Morgunblaðið - 14.05.2004, Page 31
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 14. MAÍ 2004 31
Tónskóli Þjóðkirkjunnar
Tvennir nemendatónleikar verða
haldnir um helgina. Fyrri tónleik-
arnir verða í Hallgrímskirkju kl.12 í
dag. Nemendur Björns Steinars
Sólbergsonar leika á orgel. Seinni
tónleikarnir verða í Grensáskirkju
kl. 12 á morgun, laugardag. Þar
koma fram nemendur í orgelleik og
söng.
Tónlistarskóli
Hafnarfjarðar, Hásalir
Fyrstu vortónleikar Tónlistar-
skóla Hafnarfjarðar verða á laug-
ardag kl. 15. Kammersveita tónlist-
arskólans flytur verk eftir H.
Purcell, Vivaldi, Samuel Barber og
J.S. Bach. Einleikarar eru Sveinn
Þórarinsson á gítar, Huld Haf-
steinsdóttir og Sigrún K. Jónsdóttir
á fiðlur. Stjórnandi er Óliver Kent-
ish. Tónleikar Kórsmiðjunnar verða
á mánudag kl. 18. Nemendur smiðj-
unnar og jafnframt yngstu nemend-
ur skólans syngja og leika undir
stjórn Brynhildar Auðbjargardótt-
ur. Tónleikar framhaldsdeildar
verða þriðjudaginn 18. maí kl. 20.
Fram koma nemendur sem lengst
eru komnir í námi. Vortónleikar
grunndeildarinnar eru miðvikudag-
inn 19. maí kl. 18 og tónleikar mið-
deildar sama dag kl. 20.
Almenni Músíkskólinn og
Harmonikumiðstöðin
Vortónleikar skólans verða haldn-
ir í Ráðhúsi Reykjavíkur, verða kl.
14.30 á sunnudag. Í lokin leika
Skæruliðarnir, 30 manna hljómsveit
eldri nemenda Almenna músíkskól-
ans, nokkur lög. Í kjölfarið, kl. 16
verða harmonikutónleikar. Þar
koma fram margir af kunnustu
harmonikuleikurum landsins, þeirra
á meðal Jóna Einarsdóttir, Örvar
Kristjáns, Garðar Olgeirsson,
Sveinn Rúnar Björnsson og syst-
urnar Ása og Hekla Eiríksdætur.
Ungir harmonikuleikarar
Harmonikunemendur úr tónlist-
arskólum landsins haldið í landsmót
með tónleikum í félagsheimilinu Ár-
garði í Skagafirða á laugardag. Tón-
leikarnir hefjast kl. 15. Það er Fé-
lag harmónikuunnenda í Skagafirði
og Samband íslenskra harmóniku-
unnenda sem standa að lands-
mótinu.
Tónlistarnemar leggja boga á streng.
Nemenda-
tónleikar
Þjóðleikhúsið kl. 19 Aukasýning á
Sorgin klæðir Elektru eftir Eugene
ÓNeill. Þetta er allra síðasta sýning.
Í DAG
Háteigskirkja kl. 14 Kamm-
ertónleikar verða haldnir á vegum
Tónlistarskólans í Reykjavík. Yngri
strengjasveit skólans leikur undir
stjórn Sigurgeirs Agnarssonar og
flautukvartett, klarínettukór og
málmblásarasveitir flytja nokkur
verk.
Sjá einnig Staður og stund á mbl.is
Á MORGUN
FIMM af nemendum Söngskólans í Reykjavík ljúka í
vor framhaldsprófi í einsöng og jafnframt alþjóðlegu
8. stigs prófi The Associated Board of The Royal
Schools of Music í London. Þetta eru fyrstu nemend-
urnir sem ljúka framhaldsprófi frá Söngskólanum,
skv. nýrri námskrá menntamálaráðuneytisins í ein-
söng.
Prófi telst þó ekki lokið fyrr en nemendur hafa
haldið tónleika og eru því framundan einsöngs-
tónleikar, lokaáfangi prófsins, í tónleikasal Söngskól-
ans, Snorrabúð, Snorrabraut 54. Í kvöld kl. 20 flytja
Ásgeir Páll Ágústsson baríton og Þorvaldur Þorvalds-
son bass-baríton íslensk og erlend sönglög, söngva úr
söngleikjum og óperuaríur, auk þess að syngja saman
nokkra „Glúnta“. Miðvikudaginn 19. maí kl. 20 syngja
Svafa Þórhallsdóttir sópran, Dóra Steinunn Ármanns-
dóttir mezzó-sópran og Jón Leifsson baríton úrval ís-
lenskra og erlendra sönglaga, þ.m. er frumflutningur
á einsöngslagi eftir einn nemenda skólans, Dagbjörtu
Jónsdóttur. Einnig verða fluttar aríur, dúettar og tríó.
Útskriftarnemar Söngskólans í Reykjavík. F.v. Ásgeir
Páll, Svafa, Jón, Dóra Steinunn og Þorvaldur.
Próf og tónleikar
Söngskólans