Morgunblaðið - 28.03.2004, Síða 53

Morgunblaðið - 28.03.2004, Síða 53
áður langt undir eftirspurn með til- heyrandi afleiðingum fyrir foreldra þeirra. Í ofangreindri könnun kemur einnig fram að 216 börn voru um- fram leyfilegan fjölda hluta úr degi. Í flestum tilfellum mátti rekja það til skörunar hálfsdagsplássa þar sem barn fyrir hádegi var t.d. í vistun frá 8–12.30 og barn sem átti pláss eftir hádegi var mætt klukkan 12. Ekki er heimild fyrir þessu og væri strangt farið eftir lögunum mundu öll þessi 216 börn missa fóstru sína til við- bótar við þau sem frá þurfa að hverfa vegna nýrrar fjöldatakmörk- unar. Einu rökin sem gefin hafa verið upp fyrir þessum breytingum eru þau að svona sé þetta í Danmörku. Ég vona að ekki sé einhvers staðar verið að leggja drög að því að breyta Íslandi í konungsríki á sömu for- sendum. Hvergi nokkurs staðar hafa komið fram staðreyndir um að 5. barnið valdi meiri hættu á van- rækslu, slysum eða dauða. Auðvitað get ég vel skilið að höfundum drag- anna hafi gengið gott eitt til með þessari grein. Maður getur svo auð- veldlega ímyndað sér að 4 börn njóti betra atlætis einnar manneskju en 5. En af hverju þá bara ekki að fækka þeim enn frekar, aðeins það besta er nógu gott fyrir börnin okkar. Væri ekki æskilegast að börnin væru enn færri, kannski bara 2? Ég held reyndar að ekki sé sjálfgefið að fækkun barna hafi nokkur jákvæð áhrif, hvorki fyrir þau sjálf, foreldra þeirra, sveitarfélögin né heldur dag- mæðurnar. Ég er reyndar viss um að félagsmálaráðherra getur fengið það staðfest hjá starfsbróður sínum úr 16 systkina hópnum í landbún- aðarráðuneytinu. Aðrir gallar á drögunum Til viðbótar boðaðrar fækkunar barna hjá dagmömmum, er gagn- rýniverð sú breytingartillaga að ekki megi reka þessa þjónustu í sérrými dagmæðra sem ekki er hægt að flokka sem heimahús. Þær dagmæð- ur sem innréttað hafa húsnæði fyrir starfsemi sína verða því að loka starfsemi sinni. Einnig má gagnrýna kvaðir um að leiksvæði barnanna skuli að lágmarki vera 3 fermetrar fyrir hvert barn og virðist sem gert sé ráð fyrir að hvíldaraðstaða skuli þá ekki reiknuð inn í það rými. Þær dagmæður sem ekki búa yfir 12–15 fermetra leikherbergi fyrir utan svefnaðstöðu geta því bara sent við- skiptavini sína heim og fundið sér nýja vinnu. Börn eru víst und- anþegin reglunni góðu um að þröngt megi sáttir sitja, er ekki bara hægt að setja nálgunarbann fyrir hvert þeirra svo þau hafi sem minnst sam- skipti hvort við annað? Ég vona að þær dagmæður sem fá starfsleyfi skv. fyrirhugðum breyt- ingum geti a.m.k. talið sér mán- aðarlega 50–70 þúsund kr. af tekjum sínum í húsaleigu þar sem að lág- marki 2 herbergja íbúð þarf undir starfsemina. Það er auðvelt að trúa því að þær breytingar sem boðaðar eru séu börnum til góða en hvorki rök né tölulegar staðreyndir fylgja þar máli. Það eina sem leiða má gild rök fyrir er aukinn kostnaður hvort sem hann nú lendir á sveitarfélögum eða foreldrum, óhagræði við rekst- urinn og fækkun starfstéttar sem í dag er þó langt því frá að vera nógu fjölmenn til að anna eftirspurn. Sem foreldri set ég fram þá kröfu að gerð verði viðhorfskönnun hjá foreldrum sem eiga börn í vistun hjá dagmæðr- um um þá þætti sem ágreiningur er um áður en reglugerðin verður sett. ’Persónulega þætti méreðlilegt að dagmóðir sem starfað hefur áfalla- laust í nokkur ár öðlist rétt til að gæta 6. barns- ins allan daginn eða að vild. ‘ Höfundur er vörustjóri íslenskra bóka í Pennanum, Eymundsson og bókabúðum Máls & menningar. UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 28. MARS 2004 53 TVÆR leiðir eru nú til skoðunar varðandi þverun Kleppsvíkur; land- mótunarleið, sem liggur hjá Húsa- smiðjunni, og hábrú, sem kemur niður hjá Ikea. Leiðirnar þykja sambærilegar og því var ákveðið að fá mat á umhverfisáhrifum þessara tveggja leiða sérstaklega þar sem aðrir kostir þóttu ekki jafn góðir. Enn liggur ekki fyrir umhverf- ismat á þessum leiðum Sundabrautar, en nauðsynlegt er að skoða hvernig öryggi og nýtingu þeirra verður háttað. Dagur B. Eggertsson segir í Morgunblaðinu hinn 22.mars síðastliðinn að Sundabraut sé komin rækilega á dagskrá og er þess því að vænta að innan tíðar verði loks tekin ákvörðun um staðsetningu Sundabrautarinnar og er það vel. Veðurfar hér á landi er þannig að það er ekki alltaf ákjósanlegt að aka hvað þá hjóla eða ganga á brú sem er 60 metra yfir sjávarmáli þar sem hún er hæst. Til samanburðar þá er Hallgrímskirkjuturn 72 metrar og 13 hæða blokk er um 35 metrar. Það kann vel að vera að við gleymum því á góðum dögum hvernig veðrið get- ur leikið okkur hér norður í Atlants- hafi, en það er staðreynd að það er oft leiðindaveður hér, rok, rigning, hálka, slabb og svo mætti lengi telja. Við viljum öll reyna að auka hlut- fall þeirra sem fara hjólandi, skokk- andi, á línuskautum, gangandi eða með öðrum umhverfisvænum leiðum um götur borgarinnar. Sundabraut- in mun verða ein mesta samgöngu- bót höfuðborgarsvæðisins í langan tíma og því verður að líta til þess hvernig hún nýtist þeim sem vilja, á umhverfisvænan hátt, fara til og frá vinnu eða annarra erinda. Ég tel afar mikilvægt að tekið verði sérstakt tillit til öryggis og nýt- ingarmöguleika þess- ara leiða þegar ákvörð- un um legu brautarinnar verður loks tekin. Auðvitað er margt annað sem þarf að taka mið af áður en ákvörðun verður tekin. Hvort umferðin komi hjá Húsasmiðju eða Ikea get ég ekki séð að skipti öllu máli varð- andi þann fjölda sem mun kjósa að fara í átt að miðbæ Reykjavíkur. Starfsemi miðbæjarins stendur ekki og fellur með því hvort umferð Sundabrautar kemur að landi við Ikea eða Húsasmiðjuna, þau rök eru einfaldlega ekki gild. Það sem skiptir mestu máli varðandi miðbæinn er það sem þangað verður að sækja og hvernig umferð- armannvirkjum verður háttað þegar umferðin kemur inn á Sæbraut- ina. Það er sérfræðinga okkar að út- færa þá hlið málsins þannig að allir geti vel við unað. Aðalatriðið í mín- um huga er að brautin geti nýst þeim sem vilja nota hana, jafnvel í roki og rigningu. Innri leiðin, svo- kölluð landmótunarleið, sem nú er til skoðunar er miklu áhugaverðari að þessu leyti. Umhverfisvænir vegfarendur eftir Sundabraut Jórunn Frímannsdóttir fjallar um Sundabraut Jórunn Frímannsdóttir ’Veðurfar hér álandi er þannig að það er ekki alltaf ákjós- anlegt að aka hvað þá hjóla eða ganga á brú sem er 60 metra yfir sjávar- máli.‘ Höfundur er varaborgarfulltrúi og fulltrúi Sjálfstæðisflokksins í um- hverfis- og heilbrigðisnefnd.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.