Morgunblaðið - 23.09.2004, Síða 21

Morgunblaðið - 23.09.2004, Síða 21
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 23. SEPTEMBER 2004 21 NEYTENDUR kótilettum eða lambalærissneiðum á pönnuna.“ Flatkökur eru góður matur Magnús segist reyna að hafa alla fæðuflokkana í huga þegar hann kaupir í matinn og hollustan má ekki verða útundan. Ferskt salat lendir í körfunni hjá honum og eins tínir hann til bláber og jarðar- ber og rjómi finnst honum ómiss- andi út á þau fínheit. Eins vill Magnús hafa rjóma út á skyrið sitt og í kælinum tekur hann líka nokkrar dósir af uppáhaldsjógúrt dótturinnar. Magnús er nokkuð þjóðlegur í vöruvali sínu og ís- lenskar flatkökur vill hann hafa í sinni matarkörfu og honum er ekki sama hvaðan þær koma, en lætur ekkert meira uppi um það. Sem Magnús Ingólfsson smið-ur býr einn meðeinkadóttur sinniSvölu og hann hleypur í matarinnkaupin þá sjaldan tími gefst til þess. Best finnst honum að versla einhvers staðar nálægt heimilinu og þar sem þau feðginin búa í Grafarvogi verða Nóatún og Bónus í næsta nágrenni oftast fyr- ir valinu. Í þetta skiptið fór hann í Krónuna í Húsgagnahöllinni, af því hann var staddur þar til að fá sér í svanginn í bakaríinu ásamt vinnu- félaga sínum. „Mér finnst best að versla í matvörubúð þar sem ég rata vel um og veit hvar hlutirnir eru,“ segir Magnús sem sér að mestu um matseldina á heimilinu en þó segir hann Svölu einstaka sinnum elda. „Það er þá einna helst eitt- hvert núðludót eða annað í þeim dúr sem henni þykir gott en ég kalla ekki mat. Ég læt mig samt hafa það að borða þetta. Annars borðar hún oftast staðgóðan mat á heimili bróður míns sem býr við hliðina á okkur og það kemur sér mjög vel, því ég vinn mikið og er ekki alltaf heima til að elda handa henni. Auk þess stendur hún í þeirri trú að ég geti ekki eldað, sem er auðvitað ekki rétt, og þar af leiðandi er hún ekkert sérlega spennt fyrir því sem ég malla.“ Hafragrautur um helgar Magnús segir matarmálin á sínu heimili mjög frjálsleg. „Við Svala erum ekkert sérlega samstiga þeg- ar kemur að mat, eiginlega er þetta þannig að ég sé um mig og hún um sig. Hún borðaði alltaf í mötuneyti skólans þegar hún var í grunnskóla en nú er hún byrjuð í framhaldsskóla og þá læt ég hana hafa aura svo hún geti keypt sér eitthvað í gogginn og það er ef- laust misjafnlega hollt. En hún skammar mig bara ef ég geri at- hugasemdir um hollustuna.“ Magnús segir Svölu enga matar- lyst hafa á morgn- ana en hann fær sér aftur á móti súrmjólk með ein- hverju kruðeríi út í. Um helgar segist hann stundum hafa tíma til að elda sér hafragraut á morgn- ana. Heitan mat fær Magnús í hádeg- inu á virkum dögum í mötuneyti fyrirtækisins sem hann starfar fyr- ir. „Þegar ég elda heima er það helst hefðbundinn hversdagsmatur og oftast er það fiskur eða kjöt. Ég steiki gjarnan hakk og spæli egg með og stundum skelli ég grísa- álegg á þær vill hann hafa hangi- ket eða ost. Hann teygir sig í harð- fisk og segist alltaf eiga hann til en oftast kaupi hann slíkt sælgæti beint af vinnufélaga sínum sem kemur með fisk að vestan. Grillaðir bananar með súkkulaði Magnús læðir ýmsu í körfuna sem hann veit að dóttur hans finnst gott að gæða sér á, eins og brauðstangir og Doritos-snakk í bláum pokum en sjálfur er hann ekki af snakk-kynslóðinni. Drykk- ur í grænni flösku sem heitir Mountain dew sem og Mix eru líka ómissandi fyrir stelpuna. Hún drekkur ekki mjólk en appelsínu- safi þarf að vera til fyrir hana. Fyrir sjálfan sig kaupir hann orku- drykk til að hella í sig þegar hann er orðinn lúinn en neyðist til að vinna áfram. Í nammideildinni er það hreint rjómasúkkulaði frá Nóa-Síríus sem lendir í körfunni og einnig Pipp- súkkulaði sem hann segir mjög gott að setja ofan í langskorna banana sem hann skellir stundum á grillið. Annars heldur Magnús eiginlega tvö heimili því hann er ævinlega með annan fótinn í Vík í Mýrdal þar sem hann hefur gert upp hús foreldra sinna þar sem hann ólst upp. „Þá kaupi ég kannski svolítið öðruvísi inn, læt meira eftir mér og kaupi frekar eitthvert bakkelsi með kaffinu.“  HVAÐ ER Í MATINN? | Magnús Ingólfsson hefur alla fæðuflokka í huga þegar hann kaupir í matinn Á alltaf til harðfisk „Ég steiki gjarnan hakk og spæli egg með og stundum skelli ég grísakótilettum eða lambalærissneiðum á pönnuna,“ segir Magnús Ingólfsson. Morgunblaðið/Árni Torfason Magnús: Var ekki lengi að spekúlera við matarhillurnar, hann vissi alveg hvað hann vildi. khk@mbl.is Magnús er nokkuð þjóðlegur í vöruvali sínu og íslenskar flat- kökur vill hann hafa í sinni matarkörfu Barnasandalar FIMMTUDAGS- TILBOÐ Verð áður 2.995 kr. Verð nú 1.495 kr. Litur: Bleikt og blátt Stærðir: 20-24 Suðurlandsbraut 54, sími 533 3109 frá www.afs.is info-isl@afs.org 552 5450 Tökum á móti umsóknum vegna skiptinemadvalar fyrir 15-18 ára. Spennandi lönd í boði. Brottfarir janúar-mars 2005. Umsóknarfrestur vegna ársdvalar og hálfsársdvalar rennur út 15. október. Skiptinemar skiptamáli ÁSKRIFTARDEILD netfang: askrift@mbl.is, sími 569 1122

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.