttufötum annars vegar en of þröng- um fötum hins vegar. Þetta þýddi að alvarlegt fataástand var að skap- ast og ég ákvað því að plata mömmu með mér í Smára- lind. Mér leið eins og í út- löndum. Arkandi inn í hverja búð- ina á fætur annarri, skoðandi hverja flík og alveg ákveðin í að koma hlaðin pokum heim. Við eyddum heilum degi og skemmt- um okkur vel. Það eina skrýtna var að þú varst ekki með. Reynd- ar hringdi ég í pabba þinn og stakk uppá að ég kæmi aftur heim með bílinn, hann gæti skutlað okkur í Smáralindina og ég tæki þig bara með mér. Óþarfi að þú sért bíllaus heima sagði ég. Mamma sagði ja, reyndar getur hann alveg tekið hana með, þau gætu þess vegna farið á rúntinn eða eitthvað, hún má nú alveg fara út… Ég setti upp skrýtinn svip. Auðvitað snerist símtalið ekki um hvort pabbi þinn væri bíl- laus, heldur fyrst og fremst þörf mína að hafa þig alltaf hjá mér! Nei, nei, þetta er nú alveg í góðu lagi, svaraði pabbi þinn, vænt- anlega eitthvað hissa á þessari skyndilegu bíla-umhyggju minni. Hún er bara sofandi og ég er að- eins að taka til. Við héldum því áfram að kíkja í búðir, mamma og ég. Langaði í gallabuxur Mig langaði í gallabuxur og skoðaði þær í öllum búðum sem ég rak nefið inn í. Það versta var að allar gallabuxur í dag eru með mittissniði, sem auðvitað henta mér ekki alveg í augnablikinu. En af þrjósku hélt ég nú áfram að skoða og í einni búðinni rákumst við á úrval af gallabuxum. Nei, þessar henta mér nú kannski ekki al- veg sagði ég við af- greiðslustúlkuna þar sem hún hvatti mig til að máta eina tegundina. Ég nefni- lega er bara rétt að jafna mig eft- ir barnsburð bætti ég við til að út- skýra hvers vegna mittisbuxurnar sem hún hélt á kæmu ekki til greina. Við héldum áfram að skoða og eftir smá stund sagði af- greiðslustúlkan hefurðu heyrt um Thyme Iternity-búðina? Já, svar- aði ég hálf glottandi. Auðvitað hlaut ég að þekkja þá búð, nýbúin að ganga í gegnum meðgöngu. Já, ég hef nefnilega heyrt að þær séu ekki bara með óléttuföt heldur einnig smart föt fyrir feitar kon- ur… Þögn. Feitar konur?! Var ég komin í hóp feitra kvenna? Je- minn einasti, hugsaði ég og mældi ungu afgreiðslukonuna út. Hvers konar óþroski er þetta að benda konu sem er nýbúin að eignast barn á að fara að versla í búð fyr- ir feitar konur?  DAGBÓK MÓÐUR Meira á morgun. Á engin föt sem passa Galdurinn var að létta máltíðina DAGLEGT LÍF
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.