Morgunblaðið - 12.03.2004, Side 32
32 FÖSTUDAGUR 12. MARS 2004 MORGUNBLAÐIÐ
Hallgrímur B. Geirsson.
Styrmir Gunnarsson.
Framkvæmdastjóri:
Ritstjóri:
STOFNAÐ 1913
Útgefandi: Árvakur hf., Reykjavík.
Aðstoðarritstjórar:
Karl Blöndal, Ólafur Þ. Stephensen.
Fréttaritstjóri:
Björn Vignir Sigurpálsson.
Heldur dauflegri kosninga-baráttu lauk í gær áSpáni þegar höfuðborg-in, Madríd, varð skyndi-
lega blóði drifinn vígvöllur hryllings
og eyðileggingar í mannskæðasta
hryðjuverki síðari tíma í Evrópu. Al-
gjör ringulreið ríkti og þjóðin var
sem lömuð en leiðtogar stjórnmála-
flokka lýstu yfir því að þeir hefðu
ákveðið að fresta frekari baráttu
fyrir þingkosningarnar á sunnudag.
Á Spáni eru ráðamenn ekki í nokkr-
um vafa um að hryðjuverkasamtök-
in ETA, sem berjast fyrir stofnun
sjálfstæðs ríkis Baska í norðurhluta
landsins, hafi verið að verki; morð-
sveitirnar hafi afráðið að ráðast að
sjálfu hjarta lýðræðisins í því skyni
að hafa áhrif á niðurstöðu kosning-
anna og minna á að ósveigjanleika
stjórnvalda í baráttunni gegn her-
skáum þjóðernissinnum verði svar-
að með enn meiri eyðileggingu og
dauða.
Ólýsanlegt áfall
Því áfalli sem spænska þjóðin
varð fyrir í gærmorgun þegar
hryðjuverkamenn sprengdu
sprengjur á þremur lestarstöðvum í
Madríd og myrtu rúmlega 190
manns verður ekki með orðum lýst.
Hryðjuverkamenn hafa látið til sín
taka á Spáni í meira en 30 ár og oft
hafa þeir framið viðurstyggileg
glæpaverk. Við það ástand mála
hafa menn lært að lifa enda valkostir
engir aðrir í þeirri stöðu. Almenn-
ingur hefur upp til hópa skynjað
baráttu hryðjuverkamanna ETA á
þann veg að hún feli í sér hættu en sé
tæpast raunveruleg ógnun við frels-
ið og lýðræðið á Spáni, lýðræði sem
þrátt fyrir góðan þroska er aðeins
tæplega 30 ára gamalt. En ógnin
hefur nú náð öðru og enn skelfilegra
stigi ef svo má að orði komast.
Fjöldamorð í höfuðborg evrópsks
lýðræðisríkis sem framið er í nafni
þjóðernishyggju og „frelsisbaráttu“
er atburður sem aldrei gleymist í
sögu viðkomandi þjóðar.
Árásin í Madríd í gær felur í sér
algjör þáttaskil í „hryðjuverkastríð-
inu“ á Spáni og mun án nokkurs vafa
reynast mótandi viðburður í stjórn-
málum landsmanna næstu ár ef ekki
áratugi.
Ný herfræði ETA?
Því er ekki að neita að nokkuð
kemur á óvart að ETA skuli hafa af-
ráðið að láta til sín taka með svo yf-
irgengilegum hætti fyrir kosning-
arnar. Bæði er umfang árásarinnar
allt annað og meira en þau hryðju-
verk sem samtökin hafa áður geng-
ist fyrir á Spáni og eins hefur það
verið hald manna að hreyfingin væri
ekki jafn öflug og áður. Miðað við
það sem áður var hefur heldur lítið
farið fyrir ETA á undanliðnum árum
og fjölmargir félagar í samtökunum
hafa verið handteknir.
Vissulega er hugsanlegt að klofn-
ingur hafi myndast innan samtak-
anna eða að yfirstjórn þeirra hafi á
einhvern veg misst stjórn á hryðju-
verkahópum þeim sem haldið er úti
víða um Spán. Ef til vill má túlka
fjöldamorðið í Madríd sem birting-
armynd örvæntingar í röðum at-
vinnuhryðjuverkamanna og morð-
ingja sem geri sér ljóst að samtök
þeirra séu á fallanda fæti.
En „skýringar“ þessar eru ekki
sérlega sannfærandi. Hafi ETA ver-
ið að verki í gær, sem ekki skal dreg-
ið í efa í ljósi eindreginna yfirlýsinga
spænskra ráðamanna, er líklegast
að samtökin hafi, af einhverjum
ástæðum, afráðið að taka upp aðrar
og enn hroðalegri aðferðir í baráttu
sinni.
Eðlilegt hlýtur engu að síður að
teljast að grunsemdir vakni um að
erlendir hryðjuverkamenn hafi stað-
ið fyrir fjöldamorðinu í Madríd í
gærmorgun eða komið nærri skipu-
lagningu þess. Í því viðfangi hljóta
menn að rifja upp að spænska rík-
isstjórnin hefur staðið þétt við bakið
á George W. Bush Bandaríkjafor-
seta í Íraks-málinu og í stríðinu
hnattræna gegn hryðjuverkaógn-
inni sem hann lýsti yfir eftir árás-
irnar 11. september 2001.
En hryðjuverkamenn nærast á
óvissu. Þess varð ekki vart á Spáni í
gær að ráðamenn efuðust um
ábyrgð ETA á hryllingnum í Madríd
þótt óljósar fregnir í gærkvöldi
hermdu að hugsanlega væri „ísl-
ömsk tenging“ komin fram.
Menningarleg endurreisn
í Baskalandi
Ekki verður hjá því komist að
freista þess að setja þennan atburð í
samhengi við stjórnmál á
kosningarnar sem þar fara
næstu helgi. Hvaða „hugsu
orð verður víst vart notað, e
þessu glæpaverki, sem ET
uð um? Þess skal freistað
henni í stuttu máli og einföl
ETA er skammstöfun fy
adi Ta Azkatasuna sem
„Heimaland og frelsi Bask
þeirra. Hópurinn kom fra
unda áratugnum og var þ
hreyfing námsmanna sem
gegn kúgunarstjórn einræ
ans Francisco Franco.
hafa drepið rúmlega 800
síðustu 30 árum.
Stuðningur við sjálfstæð
í Baskalandi. Valdaflokku
PNV, sem hefur verið r
stjórnmálunum frá 1980 h
hins vegar að ofbeldi sé b
ná því marki. Lýðræðið he
reynst Böskum vel; þegar
isstjórn Francisco Franco l
lok við dauða hans haustið
Einræði óg
Árás hryðjuverkamanna á óbreytta borgara í Madríd var fordæm
aðist fólk saman til að lýsa yfir andstyggð sinni á verknaðinum o
grunuð eru um hann. Á Puerta del Sol-torgi í Madríd lýsti þessi k
José María Aznar, forsæti
baki hans er spænski fánin
Fréttaskýring|Madríd
varð í gær blóðvöllur
hryðjuverkaárásar af
áður óþekktri stærð-
argráðu á síðari
tímum í Evrópu.
Ásgeir Sverrisson velt-
ir fyrir sér pólitískum
áhrifum árásarinnar og
segir frá hryðjuverka-
ógninni á Spáni.
’Í ljósi sögunnar erumfang og skipulag
ódæðisins með þeim
hætti að furðu vek-
ur að ETA-hreyf-
ingin skuli hafa
skipulagt slíka árás
og reynst fær um að
hrinda henni í
framkvæmd.‘
TILRÆÐI VIÐ LÝÐRÆÐIÐ
Heimsbyggðin er harmi slegineftir hryðjuverkin á Spáni ígær. Talið er að um 190
manns hafi látið lífið og rúmlega
1.200 manns særst í tíu sprenging-
um á þremur lestarstöðvum í Madr-
íd þegar umferðarþunginn var hvað
mestur í gærmorgun og sem flestir á
leið til vinnu. Þetta er mannskæð-
asta hryðjuverk, sem framið hefur
verið í sögu Spánar. Sprengjurnar
voru sprengdar með nokkurra mín-
útna og augljóst var að hryðjuverka-
mennirnir höfðu í hyggju að myrða
og slasa sem flesta. Fréttamyndir
og lýsingar frá Madríd bera vitni
hryllingi og skefjalausri grimmd.
Hryðjuverkin voru framin þremur
dögum fyrir þingkosningar á Spáni
og eru því tilræði við lýðræðið.
José María Aznar, forsætisráð-
herra Spánar, ávarpaði spænsku
þjóðina í gær og lýsti yfir því að
hryðjuverkamennirnir yrðu eltir
uppi og látnir svara til saka fyrir
glæpi sína: „Við munum hvergi
hvika andspænis morðum hryðju-
verkamanna. Hinir seku verða
dregnir fyrir rétt og dæmdir. Við
ætlum okkur algjöra og skilyrðis-
lausa upprætingu hryðjuverkastarf-
semi.“
Forsætisráðherrann sagði að
þriggja daga þjóðarsorg yrði í land-
inu vegna ódæðisverksins og bætti
við: „Hryðjuverk eru ekki gerð
blindandi. Þessir hryðjuverkamenn
vildu valda eins miklu tjóni og hugs-
ast gat. Þetta er fjöldamorð. Þeir
hafa myrt fjölda fólks bara fyrir það
að vera Spánverjar ... Það er úti-
lokað að einhverjar samningavið-
ræður fari fram við þessa morð-
ingja. Við stöðvum þessar árásir
eingöngu með óbilgjarnri stefnu.
Við munum hvergi hvika frá þeirri
stefnu, hvort sem þeir halda áfram
að drepa eða hætta því.“
Spænsk stjórnvöld rannsaka nú
vísbendingar, sem fram hafa komið
eftir tilræðin. Upptaka með upp-
lestri á arabísku úr Kóraninum
fannst ásamt sprengjubúnaði í
stolnum sendiferðabíl. Skömmu eft-
ir að greint var frá því barst yfirlýs-
ing, sem sögð voru frá hryðjuverk-
samtökunum Al-Qaeda, þar sem lýst
var yfir ábyrgð á hryðjuverkunum.
Aðrar vísbendingar hafa hins veg-
ar beint stjónum að Aðskilnaðar-
samtökum Baska, ETA, en samtökin
neita harðlega að hafa verið viðriðin
tilræðin. Á undanförnum mánuðum
hefur hins vegar ýmislegt bent til að
ETA hefði í hyggju að láta til skarar
skríða. Á aðfangadagskvöld tókst að
koma í veg fyrir að illa færi þegar
sprengjum hafði verið komið fyrir í
tveimur lestum á leið til Madrídar.
18. febrúar lýsti ETA yfir vopnahléi
í Katalóníu og mátti skilja að búast
mætti við hryðjuverkum annars
staðar á Spáni. Í lok febrúar gerði
lögregla upptækt hálft tonn af
sprengiefni, sem talið var ætlað
ETA. Var þetta talið bera því vitni
að samtökin hefðu breytt aðferðum
sínum og hygðust láta handahófs-
kennt ofbeldi leysa af hólmi árásir á
sérvalin skotmörk.
Jose Maria Aznar hefur farið gegn
ETA af harðfylgi. Hann hefur ekk-
ert færi gefið á samningum við að-
skilnaðarsamtökin. Talið er að ETA
beri ábyrgð á dauða 800 manna á
undanförnum 30 árum. Í lok áttunda
áratugarins voru hryðjuverk tíð og
allt að hundrað menn myrtir á ári.
Hins vegar var talið að máttur sam-
takanna færi þverrandi og bent á að
fórnarlömb samtakanna hefðu verið
þrjú árið 2003.
Þrjár sprengjur sprungu ekki
þegar tilræðið var framið og hefur
lögreglan getað rannsakað þær og
borið saman við sprengjur, sem
samtökin hafa notað í fyrri tilræð-
um. Leitt hefur verið getum að því
að öfgahópur innan ETA, sem for-
ustan hafi ekki ráðið við, hafi staðið
að hryðjuverkinu í gær. Þar hafi því
átt sér stað svipuð atburðarás og
innan Írska lýðveldishersins þegar
hryðjuverkið var framið í Omagh á
Norður-Írlandi árið 1998. Var sagt
að líkja mætti ETA við sært dýr,
sem hefði slegið frá sér með þessum
hræðilegu afleiðingum.
Margt er þó ólíkt aðferðum ETA í
þessum tilræðum. Engin viðvörun
barst áður en sprengjurnar
sprungu, en venjulega vara samtök-
in við áður en þau láta til skarar
skríða. Samtökin hafa áður framið
mörg tilræði samtímis, en ekki með
handahófskenndum árásum, sem
beinast að almenningi. Samræmdar
árásir af þessum toga einkenna
frekar aðgerðir Al-Qaeda, en ETA.
Hópar á vegum Al-Qaeda hafa verið
leystir upp á Spáni og vísbendingar
fundist um tengsl við ETA. Þá hafa
samtökin Al-Qaeda hótað að ráðast á
þau ríki, sem studdu Bandaríkja-
menn í innrásinni í Írak, þar á meðal
Spánverja. Í yfirlýsingunni, sem
barst í gær, segir að hryðjuverkið
hafi verið framið af sveitum Abu
Hafs al-Masri fyrir hönd Al-Qaeda á
Spáni vegna þess að Spánn sé ein
súlan í bandalagi krossfaranna.
Flokkur Aznars, Þjóðarflokkur-
inn, hefur meðal annars byggt kosn-
ingabaráttuna á afstöðunni til ETA
og Batasuna, hins pólitíska arms að-
skilnaðarhreyfingar Baska. Spænsk
stjórnvöld hafa bannað starfsemi
Batasuna á þeirri forsendu að hinn
pólitíski armur væri bundinn
hryðjuverkaarminum órjúfanlegum
böndum og þau neita að ræða við
ETA um kröfur samtakanna um
sjálfstæði Baska. Vera kann að til-
gangurinn með hryðjuverkinu í gær
hafi verið að sýna spænskum kjós-
endum fram á að svona yrði brugðist
við áframhaldandi harðlínustefnu í
garð ETA. Það er hins vegar mun
líklegra að ódæðið, sem framið var í
gær, muni hafa þveröfug áhrif og
styrkja stöðu Þjóðarflokksins.
Hryðjuverk eiga sér enga réttlæt-
ingu og þeim verður aðeins mætt
með því að koma lögum yfir þá, sem
að baki þeim standa. Hryðjuverkin í
gær munu ekki hefta framgang lýð-
ræðisins á Spáni og eiga ekki að
gera það. Samúð umheimsins er með
Spánverjum, en hryðjuverkamenn-
irnir verðskulda aðeins fordæmingu.
Með hryðjuverkunum í gær var
framið tilræði við lýðræðið. Þegar
reynir á innviði lýðræðisins kemur
styrkur þess í ljós.